Dagur - 13.01.1999, Blaðsíða 11

Dagur - 13.01.1999, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1999 - 11 t^MT ERLENDAR FRÉTTIR Áætlað er að vændi skapi Taílendingum hlutfallslega ámóta tekjur og sjávarútvegurinn íslendingum. Sex-ið „stóriðja“ í Suðaustur-Asm Áætlað er að tekjur af vændi í Taílandi slagi hlutfallslega hátt í út- flutningstekjur ís- lendinga af sjávaraf- urðum. „Sex-iðnaðurinn“ hefur nú náð svo gríðarlegu umfangi í íjórum Iöndum Suðaustur-Asíu að áætl- að er að veltan samsvari orðið frá 2% og allt upp í 14% af þjóðar- framleiðslu þessara Ianda, sam- kvæmt nýlegri skýrslu Alþjóða- vinnumálastofnunarinnar (ILO), sem fjallað er um í blaði norsku stéttarfélaganna. „Margar millj- ónir fólks lifa nú orðið beint eða óbeint af sex-iðnaðinum,“ segir LO-blaðið. Til að átta sig betur á umfanginu má benda á að út- flutningsverðmæti íslenskra sjáv- arafurða nam 17% íslenskrar þjóðarframleiðslu 1997, eða tæp- um 90 milljörðum króna, en framleiðsla íslenskra stóriðjufyr- irtækja innan við 4% þjóðarfram- Ieiðslu. Samkvæmt þessu sýnist áætlað að vændi skapi Taílend- ingum hlutfallslega ámóta tekjur og sjávarútvegurinn Islending- um. Kynlifsferðir nú ódýr munað- ur Kannski er það þess vegna að í ILO-skýrslunni séu menn alvar- lega farnir að ræða hvort lögleið- ing vændis gæti hugsanlega tryggt vændiskonunum aukin mannréttindi. Um þetta eru samt mjög skiptar skoðanir meðal for- svarsmanna ILO. Karin Beate Theodorsen segist til dæmis al- veg á móti Iögleiðingu vændis, enda leiði öll svið kynlífsverslun- ar þrengingar á mannréttindum en ekki öfugt. Hún tekur fram að athyglin eigi ekki að beinast fyrst og fremst að vændiskonunum, heldur þeim sem græða á þeim, þ.e. vissum hluta ferðaþjónust- unnar og síðast en ekki síst kúnn- unum. „Lág gengisskráning og Iágt verðlag í þessum Iöndum gerir kynlífsferðir að ódýrum munaði fyrir vestræna ferða- menn.“ Karin Beate bendir jafnframt á að „sexverslunin11 fari Iíka vaxandi í Evrópu í takt við aukna efna- hagskrísu í Austur-Evrópu. „Lítið bara á hvernig rússneskar vænd- iskonur hafa byggt upp viðskipt- in í Finnmörku.11 — HEI Athygli imsvioDi] ;lisverðustu heimsviðburðimir 1998 Ritstjórar 84 Qölmiðla í 39 lönd- um víðs vegar um heiminn hafa valið hverjir eru 20 merkustu at- burðir ársins 1998. Rannsóknin á meintu meinsæri Bills Clinton Bandaríkjaforseta og hugsanleg- um réttarhöldum gegn honum í öldungadeild Bandaríkjaþings varð fyrir valinu sem mest áber- andi atburður ársins. Þar skammt á eftir í atkvæðamagni koma efnahagsþrengingar margra ríkja í Asíu. Þess ber að geta að könn- unin var gerð áður en Bretar og Bandaríkjamenn gerðu loftárás- irnar á Iraq fyrr í mánuðinum. Næst áðurnefndum atburðum koma í þeirri röð sem atkvæði féllu tilraunasprengingar Ind- veija og Pakistana; fellibylirnir Mitch og Georges; friðarviðræð- urnar á Norður-írlandi; efna- hagslegt og póltískt öngþveiti f Rússlandi; stofufangelsi og ákær- ur gegn fyrrum einræðisherra Chile, Augusto Pinochet; innan- ríkisdeilurinar í Kosovo; afsögn Suhartos Indónesíuforseta og ófriðurinn sem verið hefur við- varandi síðan í Iandinu; deilurnar milli Sameinuðu þjóðanna, aðal- lega vopnaeftirlitssveitanna, og stjórnvalda í Iraq; sprengjuárásin gegn sendiráði Bandaríkjanna í Kenya; friðarviðræðurnar í Wye River milli ísraela og Palestínu- manna; stjórnarskiptin í Þýska- landi er Iangri stjórnartíð Kohls lauk; stinningarlyfið Viagra; söguleg