Dagur - 18.11.1998, Síða 3

Dagur - 18.11.1998, Síða 3
MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1998 - 3 Thgir FRÉTTIR Þuitglyitdi þjakar sjö- trndu hverja móöur Meðal niðurstaðna í könnun sem Marga Thome hjúkrunarfræðingur og Ijósmóðir gerði á þunglyndiseinkennum kvenna eftir barnsburð er að meiri óværð og seinkun á vitsmunaþroska barns tengist þunglyndi móður. Myndin er ótengd rannsókninni. Sjöunda hver kona upplifir iiiikil jmng lyndiseihkeimi eftir bamsburð og fjórð- ungurinn greinist með foreldrastreitu. „Þunglyndi hjá mæðrum eftir fæðingu leynir oft á sér, en getur engu að síður verið alvarlegt fyr- ir móðurina og fjölskyldu henn- ar. Því er mikilvægt að unnt sé að greina hvaða konur þjást af þunglyndi," segir Marga Thome, hjúkrunarfræðingur og ljósmóð- ir, í Læknablaðinu (nóv. '98), þar sem hún segir frá rannsókn á þunglyndiseinkennum kvenna eftir barnsburð. I ljós kom að sjöunda hver kona (14%) upp- lifði mikil og tíð þunglyndisein- kenni 2-3 mánuðum eftir barns- burð, sem er því álíka tíðni og í öðrum vestrænum löndum. AI- gengi einkennanna og alvarleiki þeirra eru háð foreldrastreitu, óværð ungbarnanna og félags- legri stöðu mæðranna. Aðeins rúmur Ijórðungur barnanna var laus við óværð að mati mæðr- anna, en Qórðungur þeirra sagð- ist hafa áhyggjur af heilsufari barna sinna. Fáar leita hjálpar... Urtak könnunarinnar voru allar ísenskar konur sem ólu börn á heilum ársíjórðungi, alls 1.056 konur. Þunglyndiseinkenni reyndust mun algengari hjá mæðrum; sem höfðu litla menntun, ef börnin voru óvær, mæðrum sem höfðu áhyggjur af heilsufari barns og/eða ef þær voru einstæðar mæður. Búseta skipti ekki máli. Fylgni var milli þunglyndiseinkenna og streitu í foreldrahlutverki, sem þjáði tæp- an fjórðung nýbakaðra mæðra. „Þótt þunglyndi eftir fæðingu sé algengt og erfiður sjúkdómur fyrir sumar konur og fjölskyldur þeirra, þá er það sjaldan greint að frumkvæði heilbrigðisstétta. Fáar konur leita sér hjálpar vegna vanlíðunar," segir Marga Thome. Þrefalt álgengara Þunglyndi er þrisvar sinnum al- gengara hjá konum 1-6 mánuð- um eftir barnsburð heldur en á öðrum tímum ævinnar, segir ljósmóðirin. Vanlíðan nýbakaðra mæðra geti verið margvísleg og tengst samskiptaerfiðleikum við maka. Meiri óværð og seinkun á vitsmunaþroska barns tengist þunglyndi móður. Þættir sem auka líkur á þunglyndi eftir barnsburð eru m.a.; óráðgerð þungun, þunglyndi á meðgöngu, að hafa barnið ekki á brjósti og atvinnuleysi. Og þunglyndar mæður sem skynja barn sitt á neikvæðan hátt vegna óværðar eru öðrum líldegri til að mynda óörugg tengsl við barnið, segir Marga Thome. -HEI Daníel Guðjónsson yfir- lögregluþjónn á Akureyri. Fanga- geymslur yfufullar Fangageynslur Lögreglunnar á Akureyri sem notaðar eru undir skammtímavistun yfirfylltust á sunnudag og var gripið til þess ráðs í einhverjum tilfellum að láta tvo sofa saman úr sér. Astæðan var sá mikli mannfjöldi sem handtekinn var eftir hnífs- stungumálið í Glæsibæjar- hreppi. Yfirheyra þurfti marga og flestir voru töluvert ölvaðir skv'. heimildum Dags. Þrír „venjulegir næturgestir" voru fyrir í geymslunum og því var úr vöndu að ráða. Ef verslunarmannahelgin er undanskilin er sjaldgæft að þessi staða komi upp, að sögn Daníels Guðjónssonar, yfirlögregluþjóns á Akureyri. Alla jafna eru átta klefar notaðir undir skamm- tímavistun, en afgangurinn er nýttur undir afplánun. I því ljósi segir Daníel ekki brýnt að Ijölga fangageymslum. Ovanalegt ástand hafi skapast þessa helgi. - BÞ Tónlistarhús írckar en knattspyriiuhiís 39% vilja fótboltahús en 43% tónlistarhús á Akureyri. Mönnum her hins vegar saman um að ekki sé rétt að stilla þessu tvennu upp sem andstæðum. Meirihluti Akureyringa er hlynntari byggingu tónlistarhúss en knattspyrnuhúss ef marka má skoðanakönnun sem Háskólinn á Akureyri hefur gert fyrir Dag ogAksjón. Spurt var: Ef þú þyrft- ir að velja á milli þess að láta byggja knattspyrnuhús eða tón- listarhús, hvort myndir þú velja. 