Dagur - 28.01.1999, Page 7
FIMMTUDA G UR 2 8 . JANÚAR i4 7í»
%r-
ÞJÓÐMÁL
Framtíðarsýn gegn
vinstra og hægra flialdi
HEIMIRMÁR
PÉTURSSON
frambjódandi í
prófkjöri sam-
fylkingarinnar í
Reykjavík skrifar
Eftir tvo daga verður stigið eitt af
fyrstu skrefunum í mótun nýrrar
hreyfingar róttækra jafnaðar-
manna á Islandi en nk. Iaugar-
dag fer fram prófkjör samfylk-
ingarinnar í Reykjavík. Það er
mjög mildlvægt að vel takist til
við mótun hreyfingarinnar og að
á lista hennar í vor veljist fólk
sem stendur fyrir Iýðræðislega
og umbótasinnaða framtíðarsýn.
Old mikilla átaka í hreyfingu
vinstrafólks er að ljúka. A þeim
tímamótum er mikilvægt að til
verði ný hreyfing sem hefur
skýra framtíðarsýn, beitir sér fyr-
ir öflugu mennta- og heilbrigðis-
kerfi fyrir alla og almannatrygg-
ingakerfi sem tryggir að öryrkjar,
fatlaðir og aldraðir geti tekið
fullan þátt í samfélaginu. Þess
vegna þarf hreyfing róttækra
jafriaðarmanna að vera lýðræðis-
leg og fijálslynd. Hún á að svara
kalli þeirrar kynslóðar sem nú er
á miðju sviðinu í atvinnu, menn-
ingar og listalífi og þeirra kyn-
slóða sem eru að vaxa upp.
Allt er gott að meðaltali
Við lifum á tímum mikils fjöl-
breytileika sem býður upp á
mikla möguleika. A móti þessum
straumi berjast hins vegar
íhaldsmenn til hægri og vinstri.
Sameiginlega ver þetta íhald úr-
elta atvinnuhagsmuni. Sameig-
inlega ver þetta íhald úr sér
gengnar hugmyndir og boðar að
allt illt komi að utan. Ef íslend-
ingar ætla sér hins vegar að
halda uppi sama velferðarstigi og
auka það í framtíðinni, verða
þeir að tileinka sér nýjan hugs-
mikli §öldi sem
dregur fram lífið
á 50-100 þús-
und krónum á mánuði hefur
staðið í stað. Það hefur jafnvel
verið þrengt að öryrkjum og
þeim sem Iifa á greiðslum frá al-
mannatryggingum. Nú er svo
komið að um 10% þjóðarinnar
kveinka sér undan kostnaði við
að ieita sér læknishjálpar, lyfja
og menntunar. Og á sama tíma
og ráðherrar hæla sér af því að
ísland sé fimmta ríkasta land í
heimi, hafa aldrei fleiri leitað
ásjónar hjálparstofnanna.
Sú ríkisstjórn sem nú situr
hundsar algerlega að rækta
mannauðinn, þá auðlind sem er
hverri þjóð mikilvægust. Ríkis-
stjórnin er svo upptekin við að
veija sérhagsmunina að hún sér
ekki þau tækifæri sem eru allt í
kring um okkur. Henni finnst í
lagi að til sé stór hópur af fátæku
fólki í landinu, hún sér ekkert at-
hugavert við að ungu fólki geng-
ur illa að koma sér áfram í at-
vinnu-, menningar- og listalífi
vegna skilningsleysis stjórnvalda.
Allt er í sómanum hjá ríkis-
stjórninni á meðan einkavinirnir
fá sitt og varðhundar sérhags-
munanna sleikja hendurnar á
ráðherrunum.
Engin svor bara gelt
Þegar efnhagsuppsveiflu vegna
hagstæðra skilyrða og uppbygg-
ingar gamaldags
stóriðju lýkur,
hefur ríkis-
stjórnin engin
svör. Hún hefur
enga framtíðar-
sýn. Þegar sjó-
menn fóru í
verkfall til að ná
fram réttlátum
kröfum sínum,
skundaði ríkis-
stjórnin á Al-
þingi með lög á
verkfallið. Það
var aðeins fyrir
samstöðu og ár-
vekni stjórnar-
andstöðunnar
að ekkert varð
úr þeirri ofbeld-
isaðgerð. Þegar
Hæstiréttur seg-
ir Iög um stjórn
fiskveiða bijóta í
bága við stjórn-
arskrána, vill formaður Fram-
sóknar helst breyta stjórnar-
skránni. Forsætisráðherra
skammar hins vegar Hæstarétt
og segir dómara ónákvæma og
meirihluta prófessora við Há-
skólann ólæsa. Það eru engin
takmörk fyrir valdahrokanum og
stjórnseminni. Ríkisstjórnin
geltir á réttlætið og framtíðina.
