Dagur - 28.01.1999, Qupperneq 13

Dagur - 28.01.1999, Qupperneq 13
i-7 V N r. P.4GP. 2 8 „ 14, Y (U g J ■? 9.9 - D^«r. ÍÞRÓTTIR Ferguson þökkuð góð störf með fjögurra daga hátíð í Manchester. Golfmót, kappreiðar og rokktónleikar á dag- skrá, auk þess sem heimslið Erics Cant- ona leikur gegn United. Það verður ekki lítið Iagt undir þegar Manchester United þakk- ar sigursælasta knattspyrnu- stjóra áratugarins, Alex Fergu- son, vel unnin störf. Meðan flest lið láta sér nægja að setja upp einn góðgerðarleik halda þeir United-menn fjögurra daga há- tíð sínum manni til heiðurs. Fögnuðurinn hefst 5. júlf með golfmóti. Þar geta áhugamenn, sem efni hafa á, att kappi við at- vinnumennina Tiger Woods og Mark O’Meara. Mótinu verður að sjálfsögðu sjónvarpað. 11. júlí verður slegið upp kappreiðum og kampavínsveislu í Hyde Park, á reiðveginum sem Alex Ferguson ríður út á hestum sínum þegar hann skreppur til höfuðstaðarins. Sjónvarpið verð- ur á svæðinu. 6. ágúst rennur síðan stóra stundin, sem flestir bíða eftir, upp. Manchester United mætir heimsliði Erics Cantona á Old Trafford. Cantona skrýðist bún- ingi Mancester United. Hátíðarhöldunum Iýkur síðan 20. ágúst með rokktónleikum í Haydock Park. Vinur Fergusons, Mick Hucknall, og Simply Red leiða tónleikana sem verður að sjálfsögðu sjónvarpað. Fimm hundruð fyrirtæki, stór og smá, hafa þegið boð forráðamanna Manchester United um að fjár- magna hátíðarhöldin. Reiknað er með að fögnuðurinn gefi af sér nálægt Ijögur hundruð milljónir í aðra hönd. Alex Ferguson hefur átt góða daga með Manchester United og hefur byggt upp eitt sterkasta knattspyrnulið Engiands, frá því hann kom til liðsins fyrir um það bil áratug. Nú ætlar félagið að þakka honum góð störf með eftirminnilegum hætti. Orlando Magic - New York á skjámim iim helgina Keppnin í bandarísku NBA- deildinni hefst um helgina og fara fram hvorki meira né minna en 27 leikir fyrstu þrjá daga keppninnar, frá föstudegi til sunnudags. Mjög mikið álag verður á lið- unum þann stutta tíma sem hún stendur yfir, en riðlakeppninni Iýkur í byrjun maí. Ef við tökum sem dæmi lið Houston Rockets, þá leika þeir alls 14 leiki í febrú- ar, 17 í mars, 16 í apríl og síð- ustu 3 leikina í byrjun maí. Það gera samtals 50 leiki í riðla- keppninni á þessum þremur mánuðum. Það verður forvitnilegt að fylgj- ast með því hvaða áhrif þetta stranga leikjaprógram hefur á liðin og leikmenn þess, en mikið má leggja á sig fyrir dollarana. Eins og við sögðum frá áður, mun sjónvarpsstöðin Sýn sýna bein frá leikjum alla föstudaga frá 5. febrúar til 24. apríl, auk þess sem íjórir valdir leikir verða sýndir einhverja sunnudaga á tímabilinu. Fyrsti leikurinn verð- ur sýndur nk. föstudag og er það leikur Orlando gegn New York og hefst útsendingin um klukkan 01:00 eftir miðnætti. Þakkargjörð í Manchester SKOBUN SVERRISSON Enn uin stelpur Um sl. helgi lék íslenska kvennalandsliðið í handknatt- leik tvo leiki við stöllur sínar frá Rússlandi. Urslitin voru mikil vonbrigði. Kannski ekki að sigr- ar skyldu ekki vinnast, heldur hitt að of mikill munur var á lið- unum. Flestir töldu að kvenna- boltinn væri í meiri framför. Hverjar eru ástæður fyrir stór- um ósigri? Er nógu mikill metn- aður hjá íslenskum handbolta- stelpum? Þessara spurninga spyrja sig margir núna. Yfirritað- ur hefur ekki hingað til hætt sér mikið út í þá umræðu, en ætlar að gera það nú. Það er engum blöðum um það að fletta að alltof fáar stelpur eru tilbúnar að eyða góðum tíma í æfingar. Þá helst æfingar í að styrkja sig líkamlega. Líkamleg- an styrk vantar þegar íslenska kvennalandsliðið í handknatt- Ieik mætir öðrum Iandsliðum. Þá er ég ekki bara að bera okkar stelpur saman við þær rúss- nesku. Þær eru íturvaxnar, held- ur flest landslið sem hafa heim- sótt Island undanfarin ár. Þetta er kannski viðkvæmt mál og yfirritaður þykir djarfur að tala um Iíkamlegan styrk handboltakvenna. Stelpur, þið verðið bara að leggja meira á ykkur ef þið viljið vera í fremstu röð. GUNNAR Körfubolti í kvöld DHL-deildin KI. 20.00 ÍA-Haukar Kl. 20.00 Skallagrímur-Tinda- stóll KI. 20.00 UMFG-KR Kl. 20.00 UMFN-Snæfell KI. 20.00 Valur-Keflavík Föstud. Kl. 20.00 KFÍ-Þór Ak. ÍÞR ÓTTA VIÐTALIÐ Siguiúur Ingimundarsoti köifukiiattleiksþjálfari. Nú erljóstað Suðtir- tiesjaliðin Keflavík og Njarðvík leika til úrslita í bikarkeppninni í körjuknattleik. Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflvíkinga, segirað þetta sé leikursem margirhafi lengi beðiðspenntir eftir. Gæti orðið stórskrýtinn leikur - Hvemig líst þér á mótherjana í hikarúrslitunum? „Hreinn úrslitaleikur í bikarn- um milli Keflvíkinga og Njarðvík- inga er það sem margir hafa beð- ið eftir. Það eru nú fimm ár síðan liðin spiluðu sfðast til úrslita og margir orðnir nokkuð langeygir eftir þessum leik. Við unnum þá í úrslitunum 1994, en þeir okkur árið 1991, þannig að nú er kom- ið að þriðja úrslitaleiknum milli Iiðanna. Leikir Iiðanna eru alltaf skemmtilegir og spennandi og alltaf öðruvísi stemmning á þeim heldur en í öðrum Ieikjum. Ná- grannarígurinn er líka alltaf fyrir hendi og eins og þetta hefur spil- ast í vetur, þá er ljóst að þetta eru tvö sterkustu liðin í DHL-deild- inni, ásamt KR og Ieikurinn gæti þess vegna orðið mjög skemmti- legur og spennandi.” - Áttu von á erftðum leik? „Njarðvík er reyndar eina liðið sem hefur unnið okkur í vetur, en þeir unnu okkur 96-73 í fyrsta leiknum í deildinni sem fram fór 1. október, í „ljónagryfjunni" í Njarðvík. Við unnum þá svo í seinni leiknum heima, 89-80, í fyrsta leiknum eftir áramótin. Þar voru þeir komnir tuttugu stigum yfir í hálfleik þannig að sveiflurnar hafa verið miklar. Getulega eru liðin mjög svipuð og dagsformið mun ráða miklu. Þess vegna er ómögulegt að spá í spilin fyrirfram, en eitt er víst að Ieikurinn getur orðið stórskrýtinn og búast má við öllu.” - Hvaða leikur var erfiðastur á leiðinni t úrslitaleikinn og hvað finnst þér um Njarðvíkurliðið? „Leiðin í bikarúrslitin var til- tölulega létt, en erfiðasti leikur- inn var gegn Tindastóli í undan- úrslitunum. Við unnum fyrstu þrjá leikina gegn KFI, IS og Snæ- felli með töluverðum mun og vorum að skora vel yfir 100 stig í öllum leikjunum. Hvað varðar Njarðvíkurliðið þá finnst mér það betra í ár en í fyrra. Þeir eru komnir með tvo nýja stóra landsliðsmenn og eru það Iið sem hefur á að skipa flest- um landsliðsmönnum. Þeir eru einnig með firnasterkan amerísk- an leikmann og líklega að meðal- tali með eitt hæsta liðið. Þeir eiga líka góðar skyttur, þannig að það er ljóst að þeir eru með geysilega sterkt lið. Við erum samt ósmeykir og ætlum okkur að vinna Ieikinn." - Hvað viltu segja um stöðuna t DHL-deildinni? „Staðan £ deildinni er nokkuð svipuð því sem ég átti von á í byrjun. Þar hefur fátt komið mér á óvart, þó helst sé það gott gengi KR-inga. Það er engin spurning að þeir eru með sterkt lið, en stöðugleikinn hefur komið mér nokkuð á óvart. Annað sem kannski mætti nefna, eru uppá- komurnar hjá Grindvíkingum sem hafa veikt þeirra lið mikið. Öll sú vitleysa var með ólíkind- um, þar sem þeir hafa gott bak- land og gerir Iiðinu Iítið gagn. Ég á von á að línurnar séu orðnar nokkuð skýrar um stöð- una. Toppsætið er auðvitað frá- tekið fyrir okkur og síðan koma KR og Njarðvík nokkuð örugg í öðru og þriðja sætinu. Baráttan um Ijórða til áttunda sætið á ör- ugglega eftir að harðna og verða spennandi, en þar munu sjö lið keppa um þessi fimm lausu sæti í úrslitakeppninni. Þar skiptir töluverðu máli hvernig liðin rað- ast í sæti, þannig að þar á barátt- an eftir að verða hörð. Liðin á þessu róli eru mjög jöfn og erfitt að meta stöðuna, en lið eins og Tindastóll, KFI, IA og Haukar eiga eflaust eftir að berj- ast um þessi sæti.“ - Hvað finnst þér um þessi st- felldu skipti á erlendu leik- mönnunum? „Við Keflvíkingar höfum ekki þurft að hafa af þessu áhyggjur í vetur, en effaust er eitthvað um það að liðin vandi ekki valið og taki jafnvel leikmenn án þess að vita nokkuð um þá. Mér finnst þó umræðan um þessi mál kom- in út í hött, því ef þú ræður mann í vinnu sem ekki stendur sig, þá er ekki um annað að ræða en losa sig við hann. Þetta er gert í ameríska boltanum og mér finnst ekkert að því, ef Iiðin treysta sér í það. Annars hefur þetta kannski verið óvenju mikið hér á landi í vetur, en oft getur þó komið upp ófyrirséð ástand, eins og til dæmis hjá Haukunum núna sfðast og mannabreytingar þá vel réttlætanlegar. Þessi um- ræða vill oft verða alltof nei- kvæð.“

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.