Dagur - 19.11.1998, Side 4

Dagur - 19.11.1998, Side 4
20-FIMMTUDAGUR 19. NÚVEMBER 1998 MENNINGARLIFIÐ I LANDINU Þorskuriiin breytti heiimnum Mark Kurlansky með ævisögu þorsksins. Bákin er engan vegin þurr sagnfræði. Það var ekki ást á þorski sem matfiski semfékkKurlansky til að skrifaÆvisögu þorsksins heldurvarð hann sannfærður um mikilvægi hans í heimssögunni. Ævisaga þorsksins eftir Mark Kurlansky er nýkomin út í ís- lenskri þýðingu og hana ættu allir Islendingar að lesa, segir Olafur Hannibalsson þýðandi í formála bókarinnar, „til skiln- ingsauka á stöðu sinni í nútíð og fortíð í heiminum". En sjálfur segir hann bókina hafa opnað sér nýjar víddir í skilningi á gangi sögunnar. Svo undarlega fór að þegar bók Kurlanskys um þorskinn kom út í fyrra sat hún lengi á metsölulistum bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum. Enda er þetta ekkert venjuleg sagnfræði né ævisaga. Mark Kurlansky kemur frá þorskahér- aðinu Nýja-Englandi og er því alinn upp við mikilvægi þorsks- ins en við Islendingar gerum okkur sjálfsagt ekki grein fyrir því að þetta sjávardýr hefur haft mikil áhrif á samfélögin í kring- um okkur, „lífið er saltfiskur" sagði Laxness og gæti átt við um tilveru fleiri þjóða. „Þorskaðall- inn“ eins og ættirnar sem auðg- uðust á þorskveiðum 17. aldar í Massachussetts voru kallaðar, dýrkuðu þorskinn opinskátt og skreyttu jafnvel híbýli sín með honum. Þegar útgerðarmaður- inn Benjamin Pickman byggði sér herragarð um miðja 18. öld- ina lét hann smíða veglegan stiga milli hæða og var hvert þrep skreytt með gylltum út- skornum þorski! Undirstaða sjálfstæðis Bandarikj anna Eftir að hafa skrifað fjölda greina um þorskinn ffá ýmsum hliðum í störfum sínum sem blaðamaður fór Mark að íhuga hversu víðtæk áhrif þorskurinn hefði haft í gegnum tíðina og ákvað að segja sögu Atlantshafs- ins í gegnum þorskinn. Hann segir þorskinn m.a. grundvöll þess að Bandarfkjamenn börðust fyrir sjálfstæði sínu. Þegar það er borið undir hann að það sé býsna stór fullyrðing að segja þorskinn hafa breytt heiminum, brosir Mark bara út í annað og segir hann altént hafa breytt meiru en makríllinn. En röksemdir hans hafa ekki verið gagnrýndar af sagnfræðingum. Hann útskýrir mál sitt m.a. með því að þorskveiðarnar hafi orðið til að blása mönnum í Massa- chussetts sjálfstæðisanda í brjóst. Þannig var að nýlendubú- unum í Nýja-Englandi var að sjálfsögðu ætlað að eiga öll sín viðskipti við móðurlandið en þorskveiðarnar urðu til þess að Nýju-Englendingar fóru að leita sér nýrra markaða. A siglingum milli Spánar og Norður-Ameríku fóru að verða til viðskiptasam- bönd milli þeirra og þjóða í Karíba hafinu þar sem nýlendu- bretarnir seldu þorsk í skiptum fyrir ávexti, vín, síróp, krydd, kaffi og fleira. Raunar urðu ný- lendurnar í Vestur-Indíum mik- ilvægur markaður fyrir lélegan og illa unninn saltfisk og skreið, þ.e. úrkastið sem Evrópubúar vildu ekki, því saltfiskur var ódýr næring nauðsynlegt fyrir afrísku þrælana til að halda úti 16 tíma vinnu á sólarhring við vinnslu sykurreyrsins. Þegar Bretar uppgötvuðu að Nýju-Englendingar höfðu komið á blómlegum viðskiptum reyndu þeir að leggja þeim ýmsar við- skiptahindranir til að koma í veg fyrir þessa efnahagslegu sjálf- stæðistilburði. Settu m.a. lög um innflutningstolla á síróp sem flutt var inn frá Karíbahafinu en það voru mistök eins og svo margt hjá Bretum, segir Mark, enda telur hann að hindranirnar hafi eingöngu orðið til að efla baráttuvilja Massachussettsbúa til að losa sig úr breska heims- veldinu. Ævisaga þorskins er hins veg- ar engan veginn þurr sagnfræði og þar eru ekki eingöngu lýsing- ar á viðskiptaháttum og líffær- um þorksins heldur og ýmiss konar fróðleiksmolar, uppskriftir og fleira. Mark ræðir t.d. nokk- uð um uppruna nafngifta þorskins og það hvers vegna nafnið á söltuðum þorski tengist kynlífi á nokkrum tungumálum en það voru einmitt kaþólikkar sem byrjuðu á því að borða þorsk á föstum þegar þeir máttu ekki stunda kynlíf. I Vestur-Indí- um var orðið saltfish notað yfir kynfæri kvenna og mun það ástæðan fyrir því að saltfiskur- inn er æði oft nefndur í söngv- um frá Karíbahafi, m.a. í laginu Saltfish sem sá sívinsæli The Mighty Sparrow syngur. Á 19. öldinni þýddi orðið cod hrekkur í Englandi en á sama tíma var franska orðið yfir þorsk, morue, notað um mellur - meðan mellu- dólgurinn var kallaður makríll sem er feitur ránfrskur. Óvenjuleg blanda bókmennta, líflegrar sögu og blaðamennsku hefur gert þessa bók vinsæla langt umfram það sem ætla mætti af bók um þorsk, eða eins og sagt var í gagnrýni New York Times um bókina, „þessi frábær- lega auðlesna bók er nýtt tæki til að rannsaka mannkynssöguna." Sjálfur segir Mark einfaldlega: „svona finnst mér að eigi að skrifa sögu.