Dagur - 21.01.1999, Qupperneq 5
FIMMTUDAGVR 21. JANÚAR 1999 - S
FRÉTTIR
L
Daníel Áraason í 2.
sæti en ósigur hjá
Jakob Björassyni. Páll
Pétursson öraggur í
1. sæti á Norðurlandi
vestra.
Valgerður Sverrisdóttir alþingis-
maður varð í fyrsta sæti í próf-
kjöri framsóknarmanna á Norð-
urlandi eystra. Jakob Björnsson,
sem stefndi líka á 1. sætið í
þessu prófkjöri, varð hins vegar
að láta sér nægja 4. sætið. Það
var hins vegar Daníel Arnason,
framkvæmdastjóri á Akureyri,
sem náði 2. sætinu eins og hann
hafði stefnt að, en Elsa Frið-
finnsdóttir, lektor við HA, sem
líka hafði stefnt að 2. sætinu,
lenti í því þriðja.
„Eg þakka þennan sigur minn
því að ég hef verið þingmaður í
kjördæminu í 12 ár og fólkið
þekkir mig. Þar hafði ég visst for-
skot á keppinautinn, en nú tel ég
að sé kominn tími til að snúa
bökum saman og tryggja það að
Framsóknarflokkurinn verði
áfram stærstí fiokkurinn í kjör-
dæminu. Eg tel raunhæft að við
getum unnið 3. þingmanninn,“
sagði Valgerður í gærkvöld.
Baráttan milli þessara fjögurra
frambjóðenda var búin að vera
löng og ströng og þótti afar tví-
sýn. Dagur hefur það frá stuðn-
ingsmönnum Jakobs að þeir hafi
allt eins gert ráð fyrir því að
svona gæti farið þar sem barátt-
an snerist fyrst og fremst um 1.
sætið og ef það næðist ekki gætu
menn allt eins „pompað hressi-
lega niður“. Jakob sagði í samtali
við Dag í gærkvöld: „Þetta eru
mikil vonbrigði, en það var Ijóst
að samkvæmt prófkjörsreglunum
gæti þetta komið fyrir þann sem
tapaði baráttunni um 1. sætið.
Eg mun nú hugsa minn gang. Eg
vil nota tækifærið til að þakka
öllum þeim sem studdu mig í
þessari baráttu."
Talning gekk nokkru betur en
menn töldu og var henni lokið
rétt undir kl. 23:00 í gærkvöld.
Valgerður Sverrisdóttir telur raun-
hæft fyrir framsókn að vinna 3.
þingmanninn á Norðuriandi eystra.
Kjörsókn var ágæt og flestir kusu
á Akureyri en alls kusu um 2.500
manns. Niðurstöðurnar urðu
sem hér segir: Valgerður Sverris-
dóttir fékk 1.343 atkvæði í 1.
sætið; Daníel Árnason fékk
1.493 atkvæði í 1.-2. sæti; Elsa
B. Friðfinnsdóttir fékk 1.701 at-
kvæði í 1.-4. sæti; Jakob Björns-
son fékk 1.844 atkvæði í 1.-4.
sæti; Axel Yngvason bóndi fékk
1090 atkvæði í 1.-5. sætið; og
Bernharð Steingrímsson 1.089
atkvæði í 1.-6. sætið.
Arni í annað sætið
Talning gekk nokkuð hægar á
Norðurlandi vestra í gær og voru
tölur einungis birtar fyrir eitt
sæti í einu. Þegar Dagur fór í
prentun var orðið ljóst að Páll
Pétursson, félagsmálaráðherra
og þingmaður, var öruggur í 1.
sæti listans með tæplega 1.750
atkvæði af rétt rúmlega 2.300.
Baráttan stóð hins vegar milli
þeirra Árna Gunnarssonar, Her-
dísar Sæmundardóttur og Elínar
Lfndal. Skömmu áður en blaðið
fór í prentun var ljóst að Árni
náði 2. sætinu.
Stendur
á Aðaldæl-
ingum
Aðaldælahrepp-
ur sker sig úr
hvað varðar fyr-
irhugað sam-
starfsverkefni
aðila við gufu-
aflsvirkjun við
Þeistareyki, á
þann hátt að
hreppurinn hef-
ur ekki afgreitt
málið frá sér.
Dagur Jóhann-
esson, oddviti
Aðaldælahrepps, segir að Aðal-
dælir muni Ieggja til einhverjar
breytingar á framkvæmdinni, en
hann vill ekki upplýsa á þessu
stigi í hveiju þær felist. Dagur
segir líklegt að sveitarstjórn
muni afgreiða málið frá sér í
byrjun febrúar. „Eg get ekki tjáð
mig um hvað það er sem stend-
ur í mönnum en menn vilja sjá
ákveðna hluti öðruvísi. Auðvitað
er pressa á okkur,“ segir Dagur.
Þeir sem standa að verkefninu
eru auk Aðaldælahrepps, Reyk-
dælahreppur en þessi tvö sveit-
arfélög eru landeigendur. Einnig
Orkuveita Húsavíkur, Rafveita
Akureyrar, Hita- og Vatnsveitan
á Akureyri. „Vitaskuld vildu
menn að þetta kláraðist sem
fyrst því stefnan er að undirbún-
ingsframkvæmdir heljist strax í
sumar. Því fyrr sem menn ná
saman, því betra,“ segir Rein-
hard Reynisson, bæjarstjóri á
Húsavík.
