Dagur - 07.11.1998, Page 4

Dagur - 07.11.1998, Page 4
4 -LAUGARDAGUR 7. N Ó V F. M B E R 1998 Kristniboðsdaguriim á morgun Kristniboðsdagurinn er á morgun og verður starfs Sambands ís- lenskra kristniboðsfélaga í Eþíópíu og Kenýu minnst sérstaklega í kirkjum landsins. Utvarpað verður frá messu í Breiðholtskirkju þar sem Guðlaugur Gunnarsson kristniboði predikar en hann er nýkom- inn heim frá Eþíópíu eftir 13 ára starf. Einnig verða samkomur í húsi KFUM í Reykjavík og á Akureyri. Sjö kristniboðar eru nú starfandi í þessum iöndum en 45 ár eru síð- an fyrstu íslensku kristniboðarnir settust að í Konsóhéraði í Eþíópíu. Lánað til hlutafjár- kaupa Búnaðarbankinn hefur ákveðið að auðvelda viðskiptamönnum sínum kaup á hlutabréfum í Fjárfest- ingarbankanum með því að lána þeim fé til þess. Lánin verða veitt gegn handveði í hlutabréfunum og geta numið allt að 85% af kaup- Hreinn Loftsson, formaður einkavæð- verði þeirra. Landsbankinn hefur ingarnefndar, og Bjarni Ármannsson, einnig ákveðið að bjóða upp á Ián forstjóri Fjárfestingarbankans, kynna til hlutabréfakaupa í Fjárfestingar- sölu hlutafjár íbankanum. bankanum. Eins og fram hefur ----------------- komið stendur yfir sala á 49% hlutafjár í bankanum. Flugeldhúsframleiðslau eykst Framleiðsla flugeldhúss Flugleiða hefur aukist jafnt og þétt undan- farin 5 ár að því er fram kemur í frétt frá fyrirtækinu. Stefnir í að framleiðslan á þessu ári verði 56% meiri en hún var 1994. Fyrstu 9 mánuði ársins hafa verið framleiddar um 4300 máltíðir á dag. Þetta endurspeglar fjölgun farþega hjá Flugleiðum á þessum tíma en flugeldhúsið selur mat til margra annarra flugfélaga. Föt hauda kokkum Fyrirtækið Danberg efh. hefur tekið að sér sölu og dreifingu á vinnu- fatnaði frá bandaríska fyrirtækinu Chef Revival Usa Inc. Þessi fatn- aður er ætlaður starfsfólki veitingahúsa, mötuneyta og allra þeirra sem vinna við matvælaiðnað en framleiðandinn er sagður leiðandi á þessu sviði í Bandaríkjunum, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Danberg. Engin andstaða við hugmyndir KEA Kynning á hlutafélagaáformum KEA stendur nú sem hæst og er m.a. búið að kynna breytinguna á fimm deildarfundum hjá fyrirtækinu. Að sögn Eiríks S. Jóhannssonar kaupfélagsstjóra, hafa hugmyndirn- ar hvergi mætt andstöðu, enda segist hann ekki hafa átt von á því. „Heilt yfir hefur hljóðið verið mjög jákvætt," segir Eiríkur. — BÞ FRÉTTIR Ketilhúsið á Akureyri. Hugmyndir eru nú komnar fram um að Leikfélagið fái þar aðstöðu. Gilfélag í sjálfheldu Starfsmaður verði ráðinn, tekið upp samstarf við Leikfé- lagið, bærinu leggi fram 23 milljóuir. Þessar eru tillögur stjómar Gilfélagsius á Akureyri. Stjóm Gilfélagsins vill að leitað verði samstarfs við Leikfélag Ak- ureyrar og Akureyrarbæ um að- stöðu fyrir Leikfélagið í Ketilhús- inu og samnýtingu búnaðar. Lagt er til að Akureyrarbær leggi fram 23 milljónir á næsta ári til að hægt verði að Ijúka við Ketilhús- ið. A almennum borgarafundi sem haldinn verður um málefni Ketilhússins og almennt um menningar- og listalíf f bænum verður kynnt greinargerð stjórnar Gilfélagsins um framtíðarstarf- semi og tillögur um næstu skref í starfsemi félagsins. Einnig er hugmyndin að stjórn Gilfélagsins ráði starfsmann til aðstoðar framkvæmdastjóra frá og með 1. janúar. Lagt er til að Akureyrarbær endurskoði fjárframlög til Menn- ingarmiðstöðvar Gilfélagsins