Dagur - 20.10.1998, Síða 2

Dagur - 20.10.1998, Síða 2
T^ir 2 - ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1998 FRÉTTIR Pétur Sveinbjarnarson framkvæmdastjóri Þróunarfélags Reykajvíkur hefur áhyggjur afþróuninni í Kvosinni í Reykjavík og segir hættu á að hún muni virka eins og „skemmt epli“ gagnvart öðrum svæðum í miðborginni. Búðum í Kvosinni fækkar og fækkar Verslimum í Kvosinni hef- ur fækkað um fjórðung á aðeins tveim árum. Þró- imin leiðir til verðfalls, fleiri afbrota og óþrifa á almannafæri. „Hættan er sú að núverandi ástand í Kvosinni virki sem „skemmt epli“ gagnvart öðrum svæðum miðborgar- innar," segir Pétur Sveinbjarnarson framkvæmdastjóri Þróunarfélags Reykjavíkur í skýrslu um stöðu versl- unar í miðborginni. Sé nú svo komið fyrir hinni upphaflegu kaupstaðarlóð, sem lengstum hafi verið dýrasta og eft- irsóttasta verslunarsvæði landsins, að verslunum hafi fækkað þar um fjórð- ung á tveim árum - aðeins 51 sé eftir. Alls 347 búðir sé nú að finna í mið- borginni allri (Rauðarárstíg-Ingólfs- torg) og hafi fækkað um 25 á tveim árum. Ráðamenn afskrifað Kvosina Þrátt fyrir ítrekuð varnaðarorð virðist Pétri sem ráðamenn hafi afskrifað Kvosina sem verslunarsvæði. Starfsemi einkennist þar af opinberri þjónustu og bönkum á daginn og krám og veitinga- húsum á kvöldin. Þróunin geti leitt til verðfalls og lélegs viðhalds fasteigna, Ijölgunar afbrota, óþrifa á almannafæri og síðar margs konar félagslegra vandamála. Miðborgin sé komin í sömu stöðu og ráðamenn margra er- lendra miðborga hafi lengi þurft að horfast í augu við. Rangar ákvarðanir í skipulagsmálum séu meginástæða hnignunar og síðan hvað seint sé við henni brugðist. 70 þúsimd m2 áður en byrjað er Miðborg Reykjavíkur sé þó enn stærsta atvinnusvæði landsins. Um 8.000 manns mæta til vinnu á daginn, 7.400 í skóla og 3.000 manns búa þar. Að- gerðir til fjölgunar verslana eigi að vera forgangsmál. Byggja þurfi nýtt hús- næði, því verulegur hluti húsnæðis þar uppfylli ekki lengur þær kröfur sem gerðar eru til verslunar- og þjónustu- húsnæðis. En þar sem hver fermetri í nýju verslunarhúsnæði í miðborginni kosti 60-70 þúsund krónur áður en framkvæmdir hefjast - þ.e. í lóðarverði, niðurrifi bygginga og gjöldum - muni Qárfestar ekki líta á hana sem fyrsta valkost við óbreyttar aðstæður. Ekki búðir í önnur hverfi Æskilegt væri hvetja menn til fram- kvæmda með því að fella tímabundið niður bílastæðagjöld. Jafnframt þurfi að gæta þess að grafa ekki undan mið- borginni með uppbyggingu verslunar í öðrum borgarhlutum og sporna við breytingu iðnaðarhverfa í verslunar- hverfi, sem síðan keppa við miðborg- ina. -HEI FRÉTTAVIÐ TALIÐ Engunt dettur í hug að Þor- steinn Pálsson sé ekki með ör- uggt starf eftir að ráðherra- dómi sleppir. Brotthvarf hans úr pólitík er tcngt við lausan ritstjórastól á Mogganum. Þor- steinn hættir næsta vor, fer á biðlaun í svo sem hálft ár og þá passar nokkum veginn að ganga iim á skrifstofu Matthí- asar Johaimcssens sem hættir sjötugur. Moggi og Þorsteinn hafa fráleitt sömu „sjáv- arútvegsstefnu" svo menn þar hmi á gafli telja nánast óhugsandi að Þorsteinn komi. Á hitt er bent að vel kami að vera líklegt að eigendum blaðsins þyki oröið nóg irni „krossferðina" fyrir veiðigjaldi og vilji skrúfa Styrmi niður. Matthías Johannessen. „Atgcrvisflótthin" úr flokkn- um þegar Þorstehm og Friðrik cm báðir famir opnar skotlhi- ur fyrir Bjöm Bjamason og Geir Haardc, sem báðir teljast til næstu þungavigtannaima. Varaformannsslagurhm næsta vor lofar góðu, því fáir telja ------- líklegt að Davíð Oddsson verði „eilíföarpólitíkns" frekar en þcir. Davið, Þorstehm og Frið- rik cra allir í kringum fimmtugt, öll ráðherralífeyris- réttindi cra í höfn og góðum störfum í atvhmullfhiu fækkar þegar líður á sextugsaldurinn. Þeir cra því á sömu skútuimi i þcssum efmun og meim spá hvarfi stóra mamisins þegar næsta kjörthnabil nálgast lok. En það er víðar en í Sjálfstæðisflokknum sem tekist er á og nú hcnna fréttir að átökhi um forustuna hjá