Tímamótasamningur um þýðingu á Windows stýrikerfinu yfir á ísiensku undirritaður í gær. - mynd: hilmar
Windows á íslensku
í gær undirrituðu Björn Bjarna-
son menntamálaráðherra og
Mats Wennberg yfirmaður
Microsoft á Norðurlöndum
samning um þýðingu á Windows
stýrikerfinu frá tölvurisanum yfir
á íslensku. Björn Bjarnason og ís-
lenska ríkisstjórnin hafa unnið að
málinu um þriggja ára skeið en
formlegar viðræður hafa staðið
yfir frá því i ágúst síðastliðinn.
Samhliða var undirritað minnis-
blað þar sem Microsoft lýsir þeim
ásetningi sínum að þýða líka
Office 2000 hugbúnaðinn yfir á
íslensku og íslensk stjórnvöld
skuldbinda sig til að vinna gegn
ólöglegri notkun hugbúnaðar á Is-
landi. Björn Bjarnason sagði við
þetta tilefni að undirritunin
markaði þáttaskil á íslandi varð-
andi tölvuþróun og staða íslensk-
unnar í upplýsingasamfélaginu
væri treyst.
Islenska er 31. tungumálið sem
Windows er þýtt á en Microsoft
ko&tar alfarið þýðinguna, en ráð-
herra segir ekki hægt að nota fj'ár-
hagslegar mælistikur á samning-
inn.
Heilbrigdisstofnun Austurlands
Heilbrigðisstofnun Austurlands
tók til starfa í byrjun þessa árs og
var fyrsti fundur stjórnar á Egils-
stöðum í gær. Starfssvæðið er frá
Bakkafirði til Djúpavogs en
Hornafjörður er reynslusveitarfé-
Iag sem hefur öll heilbrigðismál á
sinni könnu. Um er að ræða sam-
einingu þriggja heilbrigðisstofn-
ana og fjögurra heilsugæslu-
stöðva á svæðinu undir einn hatt.
Um 200 stöðugildi heyra undir
hina nýju stofnun. Heilbrigðis-
ráðherra hefur sett til bráða-
birgða Viðar Helgason sem fram-
kvæmdastjóra en innan tíðar
verður auglýst eftir framkvæmda-
stjóra.
Katrín Ásgrímsdóttir, formaður
stjórnar, segir að ýmiss hagur sé
af þessu fyrirkomulagi. I fyrsta
lagi flyst ákveðin ákvarðanataka
frá heilbrigðisráðuneytinu og
austur og þar með nær vettvangi
og það geti gjörbreytt fagiegu um-
hverfi heilbrigðisstofnana á Aust-
urlandi. Það muni auðvelda að fá
til starfa heilbrigðisstarfsmenn og
auðvelda að samræma allt starf á
svæðinu.
„Það hafa ekki aðrir tekið jafn
stórt skref til hagsbóta fyrir
heimamenn, og það hlýtur að
verða horft til okkar og því mikil-
vægt að vel takist til,“ segir Katrín
Ásgrímsdóttir. - GG
Hús rýmd á Siglufirði
Að höfðu samráði við sýslumann og almannavarnanefnd Sigluljarðar
ákvað Veðurstofan í gærkvöld að rýma skyldi hús á snjóflóðahættusvæð-
um í bænum. Mikið hefur snjóað og eru snjóalög ótrygg og veðurspá
óhagstæð.
Framboð í Jesú nafni
Kristilegi Lýðræðisflokkurinn hefur ákveðið að bjóða fram í komandi al-
þingiskosningum. Boðið verður fram í Reykjavík og Reykjanesi og vænt-
anlega í fleiri kjördæmum. Guðlaugur Laufdal kosningastjóri og Kol-
brún Jónsdóttir leiða framboðslista flokksins í Reykjaneskjördæmi en
ekki hefur verið ákveðið hveijir verða í efstu sætum í Reykjavík.
Á blaðamannafundi í gær kom fram að framboð flokksins sé í Jesú
nafni. Þar kom einnig fram að unnið sé að því að fá forsætisráðherra
Noregs til Islands til að leggja sjónarmiðum flokksins lið. Hinsvegar
hefur ekki enn borist svar við þeirri beiðni. Kristilegi Lýðræðisflokkur-
inn var stofnaður á grunni Kristilegrar stjórnmálahreyfingar sem bauð
fram við síðustu þingkosningar árið 1995. — GRH
Útvarp ísland að hefia útsendingar
Islenska fjölmiðlafélagið mun um næstu mánaðamót
helja útsendingar á nýrri útvarpsstöð, Utvarp Island.
Stöðin mun senda út allan sólarhringinn og verður þar
eingöngu Ieikin íslensk tónlist. Er markmið stöðvar-
innar að hafa mikla breidd í tónlistinni, bæði aldri og
flytjendum. „Stöðin mun standa fyrir Ijölbreyttum
uppákomum og viðburðum tengdum íslensku tónlist-
arlífi og stefnir á að gegna gróskumiklu menningar- og
upplýsingahlutverki í framtíðinni,“ segir í fréttatil-
Jón Axel Úlafs- kynningu. - Utvarp Island kemur til með að heyrast á
son, útvarps- öllu Faxaflóasvæðinu, en þessa dagana er verið að
stjóri Útvarps ís- ganga frá útsendingarbúnaði. Senditíðni verður kynnt
lands. á næstu dögum. Utvarpsstjóri verður Jón Axel Olafs-
son og dagskrárstjóri Ágúst Héðinsson.
Þrír á slysadeHd og einn á gjörgæslu
Fjórir voru fluttir á slysadeild í Reykjavík aðfaranótt miðvikudags eftir
að bifreið þeirra hafði lent af miklu afli á ljósastaur á gatnamótum
Hringbrautar og Sóleyjargötu. Ungur ökmaður bifreiðarinnar missti
stjórn á henni með fyrrgreindum afleiðingum. Einn fjórmenninganna
þurfti að dvelja á gjörgæslu en bifreiðin er gjörónýt.