Dagur - 10.10.1998, Side 14

Dagur - 10.10.1998, Side 14
30 - LAUGARDAGVR 10. OKTÓBER 1998 X^MT Hárið Místrað, húðin feit Fæstir viljcL hafafeitt hár en það virðist óhjákvæmilegur fylgifiskur unglingsáranna. Góð ráð eru alltafvelþegin og hér segir Helena Hólm hárgreiðslumeistari fráýmsu sem komiðgeturað notum. Fitugt hár og bólur eru hryllingur tánings- ins sem svo gjarnan vill líta vel út. Með kynþroskanum fara hormónar líkamans á fullt og miklar breytingar eiga sér stað. Þá vill hárið gjarnan fitna mjög og hjá sum- um er hárið feitt alla ævi þó mest beri á því í kringum kynþroskaaldurinn. Hvað er til ráða? Helena Hólm er hár- greiðslumeistari sem þekkir vel til slíkra vandamála. Hún segir ýmsa þætti hafa áhrif á hárið fyrir utan það að fiturkirtlar starfa mismikið í fólki. „Það er af sem áður var að fólk þvoði á sér hárið mánaðarlega eða í mesta lagi vikulegá," segir hún. „Nú á dögum vill fólk vera hreint og snyrtilegt og hárið þarf helst að glansa af hreinlæti alla daga. Sem þýðir einfaldlega það að fólk þarf að þvo hárið daglega eða því sem næst. Það er allt í lagi að þvo hárið daglega með þeim sjampóum sem í boði eru í dag, þau eru orðin mild og þannig að engin hætta er á því að maður noti of mikið. Og ef fólk passar bara að kaupa gott sjampó frá við- urkenndum aðila, fyrir hárgerðina sem það hefur þá fer það vel með hárið.“ Sleppa kóki og snakki Helena segir unglinga þurfa að þvo hárið tvisvar í hvert skipti sé það feitt. Ein um- ferð dugar alls ekíd og allt of oft maki þau mikilli sápu í hárið í þeirri von að einu sinni sé nóg, en miklu betra sé að nota minni sápu og þvo tvisvar og skola vel á milli. „Ef gott sjampó er notað þarf ekki nema ofurlítið af því í hvert skipti og þeg- ar það freyðir þá vinnur það best,“ segir hún. Annað sem getur haft áhrif á hárið er mataræðið. „Unglingum hættir til að borða mikið af sælgæti og mat sem er of feitur, þá annað hvort steiktur í fitu eða með mikilli feitri sósu. Þetta hefur bein áhrif á hárið og fitar það, þannig að bara það að minnka fitu og sykur getur orsakað að hárið fitnar mun minna.“ Ekki snerta! Unglingum er gjarnt að vera sífellt að fikta í hárinu á sér, greiða það og bursta og hreyfa til. Helena segir alla slíka örvun hafa áhrif á fitukirtlana sem þá um leið gefa frá sér fitu. Og um Ieið og hárið er orðið feitt og krakkarnir handleika það fá þau fituna á hendurnar. Svo nudda þau ennið og nefið og fá bólur í framhaldi af því. Þannig að þetta er allt samtengt hveiju öðru. „Grundvallarreglurnar fyrir hirðingu hársins ef það er feitt, eru einfaldar. Þvo hárið oft með mildu sjampói sem hentar feitu hári,“ segir Helena. „Sápuþvo það tvisvar í hvert skipti sem það er þvegið og láta freyða vel. Auðvitað væri æskilegt að halda hárinu stuttu því það er miklu ein- faldara að halda stuttu hári hreinu en síðu, en smekkur fólks er misjafn. Svo þarf að borða rétt og passa að ekki sé of mikil fita og sykur í matnum, með öðrum orðum að sleppa snakkinu og kókinu. I síðasta lagi að vera ekki sífellt að fikta í því. Greiða það vel en ekki of oft yfir dag- inn og ekki nudda hársvörðinn." HEILSUMOLAR Að borða möndlur getur minnkað kól- esterolmagn hjá fólki. 45 manns sem allir voru með svipað kólesterolmagn voru látnir á þrenns konar matarræði. Einn hópurinn fékk mat þar sem ólífuolía var í aðalhlutverki, næsti mjólkumat og þriðji hópurinn fékk möndlur í hvert mál. Eftir fjórar vikur kom í ljós að þeir sem fengu möndlurnar höfðu um 16 mg/dL (milli- gröm í dl) minna af kólesteroli en þeir sem fengu ólífuoíuna og um 33 mg/dL minna af kólesteroli en þeir sem borðuðu mest af mjólkurmatnum. „Borðið handfylli af möndlum fimm sinnum í viku,“ segir einn sérfræðingurinn. I Harward hafa menn komist að raun um það að sé C og D vítamínmagnið lágt í líkamnum geti það aukið upptöku blýs úr drykkjarvatni og málningu og þeim hlut- um sem innihalda blý. Margir af íþróttadrykkjunum sem nú eru svo vinsælir hafa mjög