Dagur - 10.03.1999, Qupperneq 7

Dagur - 10.03.1999, Qupperneq 7
MIDVIKUDAGUR 10. MARS 1999 - 7 X^MT ÞJÓÐMÁL VALGERÐUR SVERRIS DOTTIR ALÞINGISMAÐUR SKRIFAR Enn er margt ógert í samgöngu- málum okkar Islendinga. Verk- efnin eru mörg hjá fámennri þjóð í víðfeðmu landi. Auk þess er landið vogskorið og veður vá- lynd á köflum. Verkefnið er afar mikilvægt fyrir afkomu og sam- skiptamöguleika landsmanna. A síðustu tveimur áratugum hafa orðið miklar framfarir í samgöngumálum og mörgum áföngum hefur verið náð sem hafa skipt sköpum fyrir íbúa þessa lands. En betur má ef duga skal og því var ný vegáætlun, sem sam- þykkt var á Alþingi fyrir um ári síðan, nokkuð með öðrum hætti en áður hafði verið. Hugsunin sem lögð var til grundvallar var að tengja alla þéttbýliskjarna með yfir 200 íbúum með varan- legum vegi með bundnu slitlagi. Þessu verkefni skyldi lokið fyrir árið 2010. Þau vinnubrögð sem beitt hafði verið áður byggðu á því að skipta vegafé fyrst niður á kjördæmin eftir sérstökum regl- um og síðan á vegakafla í kjör- dæmunum. Þessi aðferð var óhagstæð þeim kjördæmum sem lengsta hafa vegina og mesta þörfina. Nýja aðferðin er því hagstæðari stóru kjördæmunum. Vegáætlun er hins vegar of hægfara og það er mál sem nýtt þing þarf að takast á við. Eg tel að eitthvert mikilvægasta byggðamálið sé að flýta áætluninni og að þvf mun ég vinna að alefli. Það styttist í kosningar í þeirri vegáætlun sem samþykkt var fyrir um ári síðan er ekki gert ráð fyrir jarðgöngum. Það þarf hins vegar ekki að þýða að ekki Laugardaginn 20. febrúar 1999 birtist í Degi grein eftir Guðna Ölversson undir yfirskriftinni „HSÍ enn á hættusvæði". í grein- inni eru tekin til umfjöllunar ýmis atriði er lúta að framkvæmd Heimsmeistaramótsins í hand- knattleik sem fram fór á Islandi í maímánuði árið 1995. Vegna þessarar greinar og ekki síst nið- „íþeirri vegáætlun sem samþykkt var fyrir um ári siöan er ekki gert ráð fyrir jarðgöngum. Það þarf hins vegar ekki að þýða að ekki verði farið í slíkar framkvæmdir næstu 10 árin, “ segir Vaigerður m.a. í grein sinni. verði farið í slíkar framkvæmdir næstu 10 árin. Það var gert með vilja að taka jarðgöng ekki með í áætlunina enda málið vanda- samt og krefst mikils undirbún- ings og pólitískrar samstöðu inn- an þingsins. Nú er umræða um jarðgöng skyndilega komin á fulla ferð. Því ræður sennilega að það stytt- ist í kosningar og prófkjör hafa verið í algleymingi. Þegar jarð- göng milli Ólafsfjarðar og Siglu- Ijarðar hafa komið til umfjöllun- ar í mfnu kjördæmi á undanförn- um árum þá hef ég alltaf svarað því þannig að þau séu gríðarlega mikilvæg til þess að tengja byggðir Eyjafjarðar. Það sé hins vegar ekld hægt að taka þau framfyrir vegaframkvæmdir í N- Þingeyjarsýslu. Þessi skoðun mín er óbreytt í dag. Sú skoðun sem samgönguráð- herra setti fram á Siglufirði á dögunum var vissulega athyglis- verð. Ekki síst í Ijósi þess að hann á aðild að sama þingflokki og Arnbjörg Sveinsdóttir þing- maður Austurlands, sem lagði fram þingsályktunartillögu um það fyrir jólin að gerð skuli göng á milli Fáskrúðsfjarðar og Reyð- arfjarðar hið fyrsta. Þessi tillaga hlýtur að hafa verið flutt með vit- und samgönguráðherra þar sem þessir tveir einstaklingar eru samflokksmenn. Mikil áhersla hefur jafnan ver- ið lögð á að ná samstöðu um af- greiðslu vegamála. Það er ekki erfitt að gera sér í hugarlund hvers konar ringulreið skapaðist ef þingmenn almennt tækju upp á því að flytja þingsályktunartil- lögur um allar persónulegar ósk- ir sínar í samgöngmálum. Jarðgöng undir Vaðlaheiöi? Það er hins vegar sjálfsagt að hafa opna umræðu um sam- göngumál. Því höfum við nokkr- ir stjómarþingmenn undir for- ystu Magnúsar Stefánssonar flutt þingsályktunartillögu um Iangtímaáætlun í jarðgangagerð. Hugmyndin er sú að vinna málið heildstætt og finna lausn fyrir sem flest þeirra landsvæða sem nefnd hafa verið í tengslum við jarðgangagerð. Mig langar í lokin að nefna einn möguleika til viðbótar, sem lítið hefur verið í umræðunni, en það eru jarðgöng undir Vaðla- heiði. Vegurinn um Víkurskarð milli