Dagur - 27.02.1999, Page 6

Dagur - 27.02.1999, Page 6
1 6-LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1999 ÞJÓÐMÁL m Utgáfufélag: Útgáfustjóri: Ritstjóri: Aðstoðarritstjóri: Framkvæmdastjóri: Skrifstofur: Símar: Netfang ritstjórnar: Áskriftargjald m. vsk.: Lausasöluverð: Grænt númer: Simbréf auglýsingadeildar: Simar auglýsingadeildar: Netfang auglýsingadeildar: Símbréf ritstjórnar: DAGSPRENT EYJÓLFUR SVEINSSON ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON BIRGIR GUÐMUNDSSON MARTEINN JÓNASSON STRANDGÖTU 31, AKUREYRI, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVlK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK 460 6100 OG 800 7080 ritstjori@dagur.is 1.800 KR. Á MÁNUÐI 150 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ 800 7080 460 6161 (REYKJAVÍK)563-1615 Ámundi Ámundason (AKUREYRI)460-6191 G. Ómar Pétursson OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir omar@dagur.is 460 6171(AKUREYRI) 551 6270 (REYKJAVÍK) Hunsa vilja Alþingis í fyrsta lagi Á hverju ári afgreiðir Alþingi fjöldann allan af tillögum til þingsályktunar. Slíkar samþykktir hafa ekki lagagildi, en þær lýsa vilja meirihluta þingsins í tilteknum málum. Oft er um að ræða áskoranir Alþingis til framkvæmdavaldsins og stofnana á þess vegum um að haga sér með tilteknum hætti í mikilvæg- um málum, eða þá að láta gera áætlanir um hvernig bregðast megi við afmörkuðum vandamálum sem við blasa í þjóðfélag- inu. Hvert svo sem efni samþykktanna kann að vera, fer ekki á milli mála að þar er æðsta stofnun þjóðarinnar að lýsa því af- dráttarlaust hver er hennar vilji. í öðru lagi Dagur hefur nýlega rakið nokkur dæmi sem sýna að fram- kvæmdavaldið hunsar þennan vilja Alþingis hvað eftir annað. Mest sláandi var hvernig ríkið gekk þvert á samþykkt Alþingis við útþenslu opinbera kerfisins. Þingið hafði mælt svo fyrir að draga ætti úr umfangi ríkiskerfisins á höfuðborgarsvæðinu en efla það að sama skapi úti á landi. Gjörðir framkvæmdavalds- ins voru þveröfugar; opinbera kerfið var þanið út í höfuðborg- inni en dróst saman á Iandsbyggðinni. Mörg fleiri dæmi eru um að framkvæmdavaldið hafi virt samþykktir þingsins að vettugi. í þriðjalagi Þessi reynsla er auðvitað staðfesting þess að framkvæmdavald- ið gefur lítið fyrir vilja Alþingis ef samþykktir þess henta ekki ráðherrum eða stjórnarstofnunum. Þarna er fyrst og fremst við þingmenn sjálfa að sakast. Það er auðvitað í þeirra valdi að koma í veg fyrir að ríkisstjórn á hverjum tíma líti á þingsálykt- anir Aþingis sem marklaus plögg. Með mun strangara eftirliti forsætisnefndar þingsins og einstakra þingmanna með afdrif- um þeirra ályktana, sem Alþingi sendir frá sér til framkvæmda- valdsins, mætti auka líkurnar á að farið sé að vilja löggjafar- samkomunnar. Á meðan ekkert er gert í þá veru styrkist al- menningur í þeirri trú að þingmenn séu sáttir við þá niðurlæg- ingu að ekkert mark sé tekið á samþykktum þeirra. Elías Snæland Jðnssou Pólitískt peninga- strip-show Garri er heldur hnugginn í dag því hann hefur ugglaust misst af miklu í gærkvöld. Þá fór sem sé fram Islandsmót í strippi í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn. En vegna fátæktar hefur Garri ekki efni á að greiða áskrift að Sýn og skortir því nauðsynlega yfirsýn yfir atburði gærkvölds- ins til að tjá sig um af skyn- samlegu viti. Reyndar var atburðurinn ekki auglýstur sem Islandsmót í strippi heldur kallað „Is- landsmótið í erótískum dansi“, þar sem höfuðáhersla var lögð á listrænan losta eða lostræna list. Barþjónnin á Þórscafé