Dagur - 18.03.1999, Page 5
X^MT-
FIMMTUDAGUR 18. MARS 1999 - S
FRÉTTIR
Sleppt lír haldi
Lögreglan hefur sleppt úr haldi tveimur mönnum, sem kærðir hafa
verið fyrir að ráðast á og misþyrma tæplega fimmtugum manni á
heimili hans \ið Móabarð í Hafnarfirði aðfaranótt sunnudags.
Ekki var farið fram á gæsluvarðhald yfir mönnunum, sem eru Iög-
reglunni góðkunnir, en þeir hafa þó ekki játað á sig verknaðinn. Kær-
andinn þekkti vel til annars árásarmannsins og ber að félagarnir hafi
ráðist inn í íbúð sína og þvingað sig til að afsala sér 10 ára gamalli
jeppabifreið sem hann á, flutt hann síðan meiddan í austurbæ
Reykjavíkur og hent honum þar út. Þeir mættu á vettvang með stöðl-
uð afsalseyðublöð, en grunur leikur á að um „handrukkun" hafi ver-
ið að ræða. — FÞG
■
Stjóm AlJjjóðasam-
taka lækna fjallar
um gagnagruimiim
Norræna læknaráðið hefur skrifað
alþjóðasamtökum lækna WMA og
farið fram á formlegt álit samtak-
anna á lögunum um miðlægan
gagnagrunn á heilbrigðissviði.
Fjallað verður um málið á fundi
stjórnar WMA í næsta mánuði, að
því er fram kemur í fréttatilkynn-
ingu frá Læknafélagi Islands.
Þar segir að í beiðninni sé lagt til
að Iögin og álit siðanefndar Iækna-
félagsins verði tekið til meðferðar í
umljöllun um siðferðileg álitamál
og við mat á því hvort lagasetning-
in stríði í veigamiklum atriðum Guðmundur Björnsson formaður
gegn stefnu alþjóðlegu læknasam- Læknafélagsins.
takanna.
Fæöingarorlof handa feðnim
„Bandalag háskólamanna telur að nauðsynleg forsenda jafnréttis á
heimili og vinnumarkaði sé að tryggja sjálfstætt fæðingarorlof feðra,“
segir í ályktun sem miðstjórn Bandalags háskólamanna samþykkti í
gær.
„Þannig sé tiltekinn hluti fæðingarorlofs bundinn föður, annar
móður og sá þriðji sé til frjálsrar ráðstöfunar milli foreldra með for-
sjá. Börnum sem eiga aðeins eitt forsjárforeldri verði þó tryggður
sami réttur," segir einnig í ályktuninni.
Fyrsta imgliðafélag Sainfylkingar
Fyrsta félag ungra stuðningsmanna Samfylkingarinnar var stofnað
með formlegum hætti í gær, en það voru ungliðar í Norðurlandskjör-
dæmi vestra sem riðu á vaðið á stofnfundi á Sauðárkróki.
Eftir því sem best er vitað var tillaga uppstillingarnefndar samþykkt
á fundinum og er formaður félagsins þá Stella Jóhannsdóttir, en hún
er dóttir Jóhanns Más Jóhannssonar og þá um leið bróðurdóttir Krist-
jáns Jóhannssonar söngvara. Af öðrum leiðtogum ungliðanna má
nefna Fríði Finnu Sigurðardóttur, en hún er dóttir Onnu Kristínar
Gunnarsdóttur, sem skipar annað sætið á lista Samfylkingarinnar í
kjördæminu. — FÞG
Nýr formaðux
Blmdrafélagsins
Halldór Sævar Guðbergsson var
kosinn formaður Blindrafélagsins á
aðalfundi þess um helgina. Hann
tekur við af Helga Hjörvari borgar-
fulltrúa sem gaf ekki kost á sér til
endurkjörs.
A aðalfundinum var kosin ný
stjórn en hana skipa Ólafur Þór
Jónsson, Ágústa Eir Gunnarsdóttir,
Jón Heiðar Daðason og Gunnar
Valur Gunnarsson.
Blindrafélagið var stofnað í ágúst
1939 og verður 60 ára afmælisins
minnst með margvíslegum hætti á
árinu.
Kaupþing á fjórðimg í FBA
Samkvæmt hlutnafaskrá Fjárfestingarbanka atvinnulífsins (FBA) sl.
mánudag var dótturfélag Kaupþings, Kaupthing Luxembourg, lang
jtærsti hluthafinn í FBA að ríkissjóði frátöldum. Hlutur ríkissjóðs í
6,8 milljarða hlutafé var sem fyrr 51% en Kaupthing Luxembourg
taldist vera með 24,09% hlut.
í næstu sætum koma Lífeyrissjóðurinn Framsýn (1,86%), íslands-
banld (1,12%), WÍB hf. - sjóður 6 (1,01%), FBA sjálfur (0.97%), Líf-
eyrissjóður sjómanna (0,64%), Kaupþing (0,57%), Landsbankinn
(0,28%) og Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda (0,27%), en aðrir hluthaf-
ar eru skráðir fyrir alls 18,19% hlut. — FÞG
Helgi Hjörvar hættur hjá Blindrafé-
laginu.
ÓSEYRI 1A, 603 AKUREYRI, SÍMI 461 4040, FAX 461 4044
JÁRNHÁLSI 2, 110 REYKJAVÍK, SÍMI 587 6500, FAX 567 4274
s_____________ -___________________________________________________>
Drif keðju r
Legur
Hjðruliðir
VÉLARs
ÞJ®NUSTAhf
■wmmÍk.SLíi. - ■ ...
Ganon
Með DVD ' ^
Pentium 2 NN')%>
17“ skjár
400 MHZ
8 Mb skjákort , ^ AAA
64 Mb vinnsluminni oíl. kf« I2t«t00|
Úrval gsm síma
frákr. 14.900,-
F erðageislaspilarar
frá kr. 6.900,-
Ferðatæki frá kr. 7.990,
með geislaspilara
prentarar frá
900,-
Heymartól í
miklu úrvali
Hljómtæki frá kr. 24.900,-
Sjónvarpstæki 14“ frá 19.900,
20“ frá 24.900,-
frákr. 1.990,-
RÖDIONAUST
Greiðslukjör í allt að 36 mánuði Geislagötu 14, 600 Akureyri, sími 462-1300