Dagur - 13.01.1999, Síða 7
MIDVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1999 - 23
LÍFIÐ í LANDINU
VEÐUR
L
FOLKSIIMS
MEINHORNIÐ
• Meinhyrning-
ur dagsins er
óhress með þá
sem halda að
þeir geti lagt
bifreiðum sín-
um hvar sem
þeim dettur í
hug bara af því
að nú er snjór
og svell yfir
gangstéttum og
görðum. Víða
ber á því að bif-
reiðum sé lagt
upp á gangstétt-
ar og upp að
ijölbýlishúsum.
Þannig eru
tepptar leiðir
fyrir til dæmis
sjúkrabifreiðar
ef upp koma
neyðartilvik.
Ekki gott.
• Oft hefur það
komið fyrir að
meinhyrningur
hefur gleymt að
athuga dagsetn-
ingar á vöru
sem fljótt renn-
ur út og
skemmist. Alltof
algengt er að
slíkar vörur
standi í hillum
verslana löngu
eftir að síðasti
söludagur er
liðinn og virðist
mjög skorta á
að eftirlit sé
haft með slíkum
vörum í verslun-
um.
Ragnheiður Þorgilsdóttir formaður íþróttafélags heyrnarlausra leggur áherslu á að
Vesturhlíðarskóli kom hvergi nærri skipulagi eða framkvæmd Nýársfagnaðar íþróttafélags
heyrnarlausra.
Nýársfagnaður
Iþróttafélags
heymarlausra
RAGNHEIÐUR ÞORGILSDÓTTIR
FORMAÐUR ÍFH SKRIFAR
Vegna fréttar sem birt var í Degi viljum
við koma eftirfarandi á framfæri:
Iþróttafélag heyrnarlausra stóð fyrir
nýársfagnaði sem fór friðsamlega fram.
IFH hefur oft staðið fyrir opnu húsi og
árshátíðum og leyft unglingum að vera
með, þar sem samfélag heyrnarlausra er
lítið og það er ljóst að unglingarnir vilja
hitta eldri félagsmenn og þurfa til þess
að forðast félagslega einangrun. Hins
vegar hafa þær reglur alltaf verið skýrar
að einstaldingar undir lögaldri gætu ekki
keypt áfenga drykki. Rétt er að bjór var
seldur einum unglingi og er það miður
að slíkt gerðist og var það gert án vit-
undar forráðamanna félagsins.
Rangfærslur
Asakanir komu fram um að unglingar
hafi getað keypt bjór, en svo var ekki.
Einungis var um þennan eina einstak-
ling að ræða. Annað er að Þröstur Frið-
þjófsson er ekki formaður félgsins held-
ur undirrituð.
Aðgengi heyrnarlausra að almennu fé-
laglslífi er takmarkaður og var þetta við-
Ieitni okkar til að bæta úr því. Rétt er að
taka fram að Vesturhlíðaskóli kom
hvergi nærri skipulagi eða framkvæmd
þessarar samkomu og ber á engan hátt
ábyrgð á því sem gerðist, þó húsnæði
ÍFH sé á Ióð skólans. Mér finnst það
miður að Vesturhlíðaskóla var blandað í
þetta mál.
Fylgist líka með því jákvæða
Við erum ákveðin í að fyrirbyggja að
sh'kt gerist aftur, markmið félagsins er
að efla íþrótta- og tómstundastarf og er
von okkar að við getum áfram sinnt
þessum unglingum, án vandræða. Við
viljum ítreka að okkur finnst það afar
miður að þetta hafi gerst.
Að lokum vil ég benda á þau afrek og
góða frammistöðu heyrnarlausra íþrótta-
manna í gegnum tíðina. Loksins þegar
að við fáum mikla umfjöllun og mikið
pláss í blaði, þarf það að vera á neikvæð-
um nótum. Mig langar að hvetja blaða-
menn til að fylgjast með því jákvæða og
uppbyggilega starfi sem íþróttafélagið
vinnur að og hefur að markmiði.
i
Aheitasjóður Þorláks
biskups helga
Strandgötu 31, 600, Akureyri
Þverholti 14,105 Reykjavík
Sími umsjónarmanns
lesendasíðu:
460 6122
Netfang: ritstjori@dagur.is
Símbréf: 460 6171/551 6270
Óskað er eftir að bréf til
blaðsins séu að jafnaði hálf til
ein vélrituð blaðsíða, 1000-1200
tölvuslög. Dagur áskilur sér rétt
til að stytta lengri bréf.
EYJÓLFUR GUÐMUNDSSON
SKRIFAR
Gegnum tíðina hafa ýmsir
heitið á Strandarkirkju og
gefist nokkuð vel. - En ekki
er verra að heita á Þorlák
biskup helga, sem einu sinni
var kíerkur í Odda, og síðar
biskup í Skálholti. Hann var
fæddur að Hlíðarenda árið
1133. Þeim sem hafa við ein-
hver vandamál að stríða eða
óska sér einhverra hagsbóta
er bent á að heita á Þorlák.
Til er Áheitasjóður Þorláks helga,
sem ávaxtaður er í Búnaðarbankanum
á Hellu. Með stjórn hans fara banka-
stjóri Búnaðarbankans á Hellu, sókn-
arpresturinn í Odda og sýsluinaður
Rangæinga á Hvolsvelli.
Fjármagn sem sjóðnum kann að ber-
ast verður notað til lagfæringar á
manngerðum hellum í Rangárþingi.
Sá sem þetta ritar hefur af og til
heitið á Þorlák helga og fengið óskir
sínar uppfý'lltar. Auðvitað geta menn
um það deilt hvort það sé að þakka
hinum forna Skálholtsbiskupi eða öðr-
um góðum öflum. En ekki skaðar að
heita á Þorlák, bara að prófa það.
Veðrið í dag...
Norðvestan- og vestanátt, strekkmgur með
norðurstrimdiimi en annars yfirleitt hægari
vindur. É1 norðan- og vestanlands en úrkomulaust
í örðum landshlutum. Frost uni mest allt land.
Veðurhorfur næstu daga
Línuritin sýna fjögurra daga veðurhorfur á
hveijum stað. Línan sýnir hitastig, súluritið 12 tíma úrkomu
en vindáttir og vindstig eru tilgreind fyrir neðan.
Færð á vegum
Ófært var um Hellisheiði í gærkvöld, en búið að opna nm
Þrengsli fyrir bíla búna til vetraraksturs. Þá er ófært um
Fróðárheiði á Snæfellsnesi. Skafrenningur er á
Holtavörðuheiði. Þæfingsfærð er í ísafjarðardjúpi