Dagur - 21.01.1999, Side 10
10- FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 19 9 9
rO^ir
SMÁAUGLÝSINGAR
Til sölu____________________________
Vörubíll og Grafa. Til sölu Man 9.186 4x4
árg. 1970 með 4t krana, snjótönn og sand-
dreyfara. Hjólagrafa OK.MH6 4x4 árg.
1977. Allen grindarbómukrani árg. 1970.
Upplýsingar í síma 451-3245.
Fundir
□St.:St.: 59991217 VIII 8
Atvinna__________________________
Nú er ævintýrið rétt að byrja! Vantar sölu-
fólk um allt land til að selja spennandi
vítamín, næringarefni, snyrtivörur og make-
up. Engin áhætta, frábær laun. Þeir sem
hafa áhuga á skemmtilegri vinnu hafi
samband í síma 852 9709.
Heilsa___________________________
Líkaminn þarf á næringu að halda. Fær
þinn líkami þá næringu sem hann þarf til að
byggja sig upp og bæta það sem aflaga
hefur farið? Nú er rétti tíminn til að snúa við
blaðinu og gefa líkamanum aðeins það
besta. Hafðu samband í sima 852 9709.
Ökukennsla_________________________
Kenni á nýjan Mercedes Benz A-ciass
(litla Benzinn).
Útvega öll náms- og prófgögn. Kenni allan
daginn, á kvöldin og um helgar.
Anna Kristín Hansdóttir, ökukennari
Þingvallastræti 18
heimasími 462 3837
GSM 893 3440.
Kirkjustarf_____________________
Akureyrarkirkja
Kyrrðar og fyrirbænastund kl. 12-12.30
Áskirkja
Opið hús fyrir alla aldurshópa kl. 14-17.
Bústaðarkirkja
Foreldramorgnar kl. 10-12. Mæðgna- og
feðgakvöld kl. 20.
Hallgrímskirkja
Kyrrðarstund kl. 12. Léttur málsverður á eft-
ir. Æskulýðsfélagið Örk (yngri deild) kl. 20.
Háteigskirkja
Starf fyrir 10-12 ára börn kl. 17. Kvöldsöng-
ur Taizé tónlist kl. 21.
Langholtskirkja
Foreldramorgnar kl. 10-12.
Laugarneskirkja
Kyrrðarstund kl. 12.10. Samvera eldri borg-
ara kl. 14.
Digraneskirkja
Foreldramorgnar kl. 10-12. Bæna- og kynð-
arstund kl. 18. Kirkjufélagsfundir kl. 20.30.
Fella- og Hólakirkja
Starf fyrir 11-12 árakl. 16.
Ýmislegt __________________________
Iðnaðarsafnið á Akureyri
Iðnaðarsafnið á Akureyri, Dalsbraut 1 verður
opið í vetur á sunnudögum frá kl. 14.00 -
16.00. Fyrir hópa er opnað sérstaklega á
öðrum timum sem panta þarf í síma
462-3550.
UKEDISLíl
Kenni á Subaru Legacy.
TÍMAR EFTIR SAMKOMULAGI. ÚTVEGA NÁMSGÖGN.
HJÁLPA TIL VIÐ ENDURNÝJUNARPRÓF.
Ingvar Björnsson
ökukennari frá KHÍ Akurgerði 11 b, Akureyri
Sími 899 9800 Heimasími 462 5692
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi
ÓLAFUR ÞORSTEINN STEFÁNSSON
fyrrum bóndi Víðihóli, Fjöllum
til heimilis að Miðvangi 22, Egilsstöðum,
áður Löngumýri 12, Akureyri,
verður jarðsunginn frá Egilsstaðakirkju laugardaginn
30. janúar kl. 14.00.
Gunnlaug Ólafsdóttir, Sigurður Sveinsson,
Þórunn Guðlaug Ólafsdóttir, Einar Rafn Haraldsson,
Gunnlaugur Oddsen Ólafsson,
Oktavía Halldóra Ólafsdóttir
Margrét Pála Ólafsdóttir, Lilja S. Sigurðardóttir,
Stefán Sigurður Ólafsson, Hrafnhildur L. Ævarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengda-
móðir og amma
MARGRÉT ÞORGEIRSDÓTTIR
Engihlíð, Vopnafirði;
sem varð bráðkvödd þann 10. janúar sl.
verður jarðsunginn frá Vopnafjarðarkirkju
laugardaginn 23. janúar kl. 13.00.
Jarðsett verður að Hofi.
Halldór Björnsson,
Þorgeir Hauksson, Guðbjörg Leifsdóttir,
Jóna Kristín Halldórsdóttir, Gunnar Smári Guðmundsson,
Björn Halldórsson, Else Möller,
Ólavía Sigríður Halldórsdóttir, Þorsteinn Kröyer,
Gauti Halldórsson, Halldóra Andrésdóttir,
og barnabörn.
