Dagur - 13.01.1999, Síða 2
18 - MIÐVIKUDAGU R 13. JANÚAR 1999
Tfe^íir
LÍFIÐ t LANDINU
■ SMflTT OG STÓRT
UMSJÓN:
BJÖRN
ÞORLÁKSSON
Eins og að rústa Highbury
Eiríkur S. Jóhannsson, kaupfélagsstjóri KEA,
er mikill knattspyrnuaðdáandi og fylgist vel
með enska boltanum. Eiríkur lætur sig einnig
boltalífið í heimabænum varða og mun honum
ekki hugnast sú hugmynd að aðalknattspyrnu-
velli bæjarins verði fórnað fyrir verslunarhús-
næði. Þetta kann að hljóma undanlega þar
Eiríkur S. sem KEA er einmitt annað tveggja fyrirtækja
Jóhannsson. sem hafa sótt um Ióðina undir rekstur, en á
það ber hins vegar að líta, að það var að frum-
kvæði og ábendingu Akureyrarbæjar sem um-
sóknin fór fram. Samkvæmt því sem kaupfé-
lagsstjórinn segir, væri jafn gáfulegt að fórna
Higbury í London fyrir stórmarkað og að fórna
Akureyrarvelli og þar hafa menn það.
„Þetta eru svona
túttuskór, mér
fannst kominn
tími til að koma
túttunni á markað
aftur,“
segir Guðrún Mar-
grét Jóhannsdóttir
í Degi. Hún hefur
sigrað í skóhönn-
unarkeppni með
því að gefa gamla
tékkneska gúmmí-
skónum nýtt líf.
Lítill keppnismaður
Eiríkur er sannur keppnismaður að sögn vina
hans og sömu sögu má segja um toppinn hjá
ÍE, sjálfan Kára Stefánsson. Kári og Eiríkur
eiga boltann að sameiginlegu áhugamáli. Kári
tekur hins vegar körfuboltann fram yfir allt
annað og æfir reglulega körfu með nokkrum
félögum. Smátt og stórt hefur heyrt því fleygt
að Kári þyki mjög fylginn sér í íþróttinni og
allt að því grófur. Ekki er ólíklegt að Edda
Andrésdóttir hafi verið búin að heyra sama
orðróm þegar hún spurði Kára út í þetta í
Kryddsíld Stöðvar 2 um áramótin. General
Kári kannaðist hins vegar ekkert við það að
vera harður keppnismaður og trúi nú hver sem
vill.
Amijón Hafstein
Fram til þess hafa augljós líkindi ekki verið
með fyrrverandi ritstjóra Dags, Stefáni Jóni
Hafstein og þingmanninum söngelska, Arna
Johnsen. I gær upplýstist þó að þeir ættu
a.m.k. eitt sameiginlegt. Nýtt fyrirtæki sem
Stefán Jón hefur stofnað, hefur hlotið nafnið
ísland ehf. og þótt Arni sé frá Vestmannaeyj-
um telur hann sig Islending með upphafsstöf-
um. Þannig ákvað Arni snemma að festa sér
einkanúmerið ÍSLAND á bifreið sína og eiga
þessir tveir því ísland sem stendur. Að öðru
leyti mun afar fátt sameiginlegt með þessum
tveimur.
„Bygging tónlistar-
húss á Borgarholti
hér I Kópavogi er
glæsilegt framtak
og ég finn að
Kópavogsbúar eru
afar stoltir, “ segir
Vigdís Esradóttir.
mynd: E.ÓL
Saluiinn er stórt
hljóðfæri
Salurinn í hinu nýja tónlistar-
húsi á Borgarholtinu í Kópa-
vogi var formlega tekin í notk-
un 2. janúar. Tónlistarhúsið er
tvískipt og er stefnt að því að
ljúka sfðari áfanga þess næsta
sumar, en þá mun Tónlistar-
skóli Kópavogs flytja starfsemi
sína í nýtt og glæsilegt
kennsluhúsnæði. Framkvæmd-
ir við húsið hófust síðla árs
1997 og þessi stutti bygginga-
tími hefur vakið athygli. Heild-
arkostnaður við Tónlistarhús
Kópavogs er áætlaður um 400
milljónir, þar af er kostnaður
við Salinn aðeins tæplega
helmingur þessarar fjárhæðar.
Bókað langt fram á árið
Vigdís Esradóttir segir að eftirspurn eftir Saln-
um sýni hve þörfin fyrir tónlistarhús sé mikil.
