Dagur - 20.10.1998, Page 12
11.1 ■ ■ ■ ■ ■
12- ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1998
Z I < n irhí<
S 462 3500
Einhversstaiar í dimmri borginni leynist einhentur, einfættur, eineygður
maður úbyrgur fyrir morðinu sem Ryan Harrison hefur verið sakoður um.
Það eino sem Ryan þarf tii að finna hann er... vísbending.
Þriðjud. kl. 21.00 & 23.00.
dÍg^ITt a l
Magnaður grinhasar sem fór beint ó toppinn í Bandarikjunum i vor.
Með Mark Wahlberg úr Boogie Nights. Fróbært grín, fróbær hasar,
fróbær óhættuatriði og fróbær tónlist, i besta tóni í heimi.
Þriðjud. kl. 23.00.
nni°QLBv[
D I G I T A L
SEM STRAKUR HAFÐIJOHN DOLITTLE ALLTAF MIKINN AHUGA A
DÝRUM. ÞRJÁTÍU ÁRUM SEINNA HEFUR ÞAÐ SNÚIST VIÐ OG NÚ
LEITA DÝRIN TIL HANS EFTIR AÐSTOÐ. EDDIE MURPHY HREINLEGA
„BRILLERAR"!
Þriðjud. kl. 21.00.
□□[dolbyJ
D I G I T A L
WRONCFULLV ACCUSED ■
ÍÞRÓTTIR
Það er augljóst að Siggi Sveins verður að æfa betur efhann ætlar að komast i landsliðshópinn. Hann sveifþó
eins og ballerína á tánum í gegnum þunglamalega FH-vörnina, en varð að játa sig sigraðan á síðustu mínútunum.
Hér messar Sigurður yfir sínum mönnum. - mynd: bg
Siggi Sveins skoraði
fjórtán mork gegn FH
Það brostu margir út í
aimað þegar FH-iugar
tóku þaö til bragðs að
taka Sigurð Sveinsson
úr umferð.
Menn vildu meina að það væri aft-
urhvarf til fortíðar, um ein fimm
ár. Það er alla vega mikið hól fyrir
Sigurð og viðurkenning á því að
Iengi lifir í gömlum glæðum.
Sigurður var heldur betur í
stuði í leiknum og skoraði 14 af
27 mörkum HK. Hann fór oft illa
með seinheppna varnarmenn FH
sem áttu ekkert svar við sama
danssporinu, sókn eftir sókn.
Siggi sveif eins og ballerína á tán-
um í gegnum þunglamalega FH-
vörnina og ef vinstri hendin dugði
ekki, þá var sú hægri notuð. Það
var ekki fyrr en á síðustu þremur
mínútunum, þegar staðan var
27:27, að FH-ingum tókst loks að
hrista af sér mókið og sigra með
fjögurra marka mun 27:31.
Markahæstir FH-inga voru Val-
ur Arnarson 8, Guðjón Arnason 7
og Knútur Sigurðsson 7/2. Hjá
HK var Sigurður með 14/6 og
Óskar E. Óskarsson 4.
Létt hjá Frömunun
Grótta/KR var Frömurum lítil
hindrun þegar liðin mættust í 5.
umferð úrvalsdeildarinnar í hand-
knattleik um helgina. Grótta/KR
skoraði fyrsta markið í leiknum og
var það í eina skiptið sem þeir voru
yfir. Þeir náðu þó að jafna í stöð-
unni 12:12, en þá skildu leiðir.
I seinni hálfleiknum settu
Framarar í fluggír og tóku öll völd
á vellinum. Ekki var heil brú í leik
Gróttu/KR og Framarar gengu í
gegnum götótta vörnina að vild og
sigruðu með tólf marka mun,
38:26.
Flest mörk Framara skoruðu
Magnús A. Arngrímsson 8/1 og
Gunnar Berg Viktorsson 7/2, en
markahæstir Gróttu/KR voru Gylfi
Birgisson 7 og Zoltán Belanýi 7/5.
Sebastían Alexander varði vel í
Frammarkinu, eða alls 18 skot.
Reynir hestui hjá KA
Reynir Þ. Reynisson var betri en
enginn þegar KA fékk Selfoss í
heimsókn til Akureyrar. Hann
varði alls 20 skot í leiknum og var
besti maður KA. Selfyssingar
byrjuðu betur í leiknum og höfðu
forystu framan af, en KA-menn
sóttu í sig veðrið þegar líða tók á
hálfleikinn og voru einu marki
yfir í hálfleik 12:11. Seinni hálf-
leikurinn var jafn á öllum tölum
til að byija með, en þegar um tíu
mínútur voru eftir af leiknum
færðist líf í KA-menn, sem náðu
þriggja marka forystu, sem þeir
héldu til leiksloka. Lokatölurnar í
súrum leik urðu 25:22.
