Alþýðublaðið - 07.02.1967, Qupperneq 3
Flutningar FÍ jukust
verulega á liðnu ári
Flutningar flugvéla Flugfélags
íslands jukust verulcga á síðasta
ári miðað við árið á undan. Mest
varð aukningin í farþegaflutning
um innanlands, svo og í vöru-
flutningum innanlands og milli
landa.
MILLILANDAFLUG:
í áætlunarflugi milli landa
fluttu flugvélar Flugfélagsins
48.604 farþega en 42,986 árið áð
ur. Aukning er rúmlega 13%.
Póstflutningar milli landa námu
148,5 lestum en 136 8 lestum ár
ið á undan. Aukning er 8,5%.
Vöruflutningar með flugvélum
félagsins milli landa jukust veru
lega: Á sl. ári námu þeir 613,6
lestum en 437,3 lestum árið áður
og er aukning því 40,3%.
INNANLANDSFLUG:
í áætlunarflugferðum innan-
lands fluttu flugvélar félagsins á
árinu 111,052 farþega á móti
88 064 árið á undan, og er aukn
ing 26%. Póstflutningar innan-
lands námu 350,8 lestum, en voru
176,9 árið áður. Aukning er
98,3%. Vöruflutningar námu
1924,7 lestum eji voru 1287.7 ár
Framhald af 13. síðu.
Fjársöfnunardagur
RKÍ er á morgun
Á morgun er liinn árlegi fjár
söfnunardagur Rauka Kross ís-
lands um Iand allt, og munu all
ar deildir hans annast merkja-
sölu, hver á sínu svæði, auk
margra einstaklinga, þar sem
deildir eru ekki starfandi. Allt
Kennslugjöld
hækkuð í Bretlandi
Samkvæmt upplýsingum frá
sendiráði íslands í Lundúnum
hefur ríkisstjórn Bretlands. ákveð
ið. að kennslugjöld erlendra
stúdenta í brezkum háskólum
skuli hækkað að mun. Hefur
sendiráðinu þegar borizt tilkynn
ing frá háskólanum í Newcastle,
þar sem frá því er skýrt að
kennslugjöld fyrir erlenda stúd-
enta muni við 'þann háskóla
nema 250 sterlingspundum á ári
frá næsta hausti, og telur sendi
ráðið líklegt, að tilkynningar
svipaðs efnis berist frá öðrum
háskólum á næstunni. Sé því
nauðsynlegt fyrir íslenzka stúd-
enta, er sótt hafi um námsvist
við brezka háskóla á næsta vetri
að vera viðbúna auknum náms-
kostnaði af þessum sökum
Menntamálaráðuneytið
3. febrúar 1967.
sem inn kemur rennur til starf-
semi deildanna og R.K.I.
Deildir Rauða Krossins eru nú
31 talsins. Sjö félagsdeildir ann
ast sjúkraflutninga, tvær reka
sumardvalarheimili fyrir börn,
átta annast lán á sjúkragögnum,
ein rekur ljósabaðstofu, níu hafa
kennt hjálp í viðlögum, o. s.
frv. Að sjálfsögðu er stærsta
Rauða Kross deildin hér í R-vík,
og hafa borgarbúar daglega fyrir
augum til hvers m a. fé því
er varið sem inn kemur. Þar
er átt við sjúkrabifreiðarnar.
Þær fóru árið 1966 á níunda þús
und ferðir með sjúka og slasaða.
Eins og áður er getið er
merkjasöludagur Rauða Krossins
á rnorgun, sem er öskudagurinn,
og verður merkjasalan með sama
sniði og áður. Hundruð ungra
námsmeyja úr Kvennaskólanum í
Reykjavík Húsmæðraskólanum,
o fl. annast stjórn á sölu merkj
anna á útsölustöðum víðsvegar
um borgina.
Foreldrar eru vinsamlega beðn
ir að hvetja börn sín til merkja
sölu, og koma á útsölustaðina á
öskudagsmorgun kl. 9.30. Börnin
fá 10% sölulaun Foreldrar ættu
umfram allt að minna börnin á
að vera hlýlega klædd. Byrjað
verður að afhenda merkin kl.
9.30 — en til þess er ætlazt
að börnin hafi skilað af sér fyr
ir kl. 5.
Bridgespilarar
Spilum bridge í Ingólfskaffi Iaugardaginn 11 febrúar kl. 2
f stundvíslega. Stjórnandi Guðmundur Kr. Sigurffsson. ÖIl-
á um er heimill aðgangur.
f Alþýffuflokksfélag Reykjavíkur.
