Dagur - 13.01.1999, Page 12
rimm i'T i m m rri mnm in mmni ■ ■ ■ ■ .........................■■■■■■ bt ri ■■ ■ hiti ■■■■■■!■■■■■■ u ■■■■■■■■■■■■■■ mn
12*-MIÐVIJÍUDAGUR 13. J&NÚAK 1M9.9
.Xfc^wr
CcreArbíé
S 462 3500
STÆRÐIN SKIPTIR EKKI MÁLI! - Smáir hermenn - STÓRMYND
Miðvikud. kl. 21.
CHRIS TUCKER
The ffístest hands
ín the East
versus
the biggest moutti
m the West.
irk«
>UR
RUSHHOUR _.*?u
í^VÍSí^ Wk 54 5*^4
'U ■ ■
mmmtumm
■ííí.. ;>)•" r*l Jjj *!<§?li$i
Einn stærsti smellur ársins. Þeir Jatkie Chan & Chris Tucker eru frábærir í
þessari grínspennu sem fár beint á topp bandaríska listans.
Miðvikud. kl. 21 og 23:00.
D I G I T A L
# .y'
/ i \/>
CjUu
\ 0^?*?
>4 »/•**■ \,rf
>JP, . - -«
mk. « Æ i'
SBfo mmm
Heimur alþjáðanjósna og hryðjuverka er viðfangsefni hasarkappans
Jean Claude Van Damme i þessari hasarhlöðnu og kraftmiklu spennumynd.
Miðvikud. kl. 23.
SMALL SOLDIERS
STÆRDIN SKIPTIR
MALI
IÞROTTIR
Arnar Gunnlaugsson.
Amar fer
framá
sölu frá
Bolton
Arnar Gunnlaugsson, knatt-
spyrnumaður hjá enska 1. deild-
ar félaginu Bolton, hefur sam-
kvæmt fréttum frá Bretlandi far-
ið fram á sölu frá félaginu. I
fréttinni segir að beiðni Arnars
hafi valdið mildum vonbrigðum
hjá stuðningsmönnum Bolton,
en hann er nú markahæsti leik-
maður liðsins á leiktímabilinu.
Eftir góða byijun með liðinu
hefur Arnar meira og minna
þurft að verma varamannabekk-
inn að undanförnu og það vald-
ið honum miklum vonbrigðum,
auk þess sem hann hefur farið
fram á hærri laun.
Reiknað er með að Bolton fari
fram á 4 milljónir punda fyrir
Arnar, en fréttin segir að félagið
hafi keypt hann fyrir aðeins
100.000 pund.
Spennandi verður að fylgjast
með því hvaða viðbrögð Arnar
fær frá liðum í ensku úrvals-
deildinni, en einhver þeirra hafa
verið að fylgjast með kappanum,
eftir góða leiki í upphafi tíma-
bilsins.
ErM Nool
kemur 4
Stdrmót IR
Samningar hafa tekist við
finnska tugþrautarkappann Erki
Nool um að taka þátt í Stórmóti
IR þann 24. janúar nk. Erki sem
er núverandi Evrópumeistari í
tugþraut mun á mótinu etja
kappi við Jón Arnar Magnússon,
en þeir hafa á undanförnum
árum háð marga spennandi
keppni á stórmótum víða um
heim.
Erki Nool er nú í þriðja sæti
heimslistans með 8672 stig, en
Jón Arnar er með 8573 stig.
Hann varð sigurvegari stigamóta
alþjóða frjálsíþróttasambandsins
þar sem Jón Arnar varð í þriðja
sætinu og var á síðasta ári kos-
inn annar besti tugþrautarmað-
ur heims af „Track and Fields
News“, víðlesnasta íþróttatíma-
riti heims.
Það er því ljóst að annar og
þriðji besti tugþrautarmaður
heims verða í Höllinni eftir tvær
vikur og vænta má mjög spenn-
andi keppni milli kappanna.
Já... en ág nota nú
yfirleitt beltið!
IUMFERÐAR
Práð
EELENT
Roy Kean gæti yfirgefið Old Trafford
Svo gæti farið að fyrirlíði Manchcster United yf-
irgæfi félagið áður en langt um líður. Hann
stendur nú í viðræðum við félagið og vill fá 4,8
milljónir í vikulaun. Þetta telja forráðamenn
United allt of há laun og hafa sagt leikmannin-
um að ekki komi til greina að bijóta upp launa-
stefnu liðsins vegna eins leikmanns. Kean held-
ur þó fast við sitt og hefur sagt stjórnarmönnum
félagsins að fái hann ekki samning sem sé sér að
skapi skrifi hann ekki undir neitt. Orðrétt sagði
Kean,“If it’s not the contract I want I won’t sign
it.“ Svo mörg voru þau orð.
Roy Kean.
