Dagur - 27.01.1999, Page 1
I
Bræðumir Eiður og
Amgrímur Jónssynir í
Árteigi íKöldukinn
em meistarar í smíði
túrbína og heimaraf-
stöðva. Eiðurvill sjá
slíkar stöðvarfá aukið
hlutverk í raforkufram-
leiðslu landsmanna,
enda séframleiðsla
þeirra umhverfisvæn.
„Víða um land eru vannýttir
möguleikar í rafmagnsfram-
Ieiðslu heima á bæjum. Þar sem
vatnsmagn og fallhæð eru til
staðar er tilvalið að setja upp
heimarafstöðvar. Ekki síst á þetta
við á Vestljörðum og Austurlandi.
Nýlega hefur opnast sá mögu-
leiki að menn geti farið að selja
rafmagn frá heimarafstöðvum
samveitu. Nái þetta sér á strik tel
ég að það gæti orðið góð aukabú-
grein margra bænda,“ segir Eiður
Jónsson, túrbínusmiður í Árteigi
í Köldukinn í Suður-Þingeyjar-
sýslu.
Endursmiðaðí Landbrotið
Bræðurnir í Arteigi, Eiður og
Arngrímur Jónssynir, eru þjóð-
hagar. Þeir hafa mörg undanfarin
ár fengist við smíði túrbína og
heimarafstöðva sem þeir setja
upp víða um land. „Þessa dagana
erum við að endursmíða rafstöð
fyrir Erlend Björnsson í Seglbúð-
um f Landbroti. Einmitt í Vest-
ur-Skaftafellsýslu, eru víða
heimarafstöðvar sem eru arfleifð
frá frumkvöðulsstarfi Bjarna
Runólfssonar í Hólmi og Eirfks
Björnssonar í Svínadal, sem voru
uppá sitt besta í þessu á 3. og 4.
áratug aldarinnar - og Eiríkur
reyndar lengur. Þá erum við einnig
tilbúnir með aðra rafstöð sem á
að setja upp í Kálfafelli austur á
Síðu,“ segir Eiður og bætir við:
„Síðan erum við með á smíða-
borðinu hjá okkur stöð sem á að
setja upp í Sandfellshaga í Öxar-
firði sem verður 70 Kw. Þar var
heimarafstöð í
eina tíð sem
nú er reyndar
löngu úr sér
gengin,
bændur
en
hafa
haft
í að
upp
irseöurnir Eiöur og ^r^engi ^er^ur
marafstöðva og taka þ P -ð ð)- mdamargar slíkar
“.feSíSS-V--
eystra
lengi
áhuga
koma
nýrri stöð og
láta af því
verða nú.“
80 stöðvar
u iii allt
land
Faðir þeirra
bræðra,
Jón Sigur-
geirsson,
fékkst í
„Erum með á smíðaborðinu hjá okkur stöð sem á að setja upp í Sandfells-
haga í Öxarfirði sem verður 70 Kw. Þar var heimarafstöð I eina tíð sem nú er
verið að endurnýja, “ segir Eiður Jónsson, sem hér stendur við túrbínuhjól
þeirrar rafstöðvar. myndir: sbs.
áratugi við smíði heimarafstöðva
sem settar voru upp víða um
land. „Eg fór fljótlega í iðnskóla
á Húsavík því það lá fyrir að ég
myndi taka við hans starfi. Fór í
rafvirkjun, en Arngrímur í járn-
smíði. Að við séum menntaðir á
sitthvoru sviði kemur ágætlega út
í því sem við sinnum," segir Eið-
ur Jónsson.
Hann segir að á ferli sínum
hafi faðir sinn sett upp nær 80
rafstöðvar víða um land og tals-
verð vinna sé hjá þeim bræðrum
í að sinna viðhaldi á þeim. „Það
er auðvitað mest að gera í ný-
smíði og ég fæ fyrirspurnir víða
frá. Þannig sendi ég frá mér á
dögunum tilboð í smíði rafstöðv-
ar sem setja á upp við sumarbúð-
ir í Nuuk á Grænlandi. Eg býst
við að fá svör við þessu tilboði á
næstu dögum, en ég hef á síð-
ustu árum smíðað nokkrar stöðv-
ar sem hafa verið settar upp á
Suður-Grænlandi; á því svæði
sem hefur verið nefnt hinar
fornu Islendingabyggðir."
