Dagur - 28.01.1999, Síða 1
82. og 83. árgangur- 18. tölublað
Álit listfræðinga á
við skyggnilýsingu
Saksóknari vill að
Pétur Þór Giiimars-
son verði dæmdur í
18 mánaða óskilorðs-
bimdið fangelsi. Verj-
audi líkti vitnisburði
listfræðinga við
skyggnilýsiugarfuudi.
Himinn og haf voru á milli túlk-
ana Jóns Snorrasonar saksóknara
og Björgvins Þorsteinssonar verj-
anda Péturs Þórs Gunnarssonar
á niðurstöðum í málverkafölsun-
armálinu í héraðsdómi í gær. Jón
taldi að óyggjandi sannanir Iægju
fyrir um sekt Péturs, bæði er
varðar falsanir og bókhaldsbrot
og gagnrýndi hann harðlega fyrir
að hafa reynt með skipulögðum
hætti að eyðileggja rannsókn
málsins, afvegaleiða lögregluna
og færa fram röng og jafnvel föls-
uð gögn sér til varnar. Krafðist
Jón að ákærði fengi vegna fals-
ananna allt að eins og hálfs árs
fangelsi óskilorðsbundið, auk
refsingar fyrir bókhaldsbrotin.
Verjandinn hélt því hins vegar
fram að engar óyggjandi sannan-
ir lægju fyrir um sekt ákærða.
Hann gerði kröfu til þess að
dómurinn viðhefði strangt sönn-
unarmat.
Falsgögn
Jón lýsti því hvernig rannsóknir
og framburður
vitna sönnuðu að
Pétur hefði keypt
þrjú málverk sem
verk eftir Wils,
afmáð höfundar-
nafnið og selt
verkin með höf-
undarnafninu
Jón Stefánsson.
Niðurstöður
rannsókna væru
styrkar og fram-
burður vitna um
hið sama trúverð-
ugur. Framburður Péturs væri
breytilegur og ótrúverðugur.
Saksóknarinn fór sérstaklega
yfir vitnisburð Jónasar Freydals
Þorsteinssonar, Þórhalls Arnórs-
sonar og Patrice Aagren. Einkum
var hann harðorður í garð Jónas-
ar, sem væri náinn félagi Péturs
og hefði verulega hagsmuni af
því að hann verði sýknaður.
Framkoma Jónasar hefði verið
afar sérstök og bent til þess að
hann hefði eitthvað að fela.
Hann hefði lagt fram Ijósmyndir
sem sannað sé að séu fölsuð
gögn eða falsgögn til að afvega-
leiða dóminn.
Saksóknari
taldi framburð
Þórhalls mjög
ótrúverðugan
og benti á að
hann hefði
reynt að fela
nána samvinnu
sína við Pétur.
Þá hefði vitnis-
burður Patricie
um sölu á verki
til Péturs verið
afar ótrúverð-
ugur og leyni-
fundir Péturs með því vitni með
ólíkindum - framburður hennar
væri einfaldlega rangur. I lok
máls síns talaði Jón um forherð-
ingu Péturs gagnvart kaupend-
um verkanna og skeytingarleysi
hans gagnvart listamanninum
Jóni Stefánssyni.
Skáldlegar stílæfmgar
Verjandinn taldi fráleitt að nokk-
uð hefði verið sannað á Pétur.
Hann staðhæfði að Pétur hefði
keypt tvær myndir eftir Wils
rammanna vegna, en látið Jónas
fá myndirnar. Þriðju myndina
hefði hann keypt af Patricie
Aagren. Fullyrti hann að ef um
fölsun væri að ræða væri skýr-
inganna að leita hjá Jónasi.