Nú þegar hafa fjölmargir tónleikar verið haldnir
í húsinu og um síðastliðna helgi hófst þar dag-
skrá Myrkra músíkdaga, sem stendur fram eftir
þessum mánuði. „Það er búið að bóka tónleika
Iangt fram á árið, og má þar nefna kórtónleika,
píanótónleika, einsöngstónleika, jasstónleika og
svo mætti lengi telja. Salurinn er í raun og veru
stórt hljóðfæri og rafmagn er ónauðsynlegt við
allan tónlistarflutning. A það einnig við um tal-
að mál og er það fátítt í svona
stóru rými.“
Vigdís er kennari að mennt og
stundaði síðar nám við tón-
menntakennaradeild Tónlistar-
skólans í Reykjavík. Einnig er hún
menntuð í félagsfræðum, með
áherslu á Ijölskyldumeðferð. Hún
hefur um dagana starfað víða og
síðustu tvö ár sem upplýsingafull-
trúi Vesturfarasetursins á Hofsósi.
Hún segir það hafa verið ánægju-
legan tíma og Hofós hafi hún kvatt
með söknuði. Það hafi hinsvegar
verið ómótstæðilegt tækifæri fyrir
sig sem gamlan Kópavogsbúa og
áhugakonu um tónlist að sækja
um þetta starf, sem hún svo fékk.
Getur spilað vel saman
„Ég trúi því að við í Kópavogi getum í framtíð-
inni átt góða samvinnu við forsvarsmenn tón-
listarhússins sem hefur verið ákveðið að reisa í
Reykjavík. Starfsemi þessara húsa ætti að geta
spilað vel saman. Almennt get ég þó sagt að
bygging tónlistarhúss á Borgarholti hér í Kópa-
vogi er glæsilegt framtak og ég finn að Kópa-
vogsbúar eru afar stoltir af því frumkvæði sem
bæjaryfirvöld hér hafa tekið með uppbyggingu
alhliða menningarmiðstöðvar sem hér er að
rísa,“ segir Vigdís. -SBS.
Tónlistarmenn hafa
eignastgóðan sama-
stað. Vigdís Esradótt-
ir erforstöðumaður
nýs Tónlistarhúss
Kópavogs.
SPJALL
■ FRÁ DEGI TIL DflGS
„Sá sem hefur vald á ástríðum sínum
er þræll skynseminnar.“
Þetta gerðist 13. janúar
• 1559 var Elísabet I. krýnd drottning í
Englandi.
• 1785 kom út fyrsta eintakið af London
Times.
• 1898 birtist fræg grein eftir Emile Zola
þar sem hann kom Alfred Dreyfus til
varnar.
• 1930 birtist fyrsta teiknimyndin um
Mikka mús. \
• 1949 var kviÍpijTid Lofts Guðmunds-
sonar, MiIIi fjalls og fjöru, frumsýnd.
• 1953 var Tito kosinn forseti Júgóslavíu.
• 1958 undirrituðu 9.000 vísindamenn
frá 43 ríkjum bænaskjal um bann við
kjarnorkuyopnatilraunum.
Þau fæddust 13. janúar
• 1881 fæddist Sigvaldi Kaldalóns tón-
skáld.
• 1903 fæddist Hannibal Valdimarsson
ráðherra.
• 1929 fæddist bandaríski djassgítarleik-
arinn Joe Pass.
• 1939 fæddist danski rithöfundurinn
Villy Sprensen.
• 1967 fæddist Sigrún Eðvaldsdóttir
fiðluleikari.
Vísa dagsins
I tilefni af risjóttu veðurfari undanfarna
daga birtum við hér veðurvísu eftir Jónas
Hallgrímsson:
Veðrið er hvorki vont né gott,
varla kdlt og ekki heitt.
Það er hvorki þurrt né vott,
það er svo sem ekki neitt.
Afmælisbam dagsins
Danski presturinn Kaj Harald
Leininger Munk fæddist fyrir 101
ári, þann 13. janúar árið 1898. Is-
lendingar þekkja vel til hans vegna
leikrits Guðrúnar Asmundsdóttur
um hann sem flutt var við góðar
undirtektir. Sjálfur skrifaði hann
mörg leikrit, sem Qalla einatt um
harðstjóra sem berjast vonlausri
baráttu gegn Guði. Andstaða hans
gegn nasistuin aflaði honum vin-
sælda og virðingar i Danmörku, og
varð honum loks að Ijörtjóni í jan-
úarmánuði 1944.
Brandarinn
Séra Guðmundur mætti Jónasi, þar sem sá
síðarnefndi var að staulast illa fullur út úr
þorpskránni.
„Jónas, Jónas, Jónas,“ sagði séra Guð-
mundur í vandlætingartón. „Ég geri ekki
ráð fyrir að hitta þig á himnum eftir hið
hinsta kall!“
„Hvað segirðu, séra Guðmundur?" draf-
aði í Jónasi. „Hvað varstu að gera af þér?“
Veffang dagsins
Hið alþýðlega vísindatímarit Scientific
American er með ljómandi gott vefsetur á
vvvvvv.sciam.com