Dagur - 26.11.1998, Blaðsíða 9

Dagur - 26.11.1998, Blaðsíða 9
8- FIMMTVDAGVR 26. NÓVEMBER 1998 FIMMTVDAGVR 26. NÓVEMBER 1998 - 9 FRÉTTASKÝRING L. Sagt að allir keyrdu fullir heim Átak gegn ölvun- arakstri. Um 25 þús- und manns keyra full- ir á áriuu. 20% banaslysa í umferð má rekja til ölvunar. Karl- ar verri en konur. „Ég var staddur á Höfn um dag- inn og þar var mikill mannfagnað- ur á hótelinu. Morguninn eftir þegar ég vaknaði voru allir bílar farnir. Mér var þá sagt að það keyrðu allir fullir heim,“ sagði Einar Guðmundsson hjá Sjóvá - Almennum á blaðamannafundi í gær, sem haldinn var í höfuð- stöðvum Slökkviliðs Reykjavíkur. GUDMUVDUR RUNAR HEIÐARSSON SKRIFAR Átak gegn ölvunarakstri í gær hófst sameiginlegt átak ís- lensku bifreiðatryggingafélaganna gegn ölvunarakstri í desember og janúar. Sem kunnugt er þá gerir fólk sér einatt dagamun síðustu vikurnar fyrir jól og þá fylgir oft neysla áfengis. Sé bíllinn með í för er oft hætta á misnotkun og því nauðsynlegt að einhver „ör- uggur“ ökumaður sé með í för. Þetta átak er í nánu samstarfi við Læknafélag Islands, lögregluna og Umferðarráð. Þá munu SVR, Almenningsvagnar, Bifreiða- stjórafélagið Frami, Landhelgis- gæslan, Slökkvilið Reykjavíkur, ATVR og fleiri aðilar styðja átakið með ýmsum hætti. Kostnaður vegna átaksins er áætlaður um fimm milljónir króna og standa vátryggingafélögin straum af þeim kostnaði. I tengslum við átakið, sem ber yfirskriftina „Endum ekki jólagleðina með ölvunarakstri", hafa m.a. verið ffamleiddar sjón- varpsauglýsingar sem sýndar verða á næstunni. Auk þess hafa verið hannaðar skjáauglýsingar sem birtast munu í nafni Um- ferðarráðs. Stefán Björgvin Sigurvaldason varð fyrir þeirri skefilegu lífsreynslu fyrir 17 árum að keyra ölvaður með þeim afleiðingum að vinur hans dó og sjálfur slasaðist hann alvarlega í umferðarslysi. Hann segir það aldrei of brýnt fyrir ökumönnum að áfengi og akstur fara ekki saman. mynd: hilmar 4000 jólakort I tengslum við átakið ætla trygg- ingafélögin að senda út 4000 jóla- kort til allra fýrirtækja í Iandinu sem hafa fleiri en fimm starfs- menn. Þar er starfsfólkið hvatt til að aka ekki undir áhrifum áfengis í tengslum við jólagleði fyrirtækis- ins. Með hvetju korti fylgja einnig blöðrur með áletrunum gegn ölv- unarakstri. Þá hafa aðstandendur átaksins óskað eftir því bréflega við forystumenn aðila vinnumark- aðarins að þeir hvetji fólk til að setjast ekki undir stýri eftir jólaglögg eða jólahlaðborð fyrir- tækja. A öllum útsölustöðum ATVR verða hengd upp plaköt með yfirskriftinni „Nei, takk. Ég er á bíl.“ 20% banaslysa A fundinum kom m.a. fram að ölvunarakstur sé hreint ekkert einkamál þeirra sem það gera. Mörg alvarleg slys í umferðinni má rekja til ölvunaraksturs, en um 20% banaslysa. Auk þess sem drukknir ökumenn mega búast við háum endurkröfum frá trygg- ingafélögum vegna þess tjóns sem þeir valda í umferðinni. Fyrir utan fjárhagslegan skaða og ör á sálinni vegna líkamlegra þjáninga og jafnvel dauða sem þeir geta valdið öðrum, missa þeir ökurétt- Sektarkeimdin ávallt til staðar Örlagarík heimferð frá skólaballi. Keyrði full- ur. Missti vin og slas- aðist mikið. Lífs- reynsla öðrum til