Dagur - 12.02.1999, Blaðsíða 10
10-FÖSTUDAGUR 12. VEBRÚAR 1999
SMflflUGLYSINGAR
Tapað - fundið Mjög góður og vel með farinn kæliskápur
1 húsi aldraðra fimmtudaginn 4. febrúar týndust lyklar, einn billykill af Peugot, og fjórir aðrir sem voru á sama hring. Finnandi vinsamlega hafi samband við afgreiðslu Dags, Strandgötu 31, Akureyri. m/frysti (kæli- og frystiskápur) H175xB58xD59, hvítt hjónarúm, 160x200, hvítt barna-rimlarúm, ársgamall Peg Perego barnastól! og svartur Ikea furu- skápur m/glerhurðum.
Atvinna alla virka daga og í síma 462-1848 eftir kl. 17 og um helgar.
50-150 þús. fyrir hálft starf, 150-500 þús.+ fyrir fullt starf. Vantar dreifingaraðila um allt land. Hafðu samband í síma 462 7727 eða 852 9709. Jóhanna.
Ýmislegt
Bingó - Bingó Bingó verður að Bjargi Bugðusíðu 1,
Til söiu sunnudaginn 14. febrúar kl. 14. Spilaðar verða 12-14 umferðir. Barnabingó. Allir vel-
Er þér alvara að létta þig? Taktu málin í þínar hendur, við aðstoðum þig. 100% náttúrulegar vörur, 98% árangur í megrun. Fríar prufur. Jóhanna Harðardóttir, s. 462 7727 og 852 9709. komnir. Spilanefnd Sjálfsbjargar á Akureyri.
Skattframtai
Bókhalds- og framtalsaðstoð fyrir einstak- linga og fyrirtæki. Athugið að mögulegt er aö senda nauðsyn-
Tii söiu leg gögn í pósti. Saga viðskiptaþjónustan ehf.
Rýmingarsala á H-næringarvörum 9.900 kr. mánuðurinn. Viltu bæta heilsuna og eða grennast? H-ráðgjafi Ragnhildur sími 699 2126. Kaldbaksgata 2, 600 Akureyri Símar 462-6721, 899-1006 Heimasíða: est.is/~saga
Hin fullkomna næringarvara
Við erum nr. 1 og erum að taka heiminn meðtrompi!
Láttu þér líða vel á likama og sál!
Auðveld leið til að grennast. Höfum einnig frábærar
snyrtivörur og glænýja förðunarlínu.
Allt 100% náttúruleg vara.
Visa/Euro. Sendum í póstkröfu. S:8691643 og
8691514. E-mail stp@here.is
Þvottahúsid Glæsir
Skógarhlið 43, 601 Akureyri
fyrir ofan Byggingavörudeild KEA
Tökum alhliða þvott
allt fró útsaumuðum dúkum •n
og gardínum til vinnu- og 461 -1735 og 461 -1386
skíðagalla Opið frá 12- 18 virka daga
Sœkjum - sendum
HAGKAUP - AKUREYRI
» %■ ’#J1§ ÉÍÍÍÍfÉa^ Í
Kenni á Subaru Legacy.
Tímar eftir samkomulagi. Útvega námsgögn.
Hjálpa til við endurnýjunarpróf.
Ingvar Björnsson
ökukennari frá KHÍ Akurgerði 11 b, Akureyri
Sími 899 9800 Heimasími 462 5692
ðKUKENHSLA
PETUR
GAUTUR
eftir Henrik Ihsen
Sýningar:
Fös. 12. feb. kl. 20
Lau. 13. feb. kl. 20
ALLI?A
SÍÐUSTU
SÝNINGAR!
Glefsur úr
leikdómum:
„Hið vandasama aðal-
hlutverk leikur Jakob Þór
og ferst það vel úr hendi.
Framsögn hans ertil fyrir-
myndar og leikurinn af-
burðagóður."
„Leikur, búningar, tónlist,
leikmynd og lýsing
mynda mjög sannfærandi
heild þar sem textinn er
gerður að lifandi afli sem
hrífur áhorfandann með
sér."
Sveinn Haraldsson MBL
„Uppsetning Leikfélags
Akureyrar á Pétri Gaut
hlýtur að teljast leiklist-
arunnendum á Akureyri
og í nærsveitum kær-
komið tækifæri til þess
að njóta einnar af perlum
leikbókmenntanna. Þeir
ættu ekki að láta það
fram hjá sér fara."
Haukur Ágústsson Degi
„Sveinn Einarsson leik-
stjóri hefur skilað hreint
frábæru verki. Svona á
leikhús að vera og það er
einfaldlega fullkomin
sýhd að láta þessa sýn-
ingu fram hjá sér fara."
Þórgnýr Dýrfjörð RÚVAK
„Leiftrandi skemmtileg
sýning þar sem ævintýrið
er höndlað í eftirminni-
legum atriðum. Ógleym-
anlegt."
Auður Eydal DV
TEATER
œ
DANS
I N O R D E N
LEIKFÉLAG
AKUREYRAR
SÍMI 462 -1400
FRÉTTIR
Klúöur á KÚV
Útvarpsstjóri tekur upp þykkjuna
fyrir útvarpsráð með svari við
grein minni í Degi þriðjudag.
Hún snérist um það óheillamál
RÚV að missa frá sér vinsælasta
útvarpsþáttinn á Rás 2 yfir til
Bylgjunnar, vegna skamma til
dagskrárgerðarmannsins úr út-
varpsráði. Ráðsmenn sem það
stunda voru gagnrýndir harðlega
fyrir að láta bera skammir og
ávirðingar sem særa starfsheiður
dagskrárgerðarmannsins, en
gera það eftir óformlegum leið-
um og án þess að opinbert sé eða
fært til bókar. Þetta er óvönduð
stjórnsýsla og ófagleg vinnu-
brögð sem alltof lengi hafa
tíðkast í útvarpsráði.
