Dagur - 24.02.1999, Page 3
MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 1999 - 19
LÍFIÐ í LANDINU
Engir
Skáladraugar
- Sæl og blessuð, Bryndís. Þið
á Selfossi stóðuð að Skála-
kvöldi í Tryggvaskála sl. föstu-
dagskvöld. Margar sögur eru
til um þetta elsta hús bæjar-
ins, en í auglýsingu sagði að
vafalaust myndi Þór Vigfús-
son, sem var sögumaður á
Skálakvöldi, segja draugasög-
ur. Þú ert alin upp í þessu
húsi og þekkir málið vel; eru
draugar í Skálanum?
„Það held ég ekki. Þetta var
látið fljóta með til gamans í aug-
lýsingunni enda hefur Þór Vig-
fússon gaman af slíkum sögum.
Nei, ég varð aldrei vör við
drauga í húsinu á mínum upp-
vaxtarárum. Þó er til saga um að
snemma á öldinni hafi ung
stúlka ráðið sig í vist hjá Guð-
mundu, sem þá sá um skálann -
og nokkru áður en hún átti að
mæta til starfa segir sagan að
unnusti hennar hafí komið og
fengið greidd laun hennar fyrir-
fram. Nokkrum dögum síðar lést
hún, og daginn sem hún átti að
hefja störf þóttist fólk heyra
undarlegan umgang í húsinu.
Annars hef ég miklu meiri trú á
þti að góðar vættir séu í húsinu,
oft Iá nærri að þarna yrði elds-
voði í gamla daga en aldrei kom
neitt fyrir.“
- Og nú stendur til að fara
að gera Tryggvaskála uppr
„Já, bæjaryfirv'öld hafa afhent
okkur Skálann til endurupp-
byggingar og munu næstu sex
árin veita til okkar tólf milljón
króna upphæð til endurbygging-
arinnar. Hún verður í áföngum,
nú þegar er búið að setja nýtt
þak á húsið og í sumar verður
skipt um klæðningu. Þegar end-
urbyggingu lýkur stendur til að
■ koma húsinu í einhvern rekstur,
til dæmis tengdan ferðaþjón-
ustu.“
- Má ekki ætla að flestir
Selfossbúar eigi minningar
tengdar Tryggvaskála?
„Vafalaust. Foreldrar mínir
ráku þennan stað lengi og ég
man að þarna voru fundir allra
félaga, bændafundir, böll, erfi-
drykkur og margt fleira. Þetta
var skemmtilegur staður."
- Eg sé það í Dagskránni að
þessa dagana er tískuvöruversl-
un þfn á Selfossi, Lindin, 25
„Bæjaryfirvöld hafa afhent okkur
Skálann og munu á næstu sex árum
veita til okkar tólfmilljón króna upp-
hæð til að endurbyggja hann, “ segir
Bryndís Brynjólfsdóttir á Selfossi.
ára. Hvernig hefur reksturinn
gengið í gegnum tíðina?
„Það hefur verið upp og ofan.
Sum ár hafa verið góð og önnur
slakari. En nú er góðæri í land-
inu og það verðum við vör við.
Samkeppni okkar er mest við
Keykjavíkursv'æðið, en einnig við
útlönd. Við höfum orðið vör við
aukinn áhuga ferðafólks á að
líta við hjá okkur því úrvalið af
fatnaði er töluvert. Við seljum
dömufatnað á alla aldurshópa.
Við erum einungis með eigin
innflutning og það kemur fram í
lægra vöruverði.11
„Sveitastörf ekki þannig að þetta sé
sérstök erfiðisvinna og að þvíleyti
lítið eftir að slægjast fyrir lögguna, “
segir Gústaf Magnús Ásbjarnarson,
formaður Nemendafélags Bænda-
skólans á Hvanneyri
Umhverfis landi
........—f—-------
I 1
á áttatíu simsferefi
Sigurður Bogi Sævarsson, slær á þráðiun og kannar mannlííið í landinu.
Ræningj adóttirm
sett á svið
Bændur tipp
topp í kollinum
- Sæll Gústaf. Þú ert formaður
Nemendafélags Bændaskólans á
Hvanneyri. Hvaðan ert þú af
Iandinu og ætlar þú að verða
bóndi?
