Dagur - 21.01.1999, Side 13
FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999 - 13
ÍÞRÓTTIR
Fowler og Owen skap-
aðir til að leika saman
Samningar við Fowler eru nú á lokastigi og allar líkur á að hann verði
leikmaður á Anfield Road til ársins 2005.
Michael Owen og félagi hans Robbie Fowler hafa skorað 39 mörk, þar af
þrjátíu á yfirstandandi leiktíð.
Fáir höfðu trú á að
Liverpool kæmist aft-
ur á sigurbraut.
Fowler hrokkinu í
gang og vex með
hverjum leik. Nýr
samuingur við Liver-
pool á lokastigi.
Gerard Houllier, knattspyrnu-
stjóri Liverpool, er ánægður með
sig og lið sitt þessar vikurnar.
Honum virðist hafa tekist það
sem fáir höfðu trú á í kjölfar at-
burða haustsins, þ.e.a.s. að
koma Liverpool á sigurbraut á
ný. Það sem vekur þó sérstaka
gleði með Houllier er samvinna
þeirra Robbie Fowler og Michael
Owen. Samningar við Fowler eru
nú á lokastigi og allar líkur á að
hann verði leikmaður á Anfield
Road til ársins 2005. Margir
voru þeirrar skoðunar að Liver-
pool ætti að selja Fowler meðan
eitthvað fengist fyrir hann, en
Fransmaðurinn var á annari
skoðun, þrjóskaðist við og kom
„vitinu“ fyrir knattspyrnumann-
inn. Robbie Fowler mun ekki
sprengja launaskala Liverpool.
Fowler vex með hverjum leik
Það voru þó fleiri ástæður fyrir
því að margir vildu Fowler burt
frá Anfield. Sú skoðun hefur oft
komið fram að dúettinn, Fowler
- Owen, geti aldrei gengið. Til
þess séu leikmennirnir of líkir.
Einnig telja margir að Robbie
Fowler sé leikmaður á niðurleið
þótt ungur sé. Þessu er Houllier
ekki sammála og bendir á að
Fowler hafi vaxið með hveijum
leik eftir Iangvarandi meiðsl.
Þrennan gegn Southampton um
helgina er toppurinn hjá Fowler í
vetur. Frakkinn telur að Fowler
sé hrokkinn í gang og nú bíður
hann spakur eftir að Ieikmaður-
inn geti skipt í efsta gír.
Hafa leiMð 47 leiki saman
Michael Owen og Robbie Fowler
hafa leikið 47 leiki saman fyrir
Liverpool. I þeim leikjum hefur
liðið skorað 80 mörk. Þar af hafa
félagarnir Owen og Fowler skor-
að 39 mörk, þar af þijátíu á yfir-
standandi leiktíð. Robbie Fowler
hefur vinninginn, með 22 mörk
á móti 17 mörkum Owens. „Þeir
eru skapaðir til að leika sarnan",
segir Houllier. „Með Ieiknum
gegn Southampton svöruðu þeir
gagnrýnisröddunum sem telja þá
ekki geta unnið saman. Michael
skapaði mörg færi fyrir Robbie
og öfugt. Það góða við þá er að
þeir leita hvor að öðrum í leikn-
um og hafa löngun til að leika
saman," sagði Houllier og hefur
ekki miklar áhyggjur af þeirri
staðreynd að tölfræði þeirra fé-
laga er ekki nema rétt í meðallagi
í enska boltanum.
Þurfum að styrkja liðið
Aðspurður um það hvort hann
væri farinn að gæla við meistara-
vonina að vori sagði Fransmað-
urinn: „Það eru sextán leikir eft-
ir af tímabilinu og því alltof
snemmt að fara að tala um
meistaratitil. Við þurfum að ná
meiri stöðugleika í leik okkar og
styrkja lið okkar mun meira til
þess að eiga möguleika á meist-
aratitlinum. Eg held að eitt af
þremur sætunum í meistara-
deildinni ætti að geta verið raun-
hæfur möguleiki fyrir okkur og
við stefnum fyrst og fremst að
því markmiði nú. Það er mikil-
vægt fyrir okkur að halda áfram
að vinna leiki og taka framför-
um. Við erum enn nokkrum stig-
um á eftir toppliðunum og þurf-
um að vinna það upp.“ — GÞÖ
GUÐNI Þ.
