Dagur - 27.02.1999, Page 4

Dagur - 27.02.1999, Page 4
4- LAUGARDAGUR 27. FERRÚAR 1999 StUOlíl Félagi Svavar kvaddur Svavar Gestsson þingmaður tekur við sendiherra- stöðu í næsta mánuði og verður af þeim sökum að hætta á þingi og segja sig úr Alþýðubandalaginu. Fé- lagar hans í flokknum hafa því ákveðið að efna til veislu næstkomandi föstudag til að heiðra Svavar eft- ir 20 ára þingsetu og fjölmörg trúnaðarstörf fyrir flokkinn. Veislan verður í Iðnaðarmannahúsinu við Hall- veigarstíg föstudaginn 5. mars og verður húsið opn- að kl. 19. Það mun kosta 2.500 krónur fyrir mann- inn að taka þátt, en innifalið er matur; sjávarréttafor- réttur, lambakjötsréttur og ís. Ekki eru öll dagskráratriði veislunnar komin á hreint, en reiknað er með ræðum frá formanni flokksins og formönnum félaga innan flokksins, Margréti Frímannsdóttur, Kol- beini O. Proppé, Helga Hjörvar og Sigþrúði Gunnarsdóttur. Auk þess fer fram leit af þeim manni eldri kynslóðarinnar sem getur rifjað gömlu tímana betur en þetta unga fólk. Þegar það er búið spilar hljómsveit hússins og dansinn dunar fram á rauða nótt. Svavar Gests- son. Búnaðarþing 100 ára Búnaðarþing verður sett á Hótel Sögu á sunnudag klukkan 14.00 Þingið hefst með hátíðardagskrá í tilefni 100 ára afmælis Búnaðar- þings sem er öllum opin. Ari Teitsson, formaður Bændasamtaka ís- Iands, setur þingið og Guðmundur Bjarnason, landbúnaðarráðherra og Jón Helgason, fyrrverandi formaður Búnaðarfélags Islands flytja ávörp. Matthías Johannessen, skáld, flytur hátíðarræðu og Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps syngur. Byggðamál og skipulag félagssamtaka bænda verða að líkindum fyr- irferðarmest á þinginu. Starfshópur á vegum landbúnaðarráðherra vinnur nú að endurskoðun búvörulaga með tilliti til flutnings verk- efna frá Framleiðsluráði landbúnaðarins til Bændasamtaka íslands og stefnt er að því að kynna Búnaðarþingi tillögur hópsins. Skýrsla nefndar um stefnumörkun og starfsemi BI með tilliti til þessa verk- efnaflutnings verður einnig lögð íyrir þingið. — GG Rangur Hreggviöur 1 þættinum „Smátt og stórt“ í Degi á fimmtudaginn birtist röng mynd með tilvitnuninni „Gullkorn.“ Þar var vitnað í ummæli sem Hreggviður Jónsson, íyrr- verandi alþingismaður, Iét falla í blaðagrein, en með greininni birtist hins vegar mynd af nafna hans - Hreggviði Jónssyni hjá Islenska útv'arpsfélaginu. Þeir eru beðnir velvirðingar á þessum mistökum. Hreggviður Jónsson, fyrr- verandi alþing- ismaður. Stjómvöld auka á vausæmd sína „Enn ætla íslensk stjórnvöld að auka á vansæmd sína í umhverfismál- um,“ segir í samþykkt framkvæmdastjórnar Frjálslynda flokksins, þar sem ríkisstjórnin er harðlega gagnrýnd fyrir að hafa ekki undirritað Kyoto-bókunina, eitt allra landa innan OECD. Segja frjálslyndir að Island hafi því kosið að einangra sig í alþjóðlegri umræðu um um- hverfismál og að stjórnvöld hafi kallað skömm yfir íslendinga með því að fresta undirritun bókunarinnar. Segir í lok samþykktarinnar að „mengun eins ráði framtið annars.