Dagur - 20.10.1998, Blaðsíða 1
Allar atvinnu-
lóðir eru búnar
Búið er að úthluta
náuast öllum atviunu-
húsalóðum í Reykja-
vík, Kópavogi, Garða-
hæ og Hafnarfirði.
„Það hefur verið óvenju mikil
eftirspurn eftir atvinnulóðum
þetta ár og það síðasta. Lóðir
sem hafa staðið tilbúnar í þó
nokkur ár og ekkert hreyfst,
hafa nú rokið út,“ sagði Agúst
Jónsson skrifstofustjóri hjá Borg-
arverkfræðingi Reykjavíkur. Eftir
afgreiðslu fyrirliggjandi umsókna
muni láta nærri að allar skipu-
lagðar atvinnulóðir verði búnar -
nema á Esjumelum á Kjalarnesi.
En byggi menn hins vegar á öll-
um þessum lóðum losni venju-
Iega húsnæði á móti.
Grafarholtið á teihniborðmu
Varðandi framtíðina segir Agúst
að verið sé að vinna deiliskipulag
nýs íbúðasvæðis í Grafarholti og
rætt sé um að athafnalóðum
undir starfsemi af ýmsu tagi
verði komið fyrir norðvestantil í
holtinu. Vænt-
anlega verði
hægt að hefja
úthlutun þeirra
næsta vor og
þær verði síðan
byggingarhæfar
öðru hvoru meg-
in við áramótin
2000. Ágúst er
þegar kominn
með umsóknir
um lóðir á þessu
nýja svæði.
Menn sjái ýmsa
kosti við að vera
þarna við Vest-
urlandsveginn.
200.000 m2 í byggingu í
Kópavogi
„Það er allt farið hjá okkur. Enda
hátt í 200.000 fermetrar sem
verið er að byggja hérna kringum
Reykjanesbrautina, verslunar-,
skrifstofu- og iðnaðarhúsnæði.
Þetta verður væntanlega allt full-
byggt eftir 2-3 ár,“ sagði Birgir
Sigurðsson á tæknideild í Kópa-
vogi. „Fyrir svona 2-3 árum vor-
um við á höttunum eftir fyrir-
tækjum. Það var m.a.s. svo
slæmt að við vorum að biðla til
verktaka um að taka að sér eina
og eina lóð þarna við Reykjanes-
brautina, en enginn vildi hlusta
á okkur. Breytingin var svo snögg
að nú getum við ekki annað eft-
irspurn og fermetraverðið á at-
vinnuhúsnæði þarna er orðið
svipað og á íbúðarhúsnæði,"
sagði Birgir sem liggur með um-
sóknir sem ekki er hægt að
sinna. Smáreit (15.000 m2) sé að
vísu óráðstafað gegnt Smára-
torgi, en verði ekki úthlutað að
sinni.
Ekkert að bjóða í Garðabæ
„Við höfum í rauninni ekkert að
bjóða. Það eru aðeins 1-2 lóðir
lausar og það er bara vegna þess
hvað þær eru erfiðar. Menn bíða
bara eftir því hvort einhverjir
falla kannsld frá,“ sagði Guðjón
Friðriksson bæjarritari í Garða-
bæ. Mjög hafi gengið á Iandið
þegar Marel fékk um 46.000 fer-
metra, sem jafngilda um tíu lóð-
um.
36 innsækjendur tiin 6 lóðir
,/4itli það hafi ekki verið úthlut-
að 20 lóðum undir iðnaðarhús-
næði í sumar. Fyrir svona tveim-
ur árum hreyfðust ekki lóðirnar
hjá okkur, en þær ruku eiginlega
út á nokkrum vikum í sumar. Við
skipulögðum t.d. lítið svæði með
6-7 lóðum ofan við höfnina og
36 sóttu um þær,“ sagði Kristinn
Magnússon bæjarverkfræðingur
í Hafnarfirði. Að vísu sagði hann
til byggingarhæfar lóðir á stærsta
iðnaðarsvæði landsins; Hellna-
hrauni gegnt Straumsvík. — HEI
Óhappahrina vegna fyrstu snjóa.
