Dagur - 12.02.1999, Qupperneq 6
\ -= « ¥ P t n VÍ p i\ 5t »1- , u B \t i>J, U Ví 'V _«
6-FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1999
ÞJÓÐMÁL
Utgáfufélag:
Útgáfustjóri:
Ritstjóri:
Aðstodarritstjóri:
Framkvæmdastjóri:
Skrifstofur:
Simar:
Netfang ritstjórnar:
Áskriftargjaid m. vsk.:
Lausasö/uverð:
Grænt númer:
Sfmbréf auglýsingadeildar:
Símar auglýsingadeildar:
Netfang auglýsingadeildar:
Simbréf ritstjórnar:
DAGSPRENT
EYJÓLFUR SVEINSSON
ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
BIRGIR GUÐMUNDSSON
MARTEINN JÓNASSON
STRANDGÖTU 31, AKUREYRI,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
460 6100 OG 800 7080
ritstjori@dagur.is
1.800 KR. Á MÁNUÐI
150 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ
800 7080
460 6161
(REYKJAVÍK)563-1615 Ámundi Ámundason
(AKUREYRI)460-6191 G. Ómar Pétursson
OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir
omar@dagur.is
460 6171(AKUREYRI) 551 6270 (REYKJAVÍK)
Viðræður um Kosovo
í fyrsta lagi
Hart er lagt að samningamönnum Kosovo-Albana og Serba að
ná samkomulagi um framtíð Kosovo-héraðs á samningafund-
um sem nú standa yfir í Rambouillet í Frakklandi. Stórveldin
knúðu fulltrúa allra fylkinga til að mæta til viðræðnanna og
hótuðu ella loftárásum á hernaðarskotmörk. Ef einhver árang-
ur næst á fundunum í Rambouillet næstu dagana verður það
einvörðungu vegna þess að Milosevic leiðtogi Serba þorir ekki
lengur að treysta því að hugur fylgi ekki máli hjá forystumönn-
um vestrænna ríkja.
í öðru lagi
I upphafi viðræðnanna lögðu sáttasemjarar stórveldanna fram
tillögu um framtíð Kosovo næstu árin. Þar var meðal annars
gert ráð fyrir þriggja ára reynslutímabili sjálfstjórnar í hérað-
inu, sem yrði áfram hluti af serbneska ríkjasambandinu. Þetta
er málamiðlun sem hófsamari leiðtogar Kosovo-Albana kynnu
að fallast á - ef vestræn ríki tryggja að samkomulagið verði virt
í verki. Það mun vafalaust kosta vopnaðar friðargæslusveitir
NATO-ríkja í Kosovo - enda óhugsandi að friður komist á og
haldist án þeirra.
í þriðja lagi
Það eitt að viðræður um framtíð Kosovo eru hafnar undir for-
ystu stórveldanna er mikilvægt skref í rétta átt. Eftir allar þær
hörmungar sem dunið hafa yfir íbúa héraðsins af völdum her-
sveita og lögreglu Serba tóku vesturveldin loksins á sig rögg og
settu Milosevic og herskáustu Kosovo-Albönunum stólinn fyr-
ir dyrnar. Það er fyrst og fremst komið undir ákveðni og vilja-
styrk forystumanna vesturveldanna hvort viðræðurnar bera ár-
angur og boða bjartari tíð fyrir íbúa þessara stríðsþjáðu
byggða. Vonandi eru atburðir síðustu daga merki um að ein-
ræðisherranum í Belgrad verði loksins mætt af fullri hörku.
Reynist það tálvonir blasir ekkert annað við Kosovo-Albönum
en áframhaldandi ófriður og enn meiri eymd.
Elías Snæland Jónsson
Stöðugleíkiim
Garri hlustaði með andakt á
Davíð Oddsson flytja boðskap
sinn á einhverjum fundi sem
sýnt var frá í sjónvarpinu í
fyrrakvöld. Davíð var að Ieggja
Iínurnar í kosningabaráttunni
og talaði af Iandsföðurlegri yf-
irvegun, eins og honum er ein-
um Iagið. Góðærið er það sem
kjósa á um, voru skilaboð for-
sætisráðherra og Garri sem var
nýbúinn að skila inn skatta-
skýrslunni sinni, vissi í hjarta
sínu að foringinn hafði lög að
mæla. Að vísu hafði launaupp-
hæðin á skattframtalinu ekki
hækkað neitt frá framtalinu
árið áður sem Garri
notaði til viðmiðun-
ar við útfyllinguna.