Útvarpsstjóri telur það alvar-
lega villu á málflutningi að
greina ekki frá því að launakröf-
um dagskrárgerðarmannsins var
ekki mætt til fulls af RÚV. Það
væri vissulega villandi ef rót
vandans væri, eða um stórar
upphæðir að ræða. Þar sem út-
varpsstjóri hefur kosið að gera
þetta að meginatriði leyfi ég mér
að ljóstra upp því sem eftir-
grennslan hefur Ieitt í Ijós: Mis-
munurinn á því sem RÚV vildi
greiða dagskrárgerðarmannin-
um, og því sem hún vildi fá fyrir
hvern þátt, var 1000 kr.
Er Iíklegt að sú upphæð hafi
valdið straumhvörfum hjá starfs-
manni með átta ára farsælan fer-
il að baki?
Þakkir ráðsins
Útvarpsstjóri vitnar í lofsamlegar
bókanir ráðsins á liðnum árum
um úvarpsþáttinn og mótmælir
„kröftuglega" þeim orðum mín-
um að dagskrárgerðarmaðurinn
hafi sætt skömmum og borinn
ávirðingum frá einstökum ráðs-
mönnum. Staðreynd er að það
gerðist þrásinnis nú á nokkrum
mánuðum. Það er staðfest af
fleiri en einum. Sjálfur er ég
þeirrar skoðunar að hér hafi ver-
ið venjulegt ómerkilegt nagg á
ferðinni, af sömu tegund og
starfsmenn RÚV hafa setið und-
ir um áraraðir. Hvernig getur út-
varpsstjóri mótmælt því sem dag-
skrárgerðarmaðurinn upplifir
með eigin eyrum? Það er hvers
og eins að meta hve lengi og hve
oft hann eða hún nenna undir að
sitja.
Útvarpsráð hefur mikilvægu
hlutverki að gegna, gæta hags-
muna almennings og vernda
sjálfstæða dagskrárgerð í fjöl-
miðlaheimi sem er alltof fátækur
af slíku. Þetta fáránlega mál er
hins vegar af nákvæmlega sama
sauðahúsi og mörg önnur und-
anfarin misseri hjá ráðinu. Nú
klúðrar RÚV íyrir hlustendum
sínum enn einu sinni. Þetta er
kjarni málsins. Það er óviðun-
andi fyrir unnendur Ríkisút-
varpsins að það setji niður æ
ofan í æ vegna þeirrar þráhyggju
að starfsmenn séu vandamál en
Kjósumi prófkjörinu!
SIGRÚN
SVEINBJÖRNS
DÓTTIR
ttjm Zt| sálfræðingurskrifar
Prófkjör Samfylkingarinnar á
Norðurlandi eystra fer fram á
morgun, 13. febrúar, þar sem
kosið verður um efstu menn á
sameiginlegum lista Alþýðu-
bandalags og Alþýðuflokks fyrir
komandi alþingiskosningar.
Stefnir í spennandi kosningar,
því sex verðugir fulltrúar gefa
kost á sér til forystu. Alþýðu-
bandalag og Alþýðuflokkur sam-
eina nú í íyrsta sinn krafta sína
fyrir kosningar og Ieggjast þar
með á eitt í baráttunni fyrir
jöfnun tækifæra og lífskjara í
landinu. Til að tryggja Samfylk-
ingunni gott brautargengi, er
mikilvægt að menn sýni sam-
stöðu nú þegar með því að taka
þátt í prófkjörinu um helgina.
Með nokkrum orðum vil ég
kynna þann, sem ef til vill er
minnst þekktur meðal frambjóð-
enda, en það er ung baráttukona,
Kristín Sigursveinsdóttir. Kristín
gekk til liðs við Alþýðubandalagið
fyrir 5 árum og hefur á þeim tek-
ið að sér íjölmörg trúnaðarstörf
af elju og ósérhlífni, ýmist innan
flokksins eða í nafni hans. Hún
hefur áunnið sér traust í flokks-
félagi Alþýðubandalagsins á Ak-
ureyri, því ekki dylst þeim sem til
þekkja, að þar fer snörp köna og
dugleg. Með þessa pólitísku
þjálfun að baki, er Kristtn reiðu-
bújn að halda lengra og gefur nú
kost á sér til forystu í prófkjöri
Samfylkingarinnar.
Á oddinn setur Kristín hug-
sjónina að allir hafi jafnan rétt og
þvá þurfi og verði að jafna tæki-
færin þannig að einstaklingar og
hópar njóti réttar síns. Hún
bendir sérstaklega á jöfnun tæki-
færa til menntunar og atvinnu,
og eins að jafna tækifæri byggða,
kynja og þjóðfélagshópa. Vegna
starfa Kristínar til margra ára við
iðjuþjálfun þekkir hún gjörla
þarfir geðfatlaðra, þroskaheftra,
aldraðra og annarra, sem tíma-
bundið eða varanlega búa við
skerta getu. Sama á við um þarf-
ir barna og barnafjölskyldna, þar
sem börn hennar tvö eru ung að
árum. Reynsla Kristínar af
mannlegum málefnum og virk
þátttaka hennar undanfarin ár í
sveitarstjórnarmálum gerir hana
verðugan fulltrúa í prófkjörinu á
laugardaginn kemur.
Eg hvet alla flokksbundna AI-
þýðubandalagsmenn og Alþýðu-
flokksmenn og alla óflokks-
bundna félagshyggjumenn að
láta sig prófkjörið varða.
Kjósum í prófkjöri Samfylking-
arinnar á Iaugardagijjn! ...