Dagur - 26.11.1998, Blaðsíða 13

Dagur - 26.11.1998, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998 - 13 ÍÞRÓTTIR Bresku liðin á síð- ustu metrunum Michael Owen, sem hér hitar upp ásamt félögum sínum, gerði eina mark Liverpooi í tapieiknum gegn Celta de Vigo á Spáni. Bretar eim í basli í Evrópukeppiii félags- liða meðan Spánverj- ar, ítalir og Frans- menn leika við hverja sína tá. Bresku liðin eru við sama hey- garðshornið þegar kemur að Evr- ópukeppnunum. Liverpool og Glasgow Rangers eru væntan- lega á síðustu metrunum í Evr- ópukeppni félagsliða eftir leiki sína á þriðjudaginn. Michael Owen kom Liverpool í góða stöðu á Spáni en norsku félagar hans í Rauða hemum, Kvarme og Heggem, sáu til þess að lokapunkturinn við síðasta kaflann f Evrópusögunni að þessu sinni er sennilega ekki langt undan. Varnarleikur Liver- pool var hreinlega ömurlegur og Norðmennirnir tveir slakastir allra. Spánveijarnir léku sér í reitabolta í vítateig Liverpool áður en þeir sendu tuðruna í netið og niðurlægðu Liverpool vörnina. Eins marks munur hefði ekki verið stórmál að vinna upp á An- field. Tveggja marka munur Spánveijanna verður hins vegar seigur biti í hálsi Liverpool. Rangers bjaxgaði andlitinu Glasgow Rangers lenti í miklum hremmingum á heimavelli sín- um, Ibrox, gegn Parma. Rod Wallace bjargaði andliti heima- manna með jöfnunarmarki um miðjan seinni hálfleik. Evrópusaga Rangers hefur ver- ið sannkölluð hrakfallasaga und- anfarin ár. Liðið, sem hefur ver- ið í forystu skoska knattspyrnu- liða á annan áratug, hefur varla komist fram fyrir tærnar á sjálfu ÍÞRÓTTAVIÐTALIÐ sér í Evrópukeppnunum. Það er því hætt við að Skotarnir verði að láta sér nægja reykinn af réttun- um á Italíu í næsta leik. Parma er ekki þekkt fyrir að fá á sig mörg mörk á heimavelli. ítalir og Frákkar ríða húsum Meðan allt gengur á afturfótun- um hjá Bretum ríða ftalir og Frakkar húsum í Evrópuboltan- um. Roma og Bologna eru í góð- um málum eftir sigra gegn FC Zurich og Real Betis og því geta ítalir átt þijú lið í næstu umferð. Fransmenn gætu verið í enn betri málum ef ekki kæmi til inn- byrðisviðureign Mónakó og Marseille. Auk þeirra eiga Bor- deaux og Lyon góða möguleika á áframhaldandi keppni. Spánveijar eru nokkuð örygg- ur um að eiga tvo fulltrúa í næstu umferð. Celta Vigo tapar varla niður tveggja marka for- Leikmenn Parma fagna markinu gegn Glasgow Rangers. skotinu gegn Liverpool og því er bara spurning hvort það verður Atletico Madrid eða Real Sociedad sem fylgir Celta áfram. Innbyrðis viðureign þeirra lauk með 2-1 sigri Real. Þegar úrslitin í fyrri leikjunum í þriðju umferð eru skoðuð þarf ekki mikinn spámann til að sjá, að næsta víst er, að Evrópubikar félagsliða hafnar í Suður-Evrópu með vorinu. — GÞÖ Öm á uppleið á heiuislistauum Besti lieimsárangur í 100 og 200 111 baksimdi 100 m baksund 200 m baksund 1. Jeff Rouse Astralíu 51,43 1. Adrian Radley Ástralíu 1.55,16 2. Adrian Radley Ástralíu 53,06 2. Josh Watson Ástralíu 1:55,84 3. MattWelsh Astralíu 53,81 3. Matt Welsh Ástralíu 1:56,16 4. Stev Theloke Þýskalandi 53,87 4. Örn Amarson Islandi 1:57,12 5. Josh Watson Ástralíu 53,89 4. Raymond Hass Ástralíu 1:57,12 6. Om Amarson Islandi 54,02 