Dagur - 24.10.1998, Síða 8

Dagur - 24.10.1998, Síða 8
8- LAVGARDAGVR 24. OKTÓBER 1998 LAVGARDAGVR 24. OKTÓBER 1998 - 9 FRÉTTASKÝRING Datfur Rosaleg áhætta að leggja fé í íslenskar inyiidir. Kvikmynda- gerð á forsendum iðn- aðar. Togstreita á milli afþreyingar og þess listræna. Skatt- fríðindi fyrir fjár- festa. Auðvitað hlýtur Qárfesting í kvik- myndum að verða áhugaverð fyr- ir íslenska fjárfesta ef menn eru tilbúnir að fara í það á þeim for- sendum að það eigi að vera af- koma af eigin fé og uppbyggingu þekkingar. Eg sé hinsvegar ekki alveg hvernig menn ætla að gera það á grundvelli verkefnafjár- mögnunar. Það er enginn áhættufjárfestir það stór að hann hafi Ijárhagslega burði til að taka áhættu með einhverjar 50-100 milljónir króna í svona mikilli áhættu,“ segir Gylfi Arnbjörnsson hjá Eignarhaldsfélagi Alþýðu- bankans. Gylfi var einn af frummælend- um á málþingi um íslenska kvik- myndaiðnaðinn sem haldið var í gær. Þar íjalláði Gylfi um aðkomu fjárfesta í íslenskum kvikmynda- iðnaði. Þingið var haldið á vegum Aflvaka og Kvikmyndasjóðs Is- lands. A þinginu var m.a. fjallað um skýrslu um kvikmyndaiðnað- inn sem Viðskiptafræðistofnun Háskóla Islands hefur tekið sam- an fyrir Aflvaka, auk þess sem Andy Paterson kvikmyndafram- leiðandi ræddi um samanburð á kvikmyndagerð á Islandi og á Bretlandi. Þá reifaði Friðrik Frið- riksson Ieikstjóri um það hvernig sé að búa til kvikmynd á Islandi. Að Iokum fóru fram pallborðsum- ræður undir stjórn Þorfinns Ómarssonar framkvæmdastjóra Kvikmyndasjóðs. Hugsað í einstökiun verkefnum Gylfi Ambjörnsson bendir á að ís- lenskur kvikmyndaiðnaður hafi einkennst mjög mikið af því að menn hafa hugsað í einstökum verkefnum og haft Iifibrauð af því að skapa sér vinnu. Fyrir fjárfesta sé það lykilspurning íyrir því að leggja fé í greinina hvort þessi at- vinnugrein sé tilbúinn að græða peninga af eigin fé, skila hagnaðj. Ef svo er þá velta menn því fyrir sér hvað þarf að gera til að svo geti orðið. Þessutan velta m.a. ís- lenskir Ijárfestar fyrir sér verð- mætamynduninni hæði í föstum íjármunum en líka í formi þekk- ingar og hvort viðkomandi fyrir- tæki sé það vænlegt að ástæða sé til að leggja fé í það með tilliti til áhættu og ágóða. Af þeim sökum er viðbúið að fjárfestar leggi áher- slu á iðnaðarþáttinn í kvikmynda- gerðinni þegar kemur að þeim. Togstreita „Hættan er sú að það getur myndast togstreita á milli þarfa iðnaðar og hagnaðarþáttarins á móti hinum listræna þætti. Þannig að málið snýst um það hvort menn séu tilbúnir að fara í þetta sem iðngrein og byggja því upp kvikmyndagerð á forsendum iðnrekstrar," segir Gylfi Arn- björnsson. Hann segir að engu að síður séu til listrænar myndir sem hafi fengið mikla aðsókn. Þær séu hinsvegar færri en hinar, því miður. „Það held ég ekki. Ég hef enga trú á því að hér sé áhugi á verk- efnafjármögnun í kvikmynda- gerð. Það fylgir því svo rosaleg áhætta,“segir Gyifi aðspurður hvort íslenskir ijárfestar séu til- búnir að leggja fjármagn til ís- Ienskrar