Dagur - 03.02.1999, Qupperneq 7
MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 1999 - 23
LÍFIÐ í LANDINU
MEINHORNIÐ
• Á þorrablóts-
tímum þolir
meinhyrningur
ekki fæðuvalið á
þorrabökkun-
um. Jafn hall-
ærislegt og það
er að hafa kjöt-
kássu í potti á
borðinu þykir
meinhyrningi
óþolandi að
ekki sé nóg af
hangikjeti, kart-
öflum ogjafh-
ingi fyrir þá sem
eingöngu inn-
byrða slíka
fæðu. Sömu-
leiðis pirrar það
meinhyrning
ótæpilega að
harðfiskurinn sé
bara ýsa og það
oftar en ekki af
skornum
skammti. Það er
hámark ósvífn-
innar. Nóg kost-
ar þetta!
• Og svo kemur
meinhyrningur
að gamla góða
umræðuefninu
um bakaríin.
Það er nefni-
lega svo furðu-
legt að af-
greiðslufólk í
bakaríum gerir
sér sjaldnast
grein fyrir því
að það er að
meðhöndla mat-
væli þegar það
stingur fingrum
í munn sér til
að ná í munn-
vatn og opna
plast/bréfpok-
ann. Þetta af-
greiðslufólk tek-
ur síðan með
sömu beru
fingrunum
brauðið, stingur
því í skurðarvél-
ina og setur svo
í pokann - án
þess að sjá
nokkuð athuga-
vert við þessa
meðferð. Hvað
er að hjá þessu
fólki??? Skilur
það ekki hversu
ógeðslegt þetta
er fyrir kúnn-
ann!
FOLKSINS
Svar vlð fyrir-
spurn um geiil
sneyðingu
OSKAR H. GUNNARSSON
FORMAÐUR SAMTAKA AFURÐASTÖÐVA í
MJÓLKURIÐNAÐI SKRIFAR
Þriðjudaginn 26. janúar birtist í Degi
grein þar sem Kristín R. Magnúsdóttir
beinir spurningum til mjólkurvinnslu-
stöðva um hvers vegna mjólk sé fitu-
sprengd og gerilsneydd. Einnig spyr hún
hvort steinefni mjólkur nýtist eftir fitu-
sprengingu, hvort ijómi og undanrenna
séu fitusprengd og hvers vegna neytend-
ur geti ekki valið sér mismunandi mjólk
eftir vinnslustigi hennar.
Strangar reglur
I fyrsta lagi er því til að svara að fram-
leiðsla og meðhöndlun mjólkur Iýtur
ströngum reglum sem settar eru meðal
annars af heilbrigðisyfirvöldum og ekki
er á færi mjólkuriðnaðarins að hvika frá.
Ákvæði um gerilsneyðingu mjólkur voru
sett inn í heilbrigðisreglugerðir eftir
nokkur alvarleg sýkingartilvik hér á
landi á sjötta áratugnum. Landlæknis-
embættið, Manneldisráð, Hollustuvernd
ríkisins og embætti yfirdýralæknis eru á
meðal þeirra aðila sem ftrekað hafa tjáð
sig um mikilvægi þess að mjólk sé geril-
sneydd hér á landi eins og alls staðar í
hinum vestræna heimi þar sem mjólk er
daglega á borðum neytenda. I nýlegri
endurskoðun mjólkurreglugerðar hefur
verið hert enn frekar á kröfu um ger-
ilsneyðingu mjólkur og sem betur fer
eru næringarfræðingar, hérlendis sem
erlendis, nokkuð sammála um að ger-
ilsneyðingin hafi óveruleg áhrif, ef
nokkur, á hollustu mjólkur og mjólkur-
afurða.
