Dagur - 02.02.1999, Page 6
6 - ÞRIÐJVDAGVR 02. FEBRÚAR 19 99
ÞJÓÐMÁL
Útgáfufélag: dagsprent
Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson
Ritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
Aðstoöarritstjóri: birgir guðmundsson
Framkvæmdastjóri: marteinn jónasson
Skrifstofur: strandgötu 31, akureyri,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 1A, REYKJAVÍK
Símar: 460 6ioo OG soo 7080
Netfang ritstjórnar: riistjori@tlagur.is
Áskriftargjald m. vsk.: í.soo kr. á manuði
Lausasöiuverð: iso kr. og 200 kr. helgarblað
Grænt númer: 800 7080
Símbréf augiýsingadeiidar: 460 6161
Simar auglýsingadeildar: (REYKJAVÍK)563-1615 Ámundi Ámundason
CAKUREYRI)460-6191 G. Ómar Pétursson
OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir
Netfang auglýsingadeildar: omar@dagur.is
Símbréf ritstjórnar: 460 6171(akureyrí) 55i 6270 (reykjavíK)
Skilaboð fólksins
í fyrsta lagi
Meginskilaboðin í prófkjöri Samiylkingarinnar um helgina eru
hávær krafa um að ráðist verði gegn misskiptingu góðærisins.
Þeir stjórnmálamenn sem hvað harðast hafa barist fyrir hags-
munum öryrkja, aldraðra og annarra þeirra sem halloka hafa
farið í baráttunni um stærri bita af þjóðarkökunni, fá glimr-
andi útkomu. Það á einkum við um Jóhönnu Sigurðardóttur,
sem hlaut fyrsta sæti væntanlegs framboðslista, og Astu Ragn-
heiði Jóhannesdóttur sem hafnaði í því fimmta, en fékk samt
þriðja mesta atkvæðaljölda. Þetta er einfaldlega krafa um auk-
inn jöfnuð og meira félagslegt réttlæti.
í örðu lagi
Jóhanna Sigurðardóttir er að sjálfsögðu sigurvegari prófkjörsins.
Hún tók verulega áhættu með því að hafna öruggu sæti og sýndi
enn einu sinni að í pólitíkinni á hún níu lif. Þá skilar prófkjörið
að minnsta kosti þremur nýjum mönnum í örugg þingsæti. Mörð-
ur Arnason og Arni Þór Sigurðsson fengu báðir afgerandi stuðn-
ing í sínum „hólfum“ og Guðrún Ogmundsdóttir velti úr sessi
eina þingmanni Kvennalistans sem studdi Samfylkinguna og mun
því setjast á þing í krafti samkomulags sem tryggir kvennalista-
konum áhrif án tillits til atkvæðafjölda í prófkjörinu.
í þriðja lagi
Ekki er ástæða til að draga úr ánægju Samfylkingarmanna
með gífurlega þátttöku í prófkjörinu; hún var jafnvel enn meiri
en bjartsýnustu spár gerðu ráð fyrir. En það er óvarlegt að reik-
na með því að allir sem kusu í prófkjörinu muni merkja við
lista Samfylkingarinnar á kjördag eftir rúma þrjá mánuði. Að
hluta til er það þó í höndum forystumanna hinnar nýju hreyf-
ingar. Samhent forysta sem einbeitir sér að því að berjast við
Sjálfstæðisflokk Davíðs Oddssonar og leggur áherslu á þau
meginmál sem snerta beint hagsmuni alþýðu manna - hún á
vissulega tækifæri núna. En það er einkar auðvelt að glutra því
niður með sundurlyndi eða ómarkvissum málflutningi.
Elias Snæland Jónsson
Pollýönniir
Þetta var gríðarlegur sigur hjá
Samfylkingunni í Reykajvík
um helgina enda tapaði eng-
inn. Ekki einu sinni Guðný
Guðbjörnsdóttir. Þetta er sig-
ur segir Guðný og neitar að
segja hvers vegna hún telur sig
hafa fallið niður í 8. sætið.
Hún ætlar sko ekki að vera
með nein leiðindi segir hún,
þannig að ekki fer á
milli mála að bak
við brosið bíða
semsé einhver leið-
indi. Sennilega er
hún ósátt við að
Reykjavíkurlista-
konurnar unnu með
Guðrúnu Ogmunds
en ekki henni. En
Guðný er Pollýanna
prófkjörsins og bros-
ir gegnum tárin.
Margrét
Frímannsdóttir.
