Dagur - 10.03.1999, Blaðsíða 9

Dagur - 10.03.1999, Blaðsíða 9
8- MIDVIKUDAGUII 10. MARS 1999 MIDVIKUDAGU R 10. MARS 19 9 9 - 9 -tkyUT' Ða^ur_ FRÉTTASKÝRING Kvennabylgja rugg'ar bátnum SIGURDÓR SIGURDÓRS SON SKRIFAR Á landsfundi Sjálf- stæðisflokksms er bú- ist við að í þremur málaflokkum geti orð- ið uokkur átök, sjávar- útvegsmálum, byggða- máluiii og málefnum aldraðra og öryrkja og svo að sjálfsögðu við kosningu varafor- mauus. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins hefst á morgun, fimmtudag, klukkan 17.30, en hann fer fram í Laugardalshöllinni. Húsið verð- ur opnað klukkan 14.00 og þá hefst afhending fundargagna. Um 1700 manns eiga rétt til fundarsetu en ekki er búist við að fleiri en um 1500 manns skrái sig á fundinn. Tímasetning landsfundarins er auðvitað engin tilviljun. Þegar honum Iýkur eru um 7 vikur til þingkosninga og með landsfund- inum hefst hin formlega kosn- ingabarátta. Flokkurinn hefur nú setið átta ár samfellt í ríkisstjórn undir forsæti formannsins, Dav- íðs Oddssonar. Greinilegt er á drögum að ályktunum landsfund- arins að sjálfstæðismenn eru ánægðir með sig og líka það hvernig Sjálfstæðisflokknum hef- ur tekist að koma nær öllum sín- um stefnumálum fram á þessum átta árum. Það ríkir enda ágætis eining innan flokksins nema helst í þremur málaflokkum. I fyrsta lagi er um að ræða sjáv- arútvegsmálin og þá sérstaklega stjórn fiskveiða. Þar er og hefur verið djúpstæður ágreiningur. Hvort hann blossar upp á þessum landsfundi eins og síðast er óvíst en þó þótti flestum sjálfstæðis- mönnum, sem ég ræddi við, lík- legt að svo verði. A síðasta lands- fundi Sjálfstæðisflokksins gerðu Vestfirðingarnir áhlaup í sjávarút- vegsmálunum en voru barðir til hlýðni undir lokin. Menn benda á að kvótadómur Hæstaréttar í vet- ur situr enn í mönnum og flest- um landsbyggðarmönnum þykir sem svar ríkisstjórnarinnar við honum hafi verið ófullnægjandi. Þá er mikill órói meðal eigenda kvótalítilla báta, línubáta og ann- arra strandveiðibáta. Ekki er ólfk- legt að þessi órói nái inn á fund- inn. Það blasir líka við þing- mönnum flokksins á Vestfjörðum að Sverrir Hermannsson, fyrrum ráðherra Sjálfstæðisflokksins, ætlar fram á móti þeim í vor með sjávarútvegsmál sem atgeir í hönd. Þeir Einarar munu því trauðla sitja hljóðir á Iandsfund- inum. Annað mál sem gæti orðið að hitamáli á landsfundinum eru byggðamálin og þá að sjálfsögðu fyrst og fremst byggðaþróunin sem orðið hefur á þeim átta árum, sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur leitt ríkisstjórn. Á þessu tímabili hefur fólki á Vestfjörðum fækkað umtalsvert, glæsileg skip og kvóti verið seldur þaðan og fólksflóttinn heldur áfram þrátt fyrir göng og Gilsfjarðarbrú. Austfirðingar halda því fram að Austfjarðakjördæmi sé eina kjör- dæmið þar sem atvinnutækifær- um hefur ekki fjölgað heldur fækkað á þessu kjörtímabili. Þar beijast framsóknarmenn fyrir ál- veri við Reyðarfjörð og virkjunum á hálendi Austurlands. Án efa munu þessi mál berast inn á landsfundinn og geri þau það verður um hitamál að ræða. Loks eru það svo málefni aldr- aðra og öryrkja. Innan Sjálfstæð- isflokksins er til sérstakt félag aldraðra. Þar er formaður Guð- mundur H. Garðarsson, fyrrver- andi alþingismaður, málafylgju- maður og fastur fyrir. Með hon- um eru líka margir gamlir bar- áttujaxlar úr pólitískri eldraun í flokknum. Það má telja víst, mið- að við umræðuna í þjóðfélaginu að undanförnu um stöðu og kjör aldraðra og öryrkja í þjóðfélaginu, að þau mál verði fyrirferðarmikil á landsfundinum. Varaformannsslaguriim Og svo er