Dagur - 18.03.1999, Side 2
2 —FIMMTUDAGUR 18. MARS 1999
FRÉTTIR
Leikklúbburinn Saga. Fremst á myndinni er Eva Signý Berger. Krakkarnir ætia ekkert að leggja upp iaupana, leita nú að nýju verki
og ætia að nota páskana vel. mynd: brink
Mesfa ekki leika
Skuaboðaskjóðu
Tkgur
Framsóknarmcnn vítt og
breitt um land hafa iniklar
áhyggjur af stöðu mála. Skoð-
anakannanir hafa náð þeim
upp á tæniar og mun stórsókn
nú í undirbúningi. í pottinum
er fullyrt að hjá Framsókn
bindi meiin miklar vonir við
miðstjómarfundinn, sem verður hclgina 27. og 28.
mars - að sá fundur og athyglin í kringum hami inuni
koma þeim aftur á skoðanakaimanakortið....
Meira af framsókn. Framsókn
armeim á Suðurlandi liafa val-
ið sér kosningastjóra en það er
Ólafía Ingólfsdóttir í Vorsa-
bæ, sem skipar 3. sætið á lista
flokkshis í kjördæminu. Hún
hefur áður stýrt kosningabar-
áttu flokksins í kjördæminu,
eu síðast stýrði Ami Magnús-
son, aðstoðarmaður iðnaðar-
ráðherra og bæjarfulltrúi í
Hveragerði, kosningabaráttuiuii. Hins vegar hafa
framsókuarmeim í Reykajvik eim ckki gengið frá list-
anum, og vekur það nokkra athygli ekki síst í ljósi
þess að þeir em þcgar búuir að ráða sér kosninga-
stjóra!....
LeikMúbburiim Saga á
Akureyri fær ekld að sýua
Skilaboðaskjóðima eftir
Þorvald Þorsteinsson með
tónlist Jóhanns G. Jó-
hannssonar.
Saga er leikklúbbur ungs fólks á aldr-
inum 15-21 árs og er stjórnað af ung-
lingunum sjálfum og hefur undanfar-
inn mánuð lagt mikla vinnu í æfingar
á Skilaboðaskjóðunni. En nýjustu
skilaboðin úr skjóðunni eru heldur
sorgleg.
Eftir þriggja vikna æfingatímabil
neyðast þau nú til að hætta við æfing-
ar, þar sem Þorvaldur Þorsteinsson
höfundur verksins og Jóhann G. Jó-
FRÉTTA VIÐTALIÐ
Þorsteinn
Gunnarsson
rektor Háskólans á Akureyri
Undirritaður hefur verð
Jjámiögnunarsamningur um
byggingaframkvæmdirvið
Háskólann áAkureyri til
ársins 2003 að upphæð 414
milljónirkróna, enhúsnæðið
nýtistaðallega sem kennslu-
húsnæði.
hannsson höfundur tónlistarinnar,
vilja ekki veita klúbbnum leyfi til að
taka verkið til sýninga. Eitt af skilyrð-
um Jóhanns var að ákveðinn tónlistar-
maður sæi um tónlistina í uppfærsl-
unni en það hinsvegar strandar á fjár-
hag klúbbsins.
Gefumst ekki upp
Ekki náðist í formann klúbbsins, Evu
Berger, en í samtali við Dag sagði
Sandra Hlíf Ocares, meðstjórnandi og
leikari, að ekkert uppgjafarhljóð væri í
hópnum þrátt fyrir þetta. „Þetta er eig-
inlega búið að vera rosalegur misskiln-
ingur,“ segir Sandra Hlíf. „Þorvaldur
vissi af þessu áður en við byijuðum æf-
ingar og hann setti ekkert út á það.“
Sandra Hlíf segir Ólaf leikstjóra hafa
átt að fá einhver skilaboð frá Jóhanni
en þau hafi ekki skilað sér. „Jóhann
setti fram kröfur um að við þyrftum að
ráða ákveðinn tónlistarmann í þetta og
yrðum með lifandi tónlist á hverri sýn-
ingu en peningalega séð höfðum við
ekki efni á því. Þeir voru síðan búnir
að segja að þeir ætluðu ekkert að
banna okkur að setja þetta upp en
hringja svo daginn eftir og segjast ætla
að setja stopp á þetta,“ segir Sandra
Hlíf.
Sögufólkið ætlar þó ekkert að leggja
upp Iaupana og eru núna að velta fyr-
ir sér öðru verkefni. „Frumsýningu
seinkar kannski um tvær til þrjár vikur.
