Dagur - 27.02.1999, Page 11
T^ui-
LAUGARDAGllR 27. FEBRÚAR 1999 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Þúsundir fluttar brott
frá snjóflóðasvæðum
Þessi þyrla var notud til að flytja fólk frá hættusvæðunum í Sviss.
Áfram er spáð miMlIi
snjðfldðahættu í Ölp-
lllllllll.
í gær og í fyrradag voru þúsund-
ir manna fluttar á brott frá snjó-
flóðasvæðunum í Austurríld, og
%'oru tugir austurrískra, sviss-
neskra, þýskra og bandarískra
þyrlna notaðir í það verkefni.
4.500 manns voru fluttir á
brott með þyrlum á fimmtudag,
og meiningin var að koma um
5.000 manns á brott í gær. Er
þetta langstærsta aðgerð af
þessu tagi, sem ráðist hefur ver-
ið í í Austurríki. Nokkur hundr-
uð manns hyggjast þó dvelja
áfram í Paznaudal, þar sem snjó-
flóðin urðu.
Á skíðasvæðunum í Austurríki
voru þúsundir manna engu að
síður enn lokaðar inni í gær, en
búið var að flytja á brott alla sem
þess óskuðu frá Galtur, þar sem
snjóflóðið mikla féll á þriðjudag.
Einnig var unnið að því að
ryðja veg inn í Paznaudal, þar
sem Galtur og Valzur eru. Ein-
ungis hefur verið hægt að kom-
ast þangað loftleiðina.
Verulegri snjóflóðahættu er
spáð áfram í Austurríki, þar sem
hiti kemst yfir frostmark en það
þýðir að snjóhengjurnar í fjöll-
unum þyngjast. Sömuleiðis er
talin hætta á snjóflóðum í þýsku
Ölpunum. Hins vegar hefur
snjóflóðahættan í Sviss minnkað
verulega.
37 lík höfðu í gær fundist í
Galtúr og Valzur, en eins var enn
saknað að auki. Meðal þeirra
sem létust voru Þjóðverjar, Aust-
urríkismenn, Danir og Hollend-
ingar. Flestir voru það Þjóðverj-
ar, eða 21. Nánast engin von er
til þess að fleiri finnist á Iífi í
snjónum.
Bjartsýni björgunarmanna óx
þó verulega á miðvikudagskvöld,
þegar tvennt fannst á lífi í snjón-
um. Annað þeirra var fjögurra
ára gamall drengur sem sýndi
ekkert lífsmark. Líkamshiti hans
var kominn niður í 31° á Celsí-
us. Betur fór þó en á horfðist og
var í skyndi flogið með drenginn
á sjúkrahús þar sem hann hefur
braggast ótrúlega vel.
Stórt flóð féll í Galtúr á þriðju-
dag og annað í Valzur á miðviku-
dag, og eru þetta mestu snjóflóð
sem orðið hafa í Austurríki í
hálfa öld.
Fjölmörg snjóflóð hafa fallið í
Sviss og Austurríki undanfarna
daga. Eitt þeirra var þó af
mannavöldum, en það átti sér
stað á ferðamannastaðnum Leu-
kerbad í Sviss á fimmtudag.
Sprengjusérfræðingur, sem var í
björgunarliðinu, tók það upp hjá
sjálfum sér að koma snjóflóðinu
af stað. Verulegar skemmdir
urðu á húsum, en engin meiðsl
urðu á fólki.
Simi 462 3500 • Hólabraut 12 • www.nett.is/borgarbío
VID
KYNNUM
THIN ftED LINE
VINNUSKOLI
REYKJAVÍKUR
LAVSAR STÖDUR
SUMARID1999
Vinnuskóli Reykjavíkur auglýsir eftir starfsmönnum í eftirtaldar stöður sumarið 1999:
1. Leiðbeinendur til að vinna með og stjórna vinnuflokkum unglinga.
2. Leiðbeinendur til að starfa með hópi fatlaðra ungmenna sem þurfa mikinn stuðning í starfi.
3. Starfsmenn til að undirbúa og stjórna fræðslu- og tómstundastarfi Vinnuskólans.
4. Yfirleiðbeinendur sem hafa umsjón með ákveðnum verkefnum og vinnusvæðum.
Leiðbeinendur skulu vera 22 ára á árinu eða eldri og er æskileg uppeldis- eða verkmenntun og/eða
reynsla af störfum með unglingum.
Vinnuskólinn er reyklaus vinnustaður.
Ráðning leiðbeinenda er frá 1. júnf og stendur í 9 -10 vikur.
Vinnuskólinn býður sumarstörf unglingum sem verið hafa í
8., 9. og 10. bekk grunnskóla í Reykjavík (verða 14, 15 eða 16 ára á árinu).
Helstu verkefni eru:
• Snyrting og viðhald á skólalóðum og íþróttasvæðum í borginni.
• Garðaumhirða fyrir ellil íf ey risþega.
• Gróðursetning og stígagerð á svæðum utan borgarmarkanna, s.s. Heiðmörk,
Hólmsheiði og Nesjavöllum.
• Létt viðhald á stofnanalóðum í borginni í samvinnu við garðyrkju- og gatnadeild
borgarverkfræðings.
Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu Vinnuskóla Reykjavíkur.
Þar eru einnig veittar frekari upplýsingar um störfin.
Umsóknarfrestur er til 19. mars n.k.
Snorrabraut 60 • 105 Reykjavík
Sími 511 2590 • Fax 511 2599
Netfang: vinnuskoli@rvk.is
FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR
Sýnd kl. 5 - Isl. tal.
Einnig sýnd kl. 3 um helgina.
MuIan
Sýnd kl. 5
Sýnd um
helgina kl. 13
Sýnd kl. 6.45, 9 og 11.15
l