„Ég er frá Asbjarnarstöðum í
Stafholtstungum. Já, ég hef hugs-
að mér að leggja landbúnað fyrir
mig í framtíðinni; þetta er grein
sem margir hafa gott uppúr þó
það auðvitað ráðist af því hvernig
bú eru rekin og hver stærðin sé.“
- Ætlar þú að verða bóndi á
Asbjarnarstöðum?
„Það er nú óvissuþáttur í
þessu. Foreldrar mínir eru ekki
nema um 45 ára og bregða ekki
búi strax. Ég hef því í hyggju að
fara í framhaldsnám í búvísind-
um, þannig að ég geti starfað í
framtíðinni við kennslu og leið-
beiningastörf. Þar eru að mínu
mati miklir möguleikar. Með námi þessu er ég bæði að skapa mér at-
vinnumöguleika, en landbúnaður er lfka áhugamál mitt.“
- Hvaðan eru krakkarnir sem núna eru í bændaskólanuin og
hvert fórst þú í starfsnám?
„Krakkarnir eru mikið að norðan. Frá Skriðu í Hörgárdal koma
Sigríður Sverrisdóttir og Þór Jónsteinsson, Gunnfríður Elín Hreið-
arsdóttir frá Svertingsstöðum í Eyjafirði, Karl Ingi
Atlason frá Hóli í Svarfaðardal og Inga
Hrönn Flosadóttir frá Höfða í
Höfðahverfi. Starfsnám tók
ég á Spóastöðum í Biskups-
tungum hjá Þorfinni Þórar-
inssyni bónda. Starfsnám
er 79 dagar og 520 vinnu-
stundir og þú þarft í því að
halda dagbækur um vinnu
þína, skila grasasafni með
40 jurtum og korti sem þú
teiknar af staðháttum þar sem
þú ert. - Það er talsverður
munur á búskap á Suðurlandi og á
Norðurlandi, þar sem ég þekki vel til.
Nyrðra er þurrviðrasamt og því heyja
menn meira í rúllur þar en á Suðurlandi. En mannlíf er hvarvetna svipað; í sveitum er
fólk alltaf að bjóða í kaffi og spjalla saman."
- Nú er frægt að löggan leitaði mikið eftir því á sínum tíma að fá í sínar raðir
stráka sem voru að koma úr bændaskóla og þóttu sterkir. Eru þeir að bera víurnar
í ykkur?
„Þetta hef ég nú aldrei heyrt. Meðalhæð okkar í bekknum er ekki nema 1,75 m. og
enginn er mjög sterkur. Sveitastörf í dag eru ekki þannig að þetta sé sérstök erfiðis-
vinna og því eftir Iitlu að slægjast fyrir lögguna. Það sem máli skiptir fyrir bændur er að
þeir séu tipp topp í kollinum því starfsumhverfið verður sífellt flóknara og hvert meðal-
bú er fyrirtæki sem veltir tugum milljóna króna.“
- Sæl Elísabet. Ég hringdi til að
grenslast fyrir um hvað væri að gerast
í Hjaltadal, mér var sagt að þú værir
orðin formaður kvenfélagsins þarna.
Ertu þá ekki alltaf að baka...
„Jú, ég er orðinn formaður félagsins
og við erum vissulega stundum að baka.
Sjáum til dæmis um aðventukaffi hér í
dal fyrir jól, á kjördag er það kosninga-
kaffi, þar sem er boðið uppá kaffi og
kleinur - og síðan sjáum við líka um erfi-
drykkjur. Frá áramótum höfum við séð
um tvær slíkar. En starf í kvenfélagi
snýst um fleira en bara bakstur. Bakstur
er íjáröflunarstarf félagsins, en það hef-
ur mikið snúist um að efla grunn- og
Ieikskólann hér í Hjaltadal, sem nú eru
komnir undir eitt þak einsog þið sögðuð
frá í Degi um daginn."
- Ykkar maður þarna í Hjaltadal,
Jón skólastjóri á Hólum, var meðal
þátttakenda í prófkjöri Samfylkingar-
innar á Norðurlandi vestra. Þið hafið
staðið þétt með honum?
„Að minni hyggju má segja að próf-
kjörið hafi í raun verið byggðakosningar.