kvikmyndagerðar að öllu óbreyttu. Lítil líkindi séu til þess fyrr en menn verða búnir að gera það upp við sig hvort þeir séu til- búnir að gera myndir sem hægt sé að græða einhveija peninga á. I það minnsta hafa fjárfestar ekki enn fengið að sjá viðskiptááætl- anir vegna kvikmyndagerðar sem í senn er gerð út á hagnað og á forsendum iðnaðar. Hann segir að hinsvegar sé allt annar handleggur að leggja Ijár- magn í stórt og sterkt fyrirtæki með fjölþætta starfsemi. Slíkt gæti verið eitthvað í auglýsinga- gerð, þáttagerð, innlendri og er- lendri kvikmyndagerð o.s.frv. I slfku dæmi sætu fjárfestar að minnsta kosti uppi með hlutabréf í verðmætri þekkingu þótt eitt- hvert tap yrði t.d. á gerð einnar myndar. Ahættudreifingin yrði því meiri en þegar veðjað er öllu á eina mynd. Það væri nánast eins og að spila í Lottói sem fjárfestar gera ekki að sögn Gylfa. Lcitað nýrra leiða Mikill áhugi er meðal íslenskra kvikmyndagerðarmanna og áhugafólks um kvikmyndir að leita leiða til að renna styrkari stoðum undir þessa atvinnugrein. I því sambandi er áherslan ekki einvörðungu fólgin í því að reyna að kreista fram meira fé úr ríkis- sjóði, heldur einnig að fá til liðs við sig erlenda sem innlenda fjár- festa. Sömuleiðis huga menn að breyttum skattareglum í Iíkingu við það sem eflt hefur kvik- myndaiðnað víða erlendis. Að mati kunnugra er kvik- myndagerð ekki aðeins atvinnu- skapandi fyrir fagfólk. Hún getur einnig verið góð landkynning og trekkt að ómældan hóp af ferða- mönnum með tilheyrandi gjald- eyristekjum. Þær tekjur kunna að verða mun meiri ef tekst að laða hingað erlent kvikmyndagerðar- fólk, svo ekki sé talað um önnur margfeldisáhrif sem öflugur ís- lenskur kvikmyndaiðnaður getur haft á efnahagslífið. Horft til Englands Þá horfa menn einnig töluvert til þeirra hugmynda sem Englend- ingar hafa haft uppá borðum til að efla sína kvikmyndagerð. Sam- kvæmt þeim er ætlunin að nota hluta af þeim Qármunum sem fást í þeirra þjóðarlottói til að styrkja ákveðin fyrirtæki í kvik- myndagerð. Val þessara fyrirtækja grund- vallast m.a. á því að þau leggi fram áætlanir um væntanlegt verkefni og hvernig þau telja að 2SA'H W'-. 1ÓSKAR JÓfýASSOM j |[sÍGSV£RRl"^5Wj íslenskir kvikmyndagerðarmenn leita ýmissa leiða til að styrkja grundvöllinn fyrir gerð innlendra mynda. íþeim efnum er m.a. horft til Englands þar sem hugmyndir eru uppi um að þarlend kvikmynda- gerð fái fjármagn frá enska þjóðarlottóinu. best sé að standa að framleiðslu þeirra. I áætluninni frá umsækj- endum þurfa t.d. að koma fram atriði eins og reynsla og hæfni starfsmanna, tækjakostur, áætl- anir um fjármögnun, dreifingu, saga fyrirtækisins og yfirleitt allt sem skiptir máli við framgang og framkvæmd verkefnisins. A grundvelli þessa eru síðan valin þijú fyrirtæki sem fá umtalsverða fjármuni frá Iottóinu. I því sam- bandi hefur verið rætt um að allt að 156 milljónir punda renni til myndveranna. Þá kemur einnig til greina að þetta fyrirkomulag nái aðeins til eins fyrirtækis. Gangi það eftir er