vam- aðar. „Ég var á leið í bæinn af skólaballi í Skíðaskálanum í Hveradölum og fór út af í beygjunni við Kolviðar- hól. Bíllinn Ienti langt úti í hrauni og Iagðist saman. Við vorum tveir og hentumst báðir út. Vinur minn dó en ég slasaðist mikið,“ segir Stefán Björgvin Sigurvaldason. Bakkus við stýrið Þetta gerðist fyrir 17 árum þegar Stefán Björgvin ók heim á leið með vin sinn sér við hlið í bíl sin- um. Hann var mikið ölvaður þeg- ar hann settist undir stýrið í þess- ari örlagaríku ferð sem endaði á hörmulegan hátt. Síðan þá hefur Stefán Björgvin verið fatlaður enda slasaðist hann mjög alvar- lega. Þegar hann hentist út úr bílnum fékk hann mikið höfuð- högg og ökklabrotnaði. Hann og félagi hans voru ekki í öryggisbelt- um, enda engin belti í bílnum sem var gamall. Þegar þetta gerð- ist voru Stefán Björgvin og vinur hans ungir menn í blóma lífsins og áttu alla framtíðina fyrir sér. Sjálfur var hann mikið í íþróttum og m.a. í björgunarsveit. Erfið lífsreynsla Stefán Björgvin segir að það sé mjög erfið lífsreynsla að Ienda í umferðarslysi sem þessu svo ekki sé minnst á það að hafa ekið ölv- Stefán Björgvin Sigurvaldason segir að lífsreynsla sín eigi að kenna öðr- um þá lexíu að aka aldrei bíl undir áhrifum áfengis. aður. Þótt erfitt sé að lifa með þessa Iífsreynslu að baki, þá segist hann hafa þurft að gera það með góðu eða illu. Hann segir sektar- kenndina naga sig ávallt, ekki að- eins gagnvart sjálfum sér heldur en ekki síður vegna vinar síns og aðstandenda hans. öðnun til vamaðar Hann leggur áherslu á það við alla, unga sem eldri ökumenn, að minnast ábyrgðar sinnar þegar það hvarflar að þeim að setjast undir stýri eftir að hafa neytt áfengis. I þeim efnum skiptir ekki máli hvort mikið eða lítið hafi ver- ið drukkið. Abyrgðin sé ekki að- eins gagnvart ökumanninum sjálfum heldur einnig við fólkið hans og allt þjóðfélagið. I því sambandi bendir hann á að sjúkrakostnaður vegna umferðar- slysa sé mjög mikill svo ekki sé minnst á vinnutap og þá þjáningu og sorg sem einatt fylgir á eftir þegar um alvarleg slys er að ræða. Stefán Björgvin segir að þótt það sé aldrei of brýnt fyrir öku- mönnum að áfengi og akstur fara ekki saman, þá sé það kannski aldrei brýnna en um þessar mundir. A mörgum vinnustöðum sé fólk að gera sér dagamun með jólaglöggi þar sem áfengi er haft um hönd. Við slíkar kringum- stæður getur það freistað margra að aka heim á eigin bíl. Þá sé betra að Iáta ná í sig eða notast við leigubíla eða strætó. Lífs- reynsla hans sé dæmi um afleið- ingar þess þegar menn gera hluti sem þeir síðan sjá eftir alla sína ævi. Það ætti að vera öðrum til varnaðar. GRH indi, sæta sektum eða jafnvel varðhaldi fyrir það eitt að hafa klikkað á því að áfengi og akstur eiga ekki samleið. Af þeim sökum leggja þeir sem að átakinu standa þunga áherslu á það að baráttan gegn ölvunarakstri snýst um að fólk þurfi ekki að lenda í slíkri að- stöðu. Sektir og ðkuleyfissviptmg Sem dæmi um viðurlög við ölvun- arakstri þegar um er að ræða fyrs- ta brot má nefna að ökumenn verða að greiða 30 þúsund krónur í sekt og missa ökuskírteinið í 2 mánuði ef vínandamagn í blóði mælist 0,5-0,6 prómill. Sektar- upphæð fer síðan