Dagur - 20.10.1998, Page 13
/r
am jisafrisc - &.!
ÞRIÐJUDAGUR 20.OKTÓBER 1998 - 13
ÍÞRÓTTIR
Jafnt og skemmtilegt
GUNNAR
SVERRIS-
SON
skrífar.
Fjörðu umferö á ís-
landsmótinu í
körfukuattleik lauk
iiiii helgina. Góöir
hlutir eru að gerast í
ísleuskum
körfukuattleik. Það
stefnir nefnilega í
jafnt og skemmtilegt
mót. Fáir spáðu því.
Snæfell frá Stykkishólmi tók ís-
landsmeistara Njarðvíkinga í
kennslustund í því hvernig á að
beijast og hafa sigur. Sigurinn
var nokkuð öruggur, 97-81, eftir
að staðan í hálfleik hafði verið
38-49 Njarðvík í vil. Það var því
engin tilviljun að Snæfell sigraði
Hauka á heimavelli á dögunum í
Eggjabikarnum. Þeir verða
greinilega erfiðir á heimavelli.
KR siraði Grindvíkmga
Grindvíkingar sem eru örugglega
með eitt besta byrjunarlið í
körfuboltanum í dag steinlágu
fyrir KR. Leikur Grindvíkinga
hefur verið ótrúlega ósannfær-
andi upp á síðkastið. Þeir verða
að hætta að fagna sigrinum í
Suðurnesjamótinu og einbeita
sér að íslandsmótinu. KR-ingar
leiddu allan leikinn og lokastað-
an varð 97-77 og tvö stig til KR-
inga, sem eru að gera góða hluti
með frekar nýtt lið.
Tindastóll, sem er í góðum
málum með Val Ingimundarson
fremstan í flokki, sigraði stiga-
lausa Skallagrfmsmenn. Leikur-
inn var á Sauðárkróki og endaði
86-78. Skallagrímur úr Borgar-
nesi hefur byrjað tímabilið afleit-
lega og staða þeirra ekki góð, þeir
eru neðstir í deildinni. En nóg er
eftir af íslandsmótinu og Henn-
ing Henningsson þjálfari þeirra á
örugglega eftir að berja lífi í sína
menn.
Valsineim yfirspilaðir
Loksins sigruðu Keflvíkingar
sannfærandi. Þeir hafa án efa á
að skipa einni bestu liðsbreidd-
inni í úrvalsdeildinni og þeir sigr-
uðu Valsmenn í Keflavík 106-77.
Keflvíkingar gjörsamlega yfirspil-
uðu Valsmenn. Hlíðarenda-
drengirnir hafa verið að gera fína
hluti í síðustu leikjum og slógu
til dæmis KFI eftirminnilega út
úr Eggjabikamum á dögunum.
Góður sigur ísfirðinga
Isfirðingar eða KFI unnu góðan
sigur á Tindastóli á föstudag og
tóku síðan hitt Norðurlandsliðið,
Þór, á sunnudagskvöld og sigruðu
81-86. Sigur Isfirðinga var nokk-
uð öruggur á sunnudagskvöld en
heimamenn áttu möguleika öðru
hveiju í leiknum, en nýttu þá illa.
KFI er á toppi deildarinnar en
Þórsarar eru með tvö stig.
Skagamenn á siglingu
Skagamenn hafa verið á mikilli
siglingu undanfarið og komið
skemmtilega á óvart. Haukar
stöðvuðu sigurgöngu þeirra f
Hafnarfirðinum, í leik þar sem
úrslitin réðust á vítalínunni. IA
átti möguleika á að jafna í lok
leiksins og það úr vítaskotum, en
misnotaði þau. Leikurinn endaði
74-70 eftir að staðan hafði verið
44-39 í hálfleik, Haukum í vil.
