Dagur - 12.01.1999, Side 2
18 — ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1999
ro^tr
LÍFIÐ í LANDINU
■ SMflTT OG STÓRT
UMSJÓN:
SIGURDÓR
SIGURDÓRSSON
Þar á skalla dunar dans
Undanfarið hefur lúsafaraldur í skólum verið
all mikið í fréttum og eftir að hafa heyrt eina
slíka frétt í útvarpinu kvöld eitt í síðustu viku
orti Hákon Aðalsteinsson:
Lífs á palli lúsafans
liðkar snjalla fætur.
Þar á skalla dunar dans
daga alla og nætur.
Hákon Aðalsteinsson.
„Hann skuldar
ekki neinum neitt
og á að gera þetta
bara fyrir sjálfan
sig - láta vaða á
súðum eins og
honum einum er
lagið. Ég er sann-
færður um að
þetta fer að detta
hans megin. Við
skulum sýna smá
þolinmæði."
Haukur Jóhanns-
son skíðakappi um
kollega sinn Krist-
inn Björnsson.
Um störf þmgsins
Þegar Alþingi kom saman í síðustu viku til að
fjalla um frumvarp til laga vegna kvótadóms
Hæstaréttar hafði sjávarútvegsnefnd þingsins
ekki lokið sinni vinnu. Fór þá Steingrímur J.
Sigfússon í ræðustól um störf þingsins og
hafði uppi harða gagnrýni á þau vinnubrögð
að kalla þing saman en hafa ekkert tilbúið
nema útbýtingu skjala. Síðan komu margir
stjórnarandstæðingar og tóku í sama streng en
Ólafur G. Einarsson forseti Alþingis tók þessu
öllu með stóískri ró. Þá orti Hjálmar Jónsson:
Andstaðanfór öll í hring
og engar skorður við því settar.
En Ólafur setti síðan þing
samkvæmt dómi Hæstaréttar.
Þjóðleikhús í hvert þorp
Það urðu margir hissa þegar ríkisstjórnin boð-
aði til fréttamannafundar og tilkynnti um að
nú ætti að byggja fimm menningarhús á hin-
um ýmsu stöðum á landinu. Flestir þóttust
muna eftir því að í hverju þorpi og hreppi í
landinu væri félagsheimili þar sem haldið væri
upp ýmiskonar menningarlífi sem þó dyggði
ekki til að koma í veg fyrir fólksflótta til höfuð-
borgarinnar. En þá mundu menn líka eftir því
að það eru þingkosningar í vor og þóttust vera
búnir að finna kosningaslagorð ríkisstjórnar-
innar: „Þjóðleikhús í hvert þorp.“
Meimingln
Páll á Höllustöðum kom í sjónvarpsviðtal
vegna menningarhúsanna og sagði þau nauð-
synleg vegna þess að fólk segði, þegar það flyt-
ur af landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins,
að það vilji komast í menninguna. Morguninn
eftir var viðtal við þrjár manneskjur út á landi í
morgunþætti Rásar 2. Ein var af Snæfellsnesi,
ein úr uppsveitum Arnessýslu og sá þriðji á
Borgarfirði eystra. Þau voru sammála um að
svo mikið væri að gerast í menningarlífinu á
þessum stöðum að fólk kæmist ekki yfir að sjá
allar listsýningarnar, Ieiksýningarnar eða
hlusta á þá tónleika sem í boði væru. Hvað
ætli verði þegar menningarhúsin öll verða ris-
in?
„Þingmennska ekkiþað sem
ég hef verið að stefna að, en
vissulega er hún spennandi, “
segir Magnús Árni Magnússon.
Mtugur þmgmaður
„Við fyrstu kynni virkar Alþingi
vel á mig sem vinnustaður," segir
Magnús Arni Magnússon, nýbak-
aður þingmaður Alþýðuflokks.
Hann kemur á þing í stað Astu
B. Þorsteinsdóttur, sem lést sl.
haust. Þegar andlát hennar bar
að var Magnús Arni við nám í
Bandaríkjunum, sem hann lauk
um jólin.
í mastersnámi í San Fransico
„Ég var að Ijúka meistaranámi í
hagfræði vestur í San Francisco
og þar sem háskólanám í Banda-
ríkjunum er dýr fjárfesting vildi
ég heldur Ijúka því en setjast
strax inn á þing,“ segir Magnús. I námi sínu
lagði hann áherslu á alþjóða- og þróunarhag-
fræði og lokaritgerð sína skrifaði hann um verð-
bréfamarkað þróunarlanda Afríku. „Þessir mark-
aðir eru enn litlir en þó glettilega skilvirkir. Fjár-
festar hafa vaxandi áhuga á Afríku, en álfan
verður varla komin á kortið fyrir alvöru í þeim
efnum fyrr en Iiðið er nokkuð á næstu öld.“
Magnús Arni er þrítugur að aldri, fæddur í
Reykjavík 1968. Stúdentsprófi frá Fjölbrauta-
skólanum í Breiðholti lauk hann af fjölmiðla-
braut 1989 - og var lokaverkefni hans og Stef-
áns Árna Þorgeirssonar í Gautaborg gerð
klukkustundarlangar kvikmyndar með þeim
Hilmi Snæ Guðnasyni og Jóhanni G. Jóhann-
essyni í aðalhlutverkum. Samvinnan við þá fé-
laga vakti Ieiklistaráhuga Magnúsar og varð úr
að hann fór í Leiklistarskóla Islands þar sem
hann stundaði nám í tvo vetur. Hann segist
Þingmennska er
vissulega heillandi.