I því kosningabandalagi Al-
þýðubandalags, Alþýðuflokks og
Kvennalista sem heldur prófkjör
á laugardag, koma margir
straumar saman sem eru góður
efniviður í öfluga breiðfylkingu
róttækra jafnaðarmanna. Það er
mjög mikilvægt að í prófkjörinu
verði kallað til sem best úrval úr
þessum flokkum og samtökum,
þannig að jafnvægi ríki og fjöl-
breytileikinn verði sem mestur. I
hólfi Alþýðubandalagsins eru
mestir möguleikar á endurnýjun.
Þar er ungur þingmaður í hópi
fólks með fjölbreytta reynslu úr
listalífi, kennslu, heilsugæslu,
stúdentapólitík, fjölmiðlum,
borgarmálum og fleira. Vinstri-
menn hafa því fulla ástæðu til að
taka þátt í prófkjörinu og hafa
þannig áhrif á þá nýju fjölda-
hreyfingu sem nú er í mótun.
Það hefur verið gefandi að
taka þátt í því á undanförnum
tveimur árum að skapa samfylk-
ingu félagshyggjufólks. Eg hef
hins vegar átt drauminn um
þessa hreyfingu miklu Iengur.
Árið 1986 var ég kosinn í Stúd-
entaráð fyrir Vinstrimenn og tók
þátt í því að búa til nýja hreyf-
ingu félagshyggjufólks í Háskól-
anum, Röskvu. Hún bauð síðan
fyrst fram árið 1988. Sú kynslóð
sem mótaði Röskvu er nú komin
hist og her á vettvang þjóðlífsins.
Hún er vön því að félagshyggju-
fólk vinni saman og býður íhaldi
til hægri og vinstri byrginn. Það
eru því bjartir tímar framundan
hjá samfylkingunni.
anahátt. Heimurinn allur stend-
ur Islendingum
opinn ef þeir
bara vilja. Lykill-
inn að framtíð-
inni felst því í
víðsýni, al-
mennri og góðri
menntun þjóðar-
innar og félags-
legu réttlæti.
Mikið hefur
verið rætt um
góðæri undan-
farin misseri. I
þeirri umræðu
hefur eingöngu
verið rýnt í með-
altöl. Það hefur
ekki fengið
mikla athygli að
þeir ríku hafa
orðið enn þá rík-
ari á meðan sá
Ríkisstjórnin geltir á réttlætið og framtíðina, “ segir Heimir Már m.a. í
grein sinni.
Það verður að tryggja Al-
þýðubandalaginu þrj á menn
W; GESTSSON
■fc alþingismaður og
1 > skrifar
í prófkjörinu á laugar-
dag þarf Alþýðubauda-
lagið að tryggja sér
þrjá menu.
Alþýðuflokkurinn knúði fram
prófkjör í flestöllum kjördæmum
Iandsins í samfylkingarkosning-
unum í vor. Illu heilli. Það var
slæmt því það var ávísun á það að
Alþýðubandalagið kæmi illa út úr
skipan Iistanna af tveimur ástæð-
um: I fyrsta lagi þeirri ástæðu að
Alþýðubandalagið er nú laskað
eftir átök síðasta árs. En í öðru
lagi vegna þess að alþýðubanda-
lagsmenn kunna ekkert til próf-
kjöra; þeir hafa enga reynslu í
þeim fræðum en það hafa alþýðu-
flokksmenn. Rannveig Guð-
mundsdóttir er nú til dæmis að
ganga í gegnum sitt sjötta próf-
kjör en Sigríður Jóhannesdóttir í
gegnum sitt fyrsta prófkjör. Ossur
Skarphéðinsson hefur undirbúið
prófkjör mánuðum saman; Ami
Þór Sigurðsson hóf sinn undir-
búning 3. janúar. Og svo mætti
lengi telja. Það var því fráleitt og
ósanngjarnt að knýja fram próf-
kjör með þeim hætti sem Alþýðu-
flokkurinn og nánustu banda-
menn hans í hinum flokkunum
gerðu.