39% völdu knattspyrnuhús, 43% tónlistarhús, 13% vildu hvorugt, 2% höfðu ekki skoðun og 3% vildu ekki svara. Engar andstæður Guðmundur OIi Gunnarsson, stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands, fagnar þessum mikla áhuga fyrir byggingu tón- listarhúss, en hann telur ekki rétt að stilla þessum kostum upp sem andstæðum. Hann telur að skilningur, ekki bara Akureyringa heldur landsmanna almennt, hafi aukist á gildi sérstakra húsa þar sem flutningur tónlistar nýt- ur sín. Kópavogsbúar og Hafn- firðingar hafi riðið á vaðið og í kjölfarið hljóti fleiri að koma. Guðmundur Óli segir að póli- tfkusar hafi ekki síst sýnt menn- ingarmálum aukinn skilning að undanförnu og hann er bjart- sýnn á framtíðina. „Kannski hef- ur ákveðin viðhorfsbreyting orð- ið. Það hefur jú komið fram að menningarmöguleikar eru stór þáttur þegar menn velja sér bú- setu, en ég vil reyna að koma í veg fyrir að menn stilli upp menningar- og íþróttastarfsemi sem andstæðum fylkingum," segir Guðmundur Óli. Hvort tveggja nauðsynlegt Stefán Gunnlaugsson, formaður knattspyrnudeildar KA, segir niðurstöðuna ekki koma honum á óvart. „I okkar ágæta bæjarfé- lagi verðum við bæði að hafa boðlega aðstöðu fyrir tónlistar- flutning og knattspyrnuiðkun. Ég veit að margir myndu nota tónlistarhús, annað hvort sem flytjendur eða hlustendur og þessi útkoma kemur því ekki á óvart. Jafnvel hefði ég haldið að svona könnun myndi sýna enn minna fylgi við byggingu knatt- spyrnuhúss." Líkt og Guðmundur Óli segir Stefán að ekki sé raunhæft að stilla þessu tvennu upp sem and- stæðum pólum. Iþróttir og menning eigi að lifa saman í sátt. Hann vill einnig taka fram að bæjaryfirvöld hafi að hans mati stutt vel við bakið á bæði íþrótta- og menningarstarfi í bænum. - BÞ Ólafur Amalds heiðraður I gær hélt um- hverfisráðuneyt- ið sérstaka sam- komu til heiðurs Ólafi Arnalds, samstarfsmönn- um hans og að- standendum verkefnisins „J arðvegsvernd“, sem í síðustu viku hlaut Um- hverfisverðlaun Norðurlanda- ráðs. Ráðherra, ráðuneytisstjóri og ýmsir sem koma að umhverfismálum fluttu ávörp og tölur af þessu tilefni. Fjögurra ára fangelsi fyrir hnífstungu Hérðasómur Reykjaness dæmdi í gær 42 ára gamla komu til Ijögurra ára óskilorðsbundinnar fangavistar fyrir að hafa stungið fyrn'erandi sambýlismann sinn með hnífi í brjóstholið og látið undir höfuð leggj- ast að koma honum undir læknishendur en það drógst í tvo daga að hann kæmist til læknis. Konan, Sóley Elídóttir úr Vestmannaeyjum stakk manninn í íbúð sinni í Kópavogi 1. mars síðastliðinn þar sem þau sátu ásamt þriðja manni við drykkju. Þykir sannað að Sóley hafi stungið manninn. Ljósadýrð loftin fyllir Talsvert var um að menn yrðu vitni að ljósagangi á himni í fyrrinótt, en jörðin er á leið í gegnum loftsteinabelti sem losnað hefur frá hala- stjörnunni Temple Tuttle. Sérstaklega sáu menn ljósin á Norðurlandi þar sem heiðskýrt var og bjart. Menn lýstu þessu sem ljósrákum sem minntu á rakettur á gamlárskvöld, nema hvað stefnan var öfug á við raketturnar. Loftsteinarnir í þessu belti eru Iitlir og koma inn í lofthjúp jarðar á rúmlega 255.000 kílómetra hraða og brenna upp. Við það myndast rákirnar. Umhverfisráðuneytið heiðraði ÓlafArnalds og sam- starfsmenn hans í gær.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.