það málið sem flestir bíða spenntastir eftir, varafor- mannskjörið í flokknum. Þar keppa í fyrsta sinn opinberlega karl og kona um embættið. Kona hefur aldrei gegnt formanns- eða varaformannsembætti í Sjálf- stæðisflokknum. Það eru þau Sólveig Pétursdóttir alþingismað- ur og Geir H. Haarde Ijármála- ráðherra, sem keppa að varafor- mennskunni. Um tíma Ieit út fyr- ir að Björn Bjarnason mennta- málaráðherra myndi blanda sér í baráttuna en hann fann ekki hljómgrunn og hætti við. Strax eftir að Björn hætti við varaformannstilraunina sagði hann opinberlega að það væri ekkert samasemmerki milli þess að verða varaformaður fyrst og síðan formaður. Þó er nú líklegt að leið Davíðs Oddssonar í for- mannsstólinn geti orðið fyrir- mynd í þessu efni. Fyrst sigraði hann Friðrik Sophusson í vara- formannsslag og síðan Þorstein Pálsson í formannsslagnum fræga. Þess vegna má telja víst að leið hans til formennsku verði til þess að menn líti framvegis á hana sem hina einu sönnu og eðlilegu leið í formannsstólinn. Þvf er haldið fram af þeim sem vel þekkja til í Sjálfstæðisflokkn- um að ef Davíð Oddsson verður forsætisráðherra eftir kosning- arnar í vor muni hann draga sig í hlé frá pólitísku argaþrasi eftir 4 ár. Ef hann verður ekki forsætis- ráðherra geti þetta gerst fyrr því sem óbreyttur þingmaður muni honum líða óbærilega. Hann þekkir ekki það hlutverk að vera óbreyttur í stjórnarandstöðu. Hann hefur verið forsætisráð- herra síðan hann kom inn á þing. Vegna þessa er varaformannsslag- urinn nú afar athyglisverður. Staðan hefur jafnast En hvort það verður Geir H. Haarde eða Sólveig Pétursdóttir sem nær varaformennskunni er nokkuð erfitt að segja til um. Á þeim tíma í vetur sem Björn Bjarnason var að þreifa fyrir sér Frá síðasta landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Greinilegt er á drögum að ályktunum landsfundarins að þessu sinni, að sjálfstæðismenn eru ánægðir með sig og líka það hvernig flokknum hefur tekist að koma nær öllum sínum stefnumálum fram á þeim átta árum sem hann hefur setið í ríkisstjórn. voru flestir sjálfstæðismenn á því að Geir H. Haarde ætti auðvelda leið í varaformannsstólinn. Eftir að þetta varð að einvígi milli hans og Sólveigar hefur staðan breyst. Það hallast að vísu fleiri að því að Geir muni sigra. Samt sem áður íjölgar þeim sem segja að þarna verði um spennandi einvígi að ræða og svo benda menn á þá miklu kvennabylgju sem nú á sér stað í öllum stjórnmálaflokkum og ekki síst í Sjálfstæðisflokknum síðustu dagana. Berist hún af fullum krafti inn á landsfundinn geti allt gerst. Menn benda á hina harðvítugu baráttu sem sjálfstæðiskonur háðu fyrir því að koma konu í 9. sæti Iistans í Reykjavík í síðustu viku eftir að uppstillingarnefnd hafði stillt Vilhjálmi Þ. Vilhjálms- syni upp í það sæti, og höfðu sig- ur. Sömuleiðis höfðu konur á Vestfjörðum sigur um síðustu helgi þegar þeim tókst að koma konu í 3. sæti Iistans eftir að ákveðið hafði verið af uppstilling- arnefnd að kona yrði ekki framar en í 5. sæti. Svo benda menn á sigur Arnbjargar Sveinsdóttur oddvita lista Sjálfstæðisflokksins á Austurlandi og að Katrín Fjeld- sted hélt sínu sæti, 8. sætinu, í Reykjavík. Þetta er kvennabylgja segja menn. Sjálfstæðiskonur fullyrða að þessi bylgja geti fleytt Sólveigu upp í varaformannsstólinn berist hún inn á Iandsfundinn. Víst er um það að eftir fyrrnefnda vel- gengni yrði það gifurlegt áfall fyr- ir konur í Sjálfstæðisflokknum, sem og ásýnd flokksins út á við, ef Geir H. Haarde myndi sigra í þessum slag með miklum yfir- burðum. Það segja konur að yrði