Dagur - 20.10.1998, Síða 3
ÞRIÐJUDAGUR 20.0KTÓBER 1998 - 3
rD^tr
FRÉTTIR
Kerfíð er þirngt
og ós veigj anlegt
Um 70 prósent svarenda telja að sjaldan eða aldrei sé haft samráð við atvinnulífið við laga- og reglusmíð í umhverfismálum.
Þetta kom fram íkönnun sem Orri Hauksson aðstoðarmaður forsætisráðherra, Birgir Ármannsson lögfræðingur hjá Verslun-
arráði og Davíð Stefánsson hjá VSÍkynntu ígær. Orri og Davíð eru á myndinni. mynd: eól
Uiiihveríismál kosta
atviiiiiulííið íun 3
milljarða króna á ári.
Könnun á reglubyrði
fyrirtækja í umhverf-
ismálum. Svarhlutfall
30 prósent.
„Margir stjórnendur fyrirtækja
telja kerfið þungt og ósveigjan-
legt. Þeir eiga kannski líka í erf-
iðleikum með að átta sig á
hvernig kerfið virkar og hvernig
þeir geta leitað réttar síns innan
kerfisins," segir Birgir Armanns-
son hjá Verslunarráði Islands.
3 milljarðar á ári
Þetta kom fram á blaðamanna-
fundi í gær þar sem kynntar voru
niðurstöður könnunar sem gerð
var á reglubyrði íslenskra fyrir-
tækja vegna laga og reglna í um-
hverfismálum. Þar kom einnig
fram að áætlaður kostnaður at-
vinnulífsins vegna þessara laga
og reglna sé hátt í 3 milljarðar
króna á ári. Könnunin var fram-
kvæmd samkvæmt staðlaðri fyr-
irmynd frá Efnahags- og fram-
farastofnuninni, OECD, þar
sem ætlunin er að bera saman
niðurstöður frá mörgum lönd-
um. Hérlendis var verkefnið
unnið á vegum forsætisráðuneyt-
isins, VSI og Verslunarráðs Is-
lands. Könnun náði til alls 554
fyrirtækja og var svarhlutfallið
um 30%. Það er álíka gott eða
betra en var í hinum aðildarríkj-
um OECD að mati þeirra sem
unnu að könnuninni.
Ófullnægjandi upplýsingagjöf
Helstu niðurstöður könnunar-
innar voru þær að stjórnendur
fyrirtækja telja að stjórnvaldsfyr-
irmælum á sviði umhverfismála
sé að fjölga og að þeim sé fram-
fylgt í auknum mæli. Þeir telja
einnig að kostnaður fyrirtækj-
anna sé að aukast vegna þessar-
ar þróunar. Jafnframt telja þeir
að stjórnkerfið á sviði umhverfis-
mála sé þungt í vöfum, jafnvel
ósveigjanlegt. Þá sé í mörgum
tilfellum ekki ljóst til hvaða aðila
hjá hinu opinbera þeir eigi að
snúa sérþegar umhverfismálin
eru annars vegar. Síðast en ekki
síst virðist sem upplýsingagjöf
stjórnvalda á þessu sviði sé ekki
fullnægjandi. — GRH
Bjartur
loft-
steiun
„Þetta virðist hafa verið mjög
bjartur loftsteinn þannig að j
sumstaðar Iýsti hann upp lands- j
lagið. Hann hefur því væntan- J
lega verið stór,“ segir Þorsteinn j
Sæmundsson stjörnufræðingur. ■
Um níuleytið í fyrrakvöld sá 1
fólk víða um land mikið Ijós á
himni og virðist þarna hafa verið
loftsteinn á leið í gegnum gufu-
hvolfið. Birtan af steininum sást
m.a. í Húnavatnssýslum og suð-
ur um á Hellisheiði, Reykjavík
og Hafnarfirði. Þorsteinn gerir
ráð fyrir að steinninn hafi
brunnið upp á leið sinni í gegn-
um gufuhvolfið eins og gerist
alla jafna. Hann sagðist í gær
vera að viða að sér upplýsingum
frá sjónarvottum um stefnur og
hæðir steinsins til að geta sagt til
um á hvaða braut hann var.
MiMð um loftsteina
Þótt það sé engin ný bóla að fólk
verði vart við birtu af brennandi
Ioftsteinum á leið þeirra f gegn-
um gufuhvolfið, hefur það vakið
athygli stjörnufræðinga hversu
margir þeir hafa verið á þessu
ári, bæði hér og erlendis. Það
sem af árinu hefur t.d. sést til
fjögurra mjög bjartra loftsteina
frá Islandi til viðbótar við þann
sem sást í fyrrakvöld. Þorsteinn
segir menn ekki hafa neina sér-
staka skýringu á þessu, enda get-
ur þarna verið um hreina tilvilj-
un að ræða.
Prófkjör haldlð
hjá framsókn
Daníel Ámason, sem
sækist eftir 2. sæti
listans, segist vilja
sjá yngra fólk í efstu
sætum listans og eins
hafi vantað einstak-
linga á listann sem
staðið hafi í atvinnu-
rekstri.
Kjördæmisþing framsóknar-
manna í Norðurlandskjördæmi
eystra, sem haldið var að Illuga-
stöðum í Fnjóskadal um síðustu
helgi, samþyltkti að prófkjör færi
fram dagana 16. og 17. janúar
1999 um skipan í fjögur efstu
sæti listans, og verður niðurstað-
an bindandi. Framhaldsþing
kjördæmissambandsins, um 60
manns, mun eigi síðar en 15.
febrúar 1999 ákveða skipan í 5.
til 12. sæti listans. Framboðs-
frestur til að taka þátt í prófkjör-
inu er til 15. nóvember nk.