hátt sýrustig og tannskemmdir vegna þeirra færast í vöxt. Börn sem búa í umhverfi þar sem mikill hávaði er, eiga erfiðara með að læra að lesa en önnur börn vegna þess að þau greina og þekkja mælt mál verr úr hávað- anum. Tveir þriðju af breskum konum er fá hormónameðferð fá svo miklar aukaverk- anir að þær hætta í meðferðinni innan árs. Samkvæmt skýrslu í breska tímaritinu Pediatrics fá börn í Bandaríkjunum meiri- hluta vítamína sinna úr morgunkorni og ávaxtadrykkjum sem búið er að vítamín- bæta þrátt fyrir það að náttúrulegur mat- ur sé álitinn mun betri hvað varðar vítamín og steinefni en tilbúinn matur. Frá sjónarhóll manneskju Mér hefur lengi verið hugleikið að karlar og konur virðast ekki alltaf vilja það sama. En við nánari umhugsun finnst mér ekki rétt að flokka mannkynið í karla og konur þegar rætt er til dæmis um til- finningar og kynlíf. Við getum aldrei sett fram einhveijar fullyrð- ingar og sagt: Karlar vilja svona og konur svona. Manneskjan er ekki það einföld smíð. En samt eigum við það sameiginlegt að vera manneskjur. Karlar og konur virðast gera sér mismunandi hugmyndir um ýmislegt í kynlífinu og þegar verulegur munur verður á hugmyndum karls og konu í því sambandi getur það leitt til vandamála sem erfitt reynist að leysa. Mismun- andi langanir, áherslur og hugmyndir verða stund- um til þess að viðkomandi einstaklingar íjarlægjast og á endanum virðist um óleysanlegt vandamál að ræða. Samræður hjóna eða para um langanir þeirra og þrár eru auðvitað góðra gjalda verðar og þær skyldi enginn vanmeta. En geta samræður leyst öll okkar vandamál? Hið sameiginlega Það er í raun dálítið erfitt að skrifa um kynlíf. Þegar við hugleiðum okkar dýpstu langanir og þrár á því sviði hætt- ir okkur til að líta á sjálf okkur sem algjörlega frábrugðin öðrum manneskjum. Við höldum að okkar eigin hug- myndir séu algjörlega okkar og enginn - enginn! - hafi hugsað neitt þessu Iíkt áður. Oft fyrirverðum við okkur vegna þessara hugsana sem þó er í sjálfu sér ekkert rangt né heilsuspillandi við. Saga mannkyns geymir ótal dæmi af fordæmingu eðlilegra hluta. Enn í dag deilum við um hvað er eðlilegt og hvað ekki. En eins og í svo mörgu öðru svipar hjörtunum saman í Súdan og Grímsnesinu. Við erum manneskjur af holdi og blóði og ég er viss um að flestar okkar hugsanir hafa ver- ið hugsaðar áður einhversstaðar í heiminum. Við ættum því ekki að skammast okkar fyrir hugsanir okkar, hugar- óra og hugmyndir um kynlíf - hugmyndir sem við höldum að séu nýjar, ósiðlegar, móðgandi, óeðlilegar og jafnvel heilsuspillandi. Það er ekkert rangt við að láta hugann reika um kynlíf frekar en annað. Sem betur fer höfum við flest þá siðferðiskennd sem dugar til að skilja milli þess heilbrigða og sjúklega. Við erum fólk Hugmyndaríkur einstaklingur ætti að geta lifað skemmtilegu kynlífi, á sama hátt og hugmyndarík- ur einstaldingur getur lifað skemmtilegu lífi al- mennt. Kynlífið er nefnilega hluti af mannlegu eðli og jafn sjálfsagður hluti og að fá sér morgunverð, taka bensín á bílinn, kaupa í matinn, fara í leikhús, horfa á knattspyrnuleik eða hvað annað. En spurn- ingin stendur enn: Þurfa karlmenn annað en kon- ur? Já og nei segi ég. Já, við erum öðruvísi. Nei, öll erum við manneskjur. Og ég segi líka: Karlmenn eru ólíkir innbyrðis, og það eru konur líka. Flókið? Nei. Munur á tilfinningalífi fólks markast ekki ein- göngu af því að ég er karlmaður og þú kona. Mín skoðun er sú að sá munur markist jafn mikið af ýmsum öðrum þáttum og þvf geti verið jafn mikill munur á því hvað kona A vill og þarf og því sem kona B vill og þarf, eins og munur á milli karls og konu. Heimurinn er ekki svarthvítur og það er rangt að flokka hann í karla og konur. Við erum fólk. Og sem betur fer er ekkert rangt við okkur flest. Haraldur Ingólfsson er dhugamaöur og skrifar um kyn- líffyrir Dag t afleysingum fyrir Halldóru Bjamadóttur. KYIMLÍF

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.