Dagur - 13.03.1999, Page 4
4 -LAUGARDAGUR 13. MARS 1999
Axel formaður hjá
Frjálslyndum
Axel Yngvason, Merkigili í Eyjafirði, var
kjörinn formaður kjördæmafélags Frjáls-
lynda flokksins á Norðurlandi eystra á
stofnfundi félagsins í fyrradag. Axel Ienti
í 5. sæti í prófkjöri Framsóknarflokksins í
kjördæminu á dögunum og hefur nú
skipt um flokk.
Auk hans voru kjörnir í stjórn Sævar
Sæmundsson Akureyri, Hermann B. Har-
aldsson Akureyri, Pétur Pétursson Húsa-
vík og Asgeir Yngvason Akureyri.
Vilja sameinast
Mikifl meirihluti félaga í Kennarasambandinu og Hinu íslenska
kennarafélagi vilja sameina félögin. Atkvæði hafa verið talin í at-
kvæðagreiðslu meðal félagsmanna og var niðurstaðan sú að um 80%
þeirra sem afstöðu tóku í Kennarasambandinu sögðu já og um 75%
í HíK.
Stofnþing nýs kennarasambands verður haldið í nóvember og það
tekur formlega til starfa eftir áramót.
Axel Yngvason farin til Frjáls-
lyndra.
Kaupmöimiun á horninu fækkar emi
Bragi Kristjánsson kaupmaður hefur selt rekstur verslunarinnar
Hetjólfs í Skipholti í Reykjavík til Kaupáss, sem rekur 11-11 verslan-
irnar. Kaupás mun áfram reka verslunina í Skipholtinu. Bragi og fjöl-
skylda hans hafa rekið Heijólf í rúm 40 ár, fyrst á Grenimel og síðan
í Skipholtinu.
Ólafur formaður eldri
horgara
Olafur Olafsson, fyrrverandi landlæknir,
var kosinn formaður Félags eldri borgara
í Reykjavík á aðalfundi félagsins um síð-
ustu helgi. Páll Gíslason læknir, sem ver-
ið hefur formaður undanfarin ár, gaf ekki
kost á sér til endurkjörs af heilsufars
ástæðum.
I skýrslu stjórnar félagsins kom fram að
síðasta ár hefði verið mjög viðburðaríkt
og þar hefðu borið hæst kaup og flutning-
ar í Glæsibæ sem hefðu gerbreytt allri að-
stöðu hjá félaginu. Félagsstarfið hefur
aukist verulega og má ætla að í hverri
viku tald u.þ.b. 1000 manns þátt í með einhverjum hætti.
Lokáhátíð Stóru upplestrar-
keppninnar
Upplestrarkeppni barna í 7. bekk grunnskóla er að ljúka og verða
lokahátíðir haldnar í átta byggðalögum næstu daga. Þetta er í þriðja
sinn sem keppnin er haldin og hafa um 2000 nemendur í 40 skólum
tekið þátt og æft vandan upplestur og framburð í vetur.
Á lokahátíð koma fram bestu upplesarar í 7.bekk í hverju byggðar-
Iagi eða hverfi og dómnefnd velur þrjá bestu. A mánudaginn verður
lokahátíð í Grafarvogskirkju og Njarðvíkurkirkju, á þriðjudag í Hafn-
arborg, á miðvikudag í Gerðubergi, og á fimmtudag í Bústaðakirkju
og Bæjarleikhúsi Mosfellsbæjar. Þriðjudaginn 23.mars verður loka-
hátíð í Mýrarhúsaskóla, og daginn eftir í Ráðhúsi Reykjavíkur, Fé-
Iagsheimili Kópavogs og Garðaskóla.
Ólafur Ólafusson, nýr formað-
ur eldri borgara í Reykjavík
Ný stjóm stúdentaráðs
Finnur Beck stjórnmálafræðinemi var kjörinn formaður Stúdenta-
ráðs á skiptafundi ráðsins á fimmtudaginn. Hann tekur við af Ásdísi
Magnúsdóttur laganema. Framkvæmdastjóri verður Pétur Maack
Þorsteinsson sálfræðinemi.
Röskva samtök félagshyggjufólks í Háskólanum héldu meirihluta
sínum í kosningum 24.febrúar síðastliðinn níunda árið í röð. Ný
stjórn samtakanna tekur við á mánudaginn kemur.
Ný frímerkjaverslim
Ný verslun með frímerki var opnuð á fimmtudaginn.
Islandspóstur hef-
ur opnað nýja
verslun með frí-
merki að Vestur-
götu lOa. Mark-
miðið er að auka
þjónustu við frí-
merkjasafnara og
efla almennan
áhuga á söfnun ís-
lenskra frímerkja
með margvísleg-
um hætti. Versl-
unin var opnuð á
fimmtudaginn og
var af því tilefni
haldið Fyrstadags-
boð.
FRÉTTIR
Davíð Oddson hefur ekki tekið opinberlega afstöðu til varaformannsslagsins í Sjálfstæðisflokknum og erþví ábyggilega ekki
að hvísla neinum stuðningsorðum að Geir Haarde fjármálaráðherra. Milli þeirra situr Inga Jóna Þórðardóttir, oddviti borgar-
stjórnarflokks Sjálfstæðismanna.
Einsleit forysta
óspennandi
Landssamband Sjálf-
stæðiskvenna virðist
ekki jafn ánægt með
stöðu kvenna í flokkn-
um og formaður
flokksins ef marka
má bækling sem það
heíiir dreift á lands-
fundi.
