Dagur - 12.02.1999, Síða 5
l^MT'
FÖSTUDAGVR 12. FEBRÚAR 1999 - S
FRÉTTIR
L.
Hart deilt um kjör-
dæmabreytingima
Landsbyggðarþing-
ineini gagnrýna harð-
lega marga þætti í
frumvarpi um hreyt-
ingar á kjördæmaskip-
an sem var til 2. um-
ræðu á Alþingi í gær.
Landsbyggðarþingmenn gagn-
rýndu fyrirhugaðar breytingar á
kjördæmaskipaninni harðlega
við 2. umræðu um kjördæma-
frumvarpið á Alþingi í gær. Eink-
um eru menn ósáttir við hversu
stór kjördæmin verða eftir breyt-
inguna. Þá gagnrýndi Steingrím-
ur J. Sigfússon að Norðurlands-
kjördæmin tvö skuli ekki gerð að
einu kjördæmi með Akureyri
sem höfuðmiðstöð í miðju þess.
Hjörleifur Guttormsson gagn-
rýndi harðlega stærðina á norð-
austurkjördæminu sem á að ná
frá Siglufirði að Skeiðará. Hann
sagði það Iandfræðilega um
helming alls Islands og út í hött
að kalla það norðausturkjör-
dæmi.
Steingrímur gagnrýndi einnig
að 5% atkvæða þurfi til að fá
uppbótarþingsæti samkvæmt
frumvarpinu. Hann sagði það
hróplegt óréttlæti að framboð
sem nær einum manni kjörnum
en fær 4,9% atkvæða á landsvísu
fái ekki uppbótarþingsæti sam-
kvæmt frumvarpinu.
Gagnrýnt var að skipta eigi
höfuðborginni í tvö kjördæmi.
Svavar Gestsson var því þó mjög
hlynntur og sagði mikið verk að
sinna höfuðborginni allri sem
einu kjördæmi. Hjörleifur gerði
grín að því og taldi fráleitt að
skipta Reykjavík í tvö kjördæmi.
Einar K. Guðfinnsson, þing-
maður Vestfirðinga, gagnrýndi
þá kenningu þeirra nefndar-
manna er sömdu kjördæma-
frumvarpið að jafna þyrfti vægi
atkvæða. Hann \dtnaði til Bret-
lands í þessu sambandi þar sem
eru einmenningskjördæmi og
ekki er verið að tala um jafnt
vægi atkvæða. Hann sagðist vara
við því að vera sífellt að ræða
málin á þessum nótum, það væri
hættulegt lýðræðinu.
Búsetuxöskun ástæðau
Steingrímur benti á að nefndin
sem frumvarpið samdi hafi gefið
sér þá forsendu að þingmenn í
hverju kjördæmi skyldu vera 9+1
eða 9+2 og það hefði síðan leitt
til þessarar slæmu skiptingar í
annars vegar risastór kjördæmi
og hins vegar í tvö kjördæmi í
Reykjavík.
Hann spurði líka hvers vegna
menn þyrftu hvað eftir annað á
þessari öld að vera að taka upp
kosningalögin og gera breytingar
á fyrirkomulaginu. „Jú, ástæðan
er ein, og hún er sú geigvænlega
byggðaröskun og þeir miklu bú-
ferlaflutningar innanlands og
það mikla ójafnvægi í fólksljölg-
un í landinu og hvar þetta kem-
ur frarn," sagði Steingrímur.
Ekki yrði hjá því komist að ræða
þessa miklu byggðaröskun og
ástæður hennar og að bæta
þyrfti úr. Hann sagði að bæta
þyrfti samgöngur á landi innan
kjördæma.
I breytingartillögum stjórnar-
skrárnefndar er gert ráð fyrir
þeim möguleika að fjölga kjör-
dæmum í 7 með venjulegri laga-
breytingu en kjördæmin verði
fæst sex. Segir í tillögunni að
þetta sé gert til að auka sveigjan-
leika og að hægt verði að breyta
kjördæmaskipan samkvæmt
þessu með lögum. — S.DÓR
Ekki sáttur viö
tón Náttúruvemdar
Svavar í utan
rikisþjónustu
Svavar Gests-
son alþingis-
maður tekur
við stöðu
sendifulltrúa
hjá utanríkis-
ráðuneytinu
samkvæmt
heimildum
fréttastofu
Sjónvarps.