AuMð geymsluþol
Mjólk er hins vegar fyrst og fremst fitu-
sprengd til þess að auka geymsluþol
hennar og koma í veg fyrir að rjómi setj-
ist til ofan á henni. Mjólk sem notuð er
sem hráefni í rjóma, undanrennu og
aðrar mjólkurvörur er sömuleiðis fitu-
sprengd í nær öllum tilfellum. Engar
sönnur hafa verið færðar á að fitu-
sprenging dragi úr hollustu mjólkur og á
meðal þeirra sem raunar halda hinu
gagnstæða fram er Dr. Inga Þórsdóttir,
næringarfræðingur og prófessor við Há-
skóla íslands. Sjálfsagt er þó að upplýsa
að um nokkurt skeið hefur verið boðið
upp á lífrænt ræktaða og ófitusprengda
mjólk enda þótt eftirspurn eftir henni
hafi ekki verið sérlega mikil. Þannig leit-
ast íslenskur mjólkuriðnaður við að
svara óskum neytenda eftir því sem
frekast er unnt en reglugerðum heil-
brigðisyfirvalda er að sjálfsögðu fylgt í
hvívetna.
Hangið á eignaréttinmn
Bpynjólfur
Brynjólfsson
skrifar
Strandgötu 31, 600, Akureyri
Þverholti 14,105 Reykjavík
Sími umsjónarmanns
lesendasíðu:
460 6122
Netfang: ritstjori@dagur.is
Símbréf: 460 6171/551 6270
Of mikil bjartsýni virð-
ist vera á að Alþingi
komist áfallalaust frá
því að leiðrétta ágalla
fiskveiðilaga. Að
minnsta kosti meðal
sumra þingmanna.
Þeir hanga á því að sá
sem hefir veiðiheimild
verði að eiga hlut í
kvóta til þess að heim-
ildin virki. Þessi villa stendur allri sátt
um fiskveiðistjórnunarlögin fyrir þrifum.
Ekki er auðvelt að sjá hvaða afl heldur
þessu atriði svo sterkt inni að dómur
Hæstaréttar getur ekki fært þingmönn-
um heim sanninn um villuna. Hugsan-
lega getur verið að ótti þingmanna við
fyrri verk hræði þá því sú hugmynd að
þeir sem fengu kvóta án þess að gjalda
hann með fé þurfi nú að fá fé fyrir að
Iáta hann af hendi. Hugrenningar í
þessa átt hafa heyrst áður hjá þing-
mönnum og eru nú staðfestar með því
sem Alþingi var að sam-
þykkja nýlega. Þingmenn
vita að ef kvótinn hverfur úr
veðsetningum útgerðarfyrir-
tækja þá eru þau ekki lengur
„solvent" því þá duga raun-
verulegar eignir þeirra ekki
fyrir skuldum. Einhverjar
undantekningar gætu verið á
þessu ástandi en þær eru
trúlega ekki margar.
Óskað er eftir að bréf til
blaðsins séu að jafnaði hálf til
ein vélrituð blaðsíða, 1000-1200
tölvuslög. Dagur áskilur sér rétt
til að stytta lengri bréf.
Á að byggja á heixnildiimi
Heimild til þess að stunda
fiskveiðar í íslenskri fisk-
veiðileiðsögu á aðeins að
byggjast á heimildinni en ekki á kvóta-
eign. Þessari heimild á að úthluta á
hverju ári og gilda bara það fiskveiðiár.
Heimildin á að innihalda magn og teg-
undir sem má veiða og bara það fisk-
veiðiár. Enginn eignarréttur getur verið
nema hjá þjóðinni samkvæmt lögum.