Verjandinn gagnrýndi harðlega
niðurstöður ófullnægjandi rann-
sókna og framburð sérfræðinga
sækjanda. Rannsóknir á mál-
verkunum hefði þurft að fram-
kvæma erlendis og vera mun ná-
kvæmari en reyndin varð. Eina
myndina hefði Olafur I. Jónsson
forvörður reyndar eyðilagt sem
sönnunargagn. Ekkert væri
byggjandi á glærum Viktors
Smára Sæmundssonar forvarðar,
frekar en öðrum rannsóknum
hans. Hann hafnaði einnig alfar-
ið framburði listfræðinga Lista-
safns Islands, sem byggðust á
huglægu mati og væru þegar
best léti „skemmtilegar og skáld-
legar stilæfingar" - líkari skyggni-
lýsingarfundi en vitnisburði fyrir
dómi. — FÞG
Benedikt Gúðmundsson, starfs-
maður Byggðastofnunar, pakkar
gögnum í kassa í gær, en útibúið á
Akureyri hættir á morgun.
mynd: brink
Byggða-
stofnun
suður
Byggðastofnun á Akureyri hætt-
ir störfum á morgun, föstudag,
samkvæmt ákvörðun stjórnar
stofnunarinnar. I gær og síðustu
daga hafa menn verið að setja
skjöl og gögn í kassa, sem sumir
hverjir verða fluttir á hina nýju
þróunardeild stofnunarinnar á
Sauðárkróki, en aðrir fara suður
til Reykjavíkur. Það má því með
nokkrum sanni segja að sjálf
Byggðastofnun á Akureyri sé á
leiðinni suður.
Fjöldi manns hefur sýnt
málverkafölsunarmálinu áhuga,
jafnt innan réttarsalar sem utan.
Úttast „smurðar
profkjörsvélar66
„Hvernig lítur sú samfylking út
sem hefur Alþýðuflokkinn í efstu
sætunum alls staðar nema í
tveimur kjördæmum? Það er
ekki samfylking. Svo einfalt er
það,“ segir Svavar Gestsson, al-
þingismaður, í grein sem Dagur
birtir í dag. Þar lýsir Svavar mikl-
um áhyggjum af því að „smurðar
prófkjörsvélar" frambjóðenda Al-
þýðuflokksins í Reykjavík „megni
sín svo mikils að þær hirði 4
menn af átta; það má ekki ger-
ast. Þá fengi næststærsti flokk-
urinn aðeins 2 menn eins og
minnsti flokkurinn og allir sjá að
slíkt hefði miklar afleiðingar."
Hann bendir á að til þess að
vera öruggur um þrjú sæti þurfi
sá flokkur sem fær næstflest at-
kvæði í prófkjörinu að fá að
minnsta kosti rúmlega 75% af
því sem stærsti flokkurinn fær.
Sjd bls. 7
Mikinn snjó setti niður í Reykjavík í gær og lentu margir I vandræðum með bíla sína afþeim sökum. Unnur og
Fanney í Breiðholtinu létu engan bilbug á sér finna og sögðu aðstæðum stríð á hendur með skóflurnar að vopni.
Dreifist á nokkra staði
Valtýr Sigurbjarnarson, for-
stöðumaður stofnunarinnar hér
á Akureyri, var í gær staddur í
útibúinu á Sauðárkróki að koma
af sér ýmsum málum en þegar
Dagur ræddi við hann. Valtýr
sagði að starfsemi útibúsins á
Akureyri myndi dreifast á
nokkra staði, hluti færi yfir til
nýs Atvinnuþróunarfélags í
Eyjafirði, hluti flyttist á Sauðár-
krók og sá hluti sem tengdist
lánamálum og fjárhagslegri fyr-
irgreiðslu myndi flytjast til
Reykjavíkur.
Fjórir hætta
Fjórir starfsmenn munu nú fara
á biðlaun samkvæmt kjarasamn-
ingum, en einn mun flytjast til
Sauðárkróks. Hús Byggðastofn-
unar við Strandgötu hefur verið
auglýst til sölu og rennur til-
boðsfresturinn út í dag. Að sögn
Valtýs hafa mjög margar fyrir-
spurnir komið um húsið bæði
frá heimamönnum og öðrum.
WOfUDW/OE EXPRESX
EITT NÚMER AÐ MUNA
5351100
Afgreiddir samdægurs
Venjulegir og
demantsskomir
trúlofunarhringar
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI • SÍMI 462 3524