stighækkandi eftir því sem meira vínandamagn mælist í blóðinu og sömuleiðis lengist sá tími sem menn eru sviptir ökuréttindinum. Með vín- andamagn í blóði sem mælist 1,20 prómill og yfir er sektin 60 þús- und krónur og svipting ökuleyfis í eitt ár. Þá eru sektir og ökuleyfis- svipting hliðstæðar þegar um önd- unarsýni er að ræða en ekki blóð- sýni. Enn fremur ber að hafa í huga að ökumaður sem neitar að blása í öndunarsýni er sviptur ökuskírteini í minnst 12 mánuði. Skiptir þá engu hvort hann reynist ölvaður eða ekki. 25 þúsiutd fullir ökumenn I skoðanakönnun sem Pricewater- house Coopers vann fyrir Sam- band íslenskra tryggingafélaga og gerð var í byrjun mánaðarins kom m.a. fram að tæplega 13% spurðra höfðu ekið undir áhrifum áfengis. Alls voru 1045 manns í úrtakinu á aldrinum 17-67 ára. Sé miðað við að Iandsmenn á þessum aldri séu um 174 þúsund gefur könnunin til kynna að tæplega 22 þúsund ökumenn hafi ekið á þessu ári eftir að hafa neytt áfengis. Sam- kvæmt því telja tryggingafélögin að allt að 25 þúsund manns hafí ekið undir áhrifum fyrir árslok. I þessum hópi eru karlar Qölmenn- ari en konur, eða 17,8% á móti 7,6%. Þá virðist ölvunarakstur vera algengari á höfuðborgarsvæð- inu en á landsbyggðinni, eða 14,5% á móti 9,6%. Þá vekur einnig athygli að ökumenn á aldr- inum 17-29 ára hafa oftast ekið undir áhrifum, eða 18,1%. Óbreytt eöa lækkun prómiH- marka Rúmlega 90% vildu lækka eða hafa prómillmörkin óbreytt, en þau eru 0,5. I þessum hópi voru konur fjölmennari en karlar. Þetta sjónarmið var einnig algengara meðal íbúa á landsbyggð en á höf- uðborgarsvæðinu. Þeir sem vildu hækka þessi prómillmörk um Ieyfilegt áfengismagn í blóði voru einkum ökumenn á aldrinum 17- 29 ára, eða 9,9%. Það er kannski ekki að undra því samkvæmt könnuninni voru 22,7% í þessum aldurshópi sem höfðu sjálfír ekið undir áhrifum á árinu. Átak skilar árangri Einar Guðmundsson hjá Sjóvá-Al- mennum segir að menn hefðu átt von á því að fleiri hefðu ekið und- ir áhrifum með tilliti til þess fjölda sem hefur verið tekinn vegna ölv- unarakstur. Sem dæmi má nefna að árið 1996 kom alls 791 mál til kasta lögreglunnar í Reykjavík vegna ölvunaraksturs og 862 mál í fyrra. Hins vegar sé það greinilegt að mati Einars að bert átak lög- reglu og tryggingafélaga gegn ölv- unarakstri í desember í fyrra hefur skilað sér að einhverju leyti og einnig hert eftirlit Iögreglu með tilkomu nýja öndunarsýnisbílsins. Engu að síður sé það skelfileg til- hugsun að allt að 25 þúsund komi til með að aka undir áhrifum á yfírstandandi ári. Það vekur síðan aftur upp spurningar um það hversu ökumenn séu öruggir í umferðinni þegar í viku hverri séu kannski 500 ökumenn á götum úti undir áhrifum áfengis. Karlar í meirihluta I athugun sem gerð hefur verið hjá lögreglunni í Reykjavík um ölvunarakstur á fyrsta ársfjórðungi áranna 1996, 1997 og 1998 kom fram að karlmenn voru í meiri- hluta þeirra sem bókaðir voru vegna gruns um ölvun. I helmingi þessara tilvika voru það ökumenn á aldrinum 18-27 ára. Flestir voru teknir frá miðnætti og fram til klukkan 06 og þá oftast aðfaranótt laugardags eða sunnudags. Þegar litið er til mælds áfengis- magns í blóði þeirra sem