I
iiHiiiiiiiimiiiiiiiiimiiiimiiimiiiiimiimmiiiiimimiiiiiii
✓
i Snorri Hjartarson hlaut bók-
É menntaverfflaun blaðanna, sem
i afhent voru í fyrsta skipti síð’-
1 astliffinn sunnudag. Snorri fékk
í verfflaunin fyrir ljóffabók sína
i Lauf og stjörnur, sem kom út
i fyrir síðustu jól og hlaut ein-
= róma lof gagnrýnenda. Ólafur
É Jónsson, bókmenntagagnrýn-
= andi Alþýffublaffsins, hafffi orff
i fyrir dómnefndinni viff afhend-
: inguna og birtist ræffa hans í
i opnunni í dag. — Á myndinni
: hér til hliöar sést verðlauna-
\ hafinn ásamt verfflaunagripn-
i um og höfundi hans, Jóhannesi
= Jóhannessyni.
iiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiimmiiii
)
Mikiff óveffur geispffi uin allt
land um sl. helgi. í Reykjavík var
veffurhæffin mest síffari liluta
sunnudags og voru þá um 10 vind-
stig. Frost var og éljagangur víffa
um landiff.
1 Reykjavík urðu nokkrar
skemmdir af völdum veðursins,
sérstaklega á rafmagnslínum. Til
dæmis fór rafmagn tvisvar af
Gróttuvitanum og sævarselta safn-
aðist á línurnar á eyðinu út í
Gróttu og slógust línurnar saman.
Laust fyrir kl. hálf sjö tók fyrir
allar útsendingar útvarps og sjón-
varps þar sem rafmagnsbilun varð
á Vatnsendahæð.
Þegar mest var að gera við við-
gerðirnar á ímnnudag unnu um
Opiumsmygl
GENF, 4/2 (NTB-Reuter) — Eit-
urlyfjanefnd SÞ segir í skýrslu
sem birt var í dag, að voldug og
fjársterk alþjóðasamtök smygli
mörgum smálestum af ópíum til
Suður-Vietnam.
Engar tölur eða nánari upplýs-
ingar um smyglhringinn er að
finna í skýrslunni, en bent er á,
að stjórnin í Saigon hafi skýrt
frá því að helztu miðstöðvar ópí-
umverzlunarinnar séu Kambódía,
Laos og Thailand. í skýrslunni
segir, að megnið af þeim 1200
lestum af ópíum, sem milljónir
manna um allan heim misnoti,
komi frá Suður-Asíu.
20 manns í aukavinnu hjá Raf-
magnsveitu Reykjavikur. Sérstak-
lelga var ástandið bágt í nýja
Hraunbæjarhverfinu, en þar eru
víðst bráðabirgðalínur enn sem
komið er og slitnaði mikið af
þeim.
í gærdag var búið að gera við
allar rafmagnsbilanir, sem urðu í
óveðrinu nema við Jaðar þar sem
tveir háspennustaurar brotnuðu.
Lágu staurarnir í mýri og var
Reykjavík, — EG
Þingmenn Vesturlandskjördæm
is hafa flutt þingsályktunartil-
lögu um fullkomna rannsókn á
samgöngumöguleikum yfir Hval-
fjörff. Gerir tillagan ráff fyrir
aff þriggja manna nefnd verffi
faliff aff kanna málið.
Flutningsmenn tillögunnar eru:
Jón Árnason (S) Sigurffur Ágústs
son (S) Benedikt Gröndal (A) Ás
geir Bjarnason (F) og Halldór
E. Sigurffsson (F) Tillaga þeirra
er svohljóðandi: Alþingi ályktar
að skora á ríkisstjórnina aff skipa
þriggja manna nefnd til að ann
ast alhliða rannsókn á því livern
ig hagkvæmást muni aff Icysa
samgönguþörfina milli þét.tbýlis-
allt þarna umflotið yatni og erf-
itt að athafna sig. Þó var hægt að
ljúka viðgerð þarna í gærkvöldi.
Úti á landi urðu rafmagnstrufl-
anir mestar á Suðurlandi og í
Vestmannaeyjum en allt var kom-
ið í samt laig í gærdag. Vegir
tepptust víða vegna snjókomu og
skafrennings en umferð var 'hvergi
mikil vegna veðurofsans. Allt inn-
anlandsflug lá niðri um helgina
vegna veðursins.
ins í og viff Reykjavík annars-
vegar og Akraness, Borgar-
fjarffar og til Vestur og Norffur
lands liins vegar. Verði nefnd-
inni heimilaö aff ráffa sérfræffi-
lega affstoff, bæffi verkfræffilega
og liagfræðilega svo unnt verffi
aff finna niffurstöffu byggffa á
eins traustmn grundvelli og mögu
legt er bæffi aff því er varffar
tæknileg og þjóðhagsleg sjónar-
mið í nefndinni verffi val-
inn cinn maffur búsettur á Akra
nesi. Nefndin skili áliti fyrir
árslok 1967. Kostnaffur viff rann
sókn þessa greiffist úr rikissjóði.
Tillögu þessari fylgir ítarleg
greinargerff, sem síffar verffur
birt hér í blaðinu.
Allir Þingmenn Vesturlands
flytja Hvalfjarðartillögu
7. febrúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3