Satt að segja hefði
Garri bara getað
skilað gamla fram-
talinu. Og skuldirn-
ar voru lfka svipaðar
kannski örlítið
meiri, en ekkert sem
tekur því að tala um.
En góðærið er ekki
bara hærri laun og
minni skuldir. Það er svo
miklu meira.
Eyða og speirna
Góðærið sem Davíð gefur felst
mest í stöðugleikanum. Það er
til lítils að vinna sér inn pen-
inga ef þeim er síðan eytt jafn-
harðan aftur í einhveija bölv-
aða vitleysu. Stöðugleikinn
felst nefnilega í aðhaldseminni
og það var einmitt það sem
Davíð Iagði áherslu á. „Við
eyðum ekki og spennum,"
sagði Davíð og Garri fann
hvernig geðshræringin hríslað-
ist um hann - hvílíkt lán að
eiga slíkan mann að foringja!
Allar hugsanir um að kannski
væri nú gott ef góðærið sýni
sig í hærri tölu á skattframtal-
Davíð
inu að ári hurfu sem dögg fyr-
ir sólu. Það er stöðugleikinn
sem skiptir máli og þótt menn
fái kannski eitthvað mismikið
af launakökunni og af skulda-
súpunni fá allir sinn skammt
af stöðugleikanum.
Geöshræring
Geðshræring Garra náði þó
hámarki þegar Davíð benti
þjóð sinni á hvaða valkosti hún
hefði. Vilja menn kannski hina
flokkana sem eru að lofa öll-
um öllu og ætla að eyða öllum
stöðugleikanum?! Eða eins og
Davíð orðaði það svo
eftirminnilega og
með nánast ódauð-
legum hætti: sem
eru eins og „minkar í
hænsnakofanum"!
Nei, ó nei! „Það vil
ég ekki Þjóðunn
kvað“, eins og segir í
gömlu ljóði. Hvorki
Garri né þjóðin hef-
Oddsson. ur áhuga á slíkum
jólasveinum f ríkis-
stjórn. Það er aðeins
tvennt hættulegt í þessum
heimi: að leika sér að eldinum
og að leika sér að stöðugleik-
anum. Upphrópanir um að
þessi eða hinn sé að missa af
góðærinu sýnir ótrúlegt skiln-
ingsleysi á kjarna góðærisins.
Góðærið er stöðugleikinn og
stöðugleikinn er langlyndur,
hann er góðviljaður, öfundar
ekki, stöðugleikinn er ekki
raupsamur og hreykir sér ekki
upp, hann hegðar sér ekki
ósæmilega, hann breiðir yfir
allt, trúir öllu, vonar allt og
umber allt. Stöðugleikinn fell-
ur aldrei úr gildi. Hann er eins
og Davíð - kjölfesta okkar.
GARRI
ODDUR
ÓLAFSSON
skrifar
Gróskan í efnahagslífinu er
hreint út sagt ofboðsleg. Allt er
að bólgna út og vaxa. Hagvöxtur-
inn vex og vex, útflutningurinn
eykst og innflutningurinn enn
meira, kaupið hækkar og skatt-
amir hækka, launabilið vex að
sama skapi, verðgildi fiskveiði-
kvóta vex og gróðinn af nýseldum
ríkisfyrirtækjum eykst ár frá ári,
hlutabréfin hækka, umferðin
eykst, túristum fjölgar og utan-
landsferðum enn meira, stóð-
hestaeignin vex sem og bílafloti.
Ekki veit maður hvar á að bytja
eða enda þegar reynt er að telja
upp dæmi um vöxtinn í hagsæld-
inni á endalausum góðærum sem
Davíð & Co hafa leitt yfir þjóð-
ina. Þeir ríku verða ríkari með
hveiju árinu sem Iíður og hinir
fátæku verða fátækir áfram, sem
er mikil framför frá þvf að þeir
verði fátækari eftir því sem ríki-
dæmið vex. Það ríkir nefnilega
marglofaður stöðugleiki í fátækt-
inni en óróinn er samansafnaður
Öbærilegur vöxtur góðærisms
í auðsöfnuninni, sem er af hinu
góða samkvæmt trúnni á mark-
aðslögmálið, sem trúboðar heima
og heiman boða af einlægum trú-
arhita.