Það er greinilegt á öllu að stór-
skemmtilegt Islandsmót er
framundan. Suðurnesjaliðin eru
ekki að stinga af eins og margir
spáðu. Grindvíkingar og Njarð-
víkingar fengu slæma útreið og
þau tíðindi ættu að vera skilaboð
til „litlu“ liðanna. Allir heimavell-
ir liðanna í úrvalsdeildinni eru
traustir og liðin eiga eftir að tína
stig, hvert af öðru. Alexander
Ermolinski, þjálfari ÍA, er þjálfari
fyrstu fjögurra umferðanna. Það
er hreint ótrúlegt hvað hann nær
út úr lítt reyndum leikmönnum
liðsins. Það er ástæða fyrir fólk
að líta inn í næsta íþróttahús og
horfa á leik í úrvalsdeildinni.
United lék Wimbledon grátt
Chris Perry, varnarmaður Wimbtedon, í baráttu við Andy Cole á Old Traf-
ford á laugardaginn. Cole átti góðan leik með United og gerði tvö mörk í
5:1 sigri liðsins.
David Beckham og
Roy Keen í banastuði.
Fimnttíu jafntefli í
Liverpool. South-
ampton skoraði sitt
fyrsta mark á útivelli.
Tíu Leedsarar náðu
jöfnu í JVotthiugham.
Blackhum enn í hasli.
West Ham og Aston
ViUa steindauð á
Upton Park.
Manchester United lék gesti
sína, Wimbledon, grátt á Old
Trafford á laugardaginn. Frábær
leikur hjá David Beckham og
Roy Keen varð til þess að Iiðið
lék sér að gestum sínum allan
tímann. Sigurinn, 5-1, var síst
of stór þó sóknarleikmenn gest-
anna hafi leikið dýrasta varnar-
mann heims, Jaap Stam, grátt.
Landi hans í United markinu sá
til þess að gestirnir skoruðu ekki
nema einu sinni. Andy Cole reið
á vaðið fyrir heimamenn með
marki og lokaði honum einnig.
Ryan Giggs, David Beckham, og
Dwight Yorke sáu um hin mörk-
in, eftir að Jason Euell hafði jafn-
að fyrir Wimbledon.
Finuntíu jafntefli hjá
Everton og Liverpool
Liverpool og Everton gerðu
fimmtugasta jafntefli sitt í ná-
grannaslag á Goodison Park á
Iaugardaginn. Leikurinn var jafn
leiðinlegur og veðrið í borginni
en hefði þó getað endað með
sigri gestanna. Þeir fengu þrjú
færi á móti einu heimamanna.
Eyðimerkurganga Liverpool
heldur því áfram á Goodison
Park þar sem liðið hefur ekki náð
að sigra í sjö síðustu leikjum sín-
um.
Meistarar Arsenal hafa enn
ekki hafið titilvörn sína fyrir al-
vöru. Meistararnir tóku á móti
botnliðinu frá Southampton og
urðu að sætta si^ við 1-1 jafn-
tefli eftir að Anelka hafði náð for-
ystunni íyrir þá. Gestirnir skor-
uðu sitt fyrsta mark á útivelli á
tímabilinu þegar þeir jöfnuðu.
Newcastle hrökk aftur í gang
eftir afturkipp þegar liðið tók á
móti Derby. Nikos Dabizas og
Stephen Glass skoruðu mörk
heimamanna áður en Deon
Burton náði að minnka muninn
fyrir gestina.
Útlendingahersveitin heppin
á heimavelli
Chelsea var heppið að ná jafn-
tefli við nýliðana í Charlton, sem
byrjuðu Ieikinn mun betur en
gestgjafarnir. Leboeuf kom
heimamönnum yfir en Eddie
Youds jafnaði með glæsimarki.
Fátt benti til þess að dýrasta Iið
enskrar knattspyrnu næði að
hala inn sigur gegn því ódýrasta.
Gustavo Poyet bjargaði þó andliti
þeirra með sigurmarki í lokin.
Middlesbrough kláraði vinn-
una sína með stæl þegar liðið
lagði Blackburn á heimavelli.
Tim Sherwood skoraði sennilega
sitt síðasta mark fyrir Blackburn
áður en lærisveinar Robsons
komust í gang. Richard og
Flemming sáu til þess að stigin
urðu öll eftir hjá Boro.