viðbúið að þau fyrirtæki sem þeg- ar fá stuðning muni sameinast í eitt stórt. Með því yrði áhættu- dreifingin meiri svo ekki sé talað um þann ávinning sem fæst fram Frá málþingi um íslenska kvikmyndaiðnaðinn sem haldið var í gær. Mikill áhugi er meðal islenskra kvikmyndagerðarmanna og áhugafólks um kvik- myndir að leita leiða til að renna styrkari stoðum undir þessa atvinnugreinr með hagkvæmni stærðarinnar. Jafnframt yrði hægt að sameina kraftana í dreifingu og markaðs- setningu mynda. Talið er að þetta fyrirkomulag verði mun vænlegra fyrir utanað- komandi fjárfesta til að leggja fé til slíks reksturs vegna þeirrar áhættudreifingar sem myndast innan fyrirtækisins. Fyrir utan arðsemissjónarmið ber þessi leið með þrjú fyrirtæki keim af því fyr- irkomulagi sem tíðkast við rekstur myndvera í Bandaríkjunum. Skipulag myndveranna yrði þá með þeim hætti að verkefni verða tekin inn og metinn af starfs- mönnum þess myndvers sem á í hlut. A þennan hátt getur hver sem er komið og Iagt fram handrit og hugmyndir. Síðan ákveða yfir- menn myndversins hvort verkefn- ið fari í vinnslu. SkattMðindi Þá binda íslenskir kvikmynda- gerðarmenn vonir við að hægt verði að stuðla að því að erlend kvikmyndaver sjái sér fært að nýta landið sem tökustað fyrir sínar stórmyndir. Til að svo geti orðið þarf að búa þannig um hnútana að fjárfesting í kvikmynd verði að stórum hluta ef ekki að öllu leyti frádráttarbær frá skatti, eins og víða hefur verið gert erlendis. I þessum efnum eru bundnar nokkrar vonir við vinnu nefndar sem iðnaðarráðherra skipaði ekki alls fyrir löngu. Þeirri nefnd er m.a. ætlað að skoða með hvaða hætti sé hægt að koma til móts við óskir erlendra framleiðenda um breytingar á skattalögum. I skýrslu Viðskiptafræðistofn- unar Háskóla Islands sem unninn var fyrir Aflvaka kemur m.a. fram að fjárfesting í kvikmynd sé að fullu frádráttarbær í Astralíu og svipað kerfi er við lýði á Nýja -Sjá- landi. Samkvæmt írskum skatta- lögum er framleiðendum heimilt að fjármagna framleiðslukostnað myndar með 50% - 60% frádrátt- arbærum framlögum frá fyrirtækj- um og einstaklingum. Hérlendis og víða annarsstaðar fer aðal- stuðningurinn við kvikmyndagerð fram í gegnum úthlutunarnefndir kvikmyndasjóða samkvæmt ákveðnum starfsreglum. Þetta fyr- irkomulag getur þó leitt til þess að viðkomandi úthlutunarnefnd endurspegli ekki nógu vel mark- aðinn, þ.e. þá eftirspurn sem er meðal áhorfenda. 1 Danmörku er hinsvegar við lýði svokallað 60/40 kerfi. Það virkar þannig að ef framleiðanda tekst að afla 60% af af kostnaði fær hann 40% styrk á móti. Þetta kerfi er talið efla markaðsleg sjón- armið í verkefnavali og er óháð smekk úthlutunarnefnda á hveij- um tíma. Það helgast m.a. af því að opinberi styrkurinn er ein- göngu háður því að aðrir fjárfest- ar, sem leggja fram 60% af fjár- magninu, hafi trú á verkefninu. Hærra framlag frá ríki „Fjárfestar koma ekki að fjár- mögnun íslenskra kvikmynda fyrr en einhver hagnaðarvon verður fyrir hendi. Til að það gerist þarf Kvikmyndasjóður