hafði fyrirfram lof- að stórkostlegri keppni því stúlk- urnar legðu sig rosalega fram og hafa því væntan- Iega verið vel fram- lagðar eða fram gengnar af íjalli í gærkvöld. En því miður, Garri fór á mis við þennan glaðning. Vorir skuldu- nautar? Hitt er svo annað mál að Garri hefur í raun meiri áhuga á að sjá Islandsmót í annarskonar strippi, það er að segja keppni þar sem fulltrúar stjómmála- flokkanna koma fram fjár- málalega berrassaðir og sýna á Sýn að þeir hafa ekkert að fela. Nú er mikil umræða um það hvurjir beri helst ábyrgð á skuldum stjórnmálaflokka, þeir sem flúðu, að þeirra dómi, hið sökkvandi skip eða hinir sem eftir sátu. Ber þingmaður ábyrgð á skuldum fyrsta flokks síns til æviloka, jafnvel þó hann skipti um flokk, gangi í annan og síð- ar jafnvel í marga flokka? Og er hann þá ábyrgur fyrir sínum hluta af skuldum þeirra allra? Svör við þessum spurningum hafa verið ákaflega loðin og teygjanleg að undanförnu, líkt og ugglaust ýmislegt sem vakti hvað mesta hrifningu á Is- landsmótinu í erótískum döns- um í gærkvöld. DoUaradjæf og rúblununha Þessar spurningar vekja svo upp aðrar og stærri, sem sé um fjármál stjórnmálaflokkanna í heild sinni sem lengi hafa leg- ið í þagnargildi þó fulltrúar allra flokka segist ekkert hafa að fela í þeim efnum. Og hafa raunar haldið því fram um árabil að reikningar flokk- anna eigi að vera öllum opnir, ekkert sé sjálfsagðara og nauðsynlegt sé að setja lög þar um. En, en... Og því leggur Garri það til að sem fyrst verði haldið Is- landsmót í pólitísku peninga- strippi. Þar komi fram for- menn eða gjaldkerar allra stjórnmálaflokka og fletti sig seðlum, reikningum, kvittun- um og öðrum dulum og dilli sér svo berstrípaðir og gleiðir frammi fyrir alþjóð í beinni út- sendingu á Sýn þannig að sjá- ist beint inn í öll fjárhagsleg skúmaskot og skorur. Þá myndi sko Garri glaður greiða áskriftina og horfa á með áfergju. GARRI. ODDUR ÓLAFSSON skrifar Kortlagning heimskimnar Þróunarsvið Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur hefur nú sannað með hávísindalegum aðferðum að foreldrar með háskólapróf eiga dugmeiri börn og samvisku- samari en þeir sem eru bara með grunnskólapróf eða einhver ómerkileg pungapróf í verk- menntun og svoleiðis. Þá er staðfest að í hverfum og útskæklum Reykjavíkurborgar er grófleg stéttaskipting og er þá tekið mið af efnahag og menntun íbúanna. Krakkarnir úr fínu og menntuðu hverfunum ná 'betri einkunnum í prófum og sækja tíma betur, en grislingarnir úr lakar menntaðri hverfum, sem skrópa og svíkjast um standa sig sýnu ver í skólastarfi. Fræðslumiðstöðin er nú búin að stimpla borgarhverfin og heiðaþorpin sem langskóla- menntuð, pungaprófshverfi og ómenntuð hverfi. Bestu og stundvísustu börnin koma auð- vitað úr langskólamenntuðu skólaumdæmunum en tomæmu skrópagemlingarnir búa í félags- Iegum íbúðahverfum þar sem prófgráður húsráðenda eru ekk- ert til að státa af. Starfshópur stofnaður Forsprakkar fræðslumála borgar- innar héldu stóran blaðamanna- fund um niðurstöður könnunarinnar og botna ekkert í niður- stöðunum. Er boðað- ur starfshópur til að kanna könnunina og reyna að komast að því hvað felst í niður- stöðunum, annað en það sem liggur í aug- um uppi og var tilefni fundarins. Rekstrardeild Fræðslumið- stöðvarinnar segir að enginn munur sé á skólunum og sé unn- ið gríðarlega gott starf í þeim öll- um. Fræðsluráðið segir að börn- um með góðan bakgrunn geti vegnað vel í hvaða skóla sem er. Þróunarsviðið telur að þau börn sem eru með lakastan félagsleg- an bakgrunn séu helst