Dagur - 20.10.1998, Side 4

Dagur - 20.10.1998, Side 4
o o o * n -i o ö ’! n o r t» u ^ » n u i n » o «» 4-ÞRIÐJUDAGUR 20.QKTÓBER 1998 FRÉTTIR Tkgpr 44 árekstrar imt helgina Helgin gekk vel hjá lögreglu. Hefðbundið annríki var að kvöld- og næturlagi en gekk að mestu tíðindalítið fyrir sig. Okumenn voru ekki allir tilbúnir að glíma við fyrstu hálkuna og voru 44 árekstrar til- kynntir lögreglu. Þá voru 50 ökumenn kærðir vegna hraðaksturs og 11 vegna ölvunar við akstur. Fylgst með útivistartíma Haldið var uppi eftirliti um helgina með því að börn og ungmenni væru ekki útivið eftir lögbundinn útivistartíma. Farið var um flest hverfi borgarinnar og nokkrum börnum ekið heim, á lögreglustöð eða í athvarf þangað sem þau voru sótt af forráðamönnum. Fram kom að foreldrar taka mikinn þátt í þvf að fylgja þessum reglum eft- ir og var áberandi að í nokkrum hverfum voru mjög margir foreldrar á „röltinu“. Slík þátttaka foreldra er til fyrirmyndar og er Iögreglu mjög mikilvæg aðstoð við eftirfylgni útivistarreglna. ísinn ótraustur Börnum var vísað frá Tjörninni þar sem þau voru að leik, en ísinn þar er alls ekki nægj- anlega traustur til að hægt sé að fara út á hann. Umferðarátak fyrirhugað í næstu viku verður sérstakt átak lögregluliða á Suðvesturlandi í um- ferðarmálum. Að þessu sinni verður lögð áhersla á akstur við gatna- mót, notkun stefnuljósa, ljósabúnað ökutækja, gangandi vegfarendur og notkun endurskinsmerkja. Sofnaði í aftursætiuu A föstudagsmorgun var lögreglu tilkynnt um að bifreið hefði verið stolið þar sem hún stóð ólæst með lyldum í á Seltjarnarnesi. Borgar- ar fundu bifreiðina skömmu síðar þar skammt frá og hafði þá ölvað- ur maður komið sér þægilega fyrir í aftursæti hennar. Borgararnir vísuðu manninum á hrott en hann var síðan handtekinn skömmu síðar af lögreglu og fluttur á lögreglustöð. Maðurinn sem var talsvert ölvaður veitti mikla mótspyrnu við handtökuna, kenndi til í hendi og var því fluttur á slysadeild. Við leit á honum á lögreglustöð fundust á honum ætluð fíkniefni. Af þessu tilefni eru ítrekuð skilaboð frá lögreglu um að borgarar skilji ekki eftir ökutæki sín í gangi með verðmætum í. Ók á vegg og Ijósastaur Rúmlega fjögur að morgni Iaugardags var lögreglu tiikynnt um að bif- reið væri ekið norður Kringlumýrarbraut á röngum vegarhelmingi og það væri einnig nýleg ákoma á bifreiðinni. Skömmu síðar barst önn- ur tilkynning um að bifreiðinni hefði verið ekið á vegg og ljósastaur á Sæbraut. Lögreglan náði að stöðva akstur bifreiðarinnar á Sæbraut við Súðavog og er ökumaður grunaður um ölvunarakstur. Við rann- sókn kom í ljós að bifreiðinni hafði einnig verið ekið utan í vegrið í Kópavogi um nóttina. Beitti vasahnífi í átökiun Ráðist var að manni í Tryggvagötu að morgni Iaugardags og honum veittir áverkar í andliti. Arásarmaður var handtekinn og fluttur í fangahús. Tvær konur á fertugsaldri tókust á í Tryggvagötu að morgni sunnu- dags. Karlmaður bættist síðan í hópinn og veitti annarri þeirra áverka með vasahnífi. Hann var handtekinn og fluttur á lögreglustöð en konan flutt á slysadeild til aðhlynningar Með hýfi í kerra Á laugardag stöðvuðu Iögreglumenn einstakling sem var að feija hluti í kerru aftan £ bifreið. I kerrunni voru ýmis rafmagnstæki sem er ætlað þýfi. Ökumaðurinn, bifreiðin og kerran voru flutt á lögreglu- stöð. Við leit fundust meðal annárs fíkniefni. Með gamla hyssu Á sunnudag barst lögreglu tilkynning um að menn væru með skot- vopn í Öskjuhlíð. Lögreglumenn fóru á staðinn og kom í Ijós að þarna voru menntaskólanemar að kvikmynda. Þeir höfðu skotvopn sem reyndist forngripur en samt nothæft vopn. Engin leyfi voru fyr- irliggjandi og vopnið hafði einnig verið tekið án heimildar frá eig- anda. Piltarnir voru fluttir á lögreglustöð og skotvopnið haldlagt. Fyrirhugaö brotthvarf Þorsteins Pálssonar afþingi kallar á mikið kapphlaup og átök um sæti hans. Leitað að arftaka Þorsteins Slaguriim lun efsta sætið á