Stórfellt eignatjón vegna vanbún-
aðar. Hvatt til notkunar vetrar-
dekkja og almennrar aðgæslu.
Banaslys
við Ilúsavík
Banaslys varð rétt sunnan við
Húsavík við Kaldbak um klukkan
09.00 í gærmorgun. Vörubifreið
var ekið suður veginn í miklum
krapaelg og fór út af. Bíllinn valt
og ökumaður, karlmaður á sex-
tugsaldri, varð undir honum.
Engin bílbelti voru í vörubifreið-
inni, enda er hún nokkuð komin
til ára sinna. Lítið sást á húsi
bílsins að sögn lögreglunnar á
Húsavík.
Önnur bílvelta varð í umdæmi
lögreglunnar á Húsavík í gær.
Jeppabifreið fór út af við Höfða í
Mývatnssveit, en meiðsli urðu
minniháttar á fólki. Tvennt var í
bílnum, kona og barn. Fjölmörg
önnur umferðaróhöpp hafa orð-
ið að undanförnu á landinu sem
rekja má til hálku og annarra að-
stæðna sem snjóalög hafa skap-
að.
Minnimfor-
sjóður
Stofnaður hefur verið minning-
arsjóður um Guðrúnu Katrínu
Þorbergsdóttur, forsetafrú, sem
lést þann 12. október síðastlið-
inn eftir erfið veikindi. I tilkynn-
ingu frá Ólafi Ragnari Gríms-
syni, forseta, segir að fjölskyld-
unni hafi borist óskir og tilmæli
um stofnun minningarsjóðs og
ákveðið að verða við því. Sjóður-
inn verður helgaður þeim mál-
efnum sem forsetafrúnni voru
hugleikin, einkum heilbrigði,
menntun og listsköpun ungs
fólks.
Framlög í minningarsjóðinn
verða skráð í sérstaka stofnenda-
skrá Minningarsjóðs Guðrúnar
Katrínar Þorbergsdóttur. Þeim
sem vilja minnast forsetafrúar-
innar með framlögum í minning-
arsjóð hennar er vinsamlega
bent á reikningsnúmerið
140800, sem merkt hefur verið
sjóðnum í öllum bönkum og
sparisjóðum landsins.
Fólk streymdi til Bessastaða í gær og fyrradag til þess að skrifa nafn sitt í minningarbók um Guðrúnu Katrínu
Þorbergsdóttur, forsetafrú, en útför hennar verður gerð frá Hallgrímskirkju á morgun. - mynd: teitur
Óhappabrina
Á Akureyri urðu 9 umferðaró-
höpp á sunnudag sem að sögn
varðstjóra tengjast langflest
hálku og í gærmorgun urðu tveir
árekstrar. Mikið eignatjón hefur
orðið og hvetur lögregla lands-
menn til að skipta yfir á vetrar-
dekkin, enda er víða ekki hægt
að komast leiðar sinnar án
þeirra. Á Akureyri var gífurlegt
annríki í gær á dekkjaverkstæð-
um eitt það mesta í manna
minnum að sögn viðmælanda.
Um 60 bílar biðu afgreiðslu hjá
Höldi fyrir hádegi í gær og svip-
aða sögu var að segja víðar.
Ekkert útlit er fyrir að snjóinn
taki upp á Norðurlandi á næstu
dögum en lítil snjóalög eru
sunnanlands. „Með aðgæslu og
réttum búnaði er hægt að koma í
veg fyrir gífurlegt tjón,“ sagði
varðstjóri hjá lögreglunni í sam-
tali við Dag. Færð spilltist víða
um helgina en hefur verið að
komast í sæmilegt horf. Það gæti
þó orðið skammgóður vermir, því
á morgun spáir Veðurstofan
hugsanlegum hvelli. — BÞ
Mfl S5W JBf WttfsEEzs wfítow/ne express Afgreiddir samdægurs QM Venjulegir og demantsskomir
EITT NÚMER AÐ MUNA trúlofunarhringar
5351100 GULLSMIÐIR XMj) SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI ■ SÍMI 462 3524