PETUR
GAUTUR
eftir Henrik Ibsen
Sýningar:
fös. 22. jan. kl. 20
lau. 23. jan. kl. 20
fös. 29. jan. kl. 20
lau. 30. jan. kl. 20
Glefsur úr
leikdómum:
„Hið vandasama aðal-
hlutverk leikur Jakob Þór
og ferst það vel úr hendi.
Framsögn hans er til fyrir-
myndar og leikurinn af-
burðagóður."
„Leikur, búningar, tónlist,
leikmynd og lýsing
mynda mjög sannfærandi
heild þar sem textinn er
gerður að lifandi afli sem
hrífur áhorfandann með
sér."
Sveinn Haraldsson MBL
„Uppsetning .Leikfélags
Akureyrar á Pétri Gaut
hlýtur að teljast leiklist-
arunnendum á Akureyri
og í nærsveitum kær-
komið tækifæri til þess
að njóta einnar af perlum
leikbókmenntanna. Þeir
ættu ekki að láta það
fram hjá sér fara."
Haukur Ágústsson Degi
„Sveinn Einarsson leik-
stjóri hefur skilað hreint
frábæru verki. Svona á
leikhús að vera og það er
einfaldlega fullkomin
synd að láta þessa sýn-
ingu fram hjá sér fara."
Þórgnýr Dýrfjörð RÚVAK
„Leiftrandi skemmtileg
sýning þar sem ævintýrið
er höndlað í eftirminni-
legum atriðum. Ógleym-
anlegt."
Auður Eydal DV
TEATER
QG
DANS
I N O R D E N
LEIKFÉLAG
AKUREVRAR
SÍMI 462 -1400
FRÉTTIR
Starfsemi Skelfisks endurfjármögnuð
Endurfjármögnun Skelfisks á Flateyri er í undirbúningi en að sögn
nýráðins framkvæmdastjóra, Jóhanns Þórs Halldórssonar fyrrum
framkvæmdastjóra Búlandstinds á Djúpavogi, er hlutafjárútboðið um
130 milljónir króna. Nú þegar hefur Nýsköpunarsjóður atvinnulífs-
ins lofað 40 milljón króna framlagi. Markaðssetning soðvökva frá
kúfiskvinnslunni hefur gengið nokkuð vel, en markaðssvæðið er
Bandaríkin þar sem soðvökvinn er notaður til súpu- og djúsgerðar.
Unnið er að því að finna heppileg eimingartæki, eða eimingarverk-
smiðju, til soðvökvaframleiðslunnar.
Veiðar kúfiskbátsins Skels IS-33 hefur gengið fremur treglega að
undanförnu, bæði vegna slæms veðurs og eins virðist kúfiskurinn
vera vandfundnari og víða hefur hann grafið sig niður í botninn. Fyr-
irhugað er að breyta bátnum og setja aftan á hann gálga þannig að
hægt verði að hífa plóginn beint upp og Iosa úr pokanum beint í síló.
I dag er plógurinn tekinn inn á síðunni og mikið vafstur að losa síð-
an úr honum inn á dekkið. Hjá fyrirtækinu starfa í dag um 15
manns, þar af 7 á bátnum, en þegar bæði kúfiskvinnslan og soð-
vökvaframleiðslan verða kominn á fullt munu starfa hjá Skelfiski á
Flateyri allt að 30 manns. -GG
Nökkvi færir út kvíamar
Afstöðumynd afnýju geymsluhúsnæði Siglingaklúbbsins Nökkva.
Arkitekt er Finnur Birgisson.
Bygginganefnd Akureyrarbæjar hefur veitt Siglingaklúbbnum
Nökkva bráðabirgðaleyfi uppsegjanlegu með sex mánaða fyrirvara til
byggingar bátageymsluskýlis við Drottningarbraut norðan við núver-
andi klúbbsaðstöðu en gaflar hússins snúa í austur/vestur. Geymslu-
skýlið er 6,4 X 10,7 metrar að stærð og á þvf er tum. Aætlaður kostn-
aður er allt að 2 milljónir króna.
Til viðbótar er há girðing næst húsinu til þess að hægt sé að geyma
utandyra báta og fleira að sumarlagi. -GG
Förðunarfræðingar og
áhugafólk
Vantar förðunarfólk og áhugasama (þjálfun möguleg).
STRAX!
Upplýsingar í síma 699 2011.
AKUREYRARBÆR
Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Mánudaginn 25. janúar 1999 kl. 20-22 verða bæjarfulltrúarnir
Sigurður J. Sigurðsson og Sigfríður Þorsteinsdóttir til viðtals á
skrifstofu bæjarstjóra að Geislagötu 9, 2. hæð.
Bæjarfulltrúarnir munu svara símaviðtölum eftir því sem
aðstæður leyfa.
Síminn er 462 1000.