Dagur - 26.11.1998, Blaðsíða 4

Dagur - 26.11.1998, Blaðsíða 4
4- FIMMTVDAGXJR 26. NÚVEMBER 1990 FRÉTTIR L J Framsókn á hraðri leið til hægri Landsfimdur Fram- sóknarflokksin stað- festir að flokkurinn er á leið til hægri. Og uiii leið verður Vinstri hreyfingin - Grænt framhoð óvenju skýr valkostur á hinum kantinum. Landsfundur Framsóknarflokks- ins staðfestir að flokkurinn er á hraðri leið til hægri og því mun Vinstri hreyfingin - Grænt fram- boð birtast kjósendum sem óvenjulega skýr valkostur á hinum væng íslenskra stjómmála og þá alveg sérstaklega í Evópumálum, segir Steingrímur J. Sigfússon al- þingismaður. Hann segir varafor- mannskjörið í flokknum einnig staðfesta þetta. Finnur Ingólfsson sé meðal þeirra manna í flokknum er hvað lengst hafa staðið til hægri og flokkurinn, einsog hann sé kominn í dag, sé kominn langt frá þeim félagslegu viðhorfum sem þar hefðu fundist í nokkrum mæli fyrir áratug eða svo. Við erinii á himiiii kantiniun „Utspil Halldór Asgrímssonar í Evrópumálum var reyndar það sem ég vissi fyrir að væru hans viðhorf í þeim efnum. Þar erum við alveg á hinum kantinum," segir Steingrímur. Um þau um- mæli formanns Framsóknar- flokksins að hann sæktist eftir fylgi til þess að leiða næstu ríkis- stjórn segir Steingrímur þau vera margræð. Þau séu til dæmis skilaboð til sjálfstæðismanna um að flokkurinn hafi fleiri spil á hendi en stjórnarsamstarf við þá en einnig sé Halldór Asgrímsson með þessu að gefa vinstri flokk- unum undir fótinn. Bremsumar í botni Að mati Steingríms yrði ríkis- stjórn undir forystu Framsóknar- flokksins þriggja flokka stjórn, það er Framsóknarflokks, Sam- fylkingarinnar og Vinstri hreyfing- arinnar - Græns framboðs. Hann telur að þessir flokkar gætu náð saman, þrátt fyrir yfirlýsingar Halldórs Ásgrímssonar um Evr- ópumál enda muni Vinstri hreyf- ingin ekki gefa sér fyrirfram að ágreiningur um það mál útilokaði stjórnarsamstarf og aldrei hefði formaður Framsóknarflokksins kveðið fastar að orði um aðild að Evrópusambandinu en að hana skyldi skoða og ekki útiloka. Hlut- verk Vinstri hreyfingarinnar í slíku stjómarsamstarfi yrði hvað þetta snerti að standa á bremsun- um í botni. -SBS. INNLENT Norðlensk orka með Villinganesvirkjim Norðlensk orka, fyrirtæki sem sveitarfélagið Skagafjörður í umboði Rafveitu Sauðárkróks stendur að ásamt Rafmagnsveitum ríkisins, Akrahreppi og Kaupfélagi Skagfirðinga mun eignast virkjunarrétt á ViIIinganesi í Skagafirði samkvæmt frumvarpi sem Finnur Ingólfs- son, iðnaðarráðherra, hyggst leggja fram í vetur og rétturinn þar með færður frá Landsvirkjun. Villinganesvirkjun yrði allt að 40 megawött, og \áð það skapaðist möguleiki á stærri iðnaði á svæðinu sem þyrfti töluverða raforku. Ofrágengið er hvernig dreifingu raforku verður háttað í Skagafirði nái frumvarp ráðherrans fram að ganga. GG Allt á fullu gasi hjá Foldu Framtíð Foldu á Akureyri er enn óljós en nú er í gangi vinna við að afla nýs hlutafjár. I samtali við blaðið sagðist Hermann Sigursteins- son framkvæmdastjóri vonast til að framtíð fyrirtækisins skýrðis nú í vikunni. „Við erum að garfa í þessum málum og ekki komin niður- staða í þetta ennþá. Þetta er allt á fullu gasi og lítur ekki illa út í augnablikinu. Við erum að ræða þessi mál og það ætti að skýrast í vikunni, hvaða stefnu þetta tekur,“ segir Hermann. BÞ BALENO BALENO Komdu og sestu inn Sjáðu rýmið og alúðina við smáatriði. Skoðaðu verð og I gerðu samanburð. j ALLIR SUZUKI B(LAR ERU MEÐ: • aflstýri • 2 loftpúdar • aflmiklar vélar • samlæsingar rafmagn í rúðum og speglum • styrtarbitaí hurðum • • samlitaða stuðara • FUU® SUZUKI BILAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. Heimasíða: www.suzukibilar.is SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf.( Laufásqötu 9, sími 462 63 00. Egilsstaðir: Bila- oq búvélasalan hf„ Miðási 19, sími 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50. ísafjörður: Bilagarður ehf., Grænagarði, sími 456 30 95. Keflavfk: BG bilakringlan, Grófinni 8, sími 421 12 00. Selfoss: Bílasala Suðurlands, Hrísmýri 5, sími 482 37 00. Hvammstanga: Bíla- og búvélasalan, Melavegi 17, sími 451 26 17. SWIFT BALENO WAGON R+ JIMNY VITARA GRAND VITARA TEGUND: VERÐ: GLS 3d 980.000 KR. GLX 5d 1.020.000 KR. TEGUND: VERÐ: 1,3GL 3d 1.140.000 KR. l,3GL4d 1.265.000 KR. l,6GLX4d 1.340.000 KR. 1,6 GLX 4x4 4d 1.495.000 KR. 1,6GLX WAGON 1.445.000 KR. WAGON 4x4 1.595.000 KR. TEGUND: GL GL 4x4 VERÐ: 1.079.000 KR. 1.259.000 KR. TEGUND: VERÐ: Beinskiptur 1.379.000 KR. Sjálfskiptur 1.499.000 KR. TEGUND: JLX SE 3d JLX SE 5d DIESEL 5d VERÐ: 1.580.000 KR. 1.830.000 KR. 2.180.000 KR. TEGUND: GR, VITARA 2,0 L GR.VITARA 2,5 LV6 VERÐ: 2.179.000 KR. 2.589.000 KR.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.