Dagur - 02.02.1999, Side 1
YfLrfuU íbúð á Akur-
eyri af rotnandi og
illa lyktandi sorpi.
Fyllti 70 stóra sorp-
poka. Nánast fokheld
á eftir. Félagsmálayf-
irvöld gagnrýnd. Kerf-
ið þegir.
Félagsmálayfirvöld á Akureyri
höfðu ekki afskipti af gigtveikum
öryrkja, konu um fertugt, sem
bjó í einni af íbúðum Oryrkja-
bandalagsins í fjölbýlishúsi í
bænum. Þegar ættingi hennar
kom til að taka til íbúðinni í sl.
viku eftir að íbúinn hafði farið til
lækninga á Reykjalundi blasti við
ófögur sjón og óþefurinn var
óbærilegur. Ibúðin var yfirfull af
rotnandi og illa Iyktandi sorpi,
teppin orðin að leðju, skápar ið-
uðu af Iirfum og öðrum sníkju-
dýrum, eldhúsinnréttingin nær
horfin undir sorp og af svölunum
Iak sorpleðja niður á næstu sval-
ir. Þá var íbúðin svo illa farin að
hún er nánast aðeins fokheld.
Talið er að konan hafi safnað
þessu rusli á nokkrum árum því
þarna fundust matarleifar og
umbúðir utan af kjöti frá því í
júní árið 1996. Ruslið var í haug-
um í allri íbúðinni nema í svefn-
herbergi.
Fyllti 70 poka
Ibúar hússins eru felmtri slegnir.
Þeir spyrja sig hvernig svona
hlutur gat átt sér stað að einn
íbúi hússins hafi nánast getað
grafið sig lifandi í eigin sorpi.
Þeir spyrja líka hvers vegna fé-
lagsmálayfirvöld hafi ekkert gert
í málinu, þrátt fyrir að hússtjórn-
in hafi oftar en einu sinni kvart-
að við þau og Oryrkjabandalagið
vegna óþefs úr íbúðinni. Til
marks um sorpmagnið þá fyllti
það 70 stóra sorppoka. Þá var
ástandið svo slæmt í þessari
tveggja herbergja íbúð að starfs-
menn hreingerningafyrirtækis
afþökkuðu vinnu við þrif og
hreinsun hennar. Það kom því í
hlut ættingja, vina og íbúa húss-
ins að fjarlægja óhroðann. Sótt-
hreinsa þarf alla íbúðina og lagn-
ir, auk þess sem samband hefur
verið haft við heilbrigðiseftirlit
og meindýraeyði.
Friðhelgi heimilisins
Formaður húsfélagsins í fjölbýl-
ishúsinu segir að kvartanir vegna
óþefs í búðinni hefðu byijað að
berast sl. haust. Hún segir að
þótt fulltrúar frá félagsmálayfir-
völdum hefðu komið eftir að
þeim kvörtunum var komið á
framfæri við þá, hefðu þeir ekki
komist inn í íbúðina í óþökk
leigjandans. „Friðhelgi heimilis-
ins“ eins og hún orðar það hefði
einnig komið í veg fyrir að stjórn
fjölbýlishússins hefði getað
kannað ástand íbúðarinnar gegn
vilja leigjandans. Hún telur hins
vegar nokkuð Ijóst að kerfið hafi
brugðist í þessu máli og þá sér-
staklega gagnvart Ieigjandanum.
I gær voru verkamenn frá hús-
næðisdeild Oryrkjabandalagsins
að hreinsa út úr íbúðinni inn-
réttingar og gólfefni, og voru þeir
í sérstökum búningum og með
andlitsgrímur.
Kerfið þegir
Valgerður Magnúsdóttir, félags-
málastjóri Akureyrar, sagðist
kannast við málið. Hún gæti
hins vegar ekki tjáð sig um það
að öðru Ieyti en því að það væri
til meðferðar hjá félagsþjónust-
unni. Hún sagði þó að félags-
málayfirvöld hefðu ákveðið sam-
starf við Öryrkjabandalagið
vegna leigu á íbúðum þeirra í
bænum.
Valdimar Brynjólfsson, for-
stöðumaður Heilbrigðiseftirlits
Eyjafjarðar, sagðist ekki heldur
geta tjáð sig um þetta mál. Hann
sagði þó að eftirlitinu hefðu ekki
borist neinar kvartanir vegna
íbúðarinnar frá íbúum fjölbýlis-
hússins.
Anna Ingvarsdóttir, formaður
hússjóðs Öryrkjabandalagsins,
sagðist í gær ekki vitað nógu
mikið um þetta tiltekna mál til
að tjá sig eitthvað um það. Hún
kannaðist hins vegar ekki við að
neinar kvartanir hefðu borist til
þeirra vegna umræddrar íbúðar.
- GRH
Guðný Guðbjörnsdóttir ætlar ekki
að þiggja 8. sætið á lista sam-
fylkingarinnar, en Kvennalistinn
gerir áfram tilkall til sætisins.
Kvenna-
listinn á
8. sætið
Menn hafa verið að velta því fyr-
ir sér, eftir að Guðný Guðbjörns-
dóttir ákvað að gefa ekki kost á
sér í 8. sæti samfylkingarinnar í
Reykjavík, sem hún hlaut í próf-
kjörinu, hvort þeir sem eru fyrir
aftan verði færðir fram.
Haukur Már Haraldsson, sem
var fulltrúi Alþýðubandalagsins í
þeirri nefnd sem kom prófkjör-
inu á, sagði í gær að tilfærsla
kæmi ekki til greina. Um það
hefði verið samið og frá því geng-
ið að Kvennalistinn ætti tvö af
átta efstu sætunum og eitt af
Ijórum efstu.
„Kvennalistinn á því þetta sæti
og samkvæmt prófkjörinu er það
Ilulda Ólafsdóttir sem sest í
það,“ sagði Haukur Már. — S.DÓR
Sjá nánar um prófkjör
samfylkingarinnar bls. 8-9 og
á forsíðu Lífsins i landinu.
Loðskinn
segir upp
Skinnaverksmiðjan Loðskinn á
Sauðárkróki hefur sagt upp 23
starfsmönnum sínum vegna
sölutregðu afurða. Aður hafði
verið gripið til þess ráðs að fá
fólk til að skipta með sér störfum
þannig að menn unnu annan
hvern dag og voru í hálfu starfi.
Engin sala héfur verið á afurðum
að undanförnu en vonir standa
til að aftur lifni yfir markaðnum
með vorinu. Þá má búast við
endurráðningum. — GG
woniow/DE express
EITT NÚMER AÐ MUNA
5351100
Afgreiddir samdægurs
ÍVenjulegir og
demantsskomir
trúlofunarhringar
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI • SÍMI 462 3524