Afleiðingarnar fyrir samfylking-
una gætu orðið jafnvægisleysi,
gætu orðið þær að samfylkingin
verði ekki samfylking.
Því aðeins stendur samfylkingin
undir nafni að Alþýðubandalagið
komi sterkt til Ieiks. Það er unnt
að tryggja í prófkjörinu á Iaugar-
daginn kemur.
Eg hvet alla vinstri menn hvar í
flokki sem þeir hafa staðið og
hvar sem þeir kunna að skipa sér
í kosningunum í vor að taka þátt í
prófkjörinu til þess að tryggja sig-
ur Alþýðubandalagsins.
Fær einn flnkkiirinn fjóra -
en hinir bara tvo hvor!
Prófkjörið er einfalt; þar er aðeins
kosið um flokkana þrjá og/eða þá
einstaklinga sem hver flokkur
býður fram. Kjósandinn merkir
með tölunum 1, 2, 3 og 4 við íjóra
frambjóðendur í þeim flokki sem
kjósandinn kýs.
Sá flokkur sem fær flest at-
kvæði fær fyrsta sæti listans og sá
sem fær næstflest atkvæði kemur
næst til álita en enginn flokkur
fær færri en 2 sæti af 8, íjórða og
Með hliðsjón af öllu
þessu skora ég á alla
viustri menu að drífa
sig á kjörstað til þess
að tryggja sterka út-
komu og sigur Al-
þýðubandalagsins.
áttunda í minnsta lagi. Segjum að
hæsti flokkur fái 100 atkvæði,
næsthæsti 90 atkvæði og þar
næsti flokkur 40 atkvæði. Þá rað-
ast sætin þannig:
1. sæti samfylkingarinnar fær
hæsti flokkurinn með 100 at-
kvæðum og er það 1. sæti þessa
flokks.
2. sæti fær næsthæsti flokkur
með 90 atkvæðum og er það 1.
sæti þess flokks.
3. sæti fær hæsti flokkur með
100:2 - það er með 50 atkvæðum
- en þetta sæti er 2. sæti þess
flokks sem flest atkvæðin fær.
4. sæti fær flokkurinn sem þá
er ekki kominn enn á blað með 40
atkvæði og er þetta þá fyrsta sæti
þess flokks sem hefur fæst at-
kvæði.
5. sæti fær svo næsthæsti flokk-
urinn á ný með 100:2 eða 50 at-
kvæðum og er þetta annar full-
trúi flokksins.
6. sæti fær hæsti flokkurinn
með 100:3 eða 33 1/3 atkvæðum
og er þetta þriðja sæti hæsta
flokksins.
7. sætið verður svo þriðja sæti
næsthæsta flokksins eða 90:3 eða
30 atkvæði.
8. sæti fær að sá flokkur sem
nú hefur aðeins fengið einn
mann, eða 40:2 með 20 atkvæð-
um.
9. sætið fær hæsti flokkurinn
og
10. sætið fær næsthæsti flokk-
urinn samkvæmt sérstakri reglu.
Þetta er í rauninni nauðaein-
falt. Til þess að vera öruggur um
þijú sæti þarf hins vegar næst-
hæsti flokkurinn að fá að minnsta
kosti rúmlega 75% af því sem
stærsti flokkurinn fær. Það er
ástæða til að gefa gaum að því að
hætt er við að fjórar smurðar
prófkjörsvélar megni sín svo mik-
ils að þær hirði 4 menn af átta;
það má ekki gerast. Þá fengi
næststærsti flokkurinn aðeins 2
menn eins og minnsti flokkurinn
og allir sjá að slíkt hefði miklar af-
leiðingar.
Með hliðsjón af öllu þessu
skora ég á alla vinstri menn að
drífa sig á kjörstað til þess að tryg-
gja sterka útkomu og sigur AI-
þýðubandalagsins. Eða hvernig
lítur sú samfylking út sem hefur
Alþýðuflokkinn í efstu sætunum
alls staðar nema í tveimur kjör-
dæmumr’ Það er ekki samfylking.
Svo einfalt er það.