“ — LÓA „Og^wr BÆKUR Míisíkalskar þjóðsögur Annað Dindi Þjóðsagna Jóns Múla Arnasonar er komið út. I því heldur höf- undur áfram sögu sinni og segir frá ævin- týrum sínum og fjölskyldunnar í Mývatnssveit og Þingholtunum. Síldveiði á Grímseyjarsundi og ferðalög- um um höfuðstöðvar kalda stríðsins. Tónlistaráhuginn skín út úr hverjum kafla og frásagnargleði hins aldna út- varpsþular er söm við sig. Mál og menning gefur út. Fagurkeri og athafnaskáld Saga athafna- skálds - saga Þorvaldar Guð- mundssonar í Sfld og fisk eftir Gylfa Gröndal er komin út hjá Forlaginu. Hann var með kunnustu at- hafnamönnum sinnar tíðar, en Þorvaldur Iést fyrr á þessu ári, og var ein- stæður fagurkeri sem kom sér upp stærsta listaverkasafni í einkaeign hér á landi. Saga Þorvaldar er um dreng sem ólst upp í fátækt hjá einstæðri móður en tókst með dugnaði og áræðni að verða brautryðjandi í athafna- lífinu á ótrúlega mörgum sviðum. Hann lærði ungur niðursuðu, setti á laggirnar fyrstu rækju- og humarverk- smiðju á landinu. Lýðveldis- árið stofnsetti hann sitt fyrsta fyrirtæki Síld og fisk, sem hann var ávallt kenndur við og nokkrum árum síðar kom hann á fót stærsa svínabúi landsins. Þegar þjóðinni var að vaxa fiskur um hrygg gerð- ist hann umsvifamikill frum- kvöðull í veitinga- og gisti- húsarekstri. Hér er aðeins talið það helsta sem Þorvald- ur Iagði gjörva hönd á, en margt mun koma á óvart í frásögn Gylfa Gröndal um svipmikinn samtíðarmann, sem setti svip á þjóðlífið með athafnasemi sinni og fram- faraþrá. Áheyrileg poppplata Ég er manneskja afspyrnu tor- næm á yndisleik póesíu og þarf helst að leita allt aftur til nýróm- antíkeranna til að finna skáld- skap í ljóðaformi sem ég næ ein- hverjum tengslum við og þá helst piltanna sem lágu á dánar- beði með berkla eða ámóta óþverra í líkamanum og ortu af miklu offorsi um lífið, dulmögn- in og dauðann. Þetta er kannski ögn ósatt, ég hef svo sem náð sambandi við stöku Ijóðskáld frá ofanverðri 20. öldinni, en kjarn- inn er að ég hef aldrei botnað Stein Steinarr íyrir upphafningarmóðunni sem hefur umlukið hann og hans verk. Magnús og KK frábærir Og ég heyri ekki betur en svo sé um suma þá sem taka að sér að túlka ljóð hans í söng á nýútkomnum diskinum Heimurinn og ég sem geymir 12 lög, sum þekkt en önnur ný, við ljóð Steins. Því þrátt fyrir tor- næmið hef ég þó alltaf haft grun um að í honum sé einhver hálf- kæringur og kulsæll hryssingur, lokaljóðlínur sem slá botninn úr því sem á undan er komið. M.ö.o. að Steinn Steinarr sé um- fram allt ekki vemmilegur - enda skárra væri það nú. Það væri nú meiri andsk. flatneskjan ef mað- urinn væri að yrkja af bláberri hreinskilni um fallegt blóm fyrir vestan, lítil ljóshærð börn að leik á strönd o.s.frv. En ég er ekki frá því að sumir flytjendur á diskinum hafi lesið Steinar á slíku hundavaði. Aðrir ekki. T.d. er lag Magnúsar Eiríkssonar við Hudson Bay og söngur hans ásamt KK næstum snilld, þeir henda á lofti hálf- kæringnum og léttúðinni svo saman fer MENNINGAR VAKTIN „Heimurinn og ég“ selst vel og á örugglega eftir að verða sígildur. Söngstjórnin hefði þó mátt vera meiri. gott lag og virðing fyrir efniviðnum. Björn Jr. Friðbjörnsson Nýdanskari, Val- geir Guðjónsson og Ellen Kristjánsdóttir fara líka vel með sín ljóð. Og einhvern veginn hefur Pálmi Gunnarsson öðlast hefðarrétt á því að syngja með trega- fullri angurværð þótt engin komi íroní- an fram í túlkun hans á Verkamannin- um - heldur situr í hjartanu á sömu hillu og rútulagið yndislega um sjóarann Ijúfa sem teygaði Portúgal í Eyjum. Of- antaldir flytjendur fara allir afar skemmtilega með sitt. Skemmdarverka- starfsemin bytjar ekki lyrr en með Páli Rósinkranz, og er leitt að skrifa svo um þann kraftmikla söngvara en hann minnir einna helst á Ragga Bjarna á diskinum og syngur ljóðin af meiningar- lausri einfeldni og má saka þær ágætu söngkonur Eddu Heiðrúnu Bachmann og Valgerði Guðnadóttur um hið sama. Diskurinn er hið besta framtak og þeir eru fleiri flytjendurnir sem fara mjög vel með Steinar svo útkoman er áheyrilegasta poppplata. En það hefði mátt ríkja dálítið meiri metnaður í söng- stjórninni.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.