Pollýaima II
En PoIIýönnur eru víðar. Sig-
hvatur Rjörgvinsson er líka
glaður. Þátttakan var svo mik-
ill sigur fyrir Samfylkinguna.
Hins vegar leggur formaður
Alþýðuflokksins sig í fram-
króka við að undirstrika að
þetta hafi samt síður en svo
verið sigur Alþýðuflokksins. Að
vísu kusu tveir af hverjum
þremur undir merkjum Al-
þýðuflokksins, en Sighvatur
segir að það sé ekkert að
marka því Þjóðvakaliðið og
óháðir hafi dregið svo marga
til sín. Alþýðuflokkurinn nán-
ast tapaði í prófkjörinu segir
Sighvatur og er að tala við okk-
ur kjósendur, en horfir af ein-
hveijum ástæðum ábúðamikl-
um augum á alla gamalgrónu
Allaballana í Reykjavík. Og
Sighvatur minnir enn á hve
safnið var stórt sem menn
komu með af fjalli að þessu
sinni - og gerir gott úr öllu.
Hann er líka Pollýanna próf-
kjörsins.
Pollýaima III
Það er einna helst Jóhanna
Sigurðardóttir sem stendur nú
uppi sem hin eina sanna Sam-
fylkingardrottning noti lág-
stemmdari lýsingarorð um sig-
urinn. Hún vill t.d.
ekki alveg viður-
kenna að hana beri
að krýna strax sem
leiðtoga hreyfingar-
innar og muldrar
eitthvað um Sighvat
og Margréti. En það
er auðvitað líka til
að gera gott úr öllu
og leyfa þeim líka
að vera svolitlir leið-
togar um stund. Og
Ossur vann líka og
er glaður þótt hann hafi tapað
fyrir Jóhönnu. Sama gegnir
um Bryndísi og Árna Þór. Og
ungu mennirnir sem ekki
komast að sigruðu líka. En
glöðust af öllum er þó Margrét
Frímannsdóttir sem stýrir Al-
þýðubandalaginu. Það fékk
ekki nema eitt af hverjum fjór-
um atkvæðum í prófkjörinu,
sem auðvitað er alveg sérstakt
gleðiefni og mikill sigur fyrir
flokkinn í Reykjavík. Gleði
Margrétar er raunar slík að
hún hlýtur að teljast aðal
Pollýanna prófkjörsins. Það
þarf nefnilega mikla
Pollýönnu til að geta sagt, eft-
ir það sem á undan er gengið,
að það hafi nú ekki skipt svo
mildu máli, að Alþýðubanda-
lagið fengi góða útkomu í pró-
kjörinu í Reykjavík.
-GARRl
JÓHANNES
SIGURJÓNS
„ / i SON
yv , .*.# X skrifar
Tími til að tengja
„Er ekki tími til kominn að teng-
ja?“ Var spurt í heimspekilegum
texta Arnars Björnssonar,
íþróttafréttamanns, og sungið af
Skriðjöklapiltunum frá Akureyri.
Og fleiri snillingar hafa fjallað
um tímann í verkum sínum;
Steinn kvað um Tímann og vatn-
ið og þjóðskáldið kvað „tíminn
vill ei tengja sig við mig.“
Tíminn er allstaðar afstæður
og æfinlega nálægur. Hann er
til dæmis afskaplega mikilvæg-
ur í tímamótaviðburðum í póli-
tík. Frægasta setning úr pólitík
síðustu ára er ugglaust yfirlýs-
ing Jóhönnu Sigurðardóttur:
„Minn tími mun koma!“ En
lengi vel vildi tíminn ekki teng-
ja sig við Jóhönnu, eða allt
fram að síðustu helgi þegar
hennar stund var loksins upp
runnin í glæsilegum sigri í
prófkjöri Samfylkingarinnar í
Reykjavík.
Þimi tími er liðinn!
Pólitískir analistar (eða er það
analystar?) liggja nú undir feld-
um og skoða og skilgreina sigur
Jóhönnu. Sumir sjá plott og póli-
tískar leikfléttur í hverju horni.
Þannig gengur
ein kenningin út
á það að Ingi-
björg Sólrún sé
arkitekt þessarar
niðurstöðu próf-
kjörsins. Sólrún
hafi sem sé sjálf
áhuga á að verða
leiðtogi sam-
einaðra vinstri-
manna þegar
fylkingunni vex
fiskur um hrygg
og telji þægilegra að stjórnmála-
maður af eldri kynslóð taki við
forystuhlutverki nú, en að yngra
fólk komist til valda og nái hugs-
anlega að festa sig f sessi. Borg-
arstjóri ætli sér svo að stíga fram
eftir nokkur ár og segja við Jó-
hönnu: „Þinn tími er liðinn og
röðin komin að mér!“
Ymsar fleiri kenningar eru
auðvitað á kreiki og ekki jafn
langsóttar og þessi. En eðlilegast
er auðvitað að
álykta sem svo
að sigur Jó-
hönnu byggist á
verðskulduðum
vinsældum
hennar sem
ganga þvert á
ílokka. Áð kjós-
endur telji ein-
faldlega að
hennar tími sé
kominn.
