Dagur - 07.11.1998, Qupperneq 5
T
T^ht
FRÉTTIR
^VaVw.wx7,
LAVGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1998 - S
Löglegu fíkníefnin
eru mun hættulegri
Helgi Gunnlaugsson varpar því fram að vímuefnaváin sé notuð afstjórn-
málamönnum sjálfum sér til framdráttar í pólitík.
Heilbrigðisvandi
vegna ólöglegra fíkni-
efíia bliknar í saman-
burði við þann vanda
sem lögleg fíkniefni
valda, segir Helgi
Gunnlaugsson dósent.
Auðvelt virðist að
sameinast um fíkni-
efnin og nota þau sér
tH framdráttar í
póHtík.
Það er „fullkomið óraunsæi að
stefna að vímuefnalausu samfé-
lagi,“ segir Helgi Gunnlaugsson,
dósent í félagsfræði við Háskóla
Islands.
Hann vakti athygli á því í er-
indi á ráðstefnu um vímuvarnir
að ef meta ætti vímuefni í ljósi
staðfestrar skaðsemi þeirra væri
vandséð hvernig hægt væri að
réttlæta muninn á milli löglegra
og ólöglegra vímugjafa. Rann-
sóknir hafi til dæmis ekki sýnt að
kannabisefnin ein og sér verði
mönnum að bana „en lögleg efni
eins og tóbak og áfengi virðast
murka lífið úr mönnum. Heil-
brigðisvandi vegna ólöglegra
fíkniefna eins og kannabis, kóka-
íns eða jafnvel heróíns bliknar til
dæmis í samanburði við þann
vanda sem lögleg fíkniefni eins
og tóbak og áfengi valda í Vestur-
E\TÓpu.“
Helgi benti á að hér á landi
væru dauðsföll af völdum tób-
aksreykinga áætluð um 300 á
ári, og um 40 af völdum áfengis,
en dauðsföll vegna ólöglegra
fíkniefna hafi verið umtalsvert
lægri. Talið sé að 300-500 þús-
und Bandaríkjamenn deyi árlega
vegna tóbaksnotkunar en aðeins
2-3 þúsund vegna ofneyslu
heróíns. „Viðbrögð umhverfisins
virðast því í raun vera í litlu sam-
hengi við umfang vandans hver-
ju sinni og þekkta skaðsemi efn-
anna."
Félagslegir taparar
Helgi ræddi einnig afstöðu
stjórnmálamanna: „Við sjáum
þessa dagana hvern frambjóð-
andann af öðrum lýsa yfir hversu
mikið þeir eru á móti fíkniefnum
og biðröð niðrá þingi þar sem
hver þingmaðurinn eftir annan
lýsir yfir hversu vandinn er orð-
inn djúptækur - það virðist því
vera auðvelt að sameinast um
fíkniefnin og nota þau sér til
framdráttar í pólitík," sagði
hann. „En á sama tíma minnkar
í raun ábyrgð stjórnvalda á vand-
anum, því rót hans liggur jú í
neyslu þessara framandi efna og
ef neysla þeirra væri upprætt
væri okkur borgið, að minnsta
kosti að einhverju leyti. En mis-
notkun harðra fíkniefna er iðu-
Iega fylgifiskur félagslegra tapara
og þó neysla geri vandann vissu-
lega erfiðari viðureignar er hún
eigi að síður ekki orsök vandans,
nema að litlu Ieyti.“
Hann sagði ekki nóg að ein-
blína á einstaklingsbundin með-
ferðarúrræði, þó þau væru nauð-
synleg. Til að taka á vanda þeirra
sem sitja eftir í neyslu harðra
fíkniefna verði að koma til mark-
viss pólitísk stefnumótun sem
taki á grunnvanda undirmáls-
hópanna þar sem neyslan sé
mest. „Það verður að styrkja hið
félagslega öryggisnet, koma til
móts við þá með sértækum hætti
í gegnum margvíslegar úrbætur í
húsnæðis- og menntamálum,
svo og starfsþjálfun og hvað
varðar atvinnutækifæri. Með-
ferðarleiðin verður jafnframt að
vera opin og greið, þar sem tekið
er á vanda þeirra sem djúpt eru
sokknir í vímuna á heilbrigðis-
grundvelli í stað þess að láta þá
fela sig í skotgröfunum í skúma-
skotum samfélagsins," sagði
Helgi. - ESJ
Öljós
gagnrýni
Ásgeir Magn-
ússon, oddviti
F-listans, segir
erfitt að átta
sig á í hverju
gagnrýnin
felist sem fram
kom í Degi í
gær á störf Ásgeir Magnús-
meirihluta bæj- son.
arstjórnar á Ak-
ureyri sem F-
listi og sjálfstæðismenn skipa.