fjarver- andi úr skóla. Hér ber allt að sama brunni. Það er menntun foreldranna og búseta sem skiptir sköpum. Fín- ustu börnin koma úr fínustu hverfunum en slóðarnir búa í lökustum hverfum. Það er munur fyrir krakkana og alla hina að vita þetta. Nú vita þau upp á hár hverjir eiga góða foreldra og hverjir slæma og hvaða börn eru mannvænleg og hver mannleysur. Persónuupplýsingar Það er mjög heppilegt og hag- kvæmt að kortleggja borgina á þennan hátt. Nú þarf enginn að velkjast í vafa um hvaðan amlóð- arnir koma og í hvaða skóla fyrir- myndarnemendurnir ganga. Fín félög og klúbbar eiga nú auðveld- ara með að sortéra sauðina frá höfrunum. Atvinnurekendur þurfa ekki annað en að líta á skólahverfin til að sjá hvers vænta má af starfskrafti og svo geta kortin orðið staðgóðar upp- Iýsingar fyrir tryggingafélög. Borgarstjóri fær enn eina stað- festingu á því hve hræmulega illa þorpasafnið, sem kallað er Reykjavík, er skipulagt, og vill ráða bót á stéttaskiptingunni. Það verður þá helst gert með því að senda Aragötuna inn í Fella- sókn og Breiðholtið í Laugarás- inn. Verða það varia minni tilfær- ingar en að flytja flugvöll út í sjó og leggja Sundabraut upp á Esju. En brýnasta verkefnið er að hleypa íslenskri erfðagreiningu alls ekki í gögn Fræðslumiðstöðv- ar. Hún gæti fundið erfðavísa heimskunnar og fordómanna, og það er ekki víst að það yrði þeim sprenglærðu hollt. Lærðar niðurstöður menntastéttar. ro^tr SPMÉs Ivajraið Er auglýsingabann á innlendum bjór tíma- skekkja? Hjörleifur Guttormsson alþingismaður „Ég hef alltaf verið mjög hlynntur auglýs- ingabanni á áfengi og því vil ég viðhalda því banni. Því ráða forvarna- og heilsufarssjónarmið og á því byggir nýlegur dómur Hæstarétt- ar, en viðskiptalegir hagsmunir mega ekki fá þar neitt vægi.“ Guðný Guðbjömsdóttir alþingismaður „Ég er sammála dómi Hæsta- réttar um að það eigi að vera bann á áfengis- auglýsingum og það á jafnt við um bjór sem annað áfengi, enda skýr ákvæði um það i lögum. Það er mikil- vægur liður í forvarnastarfi og ég vona að það verði 'látið eitt yfir alla ganga í þessum efnum. Mér finnst að banna eigi nú þegar sjónvarpsútsendingar frá inn- lendum íþróttakappleikjum þar sem bjórauglýsingu eða áfengis- auglýsingu bregður fyrir. Það yrði mjög áhrifarík aðgerð sem vekja mundi verðskuldaða at- hygli.“ Ema Hauksdóttir framkvæmdastjóri Samtaka fetúa- ijóniistnnnar „Algjört bann við áfengisaug- lýsingum er tímaskekkja en það þarf að finna ásættan- legar leiðir f þeim efnum. Það eru fljótandi áfengisauglýs- ingar út um allt land í erlendum tfmaritum og á erlendum sjón- varpsstöðum og því hlýtur með- alvegurinn þar á milli að vera ákaflega vandrataður. Því er nauðsynlegt að finna reglur sem þó gæfu nokkurt aðhald, en í dag er innlendum framleiðendum mismunað. Það er mikill tví- skinningur fólginn í því að Ieyfa framleiðslu og sölu á vöru eins og t.d. bjór en banna svo að hún sé auglýst." Aðalsteinn Ami Baldursson foniiaður Verkalýðsfélags Hi'isavíkiir „Það á ekki að gera neitt sem eykur áfengis- neyslu Islend- inga, en þegar ég er að horfa á íþróttaviðburði þar sem allt er yfirfullt af bjórauglýsingum, þá spyr ég hvort nokkuð verði við þetta ráðið og rétt sé að banna Islendingum að auglýsa bjór á sama tíma. Erlend tímarit eru full af áfengisauglýsingum og þar eru einnig auglýsingar frá tó- baksframleiðendum. Þetta er mismunun og erfitt að segja á sama tíma, veljum íslenskt. Ef ekki næst utan um þetta á alls ekki að banna þetta, það er bara hálfkák."

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.