6. Scott Miller Ástralíu 1:58,08 7. Tontislav Karlo Króatíu 54,19 7. Emanuele Merisi Ítalíu 1:58,29 8. Edward Roche Ástralíu 54,29 8. Ralf Braun Þýskalandi 1:58,60 9. Rogerio Romero Brasilíu 54,58 9. Eithan Urbach ísrael 1:58,80 10. Eithan Urbach Israel 54,60 10. Shane Fielding Ástralíu 1:59,20 Samkvæmt nýjustu tölum á heimsafrekalistanum í sundi er Örn Arnarson, SH, heldur betur á siglingu upp listann. Hann er nú kominn í 6. sætið í 100 m baksundi í 25 metra braut og í 4. til 5. sæti í 200 metra baksundi. Samkvæmt listanum er Örn einn af fáum Evrópubúum í efstu sætunum, sem ætti að gefa honum góðar vonir um verð- launasæti á Evrópumeistaramót- inu, sem fram fer í Sheffield á Englandi 10.-13. desember nk. SKOÐUN ERLINGUR KRISTENSSON Araitgur á heimsmæll- kvarða Sundíþróttin hefur heldur betur verið á uppleið hér á landi á und- anfömum árum. Nýir afreksmenn skjóta upp kollinum á hveiju ári og breiddin er orðin meiri en nokkru sinni. Staðreyndirnar tala sínu máli og ef litið er á árangur í bikarkeppn- um síðustu ára þá kemur til dæm- is í Ijós að besti árangur, eða mesta samanlagða stigaskor í 1. deild á árunum 1992 og ‘93, gefur falleinkunn í 1. deild í dag. Þetta segir okkur að við erum á mikilli uppleið, enda árangurinn farinn að vekja verulega athygli um allan heim. Gott dæmi um það er að alþjóð- legi fréttavefurinn „Swimnews" bað um frekari staðfestingar á ár- angri okkar besta fólks í síðustu bikarkeppni og þótti ótrúlegt að þessir hlutir væru að gerast hér uppi á litla íslandi. En hveiju er að þakkar1 Þau félög og sunddeildir sem skilað hafa hvað bestum árangri hafa verið að vinna mjög gott starf og markviss uppbygging hefur ver- ið til mikils sóma. Vel menntaðir og færir þjálfarar hafa verið ráðnir til starfa og öll skipulagning æfinga og keppni er í mjög góðum höndum góðrar for- ystu. Bættur árangur hefur síðan lífg- að upp á allt innra starf félaganna og áhuginn hjá þeim yngri hefur aldrei verið meiri. Svo mikill að hjá flestum félögum eru böm á biðlistum vegna vöntunar á æf- ingatímum. Sundfólkið okkar hefur fórnað miklum tíma til æfinga og keppni og segja má að toppfólkið fái sama og enga hvíld milli tímabila. Þegar eitt er búið tekur annað við. Eg vil halda því fram að sund- íþróttin sé orðin íþróttagrein land- ans númer eitt, það sýnir árangur- inn. Við erum að synda inn f gull- öld. Takmarldð að gera einhverjar rosir Öm Amarson sundmaður Fimm íslenskir sund- menn hafa tiyggtsérrétt- inn til þátttöku á Evrópu- meistaramótinu, sem framfer í Sheffteld á Englandi í næsta mánuði. Einn þeirra er ÖmAmar- son, margfaldur íslands- meistari í sundi. - Hvaða takmörli hefurðu sett þér « Evrópumeistaramótinu? „Takmark númer eitt hjá mér er að synda hraðar en í bikar- keppninni um helgina. Síðan er það auðvitað draumurinn að komast í sjálfa úrslitakeppnina og gera þar einhverjar rósir.