Principessa
Jóhanna Sigurðardóttir er og
hefur verið harðskarpur, einarð-
ur og heiðarlegur stjórnmála-
maður. Hún hefur farið refsi-
vendi um skúmaskot samfélags-
ins og sópað út í horn, eins og
landsbankastjórar og fleiri kónar
hafa fengið að kenna á. Hún hef-
ur verið prinsipmanneskja,
(principessa?) í pólitík og Íítt
sveigjanleg til málamiðlana.
Þessvegna hefur hún kannski
rekist illa í flokkum, Iitlum flokk-
um. Og þessvegna óttast sumir
að hún rekist ekki betur í stórum
flokki. Að hún verði þar ein-
stefnumanneskja, stefnan verði
hennar og þeir sem ekki fylgja
leiðtoganum verði bara að éta
það sem úti frýs.
Aðrir eru á þeirri skoðun að
Jóhanna skynji vel sinn vitjunar-
tíma, skilji að hennar tími er
kominn og því sé tími til kominn
að tengja. Og það muni hún
gera með sóma - án þess að slá
af þeim eindregnu siðferðiskröf-
um í pólitík og stjórnsýslu sem
hafa aflað henni vinsælda og
virðingar fjölda fólks um allt
land.
Er Jóhanna Sigutðar-
dóttir næsti leiðtogi
Samfylkingarinnar á
landsvísu?
Halldór Ásgrímsson,
fonnaðurFramsólmatjjokksitis.
„Það er ekki
mitt að dæma
um það, en
hinsvegar
fannst mér
merkileg sú yfir-
lýsing Margrét-
ar Fímannsdótt-
ur um helgina að Samfylkingin
þyrfti engan leiðtoga. Eg veit
ekki um neitt stjórnmálaafl sem
ekki þarf forystusveit, eða getur
þú annars bent mér á eitthvað
slíkt til dæmis frá Bretlandi,
Bandaríkjunum, Þýskalandi eða
annarsstaðar frá? Mér finnst
þetta annars benda til þess að
Samfyklingin ætli ekki að reka
neina samræmda stefnu heldur
spila frítt eftir því sem hentar í
hveiju kjördæmi."
Steingrímur J. Sigfússon,
þ ingmaður Vinstrihreyfingarinnar.
„Eg ætla að
forðast að blan-
da mér í hin
innri mál svo-
kallaðrar Sam-
fylkingar. Ég
taldi hinsvegar á
sínum tíma að
eitt af fjölmörgum atriðum sem
nauðsynlegt væri að ná sam-
komulagi um áður en ákvarðanir
yrðu teknar um nánara samstarf
stjórnarandstöðuflokkanna, ætti
það að heppnast, væru forystu-
málin. Mér sýnist það mál enn
vera í lausu lofti."
Einar Kr. Gudftnnsson,
'j i ngmaður Sjálfttæðisflokks.
„Ef það er rétt
sem sumir tals-
menn Samfylk-
ingarinnar segja
að prófkjörið í
Reykjavík sé
upphafið að
endalokum Al-
þýðuflokks, Alþýðubandlags og
Kvennalista þá sér maður ekki
hlutverk formanna þessara flokka
mikið lengur. Og þá virðist nær-
tækast að leiðtoginn sé Jóhanna
Sigurðardóttir, eftir þessa af-
dráttarlausu kosningu sem hún
fékk um helgina."
Siv Friðleifsdóttir,
þ ingmaðurFramsólmarfloltks.
„Nei, hún getur
ekki gert tilkall
til þess, þar sem
hún kemur ekki
úr þeim tveimur
stærstu stjórn-
málaöflum sem
standa að Sam-
fylkingunni. Jóhönnu er vandi á
höndum að halda saman öllum
sem standa að Samfylkingunni,
sérstaklega þá Alþýðubandalag-
inu sem fer illa út úr prófkjörinu
í Reykjavík. Jóhanna getur því
enn ekki sagt að sinn tími sé
kominn, til þess þarf hún að ná
leiðtogahlutverkinu um allt
land.“