Dagur - 24.10.1998, Blaðsíða 11
Xfc^ur
LAUGARDAGUR 24.QKTÓBER 1998 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
k.
Samningar tókust
á níimda degi
Samniiigar Palestmu-
manna og ísraels-
maima eru í höfn og
almenn bjartsýni um
framhaldið.
Palestínumenn og Israelsmenn
náðu lolcs bráðabirgðasamkomu-
lagi eftir nærri níu daga samn-
ingatörn í Maryland í Bandaríkj-
unum. Þar með lauk 19 mánaða
erfiðu tímabili sem samningavið-
ræður milli þeirra hafa verið í
sjálfheldu. Bæði hægrisinnaðir
ísraelsmenn og andstæðingar
þeirra í Hamas-hreyfingu Palest-
ínumanna lýstu þó óánægju
sinni með að samið hafi verið.
Samkomulagið sjálft kallast
„Samkomulag um framkvæmd
bráðabirgðasamkomulagsins,“ og
er þá vísað í bráðabirgðasam-
komulagið sem gert var árið
1995, en það var annar áfangi
Oslóarsamningsins frá 1993.
Framkvæmd bráðabirgðasam-
komulagsins hefur legið niðri að
mestu frá því Benjamin Netanya-
hu tók við forsetaembætti í ísra-
el. Sögðu bandarískir embættis-
menn að ekki væri laust við að
Jasser Arafat hafi notið þess und-
anfarna daga að vera komin í
hlutverk „góða gæjans“, sam-
heija Bandaríkjanna, meðan ver-
ið var að kljást við Netanyahu.
Þriðja áfanganum, endanlegu
samkomulagi milli ísraelsmann
og Palestínumanna er þó enn
ólokið, en þetta nýja samkomu-
lag á að undirbúa jarðveginn fyr-
ir næstu samningatörn sem á að
vera Iokið í maí á næsta ári. Sam-
komulagið, sem gert var í gær, á
að hafa leitt til lykta öll þau
deilumál sem risið hafa varðandi
framkvæmd bráðabirgðasam-
komulagsins frá því 1995.
í Iokasamningum þarf að taka
á viðkvæmum deilumálum sem
varða stöðu Jerúsalemborgar og
Iandamæri hugsanlega sjálfstæðs
ríkis Palestínumanna. Sam-
kvæmt bráðabirgðasamkomulag-
inu frá Osló á þessum áfanga að
vera lokið þann 4. maí 1999,
enda rennur Oslóarsamningur-
inn þá út.
Helstu atriði samnmgsms
Samningurinn sem undirritaður
var í gær felur í sér viðamikla
áætlun í öryggismálum sem á að
koma í veg fyrir ofbeldisverknaði
bæði af hálfu palestínskra öfga-
manna sem ísraelskra öfga-
manna.
Samkvæmt samningnum er
einnig gert ráð fyrir að ísraels-
menn afhendi á næstu þremur
mánuðum 13% landsvæðis Vest-
urbakkans í viðbót, þannig að
um 40% landsvæðis Vesturbakk-
ans verði þá komið undir stjórn
Palestínumanna.
ísraelsmenn skuldbinda sig
enn fremur til að semja um
þriðja áfanga brottflutnings ísra-
elskra hermanna frá Vesturbakk-
anum, en hve umfangsmikið það
verður þarf að semja um við
Palestínumenn.
Þá ætla Palestínumenn að
nema úr gildi þau ákvæði í stofn-
skrá sinni sem beint er gegn ísra-
elsríki, eins og Arafat hafði
reyndar Iofað að gert yrði £ bréfi
sínu til Jitsaks Rabins strax árið
1993.
Samningar töfðust um nokkra
klukkutíma vegna deilna um ná-
kvæmlega hvernig Palestínu-
menn ætluðu að fara að því að
nema þessi ákvæði úr gildi, en til
þess þarf samkvæmt ákvæði
stofnskrárinnar samþykki tveggja
þriðju hluta atkvæða á sérstöku
aukaþingi Þjóðarráðs PLO.
Engar einhliða aðgerðir
ísraelsmenn ætla í þremur
áföngum að láta 750 Palestínu-
menn lausa úr fangelsum í ísra-
el, og sett verður á Iaggirnar sér-
stök nefnd sem á að hafa eftirlit
með því að að aðrir Palestínu-
menn verði látnir lausir úr ísra-
elskum fangelsum.
ísraelsmenn hafa einnig fallist
á að opnaður verði flugvöllur
Palestínumanna á Gazasvæðinu,
og sömuleiðis er komið sam-
komulag um að höfn verði gerð
þar. Sömuleiðis verður heimilt
að helja iðnaðaruppbyggingu á
Gazasvæðinu. Ennfremur verður
Palestínumönnum tryggð örugg
flutnings- og ferðaleið milli
Gazasvæðisins og Vesturbakk-
ans.
í samningnum er einnig
ákvæði um að einhliða aðgerðir
eigi sér ekki stað, og er þar átt við
aðgerðir á borð við byggingar-
framkvæmdir á landnemabyggð-
um, niðurrif húsa og hugsanlega
einhliða yfirlýsingu frá Arafat um
stofnun sjálfstæðs ríkis Palest-
ínumanna. -gb
MÓTORSTILUNG,
HIÓLASTILLING,
VETRARSKODUN!
Tilboð nsstu vikur.
Notið tækifærið og
undirbúið bílinn
fyrir veturinn.
Leitið upplýsínfl*
Möldur ehf.
Bifreiðaverkstæði
Draupnisgötu V * Sími 461 3015
Síðu jakkarnir
komnir aftur
Jakkar frá 5.900
Buxur frá 2.900
Pils frá 2.900
Blússur frá 2.800
Kjólar og vesti
Mikið úrval af fallegum
velúrgöllum frá 4.900.
Nýbýlavegi 12, sími 554 4433.
Ný sending af
MORE
MORE
yfirstærðir
St. 42-§8.