að geta hækkað aðeins sitt framlag," segir Þor- finnur Omarsson framkvæmda- stjóri Kvikmyndasjóðs. Á þessu ári hefur sjóðurinn um 80 milljónir króna til ráðstöfunar til að styrkja íslenska kvikmynda- gerð. Samkvæmt ákvörðun sjóðs- ins hafa verið veittir styrkir til þriggja mynda, eða sem nemur 20%-25% af framleiðslukostnaði þeirra. Mismuninn verða fram- leiðendur þeirra að útvega ann- arsstaðar frá, erlendis, úr eigin vasa eða frá öðrum innlendum aðilum. Þannig fékk t.d. mynd Hrafns Gunnalugssonar, Myrkra- höfðinginn 38 milljónir en gerð hennar err talin kosta um 155 milljónir króna. Englar alheims- ins undir stjórn Friðriks Friðriks- sonar fékk 26 milljónir króna en upphafleg kostnaðaráætlun hljóð- aði uppá 120 milljónir. Óskabörn þjóðarinnar eftir Jóhann Sigmars- son fékk 10 milljónir króna en áætlaður kostnaður hennar er um 45 milljónir króna. Viðtalstímar bæjarfulltrúa Mánudaginn 26. október 1998 kl. 20-22 verða bæjarfulltrúarnir Sigurður J. Sigurðsson og Ásta Sigurðardóttir til viðtals á skrif- stofu bæjarstjóra að Geislagötu 9, 2. hæð. Bæjarfulltrúarnir munu svara símaviðtölum eftir því sem að- stæður leyfa. Síminn er 462 1000. y acnumg Kjólar, buxna- og pilsdragtir hJtlQýdmfhhiUi Engjateigi 5, sími 581 2141. Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00. Hunting og Navigator II STEINER SJÓNAUKAR * Algjörlega ryk- og vatnsþéttir. * Engin móða við -40°C til 80° C og við alld að * Með eða án innbyggðs áttavita. * Lífstíðareign með allt að 30 ára ábyrgð. * Einstaklega bjartir og skarpir (“auto focus“) 95% raka. Brimrún hf Hólmaslóð 4, sími 561 0160 AKUREYRARBÆR Búsetu og öldrunardeild Heimaþjónusta Akureyrarbæjaróskar eftir að ráða hverfisstjóra Hverfisstjóri hefur umsjón með og daglega stjórn á allri heimaþjón- ustu í því hverfi sem hann er ráðinn til að sinna. Hverfisstjóri þarf að hafamenntun á félags-, heilbrigðis- eða uppeld- issviðireynslu af starfi með fötluðum og/eða öldruðumþekkingu á málefnum fatlaðra og aldraðra almennt og þeirri þjónustu sem þeim á að standa til boða. Starfið krefst lipurðar í mannlegum samskipt- um, sjálfstæðra vinnubragða og frumkvæðis. Heimaþjónustan sinnir félagslegri heimaþjónustu, félagslegri lið- veislu við fatlaða og frekari liðveislu við fatlaða. Samþætting þjón- ustu með þessum hætti er nýjung og er um að ræða brautryðjenda- starf af hálfu Akureyrarbæjar. Starfið er enn í mikilli mótun og framundan eru spennandi verkefni við endurskipulagningu og breyt- ingar á starfsemi Heimaþjónustunnar.Laun skv. kjarasamningi STAK við Launanefnd sveitarfélaga. Upplýsingar um starfið veitir Kristín Sigursveinsdóttir, verkefnisstjóri heimaþjónustu í síma 460-1410. Upplýsingar um kaup og kjör veitir Starfsmannadeild Akureyrarbæjar í síma 462-1000. Umsóknum skal skila til starfsmannadeildar Geislagötu 9 á eyðublöðum sem þar fást. Umsóknarfrestur er til 6. nóvember næstkomandi. Starfsmannastjóri Askriftarsíminn er 8oo 7080 .....Bsg FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.