„Sýnum áræði og þor og styðjum
konur í framboði til áhrifastarfa
innan flokksins,“ segir í áróðurs-
bæklingi, sem Landssamband
Sjálfstæðiskvenna hefur dreift á
öll borð á landsfundi Sjálfstæðis-
flokksins til þess að fá fulltrúa til
að kjósa Sólveigu Pétursdóttur
sem varaformann. Landssam-
bandið beitir sér af fullum þunga
fýrir Sólveigu og er greinilega
ekki alveg jafn ánægt með stöðu
kvenna innan flokksins og for-
maður hans. Davíð Oddson sagði
í setningarræðu sinni á Iands-
fundinum að útlit væri fyrir að
konum myndi fjölga verulega í
þingflokki Sjálfstæðismanna í
vor. „Á hinum væng stjórnmála-
lífsins, sveitarfélögunum, eru
sjálfstæðiskonur áberandi í for-
ystusveit. Kona er formaður
þingflokksins, kona er varafor-
maður þingflokksins, kona er
framkvæmdastjóri þingflokksins.
Kona er leiðtogi borgarstjórnar-
flokksins. Kona er formaður
Sambands ungra sjálfstæðis-
manna. Konur eru í meirihluta í
framkvæmdastjórn Sjálfstæðis-
flokksins. Konur hafa aldrei ver-
ið fleiri í sögu miðstjórnar flokks-
ins en nú er og svona mætti lengi
áfram telja. Og upp úr stendur
að fái Sjálfstæðisflokkurinn góð-
an byr í kosningunum, þá mun
mesta sókn kvenna inn f stjórn-
málin gerast fyrir meðalgöngu
Sjálfstæðisflokksins," sagði for-
maður Sjálfstæðisflokksins.
Öniiur iiiynd
I fyrrnefndum bæklingi Lands-
sambands Sjálfstæðiskvenna er
dregin upp dálítið önnur og
dekkri mynd. Þar er vakin athygli
á því að engin kona hafi gegnt
ráðherraembætti á vegum Sjálf-
stæðisflokksins á þessum áratug,
að af 25 þingmönnum flokksins
séu aðeins 5 konur eða 20%, að
færri konur en karlar kjósa Sjáfl-
stæðisflokkinn og að „einsleit
flokksforysta getur leitt af sér
óspennandi ímynd með takmark-
aða skírskotun til kjósenda," eins
og segir orðrétt.
Stuðningsmenn keppinautar-
ins Geirs Haarde fjármálaráð-
herra láta hins vegar minna á sér
bera og virðist engin formleg
kosningabarátta í gangi á hans
vegum þótt eflaust ræði maður
við mann - og konu. Kosningin
fer fram á sunnudaginn og verð-
ur það eitt síðasta verk lands-
fundarfulltrúa áður en haldið er
út í kosningabaráttuna að kjósa
nýjan varaformann flokksins. -Vj
Undrast seinagang
bæiaryflrvaíaa
Verslunarstjóri Rúm-
fatalagersins telur að
bæjaryfirvöld ættu að
geta iiiinið af meiri
krafti í Akureyrarvall
armáliuu.
Birgir Reynisson, verslunarstjóri
Rúmfatalagersins á Akureyri,
undrast seinagang bæjaryfirvalda
sem enn hafa enga ákvörðun tek-
ið hvað verður um lóð Akureyrar-
bæjar þar sem aðalíþróttaleik-
vangur bæjarins stendur. Hann
segir Rúmfatalagerinn lítið geta
aðhafst í leit að öðru húsnæði á
meðan bærinn hugsi málið. „Ef
umsókninni verður hafnað finnst
okkur eins og búið sé að draga
okkur á asnaeyrunum. Við getum
lítið horft á kringum okkur eins
og stendur," segir Birgir.
Það var milli jóla og nýárs sem
hugmyndir komu fyrst fram um
að KEA og Rúmfatalagerinn
myndu sækja um lóðina undir
allt að 10.000 fermetra verslun-
arhúsnæði. Þetta var að frum-
kvæði bæjarins og skömmu síðar
var starfshópur myndaður á veg-
um skipulagsnefndar. Vilborg
Gunnarsdóttir, formaður skipu-
lagsnefndar bæjarins, sagði að
hún byggist við niðurstöðu öðru
megin við síðustu mánaðamót en
mikilvægt væri að rasa ekki um
ráð fram í ákvarðanatökunni.
Kristján Þór Júlíusson, bæjar-
stjóri á Akureyri, segist ekki geta
sagt annað en að ákvörðunar sé
að vænta einhvern tíma í mánuð-
inum.
Verlsunarstjóri Rúmfatalagers-
ins segir eigendur Rúmfatala-
gersins aðeins hafa átt einn fund
með bæjarstjórninni vegna máls-
ins. Hann treystir sér ekki til að
spá fyrir um framvinduna, en
segist hafa átt von á meiri and-
stöðu við hugmyndina en komið
hafi fram. Birgir furðar sig á að
fyrst í síðustu viku hafi hafist
könnun á því hvort grundvöllur
væri fyrir því að byggja upp nýjan
íþróttavöll í bænum. „Mér finnst
að menn hefðu mátt vinna af
meiri krafti í þessu máli,“ segir
Birgir. - Iil>