Eyjafjarðar og Fnjóskadals er í um 350 m hæð. Hann er mikill farartálmi á vetrum enda snjóþyngsli mikil á Skarðinu. Með jarðgöngum þyrfti vegurinn ekki að fara nema í rúmlega 100 m hæð og göngin yrðu um 7 km að lengd. Þannig færi vegurinn frá Ólafsfirði/Siglufirði austur í Ö.xarfjörð aldrei hærra en í um 100 m hæð, sem yrði geysileg framför. Ekki hefur á þessari stundu verið tekin ákvörðun um hvernig vegabætur í N-Þingeyjarsýslu verða leystar en gera má ráð fyr- ir vegi um Melrakkasléttu sem gæti farið í um 200 m hæð. Veg- ur með ströndinni er ekki lengur til umræðu sem framtíðarlausn þar sem sú leið er of löng og tengir ekki á viðunandi hátt þétt- býliskjarnana í sýslunni. Samgöngiunál heillandi málaflokkur Eins og sést á þessari upptaln- ingu þá er í mörg horn að líta. Það er mikilvægt að hafa sem flesta möguleika með i umræð- unni. Jarðgöng undir Vaðlaheiði er einn þeirra möguleika. Slíkar samgöngubætur mundu skipta verulegu máli fyrir kjördæmið allt, ekki síst Akureyri. Víkurskarðið hefur verið farar- tálmi alla tíð, haft á milli Eyja- ljarðar og Þingeyjarsýslu. Mér eru minnisstæðar deilur sem voru þegar ákvörðun um þetta vegarstæði var tekin. Nokkrir sveitunga minna vildu fá veginn um Dalsmynni til að tengja Höfðahverfið alfaraleið. Ég hygg að fleiri sjái í dag að það var ekki viðunandi lausn þar sem vegur- inn austur um hefði orðið um 20 km lengri. Samgöngumál eru heillandi málaflokkur enda snú- ast þau um framfarir. Þau eru líka áhugaverð vegna þess að all- ir hafa á þeim skoðanir. Það er verkefni stjórnmála- manna að leiða saman sjónarmið og leita lausna á sem farsælastan hátt fyrir alla landsmenn. HSÍ á réttri leid urlags hennar sér undirritaður sig knúinn til að koma á fram- færi eftirfarandi athugasemdum. Þegar núverandi stjórn kom til starfa hafði sambandið verið rek- ið með tapi um nokkurra ára skeið að stórum hluta til vegna þess að mestallar tekjur runnu til framkvæmdar HM 95 og því varð lítill afgangur til að sinna rekstri landsliða og annari reglu- legri starfsemi. Það var því mikið verk sem beið stjórnárinnar og er óhætt að segja að ærlega hafi verið tekið til hendinni. An styrks frá ríkissjóði hefði þetta verk að sjálfsögðu orðið mun erf- iðara og kannski ómögulegt, en núverandi ríkisstjórn ákvað að hlaupa undir bagga og styðja sambandið á þessum erfiðu tím- um. Vinna vegna nauðasamn- ings tók nokkuð lengri tíma en ráð hafði verið fyrir gert og því var mjög erfitt að afla tekna á sama tíma og verið var að óska eftir niðurfellingu skulda. Það má því segja að það er ekki fyrr en á yfirstandandi starfsári sem í Ijós kemur hvernig til hefur tek- ist. I niðurlagi greinar Guðna Öl- verssonar er sagt að framtíð ís- lensks handknattleiks sé ekki trygg á meðan sambandið sé rek- ið með tugmilljóna tapi. Undir- ritaður vill koma því á framfæri að Handknattleikssamband Is- lands er í dag alls ekki rekið með tugmilljóna króna tapi. Slíkt tal er víðsfjarri raunveruleikanum og á Ársþingi HSÍ sem fram fer í maímánuði næstkomandi gerir stjórn sambandsins ráð fyrir að Ieggja fram ársreikning með nokkurra milljón króna hagnaði. Þá stendur eftir neikvætt eigið fé sem var í upphafi núverandi starfsárs u.þ.b. 10 milljónir og er það markmið stjórnar að sam- bandið verði komið með jákvæða eiginljárstöðu fyrir ársþing sam- bandsins árið 2000. Erum við bjartsýnir á að það takist með sama áframhaldi . Það er skoðun undirritaðs að núverandi stjórn hafi lyft Grettistaki í baráttunni við skuldastöðu sambandsins og eiga núverandi stjórnarmenn því kröfu á að rétt sé farið með þeg- ar fjallað er um fjárhag sam- bandsins. Tekist hefur að afla verulegra tekna með samningum til nokkurra ára og því er rekstar- arafkoma næstu ára tryggð. A sama tíma hefur rekstur kvenna- Iandsliðs og yngri landsliða tekið miklum stakkaskiptum og í dag eru öll landslið Islands í hand- knattleik skráð í verkefni með það að markmiði að tryggja ís- lenskum handknattleik þann sess að vera áfram fremstir í flokki íslenskra hópíþrótta- manna.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.