erfitt að fara með inn í kosninga- baráttu. Þau Geir og Sólveig njóta bæði virðingar í flokknum. Geir H. Haarde var, eins og menn eflaust muna, formaður jjingflokks Sjálf- stæðisflokksins. I því starfi ávann hann sér bæði traust og vinsældir meðal samþingmanna sinna. Þess vegna styðja margir þing- mennirnir hann. Enda þótt Geir sé nokkuð stífur í framkomu sem þingmaður, og hafi enn stífnað sem ráðherra, eins og kemur fyrir einstaka menn, er hann sagður vinur vina sinna og hrókur alls fagnaðar á góðri stund. Um hann má því segja að hann sé vinsæll í flokknum. Sólveig Pétursdóttir er dugleg- ur þingmaður og glæsileg kona. Hún er nokkuð stíf á meining- unni og ákveðin. Hún sagði einu sinni þegar þetta barst í tal að þegar um konur væri að ræða væri slíkt kölluð frekja en þegar karlar eiga í hlut er þetta kallað ákveðni og dugnaður. Það er mik- ið til í þessu. Og það þori ég að fullyrða að fáir ef nokkrir þing- menn eru jafn duglegir við að hlýða á mál manna á þingfundum og Sólveig Pétursdóttir. Viðvera hennar í þingsölum er einstök og það er ekki margt sem fer fram hjá henni af því sem sagt er í stól Alþingis. Finn góðan meðbyr - En hvað segir Sólveig Pétursdótt- ir sjálf iwi möguleika sína á því að hreppa varaformannsembættið? „Eg tel að það sé nokkuð erfitt að meta stöðuna við þessar kring- umstæður. Þó get ég sagt þér að ég finn góðan meðbyr og er auð- vitað afar ánægð með það. Eg hef að undanförnu talað við fjölda flokksmanna og á eftir að tala við enn fleiri. Ég er sannfærð um að landsfundurinn verður bæði fjöl- mennur og glæsilegur. Að honum loknum munum við sjálfstæðis- menn koma af krafti til kosninga- baráttunnar í vor,“ sagði Sólveig Pétursdóttir. Ellen Ingvadóttir er formaður Landssambands sjálfstæð- iskvenna. Það var einmitt áskorun frá landssambandinu til Sólveigar Pétursdóttur um að gefa kost á sér til varaformennsku sem varð þess valdandi að hún sló til. Hvað segir Ellen um möguleika Sólveig- ar? „Auðvitað fagna ég því mjög að Sólveig skyldi taka áskorun Landssambands sjálfstæð- iskvenna um að bjóða sig fram til varaformanns. Ég er ekki í nokkrum vafa um að sá pólitíski jarðvegur sem yið lifum í núna, sem birtist m.a. í auknum fram- gangi kvenna innan vébanda Sjálfstæðisflokksins, mun skila sér þegar gengið verður til kosn- inga um varaformann flokksins. Ég á fullkomlega von á því að sá meðbyr sem konur hafa nú og sá mikli kraftur, sem er í sjálfstæðis- konum, muni skila sér inn á landsfundinn. En ég vil líka taka það skýrt fram að við njótum stuðnings fjölmargra karlmanna. Sókn okkar til áhrifa í stjórnmál- unum er ekki bara studd konum, heldur körlum líka,“ sagði Ellen Ingvadóttir. Kosning formanns og varafor- manns hefst klukkan 16.00 á sunnudag. Kosning formanns fer fram á undan en að loknu vara- formannskjörinu verður lands- fundinum slitið. Varfærni Það sem ef til vill vekur mesta at- hygli varðandi drög að ályktunum landsfundarins er hve varfærnis- Iega fjallað er um sjávarútvegs- málin. Þar er í miklu málskrúði farið í kringum málin eins og köttur í kringum heitan graut. Varast er að taka afstöðu til þeirra mörgu deilumála sein gera sjávar- útvegsmálin að púðurtunnu í ís- lenskum þjóðmálum. Almennt er talað um að hagræðing og upp- stokkun í útgerð hafi skilað sér og annað í þeim dúr. Ekki er minnst á kvótadóm Hæstaréttar, kvóta- lausar byggðir sem eru að leggjast í auðn og stóran flota fiskiskipa án kvóta. Einmitt vegna þessa má búast við átökum um sjávarút- vegsmálin á landsfundinum. Þá vekur það athygli í drögum að ályktunum landsfundarins að