Það bar helst til tíðinda f
hundleiðinlegum leik á Upton
Park að Israelsmaðurinn, Eyal
Berckovitch snéri heim og lék
með liðinu á ný eftir sparkið frá
Hartson á dögunum. Leiknum
lauk 0 - 0 og Manchester United
er nú farið að anda hressilega í
hálsmálið hjá Villa mönnum.
Dion Dublin heldur enn lífinu
í Coventry. Á sunnudaginn skor-
aði hann sigurmarkið gegn
Sheffield Wednesday. — GÞÖ
Úrvalsdeildin í körfuknattleik
Urslit í 4. umferð
Þór - KFÍ 81 - 86
Keflavík - Valur 106 - 77
Tindast. - Skallagr. 86 - 78
KR - Grindavík 97 - 77
Haukar - ÍA 74 - 70
Snæfell - Njarðvík 97 - 81
Staðan
L mi T Stig S
KFÍ 4 3 1 372:331 6
ÍA 4 3 1 333:314 6
Keflavík 4 3 1 369:322 6
KR 4 3 1 363:327 6
Tindast. 4 3 1 332:325 6
Njarðvík 4 2 2 338:315 4
Grindavík 4 2 2 314:318 4
Haukar 4 2 2 306:324 4
Þór 4 1 3 306:336 2
Valur 4 1 3 307:351 2
Snæfell 4 1 3 319:342 2
Skallagr. 4 0 4 298:352 0
Úrvalsdeildin í
handknattleik
Úrslit í 5. umferð
ÍBV - ÍR______________ 23-21
Haukar - Stjarnan_____32 - 22
HK - FH_______________27 - 31
KA - Selfoss__________25 - 22
Fram - Grótta/KR______38 - 26
Afturelding - Valur___26 - 24
Staðan
L U 1 T Mðrk S
Aftureld. 5 4 1 0 120:104 9
Fram 5 4 0 1 143:121 8
Haukar 5 4 0 1 149:130 8
KA 5 3 0 2 122:118 6
Valur 5 3 0 2 116:112 6
ÍBV 5 2 0 3 108:106 4
ÍR 5 2 0 3 127:131 4
Stjarnan 5. 2 0 3 1 15:122 4
FH 5 1 1 3 127:132 3
Selfoss 5 1 I 3 119:133 3
Grótta/KR 5 1 1 3 120:138 3
HK 5 1 0 4 108:127 2
Enska úrvalsdeildin
Úrslit í 5. umferð
Arsenal - Southampton______1-1
Chelsea - Charlton 2-1
Everton - Liverpool________0-0
Man. Utd. - Wimbled. 5-1
Middlesb. - Blackburn______2-1
Newcastle - Derby__________2-ý
Nott. For. - Leeds_________1-1
West Ham - Aston Villa 0-0
Coventry - Sheff. Wed. 1-0
Leicester - Tottenham 1 -0
Staðan
L U J T Mörk S
Aston Villa 9 6 3 0 10:2 21
Man. Utd. i 8 5 2 1 18:7 17
Middlesb. 9 4 3 2 14:9 15
Chelsea 8 4 3 1 13:9 15
Arsenal 9 3 5 1 10:4 14
Newcastle 9 4 2 3 15:11 14
Liverpool 9 3 4 2 13:10 13
West Ham 9 3 4 2 7:8 13
Leeds 9 2 6 1 9:6 12
Derby 9 3 3 3 7:6 12
Wimbledon 9 3 3 3 13:16 12
Everton 9 2 5 2 6:6 11
Tottenh. 8 3 2 3 9:14 11
Charlton 9 2 4 3 13:12 10
Leicester 8 2 3 3 7:8 9
Sheff. Wed. 9 3 0 6 8:10 9
Blackburn 9 2 2 5 9:12 8
Nott. For. 9 2 2 5 6:11 8
Coventry 9 2 2 5 6:14 8
Southamt. 9 0 2 7 4:22 2