samcin- uðum jafnaðarmömium séu að harðna. Skoðanakönn- un DV í gær, þar sem Margrét Frímamisdóttir mælist með yiirhurðaíylgi í staríið kom ehis og sprengja hm í þessa umræðu og styrki mjög veralega stöðu Alþýðu- handalagsins og Margrétar. í pottimnn segja meim að hrifningin haii ekki verið eins mikil í herbúömn krata og Kvemialista, því Sighvatur hefúr aðeins 7,2% fylgi í starfið, litlu meira cn Jóhaima og sérstaka athygli vekm að Guðný Guöbjöms kemst ekki cmu siuni á blaö... Friðrik Sophusson. Tryggvi Tryggvasoti framkvæmdastjóri Kaupþings Norðurlands Sumirspá ragtiarökum á er- lendum mörkuðum. Hlutabréf fallið um 15% að undanfómu á íslandi. Áhrifin þó minni hérvegna sérstöðu og horfum- ar innanlands góðar. Gríóarleg óvissa í fj ármálaheiniinuin - Er hægt að tala um kreppu í peninga- heiminum að undanfömu? „Greinilega í Rússlandi þar sem fjár- málamarkaðurinn er hruninn og sömu sögu má segja um mörg ríki í Suðaustur- Asíu. A þróaðri mörkuðum iðnrfkjanna hefur klárlega orðið samdráttur og óttinn um kreppu j efnahagskerfi heimsins er yf- irvofandi. Eg myndi þó ekki segja að kreppumörkunum almennt væri náð. Markaðir hafa heldur rétt úr sér að undan- förnu og Dow Jones vísitalan t.d. hækkað svolítið. Hins vegar er gríðarleg óvissa í ijármálaheiminum og sumir j»anga svo langt að spá ragnarökum. Á íslandi eru horfurnar hins vegar góðar. Hér eru allar forsendur fyrir uppgangi." - Hvaða áhrifhefur þessi titringur þeg- ar haft á innlenda hlutafjármarkað- innn? „Sú hækkun sem hér var orðin á hluta- bréfavísitölu og náði hámarki í ágúst hefur öll gengið til baka og rúmlega það. Hækk- unin nam um 1 5% en nú er staðan þannig að heildarvísitala aðallistans hefur lækkað um 2%.“ - En íslenski markaðurinn hefur þó haldið sínu umfram það sem gerist er- lendis? „Sveiflurnar hafa verið miklu minni og kannski er hluti skýringarinnar sá að þátt- taka okkar í hinum alþjóðlega fjármála- markaði er einhliða. Islendingar fjárfesta erlendis en ekki öfugt. Þessi Iitli markaður er líka miklu lengur að bregðast við nýjum upplýsingum. Hér eru þátttkendur fáir og smáir. I samanburði við markaði af ámóta stærðargráðu er samanburðurinn mjög hagstæður." - Þessi lækkun sem orðið hefur á hlutahréfum innanlands, endurspeglar hún á engan hátt versnandi afkomu fyr- irtækjanna, t.d. í sjávarútvegi? „Nei, alls ekki. Staða efnahagslífsins í heild og ekki síst sjávarútvegsins er mjög góð. Hún hefur sjaldan eða aldrei verið betri þannig að skýringanna er eklu að leita í grundvallaratriðum íslenska hagkerfisins. Grundvallarforsenda fyrir hækkandi gengi hlutabréfa er hagvöxtur og hann hefur ver- ið meiri hér en annars staðar og allt útlit fyrir áframhaldi." - Eru áhrif lækkunar á gengi hlutahréfa þegar komin fram í minni viðskiptum? >Já, viðskipti með hlutabréf hafa verið mjög lítil að undanförnu og viðskipti þessa árs eru minni en á sama tíma í fyrra. Skuldabréfamarkaðurinn hefur á hinn bóg- inn verið líflegur." - Fjámiálaráðherra mun í ár að lík- indum ekki lækka skattaafslátt við hlutahréfakaup. Viðhrögð við því? „Hugmyndin var upphaflega sú að af- slátturinn myndi lækka í 40% núna, 20% á því næsta og myndi falla niður árið 2000. Nú heyrist mér að fallið hafi verið frá þessu. Afslátturinn verði e.t.v. 60% í ár og það er fagnaðarefni. Þessi skattaafsláttur hefur haft jákvæð áhrif og það er ekki síst þörf á því í góðærinu að efla sparnað." - Telurðu sýnt að aðhald fyrirtækja hafi aukist með stórfelldri hlutafélaga- væðingu að undanförnu? „Greinilega. Krafan um arðsemi og hagnað er miklu meira áberandi en var. Þess sjást strax merki ef arðsemin upfyllir ekki væntingar og viðbrögð markaðarins eru nokkuð hörð. Við getum nefnt Flug- leiðir sem dæmi. Nú eru stjórnendur fyrir- tækja með fjölmennan hóp umbjóðenda á bak við sig og þeir gera sínar kröfur. Það rfldr allt annað andrúmsloft í atvinnulífinu nú, en fyrir örfáum árum þegar hálft at- vinnulífið var í höndum ríkisins.11 — bþ

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.