Magnús Ámi Magn-
ússonernýrþing-
maðurAlþýðu-
flokksins.
hinsvegar hafa snúið frá því þeg-
ar hann var kominn með fjöl-
skyldu; líf listamannsins hafi ekki
átt við sig. Þess í stað fór hann út
í háskólanám í heimspeki og hag-
fræði - og í framhaldinu til fram-
haldsnáms vestanhafs.
SPJALL
Fjölskyldan er áhugamál mitt
„Þingmennska er kannski ekki
það sem ég hef verið að stefna
að, en vissulega er hún spenn-
andi þegar til kemur. Því hef ég
ákveðið að gefa kost á mér í próf-
kjöri samfylkingarinnar, sem
haldið verður í næsta mánuði,"
segir Magnús Ami. Jómfrúar-
ræðu sína flutti hann í umræðum sem þá var
efnt til um breytinga á lögum um stjórn fisk-
veiða vegna kvótadóms Hæstaréttar. „Skoðanir
mínar á þessum málum eru dæmigerðar skoð-
anir jafnaðarmanns. Ég get stutt kvótakerfið
sem stýritæki á sókn í takmarkaða auðlind, en
það er ekki eðlilegt að í krafti þess geti réttir
menn sem voru á réttum tíma á réttum stað
rakað að sér miklum auði með braski á sameign
þjóðarinnar."
Eiginkona Magnúsar Arna er Sigríður Björk
Jónsdóttir sagnfræðingur og eiga þau einn son,
Ulf Bæring, sem er tveggja ára að aldri. - Fjöl-
skylduna og samveruna með henni segir Magn-
ús Arni vera sitt helsta áhugamál, þó alltaf sé
reyndar líka gaman að grípa í góðar bækur, ekki
síst um heimspeki og trúarbrögð hverskonar.
-SBS.
■ FRÁ DEGI
„Betra er að deyja virðulega en Iifa
skammsamlega.“ Ólafurjarlá Katancsi
Þetta gerðist 12. janúar
• 1830 fór fram síðasta aftaka á íslandi
þegar Friðrik Sigurðsson og Agnes
Magnúsdóttir voru tekin af lífi.
• 1940 Iést Einar Benediktsson skáld.
• 1950 rakst sænsk flutningaskip á
breskan kafbát í Thames-á, og létu þar
64 lífið.
• 1954 urðu tvö snjóflóð í Austurríki og
létust þá samtals 315 manns.
• 1990 var Kommúnistaflokkurinn í
Rúmeníu bannaður.
• 1993 var EES-samningurinn samþykkt-
ur á Alþingi.
Þau fæddust 12. janúar
• 1863 fæddist Indverjinn Vivekananda,
sem reyndi að sameina indverska trúar-
hugsun og vestræna framfaratrú.
■tíUú.giWí'A 1
TIL DAGS
• 1876 fæddist bandaríski rithöfundur-
inn Jack London
• 1903 fæddist Pierre Brossolette, sem
var einn helsti leiðtogi frönsku and-
spyrnuhreyfingarinnar í seinni heims-
styrjöldinni.
• 1916 fæddist Pieter Willem Botha, sem
var forsætisráðherra (1978-84) og for-
seti (1984-89) í Suður-Afríku.
• 1944 fæddist Joe Frazier, sem um skeið
var heimsmeistari í boxi.
• 1955 fæddist Elísabet Þorgeirsdóttir
rithöfundur.
Vísa dagsins
Vísa dagsins vísar til hins sanna gildis til-
verunnar.
Þó hurt sé dýrum demant fleygt
í duftið, er hans gildi jafnt;
og eins er duftið ávallt samt
þó upp til skýja sé þvífleygt.
'fíjHP.ii ‘iííÍMfífjóiPJi 'þdi-.yt'í VAPiifiÞi 'úih'Sh
Afmælisbam dagsins
Jack London var áberandi maður á
sinni tíð, bæði sem rithöfundur og
blaðamaður. Skáldverk hans nutu
töluverðrar virðingar og voru þýdd á
fjölda tungumála, þótt núna sjáist
þau helst í misgóðum sjónvarpsútgáf-
um fyrir stálpaða krakka. Hann var
afkastamikill í skrifum sínum og
gerði tilraunir með jonis bókmennta-
form. Jack London fæddist í Kali-
forni'u árið 1876 og lést árið 1916.
tijrJ) ojljljíj t, Ifífl/i| f .i J.jyfi;pflP/i,
Brandarinn
Nýgift hjón voru að ( ræða um stöðu
kvenna.
„Þú verður að skilja að guð skapaði karl-
manninn fyrst,“ sagði hann.
„Já, ég skil það,“ svaraði hún. „Þegar ég
skrifa bréf geri ég alltaf uppkast fyrst."
Veffang dagsins
Alþjóðlegur skákklúbbur er starfræktur á
Netinu á www.chessclub.com og fullyrða
forsvarsmenn hans að allt að 50.000 skák-
ir séu í gangi í einu þegar mest er. Þetta er
hrein gullnáma fyrir skákáhugamenn, og
meðal annars hafa Gary Kasaprov og
áskorandi hans Peter Borisovitsj Stidler
ekki getað stillt sig um að tefla þar.