ÖLVERSSON
Liðimiun
refsað
Undirritaður hefur margoft Iýst
þeirri skoðun sinni að gaman sé
að bregða sér á völlinn og horfa
á góða kappleiki. En það er ekk-
ert gaman þegar mjög fáir áhorf-
endur eru til staðar. Stemmn-
ingin er í algjöru lágmarki og lít-
ill peningur kemur í kassann hjá
íþróttafélögunum. En ég hef
áður skrifað um að aðgangseyrir
inn á íþróttaviðburði sé of hár.
Eg hverf ekki frá þeirri skoðun.
Fólk setur svoleiðis hluti íyrir
sig.
Onnur ástæða fyrir dræmri
aðsókn á leiki t.d. hjá KA í hand-
bolta og Þór í körfubolta á Akur-
eyri er sú að liðin eru ekki í
toppsætum á Islandsmótunum.
Kæru Akureyringar. Hvaða
máli skiptir það. KA-menn eru
með skemmtilegt lið sem náði
mjög góðum árangri sl. vetur og
eru að byggja upp sitt lið. Og
það tekur smá tíma og er nóg
eftir af Islandsmótinu.
Þórsarar í körfuboltanum
ákváðu að byggja upp lið á
heimamönnum. Ungum strák-
um sem eiga svo sannarlega
framtíðina fyrir sér. En þeir
þurfa stuðning. Þeirra uppbygg-
ing tekur líka smá tíma.
Stuðningsmenn eiga ekki
endalaust að setja ryrir sig ár-
angur hverju sinni. Arangur
næst ekki nema með stuðningi
áhorfenda. Hver kannast ekki
við þá klisju. En hún er líklega
rétt. Þetta helst allt saman í
hendur.
Kæru íþróttaáhugamenn.
Metið stöðuna í heild sinni og
lítið á það sem skemmtun að
fara á völlinn. Auðvitað viljum
við að liðið okkar sé efst og best,
en það þarf mikið til.
ÍÞRÓTTA VIÐTALIÐ
Hörður
Hilmarsson,
hjá IT-ferðwn
Síðustu vikuna ífebrúar
munu IT-fetðirmeð stuðn-
ingifræðslunefndar KSÍ
efna til kynnisferðar til
Englands, þar sem nokkur
affrægustu knattspymufé-
lögunum verðaheimsótt.
Að sögn HaiðarHilmars-
sonar hjá IT-ferðum erfeð-
in hugsuð sem alhliða kyn-
nig á öllum hliðurn knatt-
spymunnar
Kynnisferð í
„vöggu kn att spyrn uiiii ar “
- Hvers konarferð þetta?
„Þetta verkefni er unnið með
stuðningi fræðslunefndar KSÍ og
er ætlað fyrir þá sem koma að
þjálfun liða, auk þeirra sem
koma að stjórnun knattspyrnu-
deilda og félaga. Kynnisferðin er
skipulögð með allt ferli knatt-
spyrnunnar í huga og hentar því
ekld aðeins þjálfurum, því fram-
kvæmdastjórar, stjórnarmenn,
sjúkraþjálfarar, nuddarar, dóm-
arar og aðrir forystumenn {
knattspyrnuhreyfingunni fá líka
sinn skammt í kynnisferðinni.
Auðvitað varð Bretland fyrir val-
inu sem „vagga knattspyrnunn-
ar“ í heiminum og þar munum
við heimsækja fjögur til fimm af
þekktustu félögum Bret-
landseyja. Haldnir verða fyrir-
lestrar og fram fer „praktísk“
kennsla þekktra sérfræðinga á
hinum ýmsu sviðum knattspyrn-
unnar. I heimsóknum til félag-
anna munum við hitta fyrir
starfsmenn þeirra og stjórnendur
og þar gefst mönnum kostur á að
kynna sér alla starfsemi þeirra.