Fólk i hverri byggð reyndi sem best það
gat að tryggja sinn frambjóðanda. En
annars varð ég nú ekki mikið vör við
þetta prófkjör, til dæmis markvissa smöl-
un á kjörstað. Mesti fyrirgangurinn var í
afmörkuðum hópum.“
- Þú ert kennari í Grunnskólanum á
Hólum. Hvað er að gerast í skólastarf-
inu?
„Nú er það árshátíð á föstudaginn.
Þar munu nemendur setja á svið leikritið
um Ronju ræningjadóttur, sem við erum
búin að æfa sfðan um áramót. AHir nem-
„Starfí kvenfélagi snýst um fleira en bara
bakstur, “ segir Elísabet St. Jóhannsdóttir,
kennari á Ásgarði í Viðvíkursveit.
endur skólans taka þátt í uppsetningu og
góðrar Iiðveislu leikfélaga hér á Norður-
landi njótum \að, meðal annars með láni
á búningum. Mig langar að koma á
framfæri þakklæti til þessara félaga.“
- Segðu mér meira um kvenfélagið í
Hjaltadal. Hvað eruð þið margar í því
og hvað gerið þið ykkur helst til
dægradvalar?
„Við konurnar í félaginu erum 11 og
við gerum okkar margt til dægradvalar.
Hittumst alltaf reglulega og á vorin reyn-
um við að fara saman í skemmtiferð. SI.
vor var nú engin ferð farin en þess í stað
fórum við saman út að borða og sáum
leiksýningu á Sauðárkróki. Ekki er búið
að ákveða hvað við gerum í vor.“
Og færð eftlr því
- Sæll Friðfinnur. Það
var mikið gera hjá ykk-
ur hjálparsveitarmönn-
um á Akureyri um
helgina...
„Já, það var talsvert.
Síðdegis á föstudag vor-
um við kallaðir út til
þess að aðstoða öku-
menn í tveimur bílum
sem sátu fastir uppi á
Oxnadalsheiði. Skyggni
á heiðinni var slæmt og
færðin eftir því. En við
fórum upp og náðum í
ökumennina og okkur
tókst jafnframt að koma
öðrum bílnum í bæinn.
Þegar við komum svo í
bæinn aftur beið okkar
það verkefni að fara aðra
ferð, þá með ábúendur á Engimýri. Úr
þessum verkefnum báðum vorum við
komnir klukkan hálf fjögur aðfaranótt
laugardagsins og vorum þá búnir að vera
að í nærri ellefu tíma.“
- Eitthvað meira hafið þið aðhafst?
„Jú, á laugardag vorum við með snjó-
flóðaæfingu sem fjöldi Iiðsmanna okkar
tók þátt í. Við erum með hund sem not-
aður er í leitir ef þess þarf og það fer
einmitt mikill tími í að halda honum í
þjálfun, sem var meðal þess sem vakti fyr-
ir okkur með æfingunni
á laugardag. í bráðabýti
á sunnudag vorum við
síðan mættir á vaktina
enda hafði mikið snjóað
um nóttina. Við keyrð-
um starfsfólk FSA til og
frá vinnu og ldpptum í
bíla sem sátu fastir hér
og þar. En reyndar
hafði veður svo mikið
gengið þegar leið á
sunnudaginn að verk-
efni voru minni en við
ætluðum."
- Þó þessi stórhríð
sé afstaðin þá er Adam
sjálfsagt ekki kominn í
Paradís?
„Nei, hvað varðar
vetrarveður og ferðalög
eru páskarnir alltaf krítískur tími. Þá er
komið fram á þann tíma þegar svo margir
fara á fjöll og þá hefur gjarnan farið svo
að menn týnast. Gjarnan hafa slíkar leitir
bjá okkur verið þetta ein til tvær á vetri
og þá ekki síst hér inni á Glerárdal. Um
páska höfum við björgunarsveitarmenn á
Akureyri reynt að halda okkur í bænum
ef einhversstaðar er hjálpar þörf, og
einsog ég segi er það ekki síst á þessari
helgu hátíð.“
„Hvað varðar vetrarveður og ferðalög
eru páskar krítískur timi, “ Friðfinnur
Freyr Guðmundsson, hjálparsveitar-
maður á Akureyri.