heimsókn Jóhannesar Páls páfa til Kúbu; umræður og undirbúningur að Evrunni, nýju Evrópumyntinni; heimsmeistara- keppnin i knattspyrnu í Frakk- landi; áframhaldandi útbreiðsla AIDS; brottför Anwars Ibrahims varaforsetisráðherra Malasyu úr embætti og loks dauði leiðtoga Rauðu-Khmeranna í Kambodíu. - GG I | ARf !0T1 ya i 1 Lnul JUI 1 HEIMURINN NATO stækkar strax í mars NATO - Pólland, Tékkland og Ungverjaland hljóta aðild að Norður- Atlantshafsbandalaginu strax í mars næstkomandi, að því er starfs- maður NATO skýrði frá í gær. Ekkert er því til fyrirstöðu að ferlið gangi hratt fyrir sig, þar sem öll núverandi aðildarríki bandalagsins, 16 að tölu, bafa samþykkt stækkunina. A leiðtogafundi NATO í lok apríl verður nýju ríkjunum þremur fagnað með bátíðlegum hætti. Vaxla meiriMuti fyrir vantrausti EVRÓPUSAMBANDIÐ - Svo virðist sem ekki náist meirihluti á þingi Evrópusam- bandsins fyrir vantrausti á framkvæmda- stjórnina, en atkvæði verða greidd á fimmtu- dag. Þess í stað virðist sem víkja eigi tveimur framkvæmdastjórum, Edith Cresson og Manuel Marin, úr framkvæmdastjórninni vegna spillingar, en ásakanir hafa mest beinst að þeim tveimur. Manuel Marin, einn framkvæmdastjóra ESB. 1998 var hlýjasta árið til þessa BANDARIKIN - Samkvæmt mælingum bandarískra vísindamanna var árið 1998 það hlýjasta frá því skráning mælinga hófst. Meðalhit- inn á jörðinni var 15,4° á Celsíus að sögn vísindamanna bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA, sem er 0,19° hlýrra en árið 1995, sem átti metið til þessa. E1 Nino veðurfyrirbrigðið á töluverðan þátt í þessum hita, þannig að ekki er reiknað með að 1999 verði hlýrra en nýliðið ár. Kúveitbúar hvattir til að spara KÚVEIT - Emírinn í Kúveit, Dsjabir AI Ahmed Al Sabah, hefur hvatt landa sína til að draga heldur úr þeirri óhóflegu neyslu sem einkennt hefur lífstíl þeirra. Þeir þurfa að fara að aðlaga sig að breyttu efna- hagsumhverfi, þar sem olíutekjur fara minnkandi. Lífskjör í Kúveit eru með því besta sem þekkist í heiminum, og byggja þau einkum á olíutekjum sem tryggt hafa landsmönnum störf hjá ríldnu, húsnæð- isaðstoð, ókeypis menntun og heilbrigðisþjónustu. Vill hraða umhótum á ESB EVRÓPUSAMBANDIÐ - Joschka Fischer, utanríkisráðherra Þýskalands, sagði á Evrópu- þinginu í Strassborg að leggja þyrfti áherslu á endurbætur á Evrópusambandinu til þess að unnt verði að taka ný aðildarríki frá Austur- Evrópu inn í bandalagið. Þýskaland tók við formennsku í Evrópusambandinu um áramót- in, og hyggst Fischer hraða umbótum sem séu nauðsynleg forsenda stækkunar. Komið í veg fyrir hyssukaup BANDARÍKIN - Frá því bandaríska alríkislögreglan (FBI) tók í lok nóvember á nýliðnu ári í notkun tölvukerfi sem veitir aðgang að upp- lýsingum um alla sem sækja um að kaupa byssu, hefur hún hindrað 11.584 einstaklinga í þeirri ætlan sinni. Flestir höfðu þeir hlotið dóm, en í hópnum voru 1.541 sem eru eftirlýstir fyrir glæpi og voru snarlega gerðar ráðstafanir til þess að hafa uppi á þeim. Joscka Fischer, utan- ríkisráðherra Þýska- lands. Baudaríkj ameim skjóta enu á írak ÍRAK - Það gerist nú nærri daglega að bandarískar herþotur skjóti á loftvarnarstöðvar í Irak. I gær, annan daginn í röð, skaut bandarísk herþota á ratsjárstöð eftir að ljóst var að ratsjánni var beint að þot- unni. Bandaríkjamenn telja slíkt jafngildi undirbúningi að skotárás og því fullgilt tilefni til andsvara.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.