Hver og einn getur kynnt sér það
sem að honum snýr og til dæmis
meðan stjórnarmenn og fram-
kvæmdastjórar ræða saman, geta
sjúkraþjálfarar og nuddarar rætt
málin við sína „kollega" hjá lið-
unum.
Þessi ferð er sett upp í sam-
vinnu við ferðaskrifstofu á Bret-
Iandi sem heitir „Libro Internat-
ional“. Skotinn Kenny Moys,
bróðir David Moys Jr, fram-
kvæmdastjóra hjá Preston er í
forsvari fyrir skrifstofunni, en
þeir bræður eru synir Islandsvin-
arins David Moys, sem um árabil
skipulagði æfinga- og keppnis-
ferðir íslenskra knattspyrnu-
manna til Skotlands. Fyrir þessi
störf sfn er hann vel þekktur hér
á Iandi og hefur fyrir þau hlotið
heiðursveitingu Forseta Islands.
Auk þess að vera í forsvari fyrir
ferðaskrifstofuna er Kenny Moys
einnig þekktur umboðsmaður
knattspyrnumanna, með réttindi
frá FIFA og hefur hann m.a. ver-
ið umboðsmaður fyrir nokkra ís-
lenska leikmenn, eins og Sigurð
Jónsson, Ólaf Gottskálsson, Arn-
ar Gunnlaugsson o.fl.“
- Hvaðafélög verða heimsótt?
„Þau mál eru í höndum ensku
ferðaskrifstofunnar, sem er að
vinna í málunum. Við fáum það
staðfest fljótlega hvaða félög það
verða, en ég veit að þeir hafa
fengið vilyrði frá Manchester
United, Liverpool, Preston,
Bolton og Glasgow Rangers.
Einnig er ætlunin að hitta ein-
hverja af framkvæmdastjórum
þessara þekktu félaga. „
- Hvemig er ferðatilliögunin?
„Hópurinn mun fljúga til Glas-
gow og dvelja þar fyrsta daginn.
Síðan er haldið til Wigan, þar
sem hópurinn mun hafa aðsetur
á fjögurra stjörnu hóteli. Stað-
setningin er mjög góð, þar sem
aðeins um hálfrar klukkustundar
akstur til allra félaganna sem við
heimsækjum. Hópurinn mun
ferðast með glæsilegum hóp-
vagni, með öllum tilheyrandi
þægindum."
- Eru einhverjir leikir á dag-
skránni?
,/Etlunin er að sjá tvo leiki,
sem væntanlega verða Manchest-
er United gegn Southampton eða
Newcastle gegn Arsenal og síðan
er ætlunin að sjá Glasgow
Rangers spila áður en haldið
verður heim á sunnudegi."
- Sérðufyrir þér að þessi kynn-
isferð gæti nýst knattsyryrnu-
hreyftngunni frekar hér heima?
„Auðvitað getur hún gert það
og mun eflaust gera það. Einnig
sé ég fyrir mér að fjölmiðlar gætu
nýtt sér þetta og þá tilvalið fyrir
sjónvarpsstöðvarnar til upptöku
og sýninga. Þetta er mjög gott
efni, þar sem farið verður á æf-
ingar félaganna, þar sem við hitt-
um bæði leikmenn og fram-
kvæmdastjóra liðanna. Þetta er
því tilvalið tækifæri, sem eflaust
gefst sjaldan.
Einnig er hugsanlegt að ein-
hver eða einhveijir fari með í
ferðina frá KSI, sem ætti að vera
gott mál fyrir fræðslunefndina."
- Hafa svona ferðir verðir
famar áður?
„Við höfum áður tekið þátt í að
skipuleggja ferðir fyrir þjálfara
og leikmenn, en þetta er í fyrsta
skipti sem svona almenn kynnis-
ferð er skipulögð fyrir forystu-
menn í knattspyrnuhreyfing-
unni.“
- Hverjir eru þínir menn í
enska boltanum og hverjir
vinna deildina?
„Mínir menn eru Liverpool, þó
ég sé ekkert eldheitur. Eg á ekki
von á að þeir klári deildina og
held að það verði frekar United
eða Chelsea."