“ - Verður þtí á réttu róli t Sheffield, niiðað við að þtí ert hú- inn að setjafitnm ný íslandsmet á síðustu dögum? „Segja má að þetta sé allt sam- kvæmt prógramminu. A bikar- mótinu átti ég frekar von á þess- um metum og var nálægt því sem ég ætlaði mér, nema í 100 metra baksundinu, þar sem ég synti á einni sekúndu betur en ég ætlaði. Eg var þegar byijaður að keyra niður fyrir bikarkeppnina, eftir erfitt æfíngaprógramm, þar sem stefnt var að því að ég yrði í topp- formi á Evrópumótinu. Mér sýn- ist það ætla að ganga eftir og er því bjartsýnn á góðan árangur." - Hvaða greinum tekurðu þátt í og telurðu þig eiga möguleika á verðlaunasæti, eða jafnvel Evr- óputitli á mótinu? „Ég mun synda 50, 100 og 200 m baksund, eins og ég gerði á Evrópumeistaramótinu í Rostock árið 1996. Það er erfítt að gera sér grein fyrir stöðunni, fyrr en maður sér þátttökulistana, en síð- ast þegar mótið var haldið, var það ekkert voðalega sterkt, enda haldið í desember eftir Olympíu- leikana í Atlanta. Það má því ætla að mótið verði nokkuð sterkara núna, en ég þori ekkert að spá í spilin, fyrr en ég veit hveijir verða með. Það er ekki alveg að marka afrekalistana það sem af er, þar sem aðeins hluti af þeim sterk- ustu hefur verið að keppa í 25 metra brautum og aðeins eitt heimsbikarmót verið haldið til þessa á keppnistímabilinu. Ef til dæmis Þjóðverjarnir mæta með sitt sterkasta lið, þá eiga þeir tvo mjög sterka baksundsmenn og einnig eiga Rússar einn mjög sterkan. Það getur samt allt gerst, en ef við horfum raunhæft á málin, þá gæti ég hugsanlega náð 4.-5. sæti í 100 og 200 metra baksundun- um. En allt fyrir ofan 8. sætið er í raun mjög gott.“ - Hvað tímum ættirðu að ttá samkvæmt „prógramminu“? „Takmarkið er að fara niður undir 1,56 mín. í 200 metra bak- sundi og jafnvel neðar, en þar á égbest 1:57,12 mín., sem égnáði á bikarmótinu. Ég geri mér þess- ar vonir, þar sem ég er að keppa við mun sterkari sundmenn en ég er vanur hér heima og meiri sam- keppni ætti að gefa mér meiri möguleika á bætingum. Annars er ætlunin að gera sitt besta í öll- um greinunum.” - Hefur þú æft mikið fyrir þetta mót? „Ég hef verið í ansi erfiðu pógrammi til þessa og æft þetta mest átta sinnum í viku, sex daga vikunnar. Þá er ég bara að tala um sundæfingar, en við þær bæt- ast svo þrekæfingarnar í tækjasal. Þegar mest er syndi ég um sex kílómetra á æfingu, sem telst bara nokkuð gott. Þegar svo nær dregur helstu mótunum er keyrt niður og æfingarnar léttast til muna.“ - Hvað tékur við eftir Evrópu- meistaramótið? „Eftir Evrópumotið tekur við mjög strangt æfingaprógramm, fram yfír áramótin." - Eru einhver önitur stórmót á dagskránni á næstunni? „Næstu stórmót hjá mér eru tvö heimsbikarmót sem fara fram í febrúar. Það fyrra fer fram í Glasgow og það seinna í Parfs. Það eru einu heimsbikarmótin sem ég syndi á í vetur." - Hverju þakkar þú þettnan góða árangur í sundinu? „Þennan góða árangur í sund- inu hér á landi ber fyrst og fremst að þakka markvissri þjálfun. Við höfum að undanförnu haft mjög vel menntaða og góða þjálfara og þessi góði árangur hefur síðan lyft mjög undir allt starf hjá félög- unum.“ - Hvað áttu eftir tnörg ár á toppinn? „Það er mjög misjafnt hvenær sundmenn eru á toppnum. Það fer eftir ýmsu, eins og til dæmis karakter og lfkamsbyggingu. Hjá körlunum er það gjarnan á aldr- inum 22ja til 23ja ára, en oft eru þeir orðnir mun eldri. Þar sem ég er aðeins 17 ára, þá er ég ekkert farinn að um þetta og tel mig hafa nægan tíma til þess.“

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.