Hann lýsir eftir rökstuddum
dæmum, en segir þó ljóst að
ráðning nýs jafnréttisfulltrúa hjá
Akureyrarbæ hafi dregist úr
hömlu. Elín Antonsdóttir, fyrr-
um stuðningsmaður Kvenna-
lista, og Sigrún Stefánsdóttir,
sem skipaði 4ða sæti F-listans
fyrir kosningar, lýstu vonbrigð-
um með störf meirihlutans í
blaðinu í gær og þá sérstaklega
hvað varðar jaífiréttismál.
„Eg veit ekki hvað Elín á við
þegar hún nefnir kvótakerfi á
vinnu Akureyrarlistans og átta
mig ekki á því hvað hún er að
fara. Eg þykist hins vegar vita að
Sigrún sé að vísa til þess að ekki
hefur endanlega verið gengið frá
ráðningu nýs jafnréttisfulltrúa.
Við höfum ákveðið að ganga ekki
frá þeirri ráðningu fyrr en við
höfum lokið þeirri uppstokkun
sem orðið hefur á stjórnsýslunni,
en ég tek undir að það er full
ástæða til að hraða því sem kost-
ur er,“ segir Ásgeir.
Aðspurður segist Ásgeir engar
áætlanir hafa uppi um að blanda
sér í landsmálapólitíkina. Hann
hafi nóg að starfa og hugsi sér að
engu leyti til hreyfings. — BÞ
Ekkert þokast í þjófnaðarmálmu
Enn hefur enginn gefið sig 5am eða skilað því fé sem stolið var af
fjögurra barna einstæðri móður á mánudaginn á Amtsbókasafninu á
Akureyri. Konan er ekki bjartsýn á að fá féð til baka, en sagði þó að
kannski myndi eitthvað gerast um helgina. Bent hefur verið á að ef
þjófurinn eða þjófarnir sjá að sér, geti viðkomandi sent peningana f
lokuðu umslagi til lögreglu eða á ritstjórnarskrifstofu Dags. Einstæða
móðirin er illa sett fjárhagslega og mátti ekki við þessu afhroði. Þess
má geta að starfsfólk safnsins liggur alls ekki undir grun í þessum
efnum.
Guðni og ísólfíir efstir
Gengið verður frá framboðslista Framsóknar-
flokksins á Suðurlandi fyrir þingkosningarnar í
vor á kjördæmaþingi flokksins á Hótel Selfossi
í dag. Aðal- og varamenn í kjördæmaráði flokks-
ins velja fólk á listann en fátt bendir til annars
en þingmennirnir Guðni Ágústsson og Isólfur
Gylfi Pálmason verði í 1. og 2. sæti eins og fyr-
ir síðustu kosningar.
Búmenu fuuda
Búmenn, samtök eldri borgara um íbúðabyggingar samkvæmt Bú-
seta-kerfinu, halda framhaldsaðalfund á morgun kl. 15.00 á Hótel
Sögu. Um það bil 1.000 manns hafa gengið í félagið síðan stofnfund-
urinn var haldinn fyrir nokkrum vikum síðan.
Á fundinum á morgun mun Guðrún Jónsdóttir arkitekt, formaður
félagsins, gera grein fyrir hugsanlegum byggingastöðum. En í því
sambandi má geta þess að félaginu stendur til boða 5 hektara land í
landi Vatnsenda við Elliðavatn undir íbúðabyggingar. Þá mun Árni
Sigfússon ræða um fjármál eldra fólks og hvaða réttindi það á í al-
mannatryggingakerfinu og síðan mun Þorgeir Magnússon verkfræð-
ingur ræða um lækkun byggingakostnaðar.