Gustavo Poyet undir luiííinn
Gustavo Poyet, miðvallarleikmaður Chealsea og
Uruguay, hefur verið skorinn upp við hnjá-
meiðslum, sem hann hlaut í leik við South-
ampton 26. desember. Belgíski læknirinn sem
skar upp, Marc Martens, segir að aðgerðin hafi
heppnast 100% en Poyet geti ekki leikið knatt-
spyrnu næstu þijá mánuðina. Þetta er mikið
áfall fyrir Chealsea því Poyet hefur verið einn
snjallasti miðvallarleikmaður úrvalsdeildarinnar
í vetur og máttarstólpi í toppliðinu frá Stamford
Bridge.
Gustavo Poyet.
Landsliðsferli Gazza lokið?
Paul Gascoigne, leikmaður Middlesbrough, hefur náð sér vel á strik
eftir að hann kom „af snúrunni" í haust. Gazza, sem neytti bæði
áfengis og þunglyndislylja, hefur átt mjög góða leiki með liði sínu
upp á síðkastið en það hefur ekki dugað til að ná hylli Glenn Hoddle,
landsliðsþjálfara. Gascoigne sagði í vikunni að hann gæti ekkert gert
að því hvað Glenn Hoddle hugsaði eða gerði. „Eg reyni bara að leika
vel fyrir Bryan Robson og Middlesbrough núna. Það gengur ágæt-
Iega. Stundum á ég fína leiki en stundum lélega. Það er eins og geng-
ur og þannig á það að vera. Enginn er fullkominn og allra síst
ég,“sagði Gazza.
Tony Adams að braggast
TonyAdams, fyrirliði Arsenal og enska Iandsliðs-
ins, er allur að braggast eftir meiðsl sem hann
hlaut í Evrópmdðureign Arsenal og Lens í nóv-
ember. Hann Iék með varaliðinu á mánudaginn
og kenndi sér einskis meins. Arsen Wenger von-
ast til að geta notað fyrirliðann í leik Arsenal og
Nottingham Forest á laugardaginn, þegar seinni
umferð úrvalsdeildarinnar hefst.
Tony Adams.
Oyvind Loenhardsen vill burt
Norski Liverpoolleikmaðurinn Ovind Leonhardsen rær nú öllum
árum að því að finna sér nýtt Iið til að Ieika fyrir. Leo hefur varla náð
að vinna sér sæti á varamannabekk Liverpool það sem af er leiktíð-
inni og sér að það gengur ekki. „Tímabilið hefur verið tími mikilla
vonbrigða fyrir mig. Eg hef lítið leikið með liðinu í vetur. Þetta hef-
ur ekkert með þjálfaraskiptin að gera. Eg fékk ekkert fleiri tækifæri
áður en Roy Evans yfirgaf Anfield," sagði Leonhardsen sem á tvö ár
eftir af 3,5 milljóna punda samningi sínum við Liverpool.
Ole Gunnar Solskjær góður
Norsku landsliðsmennirnir í Englandi komu
saman til æfinga í Blackburn í vikunni. Þar voru
allir helstu tjölmiðlar Noregs með sína menn á
staðnum. Ekki þó sjónvarpsstöðin TV 2 sem
stærir sig af góðri íþróttaumfjöllun. TV 2 leigði
hinsvegar enska tökumenn, sendu þeim spurn-
ingar á ensku sem leikmennirnir áttu að svara á
norsku. Þetta kunni United-leikmaðurinn, Ole
Gunnar Solskjær ekki að meta. Þegai naiiii vat
spurður hvað honum þætti merkilegt við að vera
í norska landsliðinu svaraði hann. „Djöfull fer
hann hratt þessi bíll þarna." Næstu spurningu
Ieiguþýs TV 2 svaraði leikmaðurinn með annarri spurningu. „Hvern-
ig klæðir konan þín sig á kvöldin." Þegar hann sá að blessaðir menn-
irnir skildu hvorki upp né niður í því sem hann sagði, gerði hann
þeim grein fyrir gríninu og svaraði síðan skilmerkilega öllum þeim
spurningum sem bornar voru fyrir hann. Öfugt við félaga hans og
norsku fréttamennina sem voru á staðnum, skemmtu Englending-
arnir sér ekki yfir athæfinu.
Solskjær frá United?
Norskir fjölmiðlar greindu frá því í gær að Nils Johan Semb, lands-
liðsþjálfari Noregs, hefði gert Ole Gunnari Solskjær grein fyrir því á
dögunum, að best væri fyrir hann að huga að félagaskiptum ætli
hann að halda sæti sínu í norska Iandsliðinu. Ole Gunnar hefur áður
sagt að hann vilji vera áfram hjá United þrátt fyrir færri tækifæri með
liðinu og einnig hefur Alex Ferguson lýst því yfir að hann vilji halda
í leikmanninn knáa.
Ole Gunnar Sol-
skjær.