og tryggi félaginu viðbótarfé sem svarar einu stöðugildi fyrir skrif- stofumanneskju til að gera því kleift að vinna markvisst að fjár- öflun. Fram kemur að ástandið sé þannig nú að framkvæmda- stjóri Gilfélagsins „sem með réttu ætti að vinna fyrst og fremst að stjórnun og sköpun framtíðarverkefna, ekki síst fjár- öflun, hefur neyðst til að veija mestu af starfstíma sínum sem handlangari, sendill og ræsti- tæknir. Þetta ástand stendur allri þróun fyrir þrifum og er í raun sjálfhelda sem ekki verður brotist úr nema fleiri starfskraftar komi til,“ eins og segir orðrétt í niður- lagi greinargerðarinnar. Deiglan skilar nú hlutfallslega minni tekj- um en áður til félagsins þrátt fyr- ir að salurinn sé nú notaður meira en nokkru sinni. Salurinn er orðinn slitinn og viðhald orðið verulega kostnaðarsamt. Borg- arafundurinn um málefni Gilfé- lagsins hefst klukkan 13.30 í dag og munu fulltrúar bæjarstjórnar- flokkanna meðal annarra flytja þar erindi og svara fyrirspurnum. - Hi REKSTRARVÖRUR FYRIR FYRIRTÆKÍ! * LJÓSRITUNARPAPPÍR (HVÍTUR OG LITAÐUR) * TÖLVUPAPPÍR * FAXPAPPÍR * KASSARÚLLUR *POSARÚLLUR * REIKNIVÉLARÚLLUR 4 ZWECK-FORM LÍMMIÐAR (FYRIR LEYSER -OG BLEKSPRAUTUPRENTARA) * OFL.OFL.. VIÐ BJÓÐUM HEILDARLAUSN Á REKSTRARVÖRUM FYRIR FYRIRTÆKI. KOMDU í HEIMSÓKN OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ EÐA HAFÐU SAMBAND í SÍMA: 462 4166 LIMMIÐAR NORÐURLANDS Hjalteyrargötu 2 • 600 Akureyri Sími 462 4166 • Fax 461 3035 Netfang: limnor@est.i Allt vaðandl í lánum Þrátt fyrir að afkoma landsbyggðarhótela sé afar slæm, eru lítil tákmörk fyrir fram- kvæmdagleði. Áslaug Alfreðsdóttir, formaður Sambands veitinga- og gistihúsa, segir að framboð peninga hjá bönkum og lánasjóðum hafi undanfarið verið meira en eftir- spurnin. Stjórn SVG setur stórt spurningarmerki við stefnu Iána- sjóða og bankastofnana þegar Iit- ið er til mikilla fjárfestinga í gist- ingu út um allt land að undan- förnu. Áður hafi menn þurft að krjúpa á kné fyrir bankastjórum ef meiningin var að ráðast í framkvæmdir, en nú sé hægt að velja milli lána. Afkoma Iandsbyggðarhótela var afar slæm í fyrra samkvæmt hagkönnun Sambands veitinga- og gistihúsa. Að meðaltali eiga hótelin aðeins tæp 6% upp í af- skriftir, leigu og fjármagnskostn- að en hlutfallið í Reykjavík er á sama tíma rúm 30%. Áslaug rek- ur Hótel Isafjörð og hún gagn- rýnir að á sama tíma og gífurleg aukning hefur orðið í allri gisti- aðstöðu úti á landi hafi ekki ver- ið unnið markvisst að lengingu ferðamannatímans. Fjölgun ferðamanna hafi að langmestu leyti aðeins skilað sér á höfuð- borgarsvæðinu. „Við viljum meina að það sé ekki nóg að fjár- festa bara í hótelunum. Það þarf að Ijárfesta í öllum pakkanum, ekki síst í samgöngkerfinu til að fólkið komist út á land. Það þýð- ir ekkert að byggja hótel í Mý- vatnssveit ef enginn kemst þang- að,“ segir Áslaug. Sammninn segir sitt Eru landsbyggðarhótel hreinlega að riða til falls? „Eg er búin að reka þetta hótel í 10 ár og það hefur gengið ákaflega illa að ná endum saman og er ég þó á sæmilegum stað fyrir viðskipti allt árið. Það hafa verið gífurleg- ar sviptingar í þessum geira að undanförnu. Mikill samruni og fyrir því eru ýmsar forsendur. Það eru bara örfáir sjálfstæðir einstaklingar orðnir eftir í hótel- rekstri á landsbyggðinni," segir Áslaug. — BÞ

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.