Vöxturinn í lánakerfunum er
vitnisburður um hve auðsöfnun-
in lánast prýðilega. Lánin eru
að við erum svo miklu duglegri
að kaupa í útlöndum og flytja inn
en að skapa verðmæti í landinu
og selja til útlanda. Miklu fjár-
magni er varið til að fá okkur til
að kaupa sem mest og sem dýrast
og er auglýsingabransinn ein
helsta máttarstoð viðskiptalífsins
stjórnmálafólki í
ingabaráttunnar.
vígahug kosn-
Dugleg að kaupa
Það sem vex einna hraðast í góð-
æri efnahagssveiflunnar er vöru-
skiptahallinn. Það helgast af því,
forðanum, er farið að gefa aðvör-
unarmerki um að allur vöxtur sé
ekki til hagsbóta, svo sem eins og
aukning vöruskiptahallans.
Lífsstíll aó láni
Þar sem stutt er til kosninga er
séð svo um að skilaboð Þjóðhags-
stofnunar og Seðlabanka séu
mátulega loðin, svo að ekki verði
eftir þeim tekið. Skárra væri það
nú ef embættismenn ætluðu nú
að fara að skýra atkvæðunum frá
því, að góðærið byggist á fölskum
forsendum. Svo sem eins og
þeim, að glæsilegur IífsstíII mið-
stéttarinnar sé tekinn að láni og
að okkar góðu markaðir erlendis
standi ekld undir kaupæðinu og
neysluþörfum sem magnaðar eru
upp af trúboðum hagvaxtar sem
ekki á sér takmörk.
Til er ráð til að losna við gjald-
eyrisþurrð. Það er að leggja niður
krónuna og taka upp evruna. Þá
verður aldrei gjaldeyrisskortur,
en verið gæti að evrusjóðirnir
tylldu illa í landinu. En Islend-
ingar hafa þá fyrr pissað í skóinn
sinn og slampast gegnum góðær-
in, sem ávallt eru efnahagslífinu
skeinuhættari en mögru árin.
ro^tr
FórBjöm Bjamason
yfir strikið með því að
líkja borgarstjóra við
Pol Pot ípistli á heima-
síðusinni?
Vilhjálmur Egilsson
þ ingmaður Sjálfstæðisflokks.
„Ég skyldi
þetta alis ekki
þannig að
Björn Bjarna-
son væri í
þessum pistli
sínum á Net-
inu að líkja
borgarstjór-
anum við Poi Pot. Til dæmis er
ekki hægt að setja samsemmerki
milli manns sem drekkur einu
sinni eitt rauðvínsglas og forfall-
ins alkóhólista, þó báðir eigi það
sameiginlegt að hafa drukkið
áfengi.“
Raimveig Guðmimdsdóttir
þingmaðnrjafnaðarmanna.
„Þessi umæli
Björns
Bjarnasonar
ásamt því
sem Davíð
Oddsson
sagði um
Samfylking-
una sýna
mikla taugaspennu í herbúðum
Sjálfstæðisflokksins. Samlíking
menntamálaráðherrans, að líkja
borgarstjóranum við alræmdan
stríðsglæpamann, er að fara svo
gjörsamlega yfir strikið að þau
hitta engan fyrir nema hann
sjálfan."
Valdimar H. Jóhannesson
kvótabani.
„Það henti
mig um dag-
inn að láta of
sterk orð falla
um Ingi-
björgu Sól-
rúnu og Dav-
íð Oddsson í
blaðaviðtali,
sem ég síðar baðst afsökunar á.
Það er sitthvað hvað maður get-
ur sagt í tveggja manna tali eða á
opinberum vettvangi. Svona
orðalag getur maður kannski
notað í einkasamræðum til þess
að undirstrika rækilega hvað
maður er að fara. En Ingibjörg
Sólrún er ekki Ijöldamorðingi,
þó ég geti hinsvegar verið sam-
mála Birni Bjarnasyni um að ég
hrífst ekki af henni sem stjórn-
málamanni. Einræðistilburðir
hennar eru mér ekki að skapi."
Indriði G. Þorsteinsson
„Þessi um-
mæli tel ég
mjög ósann-
gjörn. Pol Pot
drap ekki
nema þrjár
milljónir
manna og
hauskúpurnar
eru hafðar til sýnis í Kambódíu.
Ingibjörg Sólrún hefur ekki mér
vitanlega drepið nokkurn, en sett
hroll í suma. Mér hefur alltaf lik-
að vel við hana, þótt vinstri
manneskja sé, og dettur ekki í
hug að kenna hana við Pol Pot.“
rithöjundur.