sjálfstæðismenn vilja að flokkur- inn taki yfir heilbrigðismál og iðn- aðar- og viðskiptamálin verði þeir f næstu ríkisstjórn. Og í drögum að ályktun um heilbrigðismál kemur fram að sjálfstæðismenn vilja flytja sem allra flest verkefni á því sviði frá ríki yfir til einkaað- ila. I drögum að ályktun um mál- efni eldri borgara segir að afnema beri tekjutengingu lífeyris- greiðslna almannatrygginga til þeirra sem náð hafa 67 ára aldri. I stað grunnlífeyris, tekjutrygging- ar, heimilisuppbóta, og sérstakrar heimilisuppbótar eigi sérhver ein- staklingur rétt á tilteknum eftir- launum á mánuði, sem ekki verði skert með neinum hætti. Hætt er við að þegar út f kosn- ingabaráttuna er komið þurfi sjálfstæðismenn að svara því hvers vegna svona þurfi að álykta á landsfundi flokksins eftir átta ára setu hans f ríkisstjórn undir forsæti Davíðs Oddssonar. Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis Cp Aðalfundur á I Grenivík Aðalfundur Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis verður haldinn í Barnaskólanum á Grenivík, miðvikudaginn 17. mars 1999 kl. 20:00. Dagskrá 1. Venjuleg aðalfundastörf 2. Fræðsluerindi um Viagra hefst kl. 21:00. Fyrirlesari verður: Valur Þór Marteinsson, þvagfæraskurðlæknir. 3. Umræður. Allt áhugafólk um starfsemi krabbameinsfélagsins velkomið Stjórnin Lyginni líkust! Megrunarúði og vítamín! Úðavítamínin frá KERMOR! Er erfitt að taka inn vítamíntöflumar! Vantar þig bætiefni sem virka strax! Engin fyllingarefni né aukaefni! Reynslan sýnir ótrúlegan árangur! Megmnarúðinn brennir aukakílóum! PMS úðinn lagar fyrírtíðaspennu! Blágrænir þömngar við húðvanda! Pro Bio Mist er sterkur andoxari! Auk margra annarra úða! Því ekki að kanna það nýjasta!!!!!!!!!!!! Upplýsingar gefa Sigrún s: 552 3994 og Unnur s: 557 8335 og 897 9319. Bráðvantar sölufólk, góðar tekjur bjóðast! Evrópa óplægður akur hjá KERMOR! V. °g HEJj þjónusta. Menntamálaráðuneytið Endurmenntunarsjóður grunnskóla Auglýst er eftir umsóknum í Endurmenntunarsjóð grunnskóla 1999. Sjóðurinn er í vörslu menntamálaráðuneytisins og sér þriggja manna stjórn um að meta umsóknir og gera tillögur til menntamálaráðherra um styrkveitingar. Til úthlutunar að þessu sinni eru 18 milljónir króna. Þar af eru 4 milljónir ætlaðar sérstaklega til endurmenntunar á sviði upplýsingatækni í grunnskólum. Um framlög úr sjóðnum geta þeir sótt sem hyggjast standa fyrir endurmenntun fyrir grunnskólakennara á árinu 1999 t.d. kennara- menntunarstofnanir, skólaskrifstofur, sveitarfélög, skólar, félög og fyrirtæki. Þær umsóknir einar koma til mats sem sýna að byggt sé á • að endurmenntunartilboð mæti þörfum grunnskólans • skólastefnu og aðalnámskrá • að sveitarfélögum og skólum sé ekki mismunað • fagmennsku og gæðum Sjóðurinn veitir ekki fé til ferða og uppihalds kennara sem njóta endurmenntunarinnar. í umsóknum skal gefa ítarlegar upplýsingar um hvers konar endurmenntunartilboð umsækjandi hyggst bjóða fram, m.a. markmið námsins, stað og tíma, áætlaðan fjölda þátttak- enda, skipulag kennslu, stjórnun, ábyrgðarmann og annað það sem máli kann að skipta við mat á umsókn. Einnig skal leggja fram sun- durliðaða kostnaðaráætlun. Þegar fyrir liggur ákvörðun um hverjir fá styrk, verður gerður sérstakur samningur um hvert endurmenntu- narverkefni þar sem fram kemur m.a. lýsing á markmiðum og fyrirhugaðri framkvæmd og hvernig greiðslum verður háttað. Umsóknir skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, eigi síðar en 9. apríl 1999. Menntamálaráðuneytið, 8. mars 1999.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.