Dagur - 10.12.1998, Qupperneq 1

Dagur - 10.12.1998, Qupperneq 1
-iwaRfr Si v t.1; fta tf,;i.q i ív\) v» ‘ \l\it iMf \ - $ 'é É f! mk ‘ Fellíbylurinn Mitch gerði usla íMið-Ameríku og létu þúsundir manna lífið. En voru þeirsem dóu kannski heppnir? Þeir þurfa nefnilega ekki að horfa upp á vini og vandamenn dragast upp af hungri eða verða farsóttum að bráð sökum skorts á hjálparmeðulum. Það átti ekki á neinu slæmu von, fólkið í Nicaragua og Hondúras um mánaðamót október/nóvember. Fellibyljir og hvirfílbyljir ganga þar reglulega um og valda jú skaða, en oftast bítur fólk bara á jaxlinn og heldur áfram að lifa. En fellibylurinn Mitch gerði heldur meiri usla en venjan var og ekki bætti úr skák að sljómvöld létu sem ekkert væri og sýndu vart Iit á því að vara fólk við. Kannski líka erfitt um vik, þar sem stór hluti íbúanna býr í sveit og fjölmiðlar ekki á hveiju strái. Fellibylurinn Mitch þvældist semsagt þama um og átti bágt með að ákveða hvar hann ætlaði að koma að landi. En þegar hann loks gerði það, þá varð fjandinn laus. Eftir að rokið lægði kom rigningin. Ekki bara venjuleg rigning sem veldur því að gróðurinn vex og ámar vaxa svolítið, heldur steypiregn sem stóð lengi og gerði að verk- um að jörðin varð öll laus í sér, ár og Iækir uxu fram úr hófi og heilu fjallshlíðarnar mnnu af stað eins og á Casida fjalli þar sem öll litlu þorpin grófust undir aurskriðum, en þar er áætlað mannfall rúmlega 2000 manns. Oll von um að finna fólk á lffí eða þekkjanleg lík er að engu orðin og svæðið hefur verið lýst friðaður kirkjugarður. Fátæktin inikil Einn maður náði tökum á trjágrein og hélt dauðahaldi til að bjarga lífi sínu - en horfði með hryllingi á eftir fjölskyldu sinni allri renna framhjá - ekkert þeirra komst lífs af. Annar maður fannst illa hrakinn eftir að hafa verið niðurgrafinn í aur í þrjá sólarhringa. Hann hélt lífí, rétt svo. Lítið barn, sex mánaða gamalt fannst hjalandi - öll fjölskylda þess dáin í kring um það - Doris Lenina Ampié Báez er laganemi, býr í Nicaragua og er nýkomin þaðan. Hún segir allt vanta, lyf, mat, vatn, föt og verkfæri. r- . þau hafa kannski hnappað sér saman til að halda hita á litla barninu. Þetta eru góðu sögumar. Tölur um heild- armannfall eru óljósar, erfitt og kannski ómögulegt að komast að því hversu háar þær em því skráning fólks er í lágmarki. Þeir sem eftir lifa munu hrynja niður út sjúkdómum, vannæringu og vatnsskorti. Nicaragua er fremur fátækt Iand og van- þróað á okkar mælikvarða. Ibúarnir mest fátækir bændur og landið er illa á vegi statt til að grípa til aðgerða til hjálpar. í sumum þorpum er kannski bara til ein skófla, engar vélar eða læknistæki, raunar engir læknar heldur. Neyðin er gríðarleg og erfitt að gera sér grein fyrir eyðilegging- unni og uppnáminu. Söfiinn á Rás 2 Doris Báez er 23 ára lögfræðinemi sem f byrjun desember kom til Islands frá heimalandi sínu, Nicaragua. Hún segir ástandið skelfilegt og í viðbót við beinar afleiðingar flóðanna, uppskerutap og ónýtt útsæði sem gerir að verkum að ekki er einu sinni hægt að setja niður fyrir næsta ár, komi alvarlegir sjúkdómar. „Það er núna fyrst, þegar stjórnvöld sjá fram á að sjúkdómarnir, kólera malaría, tauga- veiki og aðrir smitsjúkdómar Ieggjast einnig á þá sem betur eru staddir, að þeir þiggja aðstoð frá Kúbu, sem hafði þó boð- ið hana strax. Fidel Castro hefur lofað að senda 2000 lækna sem munu vera í Mið- Ameríku til lengri tíma til að byggja upp heilsugæslu, en lengi vel var aðstoð hans neitað af stjórnmálaástæðum. Okkur vantar í rauninni allt. Lyf, mat, fatnað, verkfæri, potta og pönnur. Það er svo lítið til af hlutum. Fjöldi barna er munaðarlaus og stjórnin segir millistéttina bara geta tekið þau að sér, en millistéttin hefur ekki peninga til að bæta við sig svo mörgu fólki því það urðu allir fyrir skaða,“ segir Doris. A föstudag verður dagskrá á Rás 2, allan daginn þar sem fer fram söfnun til handa bágstöddu fólki í þessum heimshluta. Peningar koma sér best, en hinsvegar er allt vel þegið og von til þess að Islending- ar bregðist vel við eins og þeirra er von og vísa þegar neyðin kallar. -VS f-

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.