Umhverfisvæn framleiðsla
sem litlu raskar
Kostnaður við að koma upp
heimarafstöð er gjarnan á bilinu
2 til 5 milljónir króna, segir Eið-
ur. Og að mörgu er að hyggja
áður en í framkvæmdir er farið;
fallhæð og vatnsmagn verður að
vera nægilegt og allra best er að
vatnið sé lindarvatn þannig að
ekki komi til þurrðar í frosthörk-
um á veturna. „Það á þó að vera
hægt að verjast truflunum vegna
íss að verulegu leyti til dæmis
með góðum aðrennslisbúnaði.
Þá á þetta að geta verið hér eins-
og í Arteigi þar sem við erum
með rafstöð sem getur framleitt
vel á annað hundrað kílówött og
vegna íss hikstar hún ekki nema í
fáéina klukkutíma á vetri, ef þá
eitthvað er,“ segir Eiður.
„í mínum huga er mikilvægt að
skapa mönnum sem bestar að-
stæður til þess að selja rafmagn
inn á samveiturnar. Það verður
best tryggt með því að sem víðast
komi þriggja fasa Iínur sem hægt
verður að keyra heimaframleiðsl-
una beint inná. Þetta þarf ekki
að vera neitt vandamál, þegar við
erum búnir að fá 3ja fasa línur
um allar sveitir og víða eru þær
þegar komnar,“ segir Eiður og
hann bæir við: „Sala á heimaraf-
magni er það sem við sjáum víða
erlendis og þykir koma vel út.
Ekki síst vegna þess að þetta er
umhverfisvæn orkuframleiðsla
sem litlu raskar.“ SBS.
Þurrkari SG 510
* Barki fylgir
‘Tekur 4,5 kg
* Snýr tromlu í báöar áttir
* Ryðfrí tromla
Hnappur fyrir kaldan blástur
*Tvö þurrkkerfi
* Barki fylgir
* Mál: hxbxd 85x60x54 cm
Kr.29.900.-stgr.
Nrrkarni§|600
Meö þéttibúnaði (þarf ekki barka)
*Tekur5,0 kg
* Snýr tromlu í báöar áttir
* Ryöfrí tromla
* Valhnappur fyrir venjulegt
eða viðkvæmt tau
*Tvö þurrkkerfi
* Aövörunarljós fyrir vatnslosun
* Aðvörunarljós fyrir lósigti
'Rúmmál tromlu 106 Itr.
'Stórt hurðarop 40 cm
* Hægt að breyta hurðaropnun
* Mál: hxbxd: 85x60x60 cm
Kr. 56.900.“ stgr.
Þvottavél WG 1035
•Tekur5,0 kg
• Þvottakerfi 15
• Hitastillir stiglaus
Vinduhraði 1000 - 600 sn/mín.
•Sjálfyirk vatnsskömtun
•Öryggislæsing
• Belgur ryðfrír
•Tromla ryöfrí
• Mál: hxbxd 85x60x60 cm
Kr. 49.900.“ stgr.
Þvottavél WG 1235
•Tekur5,0 kg
•Þvottakerfi 15
* Hitastillir stiglaus
Vinduhraöi 1200 - 600 sn/mín.
•Sjálfvirk vatnsskömtun
•Öryggislæsing
•Belgur ryðfrír
•Tromla ryðfrí
•Mál: hxbxd 85x60x60 cm
Kr. 52.900.“ stgr.
•Þvottakorfi 15
* Hitastiflir stigiaus
* Vinduhraði 900 - 500 sn/mín.
* Sjálfvirk vatnsskömtun
* Öryggislæsing
‘Tromla ryðfrí
* Mál: hxbxd 85x60x60 cm
Kr. 39.900.- stgr.