Dagur - 24.10.1998, Page 2

Dagur - 24.10.1998, Page 2
2 -LAUGARDAGUR 24.OKTÓRER 1998 .Díigjur FRETTIR V„. • Skólayfirvöld og nemendur Samvinnuháskólans á Bifröst eru almennt ánægð með þá ráðstöfun að fá hluta af kennslu í rekstrar- fræði á ensku. Runólfur Ágústsson aðstoðarrektor segir að þetta komi ekkert niður á íslensku nemenda. Kennt á ensku í Samvinnuháskóla Ein önn í rekstrarfræði til BS-prófs á lokaári. Mælist mjög vel fyrir. Bitnar ekki á fæmi nemenda í ís- lensku. „Við skulum ætla að fólk sem er að klára BS-próf í háskóla hafi þokkalegt vald á íslenskri tungu. Þannig að ég held að þetta komi ekkert niður á ís- lenskunni, þótt hluti námsins sé kenndur á ensku,“ segir Runólfur Agústsson, aðstoðarrektor Samvinnu- háskólans á Bifröst. Allir ánægðir Fyrir nokkru síðan bryddaði Sam- vinnuháskólinn uppá þeirri nýbreytni að kenna lokaársnemendum í rekstrar- fræði alit námsefni einnar annar á ensku. Að sögn Runólfs hefur þetta gefist mjög vel enda eru bæði nemend- ur og kennarar mjög ánægðir með þetta fyrirkomulag. Runólfur segir að í fyrstunni hafi einstaka nemendur ver- ið áhyggjufullir yfir því að þurfa að læra námsefnið á ensku. Reynslan hafi hinsvegar eytt þeim áhyggjum að öllu leyti. Síðast en ekki síst hefur engin gagnrýni heyrst í þá veru að þessir kennsluhættir kunni að bitna á færni nemenda í íslensku nema síður sé. Þaðan af síður hefur þess ekki orðið vart að íslenskan hjá nemendum hafi orðið enskuskotnari en gengur og ger- ist. Góð þjálfun Aðstoðarrektor segir að ástæðurnar fyrir þessum kennsluháttum séu eink- um tvær. Fyrir það fyrsta sé mjög hollt fyrir nemendur að fá þjálfun í erlendu tungumáli. Enda alltaf einhver Ijöldi sem leggur fyrir sig framhaldsnám á erlendri grund að loknu BS prófi. Síð- ast en ekki síst sé árlega mikið um er- lenda skiptinema á þessari önn. Með því að kenna námsefnið á ensku eru allir á sama báti, innlendir sem erlend- ir nemendur. Ari Páll Kristinsson, forstöðumaður Islenskrar málstofu, sagðist ekki geta tjáð sig um það hvort þessir kennslu- hættir hefðu neikvæð áhrif á íslensku- kunnáttu rekstrarfræðinema í Sam- vinnuháskólanum. Til að geta tjáð sig um það þyrfti hann að kynna sér málið betur. -GRH Þeir sjálfstæðismenn sem mest hamast á móti opinberum rekstri sækja gjarnan mest í að verða hátt- launaðir opinberir starfsmenn. Pottverjar skemmtu sér vel yfir lista sem birtist á vefsíðu Ágústar Einarssonar á dögunmn yfir slíka sjálfstæðisforkólfa: Friðrik Frið- Agúst Einarsson. riksson einkavniur Davíðs hjá Landsímanum, Páll Kr. Pálsson í Nýsköpunarsjóðnum, Stein- grímur Ari Arason á leið í Lánasjóðhm, Markús Öm yfirmaður ríMsútvarpsins og Friðrik Soph- usson, sem vildi „báknið burt“ hér um árið, að verða forstjóri Landsvirkunar. Og yfir öllu trón- ar Kjartan Gunnarsson sem ræður því sem hann vill hjá Landshankanum og VÍS. Svona eiga menn að fylgja sannfæringu sinni!... í pottinum var verið að ræða um uppstiUingu á lista framsóknarmanna á Austurlandi en kjör- dæmisþing þeirra er einmitt haldið um helgma. Eftir því sem pottveijar hafa hlerað er ekki von á miklum breytingum á toppnimi hjá austfirsk- xun framóknarmönnum enda almenn ánægja með a.m.k. efstu þrjú sætin, en þau hafa skipað þeir Halldór Ásgrímsson, Jón Kristjánsson og Jónas Hallgrímsson. Raunar segja sumir pott- verjar að samstaðan sé svo mikil að framsóknar menn á Austurlandi ættu að geta orðið fyrstir allra til að ganga frá sínum framboðslista... Það fylgir sögunni að það sé af og frá að Halldór Ásgrímsson sé á leið til Reykjavíkur í framboð ems og sagt var í einhverjum fjölmiðli nýlega. Úr herbúðum framsókn- armanna heyrist helst að það séu andstæðingar Fhms Ingólfssonar í Reykjavík sem haldi slíkuin kenn ingum á lofti, því allt tal um að formaðurinn komi í bæinn í framboð veikir Finn þar sem ver- ið er að gefa til kynna að hann sé ckki nógu sterkur... Finnur Ingólfsson Reykjavík Akureyri °c Sun Mán Þri Mið 5-i / 1: NNV4 NNV3 A3 N3 N4 NNV4 NNA3 A3 NNV5 NV4 VNV3 ASA2 N4 NV4 NV6 NV3 A3 NNV7 Stykkishólmur Egilsstaðir -10 NNV5 NNV5 ANA5 NNA6 N5 NNV5 NNA4 ANA4 N6 VNV4 VNV4 NNA1 N4 NV7 VNV2 VNV2 A2 NV Bolungarvík Kirkjubæjarklaustur c Sun Mán Þri Mið mm -10 NNV4 N6 NA5 NNA7 N5 NNV5 NNA5 ANA5 N7 NNV4 NV4 A3 NV3 NV4 NV4 NV3 A3 NV6 Blönduós Stórhöfði -10 NNV5 NNV5 ANA2 NNA5 NNV5 NNV4 N2 ANA2 NNV5 NNV8 NV7 A6 NV5 NNV7 NV8 NNV5 A6 NNV8 Línuritin sýna fjögurra daga veðurhorfur á hverjum stað. Línan sýnir hitastig, súluritið 12 tíma úrkomu en vindáttir og vindstig eru tilgreind fyrir neðan. Allhvöss norð- vestanátt um landið norð- austanvert og þar má áfram reikna með ofankomu og skafrenningi. Annarsstaðar verður norðan kaldi, en þó stinningskaldi suðaustan og austantil. Elja- gangur á Norðurlandi og Ströndum, en rofar heldur til á Suður- og Vesturlandi. Færð á vegiun Víöa ófært á noröausturhominu Fært var milli Reykjavíkur og Akureyrar í gær og búist við að það héldist um helg- ina. Fært var til Siglufjarðar og við vestanverðan Eyjafjörð til Olafsfjarðar en ófært til Grenivíkur og um Víkurskarð vegna snjóa og snjóflóða. Ófært um Mývatnsöræfi. Ófært er um Tjörnes og veginn um ströndina allt austur til Vopnafjarðar. Fært er frá Reykjavík og austur til Egilsstaða að undanskilinni Breiðdalsheiði þannig að fara verður fjarðaleiðina. Fært er til ísafjarðar um Strandir og Djúp en víða hálkublettir á veginum og sums staðar skafrenningur. Verið var að moka Hrafns- eyrarheiði í gær en þar var einhver snjókoma. Fært er þaðan til Patreksfjarðar. I

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.