“ - s.DÓR Sókn gegn sjálfsvígiim Frelsið-kristileg miðstöð opnar um helgina nýtt húsnæði að Héðins- götu 2 í Reykjavík. Um ræðir verulega stækkun frá fýrri aðstöðu og ætlunin að auka við öll umsvif starfsins. Meðal nýjunga í starfinu er að hjálparstarf sem Frelsið rekur undir nafninu Sókn gegn sjálfsvíg- um opnar hjálparlínu þar sem ráðgjafar verða við símann allan sólar- hringínn en einnig er rekið athvarf í miðbæ Reykjavíkur sem opið er hvert föstudagskvöld. Símanúmerið er 577 5777. Vilja fulltrúa í baukaráð Á aðalfundi starfsmannafélags Búnaðarbankans í fyrakvöld var sam- þykkt ályktun þar sem þess er farið á leit við viðskiptráðherra, að hann heimili starfsmönnum og öðrum óbreyttum hluthöfum að kjósa einn mann í bankaráð bankans á næsta aðalfundi. Jafnframt vill að- alfundur Starfsmannafélagsins að aðalfundur bankans verði haldinn á laugardegi í Háskólabíói í Ijósi þess að um almenningshlutafélag með tugþúsundum hlutafa er að ræða. Rætt iim beiiiþynningii Málþing Lars Hyldstrup og Ingvar Teitsson skoða tæki til mælingar beinþynn- ingar í mjöðm á FSA í vikunni. um beinþynningu kvenna eftir tíðarhvörf var haldið í Reykjavík og á Akureyri í vik- unni. Helstu sérfræðingar lands- ins ásam danska sérfræðingnum Lars Hyldstrup komu við sögu á þessum málþingum. Beinbrot sem rekja má til beinþynningar valda miklu álagi á heilbrigðis- þjónustuna. Sjúklingum með mjaðmabrot hefur fjölgað úr 218 árin 1965-1969 í 755 árin 1990- 1995. Árlegur kostnaður af þess- um beinþynningarbrotum er þeg- ar mjög hár og er nú áætlaður um 500-700 milljónir árlega. FRÉTTIR .TJxgur Auglýsingaherferð Örykjabandalagsins er talin kosta eitthvað á aðra milljón króna. Auglýsingastríd á aðra milljón króna Öryrkjar múma á bága stöðu sína. Undrun hjá stjórnar- liðum. Herferð í vor. Framboð nr sögunni. „Það var ákveðið að ráðast í þetta núna vegna þess að síðasta þingi kjörtímabilsins er að ljúka. Það þótti því rétt að minna menn á stöðu öryrkja rétt áður en þeir taka slaginn," segir Helgi Seljan hjá Oryrkjabandalagi Islands. Herferð í vor Á undanförnum dögum hefur Oryrkjabandalagið staðið fyrir viðamikilli auglýsingaherferð í fjölmiðlum þar sem kastljósinu hefur verið beint að bágri stöðu öryrkja í samfélaginu. í þeim efnum hafa m.a. verið birtir vitn- isburðir biskups, landlæknis og fleiri um erfið kjör öryrkja og misskiptingu góðærisins. Kostn- aður þessarar auglýsingaherferð- ar er eitthvað á aðra milljón króna. Viðbúið sé að önnur aug- Iýsingaherferð sjái dagsins Ijós þegar nær dregur alþingiskosn- ingum. Nóg framboð af framboðum Um tíma stóð til að öryrkjar myndu jafnvel bjóða fram við al- þingiskosningarnar í vor. Svo virðist sem þau áform hafi dagað uppi. I það minnsta segist Helgi Seljan ekki hafa heyrt um það Iengi. Það var heldur aldrei á dagskrá hjá Öryrkjabandalaginu heldur hjá átakshópi hjá Sjálfs- björgu f Reykjavík, sem hafði verið að velta því fyrir sér. Hann er hinsvegar á því að það verði alveg nóg „framboð af framboð- um,“ í vor. Stjómarliðar undrast Það sem af er hafa viðbrögð