Engin sala á að eiga sér stað, ekkert
annað en veiðar út á heimildina. Sá sem
á heimild verður annaðhvort að nýta
hana sjálfur eða afsala henni til endur-
úthlutunar. Ef farin væri þessi leið
mundu rnörg vandamál hverfa í fram-
kvæmd þessara Iaga því kvótinn sem
hugmynd stendur í vegi fyrir að sátt ná-
ist með þjóðinni. Þingmenn verða að
hafa kjark til að bæta fyrir fyrri mistök
og fella niður kvótaeign hjá einstakling-
um og fyrirtækjum. Kvótaeignin er hjá
þjóðinni og þingmenn eiga að gæta
þessarar eignar án þess að aðrir geti náð
þar eignarhaldi. Þarna hafa þingmenn
brugðist og virðast núna við þessar
breytingar á fiskveiðilögunum ætla að
auka við villuna. Það sem er verið að
bralla núna á maraþonefndarfundum
verður fellt af almennum borgurum
með tilstyrk Hæstaréttar. Svo getur farið
að Alþingi íslendinga verði að hluta til
óstarfhæft vegna áframhaldandi ósam-
komulags um fiskveiðistjórnunarlögin.
Röð af dómum þarf sennilega til til þess
að eignarétturinn hjá öðrum en þjóðinni
verði feldur úr gildi. Þar til það er gert
verður aldrei sátt um fiskveiðistjórnun
ina með þjóðinni. Alþingi á að vinm
lagasetningar sínar þannig að dómstólar
landsins geti stutt þær, annars eru þær
markleysa.
VEÐUR
Veðrið í dag...
Suðvestlæg átt, kaldi eða stinningskaldi, en viða allhvasst seint
á morgun. Snjókoma eða él um landið sunnan- og vestanvert, og
dálltil snjókoma mn tlma síðdegis norðaustanlands. Frostlaust
við suður- og austurströndina, en annars vægt frost.
mti -2 til 2 stig
Blönduós
Akureyri
rci mrr -15 10^ I 5- 'A mi]
B 1 ■ l,.l J-r—; ’10 0- -5 | - -0 l.-ll.---
Þri Miö Fim Fðs Lau
J /-'**'• f ^ / J J
Þrt Mið Rm Fös
Egilsstaðir
j^ ^ ; j
Bolungarvík _____
CgL.
I li
I ■ ■ H ■
Þri Mið Fim Fðs
Mán Þri Mið Fim Fðs Lau
j~^ ^ ^ ^ ^ *''v/ j j
Reykjavík
Kirkjubæjarklaustur
CQ
l ■ j■
10 5"
5 i 0-
1,1.
Þri Mið Fim Fös Lau Mán
l f /~r
* • • • . ^ ^
Stykkishólmur
Þri Mið Fim Fös Lau Mán
t j
Stórhöfði
coL.
.1
•10 1 5-
5 ! 0
jrjL
Þri Mið Fim Fös
r
Lau Mán Þri Mið Fim Fös Lau
j j r
j j
Veðurspárit
02.02.1999
Línurit: Lofthiti, spágildi fyrir miðnætti og hádegi.
Súlurit: Úrkoma, uppsöfnuð i 12 klst.
Vindörvar: Vindur blæs inn að punkti. Vindhraði táknaður með
skástrikum; heilt strik táknar 5 m/s en hálft 2.5 m/s.
Þríhyrningur táknar 25 m/s. er
. k
Dæmi: > táknar norðvestanátt, 7.5 m/s.
Færð á vegiun
Skafrenningur er á Hellisheiði, Holtavörðulieiði og Fróðárheiði.
Þungfært er inn Bröttubrekku og Skógarströnd frá hólmi og að
Heydalsvegamótum. Þæfingsfærðl í Dölum og frá Reykhólum og
í KoUafjörð. Ófært er um Steingrímsfjarðarheiði og snjókoma í
Djúpi. Skafrenningur er í kringum Ísaíjörð á ÓshHð í
Súgandafirði og á GemlufaUsheiði. Mjög slæmt ferðaveður er á
Öxnadalsheiði. Á Austurlandi er veður heldur að ganga niður og
vegir að verða færir, en varað er við vindstrengjum á heiðum. Þó
er mjög hvasst ennþá á Breiðdalsheiði, en greiðfært er með
Austurströndinni og suður um.
66* N
SEXTIU
OG
Sex
NORÐUR