Um ræðir
eina af þremur stöðum sem
heimilt er að ráða í í tengslum
við landafundaverkefnið. Þetta
kom fram í sjónvarpsfréttum í
gærkvöld. Landafundanefnd
undirbýr nú hátíðarhöld árið
2000 vegna fundar Vínlands.
Svavar mun samkvæmt fréttum
Sjónvarps taka við stöðunni um
miðjan mars en hverfa til
starfans að fullu í júní, líklega
með aðsetur í Winnipeg í
Kanada.
Einnig kom fram í frétt Sjón-
varpsins að Svavar myndi að
landafundaverkefninu loknu
taka við sendiherrastöðu í
Kanada en áformað er að setja
upp sendiráð þar með sérstaka
áherslu á viðskipti, þó Iíklega
ekki fyrr en á næsta ári.
Ekki náðist í Svavar í gær-
kvöld þar sem hann er erlendis.
Leiðrétting
I frétt Dags í gær um Kísiliðjuna
var tilvitnun sem sögð var úr
drögum að mati á umhverfisá-
hrifum sem fyrirtækið Hönnun
er að vinna. Það er ekki rétt
heldur var hún úr bréfi frá Nátt-
úruvernd. Leiðréttist þetta hér
með og er beðist velvirðingar á
þessum mistökum.
Náttúruvemd ríMsins
minnir á samkomu-
lagið frá 1993 og
sönuuuarbyrði Kísil-
iðjuuuar. Umhverfis-
ráðherra gagnrýuir
fyrirfi’am neikvæða
afstöðu NR.
Árni Bragason, forstöðumaður
Náttúruverndar ríkisins, minnir
á samkomulag sem gert var milli
umhverfisráðherra og iðnaðar-
ráðherra árið 1993 um að Kísil-
iðjan hætti vinnslu árið 2010.
„Ef menn geta hins vegar sýnt
fram á svo óyggjandi sé að lífríki
Mývatns sé ekki ógnað, þá er
ekkert að kísilgúrvinnslu. Þeir
vísindamenn sem hafa tjáð sig
um málið telja ekki miklar líkur á
að líftími fyrirtækisins verði
framlengdur, en einhver ný
vinnslutækni, sem ekki liggur
fyrir í dag, gæti hugsanlega
breytt einhverju," segir Arni.
Ákveðið hefur verið að taka til-
boði frá fyrirtækinu SS-Byggi í
uppsteypu á 3. áfanga Lundar-
skóla. Tilboðið sem tekið var var
ekki það Iægsta en lægsta tilboð-
ið kom Iíka frá SS-Byggi. Munur-
inn á tilboðunum fólst fyrst og
Guðmundur Bjarnason: Ekki sáttur
við tóninn í starfsmönnum Nátt-
úruverndar ríkisins.
Finnur Ingólfsson iðnaðarráð-
herra sagði í Degi í gær að allt
yrði gert af hálfu ráðuneytisins
til að tryggja líftíma Kísiliðjunnar
og bindur hann vonir við nýja
vinnslutækni. Hið sama gerir
Guðmundur Bjarnason umhverf-
isráðherra: „Eg tel mjög litlar Iík-
ur á að hægt sé að ná ásættan-
legri sátt um framhaldið með
fremst í verklokum en lægsta til-
boðið gerði ráð fyrir að verkinu
yrði skilað í Iok júní, en það til-
boð sem tekið var, gerir ráð fyrir
verklokum 28. maí. Það hljóðar
upp á rétt tæpar 20 milljónir
króna.
óbreyttri tækni. Ég bind hins
vegar miklar vonir \dð nýja tækni.
Ég held að hún sé forsenda þess
að við getum haldið námi
áfram.“
Umhverfisráðherra er ekki
ánægður með þátt Náttúru-
verndar ríkisins í málinu að und-
anförnu. „Ég hef ekki verið alls
kostar sáttur við þann tón sem
gefinn hefur verið af hálfu starfs-
manna Rannsóknastöðvarinnar
við Mývatn og Náttúruverndar
ríkisins um það að þeir hafi fyrir-
fram efasemdir um hina nýju
tækni. Mér finnst slíkar efa-
semdir hafa skinið í gegn í mál-
flutningi þeirra," segir Guð-
mundur.