Markahæstir KA-manna voru
Lars Walther 8/1 og Sverrir
Björnsson 5, en hjá Selfyssingum
skoruðu Litháarnir Robertas
Pauzoulis 6 og Alturas Villemas 4.
Reynir Þ. Reynisson varði alls 20
skot fyrir KA.
Haukar á sigllngu
Haukamir fóru létt með Stjöm-
una þegar liðin mættust í Haíríar-
firði. Liðin voru sein f gang og
þegar um það bil tíu mínútur
voru liðnar af leiknum var staðan
1:1. Stjarnan hélt svo í við Hauk-
ana framan af og var staðan 9:9
þegar langt var liðið á fyrri hálf-
leik. Þá tóku Haukarnir loks við
sér og voru komnir með tveggja
marka forystu, 13:11, f hálfleik.
Eftir það átti Stjarnan aldrei
möguleika og leikurinn endaði
32:22.
Markahæstir Haukanna voru
Siguijón Sigurðsson 8/6 og Þor-
kell Magnússon 5, en hjá Stjöm-
unni skoraði Heiðmar Felixson 6
og Arnar Pétursson 5. Markmenn
beggja liða, þeir Magnús Sig-
mundsson hjá Haukum og Birkir
Guðmundsson, Stjörnunni,
vörðu 14 skot hvor.
Skemmtilegur leikur
Það var skemmtilegur og spenn-
andi leikur sem Afturelding og
Valur sýndu í Mosfellsbænum.
Leikurinn var mjög jaírí allan tím-
ann og var Afturelding einu marki
yfir í hálfleik, 15:14. Sama
spennan var í seinni hálfleiknum,
en þó náði Afturelding fjögurra og
fimm marka forystu á köflum.
Valsmenn neituðu þó að gefast
upp og þegar langt var liðið á
seinni hálfleikinn var staðan jöfn,
24:24. Valsmenn höfðu þá skorað
fimm mörk í röð, sem varð þeim
of mikil raun í lokin og Aftureld-
ing seig framúr og sigraði 26:24.
Þeir Jón Kristjánsson, Val, og
Bjarki Sigurðsson, Aftureldingu,
áttu báðir stjörnuleik og voru
markahæstir í leiknum. Jón með
11/1 og Bjarki með 12/5.
Sigmar fór í gang
Eyjamenn fengu IR-inga í heim-
sókn til Eyja á föstudaginn og
mörðu sigur 23:21. IR-ingar voru
sterkari framan af Ieiknum og
höfðu 11:13 forystu í hálfleik.
Jafrit var á öllum tölum í byijun
seinni hálfleiks, þar til staðan var
18:18. Þá fór Sigmar Þröstur Ósk-
arsson, markvörður Eyjamanna, í
gang og varði meistaralega það
sem eftir var leiksins. Hann varði
samtals 18 skot í Ieiknum og var
einn besti maður ÍBV.
Markahæstir Eyjamanna voru
Giedreus Cernauskas 7/2 og
Guðfinnur Kristmannsson 7, en
hjá ÍR skoruðu þeir Ólafur Gylfa-
son og Jóhann Asgeirsson 5 mörk
hvor.
Menntamálaráðuneytið
Auglýsing
f samræmi við ákvörðun ríkisstjórnarinnar hefur
menntamálaráðuneytið beint því til stofnana á
stjórnsýslusviði þess að þær hafi lokað til kl. 13.00 eftir því
sem tök eru á miðvikudaginn 21. október vegna útfarar Guð-
rúnar Katrínar Þorbergsdóttur, sem gerð verður frá Hallgríms-
kirkju kl. 11.00 þann dag, þá er mælst til þess að kennsla
verði felld niður til kl. 13.00.
Menntamálaráðuneytið, 19. október 1998.
Auglýsing
frá forsætisráðuneytinu
Eftirtaldar stofnanir verða lokaðar fyrir hádegi og til
kl. 13.00 miðvikudaginn 21. október 1998 vegna út-
farar forsetafrúarinnar, frú Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur:
Byggðastofnun,
Skrifstofa kristnihátíðarnefndar,
Skrifstofa landafundanefndar,
Skrifstofa óbyggðanefndar,
Skrifstofa umboðsmanns barna,
Skrifstofa þjóðgarðsins á Þingvöllum,
Þjóðhagsstofnun.
í forsætisráðuneytinu 19. október 1998.