Dagur - 13.03.1999, Page 1
HELGARUTGAFA
Verð ílausasölu 200 kr.
Laugardagur 13. mars 1999
Skiláboð Davíðs
verða ekki misskilin
Ummæli Davíðs Odds-
sonar um að forsætis-
ráðherraembættið sé
ílokkmmi ekki fast í
hendi við stjómar-
myndun segir Sighvat-
ur Björgvinsson vera
augljós skilaboð sem
ekki verði misskilin.
Finnur Ingólfsson seg-
ir þau eðlileg.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
og formaður Sjálfstæðisflokks-
ins var spurður að því á lands-
fundi flokksins í gær, hvort hann
væri tilbúinn að afhenda fram-
sóknarmönnum forsætisráð-
herrastólinn ef flokkarnir héldu
áfram stjórnarsamstarfi, og svar-
að hanni því til að forsætisráð-
herrastóllinn væri Sjálfstæðis-
flokknum ekki fastur í hendi.
„Það er nú þannig með þetta
atriði, að embætti forsætisráð-
herra ríkisstjórnar á hverjum
tíma er samn-
ingsatriði," sagði
Davíð. „Við
göngum ekki
fram og gerum
kröfu til þess fyr-
irfram að Sjálf-
stæðisflokkurinn
fari með forsæt-
isráðherraemb-
ættið. Á hinn
bóginn þarf að
líta til styrks og
stærðar flokka og
í meginatriðum
er það svo að sá
flokkur sem hef-
ur meira fylgi á
bak við sig í
stjórnarsamstarfi
fær forsætisráð-
herraembættið.
hafi ekki verið skynsamleg
ákvörðun þá, en engu síður var
þetta gert. Þetta er samningsat-
riði og ég held
að við eigum
ekki að ganga
fram og segja að
það eitt komi til
greina að Sjálf-
stæðisflokkur-
Ieiði ríkis-
tnn
stjórn. Við göng-
um opnir til við-
ræðna í stjórnar-
myndun.“
„Ég held að þetta séu skilaboð til
Halldórs sem ekki verða misskilin, ‘
sagði Sighvatur Björgvinsson.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
gengið í ríkisstjórnarsamstarf án
þess að hafa forsætisráðherrann.
Það gerðist 1983 en ég tel að það
Augljós skila-
boð
„Það sem gerst
hefur er að Hall-
dór Ásgrímsson
lýsti því yfir að
Framsóknar-
flokkurinn sæk-
ist eftir forsætis-
ráðherraembættinu. Nú lýsir
Davíð því yfir að embættið sé
honum ekki fast í hendi. Ég held
að þetta séu skilaboð til Halldórs
sem ekki verða misskilin," sagði
Sighvatur Björgvinsson, formað-
ur Alþýðuflokksins, um þetta
svar Davíðs.
Finnur Ingólfsson, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra og varafor-
maður Framsóknarflokksins,
sagði þessi ummæli Davíðs eðli-
leg.
,/Etli það sé ekki eins komið
fyrir forsætisráðherra og sjálf-
stæðismönnum yfirleitt, eins og
okkur framsóknarmönnum, að
menn sjá stjórnarsamstarf þar
sem ríkt hafa heilindi. Gott sam-
starf, sem byggt er upp á gagn-
kvæmu trausti og árangurinn af
stjórnarsamstarfinu er ótvíræður
og er að koma æ betur í ljós.
Þetta segir okkur það að menn
kasta ekki frá sér þeim mögu-
leika að menn geti starfað áfram
séu forsendur um gott samstarf,
trúnað og traust milli manna til
staðar. Þá skiptir ekki höfuðmáli
hvernig einstök ráðuneyti skipt-
ast upp milli flokkanna. Það er
árangurinn sem skiptir máli,“
sagði Finnur Ingólfsson. - S.DÓR
Fyrstu
vorboðar
Fyrsta huðnan af íjórum í Hús-
dýragarðinum er nýborin og var
tvíkiða. Kiðlingunum, sem eru
hafur og huðna, verður gefið
nafn núna um helgina, sagði
Margrét Dögg Halldórsdóttir
dýrahirðir, sem býst við að önnur
huðna beri á næstunni. „Þær
hafa alltaf borið fyrripartinn í
mars, sem er heldur of snemmt,
svo við tókum þær í sæðingapró-
gramm síðasta haust, líka til að
reyna að fá nýtt blóð. En það
virðist hafa hafa mistekist að
einhverju leyti, svo ég á von á að
önnur heri á næstunni." Ekki er
von á fyrstu lömbum í garðinum
fyrr en í maí.
Margrét segir selina þó alltaf í
mestu uppáhaldi og hestana líka
mjög vinsæla. Kópurinn sem
fannst við Reykjavíkurhöfn og
kýli var skorið af er enn í Hús-
dýragarðinum. Skurðurinn er
enn ekki að fullu gróinn og búist
við að einhverjar vikur Iíða þar til
sárið lokast alveg. - HEl
Fyrstu vorboðarnir, tveir kiðlingar, fæddust í Húsdýragarðinum í fyrrinótt. mynd: e. ól
82. og 83. árgangur -50. tölublað
Ýmissa grasa kennir I helgarblaði
Dags að venju.
„Ætla að
berjast!44
„Ég er lítið fyrir að gefast upp.
Ég hef góða starfsorku. Ég mun
að sjálfsögðu vinna af krafti í
þeirri kosningabaráttu sem
framundan er. Mér finnst ég
hafa eitthvað til að berjast fyrir.
Og ég ætla að berjast," segir
Halldór Ásgrímsson, utanríkis-
ráðherra og formaður Framsókn-
arflokksins, í helgarviðtali Dags,
en þar svarar hann spurningum
Kolbrúnar Bergþórsdóttur um
stöðu flokksins í komandi kosn-
ingabaráttu.
Eiga íslensk fyrirtæki að styðja
listinar Hvað gera þau í dagr Um
þetta er fjallað í úttekt helgar-
blaðsins á fjárstuðningi fyrir-
tækja við margs konar liststarf-
semi í landinu.
„Mannræktarsetrið" nefnist
upprifjunin í „Sönnum dóms-
málum" helgarinnar, en þar seg-
ir frá skattamálum íslensku frí-
múrarareglunnar.
Það var enginn annar en
söngvarinn mikli Frank Sinatra
sem leiddi þá Kormák Geir-
harðsson og Skjöld Siguijónsson
saman. Þeir segja frá því hvernig
það gerðist í viðtali við helgar-
blað Dags.
í kynlífs-
þætti
helgar-
innar segir
Ragnheiður
Eiríksdóttir
hjúkrunar-
fræðingur frá
því þegar hún
kynnti sér
nektarbúllu í
New Orleans
fyrir hönd les
enda Dags - og fékk þar óvenju-
legan sopa.
Og á sínum stað í helgarblað-
inu: Bíórýni, Bókahillan, Flugur,
Helgarpotturinn, Krossgátan og
margt margt fleira.
Sjá Blað 2
mm
—
—
Venjulegir og
demantsskomir
trúlofunarhringar
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI ■ SÍMI 462 3524
wamnmae Exmess
EITT NÚMER AÐ MUNA
5351100
■P
■ r—
=o