Við æfum á fullu um páskana og not-
um tímann vel,“ segir Sandra Hlíf.
„Það ætla allir að halda áfram. Það á
eftir að verða dúndursýning. Við gef-
umst ekkert upp.“ - Hi
Enn magnast orðrómurinn
um að Ellert B. Schrain sé að
íhuga að taka 1. sætið hjá
S verri Hermamissyni í Reykj a-
vík. Benda nienn á að Ellert
virðist kunna vel við sig í
sviðsljóinu síðustu daga og
gömlu stjómmálamannstakt
amir séu enn á sínum staö. í
pottinum benda menn líka á
að Ellert sé vinsæll og með góð
sambönd inn i íþróttahrcyfinguna, scm sé mikill kost-
urí pólitíknú tU dags....
Ellert B. Schram.
SamnÍTigiirum eykur fraiii
kvæmdahraða við háskólann
- Hvaða jrjðingu hefur þessi fjúrmögnun-
arsamningur fyrir Háskólann á Akureyri?
„Þetta er fyrsta skuldbinding stjórnvalda
um nýbyggingar við Háskólann á Akureyri,
sem eru sérstaklega hannaðar fyrir starf-
semi nútíma háskóla og munu þar með
gjörbreyta starfsaðstöðu bæði kennara og
nemenda. Þessi samningur þýðir líka það
að framkvæmdahraðinn eykst frá því sem
áður var áætlað. Fyrir samninginn vorum
við með 60 milljónir króna fjárveitingu á
þessu ári en fáum 130 milljón króna fjár-
veitingu á næsta ári þannig að það fjármagn
sem við höfum til ráðstöfunar tvöfaldast.11
- Nú nær þessi samningur til ársins
2003 með 414 milljóna króna heildar-
framlagi. Hafið þið einhverja tryggingu
fyrir því að nýr samningur verði gerður
árið 2003 til að tryggja framhald upphygg-
ingar háskólasvæðisins að Sólborg?
„Nei, að sjálfsögðu ekki, en við trúum
ekki öðru en. áfram- verði haldið með. upp-
byggingu á svæðinu og byggingaráætlun
fyrst svona myndarlega er tekið á fyrsta
hlutanum. Það gæti jafnvel átt sér stað að
undirritaður yrði nýr samningur um fram-
hald framkvæmda fyrir árið 2003. Ég óttast
ekki að menn hugsi sem svo að nú sé nóg
að gert í bili. Auk þess eru til aðrar hug-
myndir um fjármögnun en endilega það að
þetta séu framlög ríkissjóðs. Þar er ég að
hugsa um fjármögnun Akureyrarbæjar og
e.t.v. einkaframkvæmdir, en ekkert slíkt
hefur reyndar séð dagsins ljós ennþá."
- Hvenær verður öll statfsemi Háskól-
ans á Akureyri komin á Sólborgarsvæðið
að þínu mati í Ijósi þessa nýja fjármögn-
unarsamnings?
„Það fer eftir því hversu hratt skólinn
þróast en ég held að árið 2005 sé alls ekki
óeðlilegt markmið í því sambandi."
- Þú hefur boðið lóð á háskólasvæðinu
undir væntanlegt menningarhús, sem
ríkisstjómin hefur tilkynnt að reist verði á
Akureyri sem og fleiri stöðum- á landinu.
Eruð þið forsvarsmenn Háskólans áAkur-
eyri með þvi að fara ódýra leið á kostnað
annarra til þess að leysa mikinn skort á
ráðstefnusal við skólann?
„Við erum að samstilla þær þarfir sem eru
á svæðinu fyrir slíkt menningarhús og þar
hlýtur Háskófinn á Akureyri að vera mjög
stór aðili. Not Háskóla Islands af Háskóla-
bíói er ein fyrirmyndin þó ekki verði kvik-
myndasýningar í þessu húsi. Ég sé ekki að
afnot háskólans gangi gegn þörfum annarra
aðila á Akureyri og víðar vegna tónlistar- og
leiklistarflutnings og annarar menningar-
starfsemi því það væri hægt að ganga
þannig frá málum að Iistamenn hefðu að-
stöðu til undirbúnings sínum listaflutningi
í húsinu að degi til. Nýsamþykkt stefnu-
mótun í atvinnumálum á Akureyri visar víða
til vinnu sem háskólinn hefur hafið og aug-
ljóst að skýrsluhöfundar höfða mjög til
þekldngaruppbyggingar hér á svæðinu og í
því sambandi er háskólinn í lykilhlutverki.
Hluti þeirrar uppbyggingar. er stuðningur
við uppbyggingu listgreina." gg