Skemmtiatriði verða á fundinum. Meðal annars mun Kvennakór
Reykjavíkur syngja og Össur Skarphéðinsson stjórna fundi.
-S.DÓR
Guðni Ágústsson,
leiðtogi sunnlenskra
framsóknarmanna
A aðra milljón fyrir
nokkra fnndi
Sj álfstæðismenn
gagnrýna Ingibjörgu
Sólrúuu harðlega.
Sjálfstæðismenn gerðu harð hríð
að Ingibjörgu Sólrúnu Gísladótt-
ur borgarstjóra á fundi borgar-
stjórnar í fyrrakvöld. Þeir gagn-
rýndu hana harðlega fyrir að
þiggja full Iaun fyrir setu í hafn-
arstjórn þótt hún væri afar sjald-
séð á fundum hafnarstjórnar.
Fyrir hvern fund í hafnarstjórn
fær borgarstjóri rúmar 30 þús-
und krónur. Þannig reiknast
mönnum til að borgarstjóri hafi
fengið um 1,5 milljónir króna frá
hafnarstjórn frá því hún varð
borgarstjóri árið 1994. Á því
tímabili hefur hún aðeins setið
innan við tíu fundi, en hafnar-
stjórn fundar einu sinni í mán-
uði.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgar-
stjóri hefur fengið um 1,5 milljónir
króna fyrir setu í hafnarstjórn frá
því hún tók við embætti árið 1994.
„Þetta hefur tíðkast um ára-
tuga skeið. Sjálfstæðismenn
höfðu aldrei gert athugasemdir
við þetta þegar þeirra maður var
í sæti borgarstjóra," segir Árni
Þór Sigurðsson aðstoðarmaður
borgarstjóra og formaður hafnar-
stjórnar. Hann segir að sam-
kvæmt reglugerð á borgarstjóri
sæti í hafnarstjórn, sé yfirmaður
Reykjavíkurhafnar og ber ábyrgð
á henni samkvæmt því. Árni Þór
segir að þessi nefndarlaun til
borgarstjóra séu því hlutdeild
hafnarinnar í launum borgar-
stjóra sem sé einna lægstlaunaði
sveitarstjórinn í landinu. Mánað-
arlaun borgarstjóra eru svipuð og
forsætisráðherra, eða rúmar 400
þúsund krónur.
Eftir því sem næst verður kom-
ist var Davíð Oddsson jafn sjald-
séður á fundum hafnarstjórnar
og núverandi borgarstjóri þegar
hann var borgarstjóri. Hinsvegar
mun Markús Örn Antonsson
hafa setið mun fleiri fundi í
hafnarstjórn en þau bæði þegar
hann gegndi embætti borgar-
stjóra. -GRH
Tugimlljóna kostnaður hjá FSA
Ýmsar nauðsynlegar breytingar á
hugbúnaði, tölvum og tækjum
nema tugum milljóna á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri
áður en árið 2000 gengur í garð,
en stýrikerfi marga véla er
þannig uppbyggt að ekki er gert
ráð fyrir nema tveimur tölum fyr-
ir ártalið.
Halldór Jónsson, fram-
kvæmdastjóri FSA, segir að ná-
kvæm athugun sé í gangi um
þessar mundir og verði þeirri
vinnu lokið innan nokkurra
vikna. Hann segir Ijóst að öryggi
sjúklinga verði tryggt með öllum
tiltækum ráðum þegar stóra
stundin rennur upp. „Það hlýtur
að verða markmiðið eins og
alltaf."
Aðspurður um hvaða tæki það
séu einkum sem verði fyrir rösk-
un, segir Halldór að nánast sé
ekki hægt að undanskilja neitt í
þeim efnum. „Allur búnaðurinn
er rafeindastýrður, en eitthvað
verður sameiginlega hægt að
vinna að þessu. Ráðuneytum er
kunnugt um þennan vanda og
starfshópar eru að meta stöðuna.
Það þarf að setja peninga í þessa
hluti,“ segir Halldór. Áætlaður
kostnaður Landspítala fyrir árið
2000 er um 150 milljónir króna,
eins og fram kom í Degi í gær.
- BÞ
I
I
1