Valgerður Sverrisdóttir, al-
þingismaður, skipaði 2. sæti B-
lista 1994 en sækist nú eftir 1.
sætinu þegar Guðmundur
Bjarnason lætur af forystu. Hún
segist hafa verið eindregið þeirr-
ar skoðunar að efna ætti til próf-
kjörs. Valgerður segist líta á próf-
kjörið sem keppni og tímann
fram að prófkjörsdegi ekki of
langan, inn í þetta komi m.a.
jólamánuðurinn sem nýtist illa,
og því verði það lyrst og fremst
janúarmánuður sem verði áber-
Valgerður Sverrisdóttir stefnir á 7.
sætið.
andi. Valgerður segist ekkert
hafa hugleitt hvort hún tæki 2.
sæti listans komi það til um-
ræðu.
Jakob Björnsson, bæjarfulltrúi
og fyrrv. bæjarstjóri á Akureyri,
býður sig fram í 1. sæti listans og
telur hann sig eiga fullt erindi að
leiða listann og hann hafi orðið
fyrir hvatningu þess efnis, ekki
síst frá Akureyringum. Hann
segist vona að baráttan verði
málefnaleg og allir sætti sig við
niðurstöðuna. Hann segist ekki
hafa hugleitt hvort hann taki
sæti neðar á listanum, stæði það
til boða.
Eftir skipan í 2. sæti Iistans
sækjast þau Elsa Friðfinnsdóttir,
lektor við HA, og Daníel Arna-
son, framkvæmdastjóri
Akoplasts og Kexverksmiðjunn-
ar. Elsa segir ákvörðunina um að
fara í prófkjör byggða á brenn-
andi áhuga á stjórnmálum og
Jakob Björnsson stefnir á 1.
sætið.
hún telji sig eiga nokkuð sterkt
bakland, ekki bara Akureyringa
og flokksbundna framsóknar-
menn, heldur fylgi um allt kjör-
dæmið og einnig óflokksbunda.
Elsa segist hafa verið fylgjandi
því að kjósa fyrr en aðal slagur-
inn muni standa í tvær vikur í
janúar þó heimavinnan byrji
auðvitað fljótlega.
Daníel Arnason segist fara í
prófkjörið á eigin forsendum en
hann hafi vissulega fengið
hvatningu frá mörgum til þess.
Hann vilji sjá yngra fólk £ efstu
sætum listans og eins hafi vant-
að einstaldinga á listann sem
staðið hafi í atvinnurekstri.
Hann segir það liðna tíð að
ákveðin landsvæði eigi að eiga
fulltrúa á listanum, en hann
njóti þess þó að vera frá Norður-
Þingeyjarsýslu og hafa verið
sveitarstjóri á Þórshöfn. — GG
Þrefalt kjördæmisþmg stillir upp
Á kjördæmisþingi framsóknarmanna í Vesturlandskjördæmi um helg-
ina var ákveðið að kalla saman þrefalt kjördæmisþing til að stilla upp
lista flokksins fyrir komandi þingkosningar. Verður fundurinn hald-
inn 14. nóvember.
Að sögn Magnúsar Stefánssonar alþingismanns er framkvæmdin
þannig að kosið er milli manna í hvert sæti á listanum og þarf 50%
kjördæmisþingsfulltrúa til þess að ná sæti á listanum.
Uppstillmgamefnd
Sjálfstæðismenn á Vesturlandi voru einnig með kjördæmisþing um
helgina. Þar var ákveðið að skipa uppstillingarnefnd til að ganga frá
framboðslista flokksins -S.DÓR
Hugvit styrkir Háskólauu
Fyrirtækið Hugvit og Háskóli Islands ganga í dag frá samningi sem
felur í sér kaup Háskólans á hugbúnaði og styrk frá Hugviti sem ætl-
aður er til að ráða lektor í skjalastjórnun. Markmiðið er að byggja
upp og efla hugbúnaðariðnað hér á landi með sérstakri áherslu á
skjalastjórnun.
Þórunn tekur sæti á þingi
Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður Starfsmannafélagsins Sóknar,
tók sæti á Alþingi í gær. Magnús Árni Magnússon, sem taka á sæti
Ástu B. Þorsteinsdóttur á þingi, er við nám erlendis og getur ekki
tekið sæti á þingi fyrr en eftir áramótin.
Þórunn undirritaði eiðstafinn í gær því hún hefur ekki áður setið á
Alþingi. -S.DÓR
Ragnar leitar enn
I annað skipti á skömmum tíma hefur dómsmálaráðuneytið falið
Ragnari Hall hæstaréttardómara að grennslast fyrir um hvarf fíkni-
efna innan lögreglunnar í Reykjavík. Grunur leikur á að um 400
grömm af sterkum fíkniefnum hafi horfið umfram það magn sem
rannsókn hafði áður leitt í Ijós. Böðvar Bragason lögreglustjóri fékk
áminningu frá ráðherra í kjölfar niðurstöðu sem sýndi að á fjórða kíló
vantaði af fíkniefnum innan lögreglunnar. Nú styttist í að Böðvar
komi aftur til starfa eftir 6 mánaða leyfi, en hugsanlegt er að rann-
sóknin nú muni breyta einhverju þar um. Ekki náðist í Böðvar Braga-
son vegna þessa máls í gær. — BÞ
flt'fií*í
-I