teknir hafa verið kemur í ljós að í yfir helmingi tilvika reyndust öku- menn vera með 0,51-1,50 vín- andamagn í blóði. Lögreglan vek- ur athygli á því að árið 1996 mældust hlutfallslega flestir með 1,51-2 vínandamagn í blóði. Arið 1997 var sambærilegt hlutfall 1,01-1,50 vínandamagn og í ár hafa hlutfallslega flestir mælst með 0,51-1 vínandamagn í blóði. Lögreglan telur erfítt að segja til um merkingu þessarar niður- stöðu. Hins vegar er ekki ólíklegt að þetta megi rekja til þess að drykkjuvenjur landans séu að breytast. Þá kemur einnig til greina að almennt náist þeir öku- menn sem eru mest ölvaðir. Á hinn bóginn getur líka verið að það náist fleiri ökumenn nær neðri mörkunum þegar net lög- reglunnar er þrengt. Heilbrigdisvandamál Guðmundur Bjömsson, formaður Læknafélags Islands, segir að ölv- unarakstur sé alvarlegt heilbrigð- isvandamál. í ávarpi sínu á blaða- mannafundinum í gær kom fram að áfengi dregur úr allri andlegri og líkamlegri færni til að stjórna ökutæki. Sem dæmi um áhrif áfengis á mannslíkamann má nefna að sjónsvið þrengist, sjón- mynd verður ekki jafn slcýr og lita- skyn verður ekki eins öruggt. Sömuleiðis verður hæfileikinn til að skynja og greina á milli hljóða ekki eins öruggur og erfíðara verð- ur að dæma úr hvaða fjarlægð hljóð berast. Þá lengist allur við- bragðstími og vöðvahreyfingar verða allar hægari. Síðast en ekki síst skerðist öll dómgreind öku- manna undir áhrifum áfengis og þar með hæfileikinn til að gagn- rýna og hafa stjórn á sjálfum sér. - GRH Kaupfélag Eyfirðinga boðar til fulltrúafundar með kjörnum aðalfundarfulltrúum félagsins Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 3. desember nk. á Fosshótel KEA og hefst kl. 20:30. Dagskrá 1. Áður kynnt tillaga stjórnar um formbreytingu á rekstri Kaupfélags Eyfirðinga lögð fram til afgreiðslu. 2. Breytingar á samþykktum Kaupfólags Eyfirðinga vegna áðurnefndrar tillögu. Stjórn Kaupfélags Eyfirðinga. EITT SÍMTHL til að kynnast fæðubótarefni og snyrtivörum Fæðubótarefnin grenna, laga t.d. vefjagigt, sinadrátt o.fl. o.fl., auk þess að fá meiri orku og láta sér líða vel. Snyrtivörurnar eru í hágæðaflokki. Ráðgjöf og stuðningur. Upplýsingar gefur Sæunn í síma 487 1429. Lánaséffræðingur íslandsbanki hf. auglýsir eftir lánasérfræðingi til starfa við útibú bankans í Reykjavík. Helstu verkefni lánasérfræðings: • Markmiðasetning og eftirlit varðandi lánamál fyrirtækja í samræmi við heildarstefnu bankans. • Uttektir á ársreikningum. • Áhættuflokkun viðskiptavina. • Ráðgjöf vegna viðskipta við fyrirtæki og stærri viðskiptavini. • Sala á þjónustu bankans til fyrirtækja. Umsækjandi þarf að hafa góða skipulagshæfileika, vera faglegur og eiga gott með að umgangast samstarfsmenn og viðskiptavini. Mikilvægt er að viðkomandi sé sjálfstæður í vinnubrögðum en eigi jafnframt gott með að vinna í hóp. Viðskiptamenntun eða haldgóð reynsla úr fjármálaumhverfi er nauðsynleg. Nánari upplýsingar veitir Vilborg Þórarinsdóttir, útibússtjóri á Suðurlandsbraut. Umsóknir berist Guðmundi Eiríkssyni, starfsmannaþjónusm Islandsbanka hf, Kirkjusandi, 155 Reykjavík, fýrir 30. nóvember 1998.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.