lista Sjálf- stæðisflokksius á Suð- urlandi er hafiim af fulluui krafti. Arnar Sigurmimdsson í Vest- mannaeyjiun er sagð- ur líklegastur oddviti listans. Þorsteinn Pálsson tilkynnti á kjördæmisþingi Sjálfstæðis- flokksins í Suðurlandskjördæmi sl. laugardag að hann gæfi ekki kost á sér til þingmennsku áfram. Slagurinn um efsta sætið á Iista flokksins í kjördæminu hófst sama dag og Þorsteinn Pálsson tilkynnti þetta, með opnuauglýsingu frá Árna John- sen, sem nú skipar 2. sætið á list- anum, um fundaherferð hans um kjördæmið. En ljóst er að Árni nær ekki efsta sætinu bar- áttulaust því nokkrir eru nefndir til sögunnar sem áhugamenn um það sæti. Ymsir halda því fram að sjálf- stæðismenn á Suðurlandi muni fara eins að nú og þegar þeir sóttu Þorstein Pálsson í efsta sæti listans og sækja utankjör- dæmismann til að leiða listann. Geir H. Haarde, fjármálaráð- herra, er oftast nefndur í þvx sambandi. Ef Geir tekur ekki sætið er Arnar Sigurmundsson í Vestmannaeyjum, formaður Samtaka fiskvinnslufyrirtækja, talinn Iíklegasti oddviti listans. Arnar var í 4. sæti á listanum síð- ast. Margir tilnefndir Aðrir sem nefndir hafa verið sem kandidatar eru Ólafur Björns- son, Iögmaður á Selfossi, hann er sagður sterkur á Suðurlandi og kemur frá Árborgarsvæðinu, sem er fjölmennasta svæði kjör- dæmisins. Sömuleiðis eru Drífa Hjartardóttir, núverandi vara- þingmaður, Helga Þorbergsdóttir í Mýrdal og Fannar Jónasson á Hellu nefnd sem hugsanlegir kandidatar. Sjálfstæðismenn gera sér vonir um að ná inn 3. manni í Suður- landskjördæmi í kosningunum næsta vor. Ástæðan er sú að Egg- ert Haukdal fékk um eitt þúsund atkvæði þegar hann bauð sig fram síðast. Sjálfstæðismenn vonast til að fá lungann af þeim atkvæðum næsta vor og það gæti dugað til að ná þriðja manni inn. Ekki hefur verið ákveðið hvort prófkjör verður haldið eða upp- stillingarnefnd kjörin til að stilla upp lista. -s.DÓR Etns árs fangelsi lyrir mðk vi ð bam Þrír héraðsdómarar dæmdu athæfl manns sem kynferðismök en ekki kynferðislega áreitni. Sakhomingur fékk 12 máuaða dóm og skal greiða tveim- ur stúLkum eina milljón króna. 36 ára karlmaður af Norðurlandi eystra hefur verið dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir að hafa annars vegar áreitt átta ára stúlku kynferðislega og hins veg- ar fyrir að haft kynferðismök við annað stúlkubarn, nokkrum sinnum á árabili þegar hún var 6 til 12 ára. Athyglisvert er að í síðarnefnda málinu gekk fjöl- skipaður dómurinn lengra en ákæruvaldið og taldi athæfi mannsins vera mök en ekki áre- itni. Auk þess að vera dæmdur £12 mánaða fangelsi var maðurinn dæmdur til að greiða fyrrnefndu stúlkunni 220 þúsund króna skaðabætur og slðarnefndu stúlkunni 755 þúsund króna skaðabætur, eða alls nær eina milljón króna. Fyrrnefnda málið var ekki eins alvarlegt og það siðara. Maðurinn var fundinn sekur um að hafa setið fullklæddur með átta ára telpuna fullklædda £ kjöltu sér, risið við það hold og nuddað getnaðarlim si'num við bakhluta stúlkunnar. Alvarlegra mál Siðarnefnda málið var öllu alvar- legra. Maðurinn var fundinn sekur um að hafa tvisvar til þrisvar á ári 1991-96, afklætt stúlku (6-12 ára) og viðhaft ósið- legt athæfi án þess þó að nota getnaðarlim sinn. Dómarar málsins, Pétur Guð- geirsson, Sigrfður Ingvarsdóttir og Sigrfður Ólafsdóttir, segja f niðurstöðum sínum að í þessu síðara tilviki sé ákæra Ríkissak- sóknara ranglega færð til Iagaá- kvæðis sem á við kynferðislega áreitni og varði allt að 4 ára fangelsi. Þeir sakfelldu hann hins vegar fyrir kynferðismök er varða allt að 12 ára fangelsi. Þeir ákváðu jafnframt að óskilorðs- bundin fangavistin skyldi vera eitt ár. Var þá annars vegar tekið tillit til þess að sakaferill ákærða væri óverulegur en hins vegar til þess að stúlkurnar voru í nánum tengslum við hann og hann braut á þeim á stöðum þar sem þær áttu að njóta friðar og örygg- is. - FÞG

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.