við auglýsingaherferðinni einkum verið hjá stjórnarandstöðunni, eða þeim sem hafa „frítt spil“, eins og Helgi orðar það. Hins- vegar hefur minna verið um undirtektir hjá stjórnarliðum. Ef eitthvað er þá hafa þeir spurt að því hvað gangi eiginlega á hjá ör- yrkjum með því að hafa „harðari og hvassari tón“ en áður. Öryrkj- ar telja þó ekki svo vera, heldur sé áróður þeirra fyrir bættum kjörum minni ef eitthvað sé. - GRH Puukturinn fer í Gilið Skiptar skoðanir um ákvörðimina. Hvorki lakkrísgerðin né Lista- safnið fengu sínar ósk- ir uppfyHtar. Bæjarráð ákvað á fimmtudag að lista- og handverksmiðstöðin Punkturinn fái inni í Gilinu, þar sem brauðgerð KEA var áður til húsa. Bæjarráð Ieggur áherslu á að kostnaði verði haldið í algjöru lágmarki en samkvæmt grófu kostnaðarmati má áætla að heild- arkostnaður vegna flutningsins auk nauðsynlegra lagfæringa og breytinga á húsnæðinu muni verða a.m.k. 2 milljónir króna. Lakkrísgerðin Skuggi hafði falast eftir húsnæðinu til leigu, en bæj- arstjóri, Kristján Þór Júlíusson, segir rökin fyrir ákvörðuninni þessi: „Punkturinn var kominn á Punkturinn mun flytjast í Listagilið. hrakhóla með húsnæði og hann á ágætlega heima þarna. Sú starf- semi sem þarna á sér stað á fullan rétt á sér og það þurfti að finna henni ákveðinn stað. Það er ekki fyrirsjáanlegt næstu ár að við nýt- um þetta húsnæði með betri hætti.“ Þröstur Ásmundsson, formaður menningarmálanefndar, setti fyrir skemmstu fyrirvara við þá ákvörð- un sem nú hefur verið tekin. „Sú lausn á málum Punktsins sem hér um ræðir er því miður bráða- birgðalausn og hún hefur ýmsar neikvæðar hliðar sem er mikil- vægt að allir geri sér Ijósar í upp- hafi,“ segir Þröstur í bréfi til hæj- arstjóra. Hann ritar m.a. um mik- ilvægi þess að Listasafnið á Akur- eyri fái betri aðbúnað en Lista- safnið hafði einmitt augastað á húsnæðinu. Þá varar Þröstur við hugsanlegri hljóðmengun starfs- manna Punktsins og bendir á bílastæðavanda: „Miðað við að nokkrir tugir rnanna séu daglega við störf á Punktinum er ljóst að llutningur hans í Gilið skapar talsverðan bílastæðavanda og eyk- ur auðvitað á þann vanda sem fyr- ir er fyrir gesti, t.d. Listasafnsins. Ef til vill er þetta versti gallinn við flutning Punktsins í Gilið," segir í bréfi Þrastar. — BÞ 300 % hækkun deCode Eftirspurn eftir hlutabréfum í móðurfélagi Islenskrar erfða- greiningar, deCode Genetics, hef- ur verið hreint ótrúleg frá áramót- um að því er segir í Morgunkorni Fjárfestingahanka atvinnulífsins. I upphafi árs var gengi hlutabréfa í íyrirtækinu um 10,5 dollarar á hlut en eru í dag að seljast á geng- inu 20, sem þýðir að bréfin hafa hækkað um rúm 90% það sem af er þessu ári. Tæpt ár er síðan hlutabréf fyrirtækisins voru seld íyrst á íslenskum markaði á geng- inu 5 dollara á hlut, sem þýðir að hækkunin nemur 300% frá fyrstu sölu. Verið er að vinna að undir- búningi á skráningu deCode á er- lenda markaði og reiknað með að útboðsgengi þar verði á bilinu 12- 14 dollarar á hlut.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.