Dagur bað ráðherra að leggja
mat á lífslíkur fyrirtækisins. „Það
er mjög erfitt fyrir mig að segja
nokkuð um þær á þessu stigi. Ég
hef verið bjartsýnn og fylgst vel
með þeim tilraunum sem fram
hafa farið í vinnslutækninni. Ég
þori ekki að lofa neinni niður-
stöðu fyrr en ég sé hverju þessar
tilraunir skila.“ — BÞ
Ásgeir Magnússon, formaður
framk\æmdanefndar Akureyrar-
bæjar, segir að ástæðan fyrir því
að menn vildu hraða verkinu sé
einfaldlega sú að það liggi á hús-
næðinu og hugmyndin sé að
hefja kennslu þar næsta haust.
Svavar Gestsson
alþingismaður.
SS-Byggir við Limdarskdla
Misnotaði stúlku-
bam
Maður hefur í Hæstarétti verið
dæmdur í Ijögurra mánaða fang-
elsi fyrir að misnota 12 ára
stúlkubarn kynferðislega og til
að greiða barninu 200 þúsund
króna miskabætur. Atburðurinn
átti sér stað á ættarmóti í sal þar
sem stúlkan svaf. Maðurinn
neitaði sakargiftum og gaf þá
skýringu að hann hafi verið mjög
ölvaður og eingöngu verið að
leita að áfengi.
Atvikið átti sér stað í júní 1997
og tilkynnti hálfsystir stúlkunnar
það til lögreglu. Hún kom að
manninum og sagði móður
þeirra frá því sem hana grunaði.
Hún sá ákærða á vettvangi og
bar að hann hefði verið að hífa
upp um sig buxurnar. Þessu
neitaði ákærði staðfastlega.
Stúlkubarnið bar að maðurinn
hafi verið allsnakinn, náð henni
úr nærbuxunum og gert tilraun
til að misnota hana, en hún með
einhverjum hætti komist frá
honum.
Ákærði hefur níu sinnum
gengist undir sátt og átta sinnum
hlotið dóma fyrir ýmiss konar
brot á tímabilinu frá 1983 til
1997.
Skattsvikamál
ómerkt
Hæstiréttur hefur ómerkt dóm
héraðsdóms, þar sem fram-
kvæmdastjóri fyrirtækis var
dæmdur í 12 milljóna króna sekt
fyrir meint brot á virðisauka-
skattslögum og fleiru. Var mál-
inu vegna galla á málsmeðferð
vísað aftur til héraðsdóms.
Maðurinn var ákærður fyrir
skattalagabrot sem fram-
kvæmdastjóri og stjórnarformað-
ur iðnfyrirtækis. Var ákærði sak-
felldur fyrir þau brot, sem hon-
um voru gefin að sök og dæmd-
ur til að greiða 12 milljóna króna
sekt.
Engar bætux
Hæstiréttur hefur staðfest frá-
vfsunardóm í máli þar sem
Klemenz Jónsson krafðist um
fjögurra milljóna króna bóta
vegna slyss sem hann varð fyrir í
íþróttahúsi Olafsfjarðarbæjar.
Klemenz slasaðist þegar hann
rann til í knattleik og fótur hans
lenti undir brún hlífðarplötu
sem hékk á rimlum íþróttasalar-
ins, 10-15 sentimetra frá gólfi.
Átti platan að nema við gólf og
auðvelt var að færa hana til.
Hæstiréttur taldi að þar sem
Klemenz hefði ásamt fleirum
tekið húsið á leigu til íþróttaiðk-
ana á eigin vegum hafi þeim bor-
ið að gæta þess að útbúnaður
væri í réttu horfi og var ekki talið
að sýnt hefði verið fram á að sú
skylda hafi hvílt á starfsmönnum
Olafsfjarðarbæjar. Var bærinn
jm' ekki talinn bera bótaábyrgð á
slysinu. — FÞG
i