Alþýðublaðið - 07.02.1967, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 07.02.1967, Blaðsíða 9
Utsala Utsala Stuttir og síðir kvöldkjólar, dagkjólar, tækifæriskjólar og önnur tízkuvara. ÚTSALA Seljum fyrir áföllnum kostnaði allan fatnað frá 1961—1965, sem ekki hefur verið sóttur. Þetta verSa kjarakaup Herrajakkar á kr. 100.00. Herrabuxur á kr. 100.00. Ilerrafrakkar á kr. 150.00. Kvenkápur á kr. 150.00. Kvenkjólar á kr. 100.00. Kvenpils á kr. 15.00. Einnig barnafatna'ð o.m.fl. Efnalaugin Lindin Skúlagötu 51. Blómaverzlun Michaelsen Suðurlandsbraut 10. ÞAÐ vakti undrun manna fyr- ir nokkrum árum, þegar borgar- stjórn Reykjavíkur varð sammála, á einum næturfundi, um það að stinga sér í tjörnina, allur hóp- urinn, fimmtán að tölu. Þ.e.a.s. sammála um, að reisa ráðhús í tjörninni. En almennings- álitið hefur og mun bjarga tjörn- inni, þó að ævintýrið hafi kostað borgarbúa 6 milljónir fyrir teikn- ingar, sem aldrei verða notaðar. Því er á þetta minnzt hér, að segja má að álíka glóp.ska virðist hafa hent hið háa Alþingi á sl. ári, er meirihluti þess (36 gegn 17) samþykkti, að tekin yrði upp hægri umferð hér á landi nú ó næsta ári. Almenningsálitið hefur nú d æ m t þessa ákvörðun þings- ins þannig, að allir virðast vera á móti breytingunni og geta ekki komið auga á hvaða tilgangi þetta þjónar. Það er vitaö, að í heiminum í dag hafa lönd, sem telja 800 milljónir manna vinnstri handar umferð og hefur ekki heyrzt, að neinar þessar þjóðir (nema Sví- ar) ætli að breyta umferð sihni, nema við íslendingar, sem teljum aðeins 200 þús. íbúa. Bretlands- eyjar með sínar ca. 50 milljónir sem eru okkar næsti nágranni — munu ekki hafa hug á að breyta tii hægri, hafa víst næg verkei'ni önnur að glíma við. Sérstaða okkar íslendinga er auðsæ hverju mannsbarni, nema e.t.v. meiri hluta alþingismanna. Við búum hér á eylandi, „langt frá öðrum þjóðum,” fjögra daga sigling til Evrópu og átta til tíu daga sigiing til Vesturheims. Um mikinn bílainnflutning ferða- manna til og frá landinu getúr því aldrei orðið um að ræða. Setu- lið Bandaríkjahers virðist fara hér allra sinna ferða, svo að á- stæðulaust virðist vera að skipta um vegna þeirra, en e.t.v. hefur það verið sjónarmið Alþingis- manna, að verndararnir væru eins og heima lijá sér. Mikið er vitnað í Svía vegna breytingu þeirra í hægri umferð. Þar er bara allt annað viðhorf, þeir eru neyddir til þess að breyta. Þeir eru umkringdir af löndum með hægri umferð. En íslands-álar eru djúpir og verða seint brúaðir. Allar umræður um steypta vegi hér á landi um næstu framtíð á langleiðum er fleipur eitt, en á- gætt að ræða um fyrir kosningar. Jafnvel þó að allt það fé, sem tekið er -af umferðinni færi til þess að leggja varanlega vegi kæmumst við skammt, hér verða malarvegir enn um langa framtíð. Milli Reykjavíkur og Hafnarfjarð- ar eru aðeins rúmir 10 km. — Á þessum gamla, mjóa vegi er bíla- lest frá morgni til kvölds alla daga og um helgar má vegurinn heita ófær vegna umferðar. Vegna kostnaðar á lagningu þessa vegar- spotta standa ríki og bæjarfélög- in, sem hlut eiga að máli, ráð- þrota vegna fjárskorts (vegurinn yfir Kópavogsháls er talinn kosta ca. 70 milljónir). Enginn veit hve nær hafizt verður handa um að gera fjölförnustu leið landsins ak- færa. Hin mikla vegaáætlun eru svipaðir loftkastalar og teikningin af Tjarnarráðhúsinu og Engeyj- arhöfnin. Við megum á næstu ár- um þakka fyrir, ef það tekst að gera tvöfaldan veg til Hafnar- fjarðar og að halda vegakerfi landsins í akfæru ástandi. Upphafsmenn þessarar hægri umferðar halda því fram. að þessi breyting kosti ókki nema -smá- upphæð, 60 — 80 milljónir, og þetta eiga bifreiðaeigendur að fá að greiða. Það mun sannast, að þessi útreikningur er fjarri öllu iagi. Reykjavíkurborg ráðgerir að káupa heilan flota nýrra strætis- vagna, nefna sumir töluna 30 stk. Breyta þarf öllum langferðabílum, sem kostar óhemjufé, öllum um- ferðarmerkjum þarf að breyta og ótal margt fleira, sem allri þess- ari breytingu fylgir. Sem sagt talan er óþekkt stærð hvað kostn- aðarhlið snertir, gæti orðið nokk- úr hundruð milljónir. Einhverjum mundi nú finnast, að þessari upphæð væri betur var- ið til þess að koma áfram hálf- byggðum sjúkralnisum, sem verið hafa áratugi í smíðum. í þeim málum er slíkt neyðarástand, að veikt fólk verður að senda heim f.vrr en æskilegt væri, til þess að rýma fyrir fársjúku fólki — og slösuðu. . Hvaða ávinning höfum við svo af öllu þessu brölti með umferð- ina? Ekkert nema slysfarir og hörmungar. Nú líður varla sá dag- ur, að ekki séu umferðarslys, hvað mun þá verða, þegar allri umferð hefur verið snúið við að ástæðu- lausu. Ég skora nú á þjóðina aö stöðva þessa framkvæmd og undirbún- ingur að söfnun undirskriftá þarf nú strax að hefjast. i vor eru kosnlngar, auðvelt er að hafa þjóðaratkvæði um málið. Einnig er það mjög lýðræðislegt og á hiklaust að gera, þegar um stórmál er að ræða, sem snerta hvern mann í landinu. Það er auðvelt að greiða. um þetta at- kvæði um leið og kosið er. Það er mannlegt að gera mis- tök, en stórmanrilegt að viður- kenna þau. Vilja nú ekki 60- meriningarnir við Austurvöll end- urskoða afstöðu sína og taka upp málið að nýju, fyrir það hlytu þeir þakkir alþjóðar. . ::;Á . Hjálmtýr Pétursson. Blómaskálínn Hveragerði POTTABLÓM — AFSKORIN BLÓM BLÓMASKREYTINGAR — GJAFAVÖRUR Blómaverzlun Michaelsen Suðurlandsbraut 10 — Sími 31099. Góð bilastæði. Blómaskálinn Hveragerði Húsmæður Sendum heim alla daga, mjólk, brauð, fisk og kjöt og allar nýlenduvörur. Grensáskjör Grensásvegi 46. — Sími 36740. NÝKOMIN Skólavörðustígr 9 7. febrúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÓ. 9

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.