Dagur - 18.03.1999, Qupperneq 9
FIMMTVDAGUR 18. MARS 1999 - 9
T>Mptr.
fyUdngu
—
':f' i
/■K>% %
------------------
r • *.
/ 1 'v V * vv " * K.Jj
;
)fkjörinu.
hefur stöðugt verið upplýst um
gang mála,“ svarar Finnur.
Sigur eða sjálfsmorð?
A meðan fylgismenn Sigbjörns
virðast ánægðir með að hann skuli
tala hreint út, heyrast einnig radd-
ir sem segja hann hafa framið
pólitískt sjálfsmorð með rógburð-
aryfirlýsingum sínum og því að
vekja athygli á peningamálum sín-
um með fyrrgreindum hætti. „Mér
finnst sem Sigbjörn sé búinn að
sparka þannig frá sér að það hafi
myndast fullkominn trúnaðar-
brestur milli hans og þeirra sem
reynt hafa að leysa rnálið," segir
landsþekktur pólitíkus. Annar seg-
ir: „Menn þurfa ekki að vera hissa
á því þótt einhverjir fái kalda fæt-
um Hrannar B. Afnarsón og Helga
Hjörvarr sem kom upp fyrir sveit-
arstjórnarkosningarnar í vor.“ Þá
heyrist einnig: „Það sem menn
hafa mestar áhyggjur af er að það
næst ekki eining um listann. Þetta
kemur ekkert Ijármálum við.“
Steingrfmur kátur
Mönnum ber hins vegar saman
um að einn sitji nú á ljósbitanum
og hlæi að öllu saman. Sá maður
sé Steingrímur J. Sigfússon, sem
Ieiðir VG-framboðið á Norður-
landi eystra. Hann hefði ekki get-
að pantað betri atburðarás með
tilliti til fylgismöguleika í íjórð-
ungnum.
FRETTIR
Hagnaðui Sam-
herja 706 niilljnnir
Eitt af meginmark-
miðinn Samherja á ár-
inu 1998 var að bæta
rekstur erlendu dótt-
urfyrirtækjanua, og
])aö gekk eftir.
Rekstrarhagnaður Samherja
nam 706 milljónum króna í fyrra
en var 204 milljónir árið áður.
Hagnaður af reglulegri starfsemi
fyrir tekju- og eignarskatt nam
589 milljónum króna en hagnað-
ur án áhrifa dóttur- og hlutdeild-
arfélaga nam 676 milljónum
króna. Rekstur Samherja gekk
vel á árinu og öll dótturfyrirtæki
félagsins erlendis voru rekin með
hagnaði. Mikil fjármunamyndun
var í rekstrinum en veltufé frá
rekstri nam 1.397 milljónum
króna. Rekstrartekjur Samheija
voru tæpir 9,5 milljarðar, saman-
borið við tæpa 7,4 milljarða
króna árið áður. Rekstrargjöld
7,7 milljarðar í fyrra en 6 millj-
arðar 1997.
Að sögn Þorsteins Más Bald-
vinssonar, framkvæmdastjóra
Samherja, var eitt af meginmark-
miðum félagsins á árinu 1998 að
bæta rekstur erlendu dótturfyrir-
tækjanna. Mikil umskipti áttu
sér stað hjá Onward Fishing í
Bretlandi í kjölfar gagngerrar
endurskipulagningar á rekstrin-
um og ráðinn var nýr fram-
kvæmdastjóri. Skipastóllinn var
endurskipulagður og var leiga á
frystiskipinu Snæfugli liður í því.
Samherji á nú 99% hlut í DFFU
en til þess félags var Guðbjörg IS
nýlega seld. Þorsteinn Már segir
ljóst að Ijölþættur rekstur Sam-
heija geri það að verkum að fé-
Dýrar
rjúpur
Héraðdómur Reykjavikur dæmdi
í gær ríkissjóð til að greiða
ijúpnaskyttu 50 þúsund krónur
vegna ólögmætrar handtöku og
upptöku á byssu og sjö rjúpum -
bæturnar eru því rúmlega 7 þús-
und á hveija ijúpu. Rjúpnaskytt-
an, Rúnar Eiríkur Siggeirsson,
fór í mál og krafðist 100 þúsund
króna skaðabóta eftir að Hæsti-
réttur sýknaði hann af ákæru um
ólöglegar fuglaveiðar á landar-
eign Gilsár á Jökuldalsheiði, en
Hæstiréttur komst að þeirri nið-
urstöðu að eignarhald á Iandar-
eigninni væri ekki óyggjandi.
Undirréttur hafði dæmt
manninn í 30 þúsund króna sekt
og gert ijúpurnar sjö upptækar.
Akæra í málinu var byggð á því
að allt land innan merkja Gilsár
væri háð beinum eignarrétti
jarðeigandans. Var Rúnar sýkn-
aður í Hæstarétti með vísan til
þess að vafi var talinn leika á um
hvort stofnast hefði að lögum til
beins eignarréttar eiganda jarð-
arinnar Gilsár yfir öllu því land-
svæði þar sem Rúnar kann að
hafa verið við veiðar.
I skaðabótamálinu komst Sig-
ríður Olafsdóttir héraðsdómari
að þeirri niðurstöðu að handtak-
an hefði eins og á stóð verið
ólögmæt og sömuleiðis Ieit í bíl
að skotvopninu án dómsúr-
•skurðar. - - .
Þorsteinn Már Baldvinsson: Meg-
instyrkur Samherja að fyrirtækið
starfar á öllum sviðum sjávarút-
vegs.
lagið sé vel í stakk búið til að
mæta sveiflum í einstökum
greinum.
„Nýliðið ár var slakt hvað varð-
ar rækjuveiðar, verð á fiskimjöli
lækkaði mjög á árinu og afkoma í
kavíarvinnslu var slök. Þá veidd-
ist mun minna af loðnu en vonir
stóðu til. Á hinn bóginn var af-
koma frystiskipa félagsins mjög
góð, afurðaverð var hátt og mark-
aðs- og sölustarf gekk vel. Þrátt
fyrir erfiðleika í einstökum grein-
um er afkoman svo góð sem raun
ber vitni. Eg held að þetta sýni
betur en margt annað að megin-
styrkur Samherja felst í því að fé-
lagið starfar á öllum sviðum sjáv-
arútvegs og sveiflur í einstökum
greinum hafa því minni áhrif en
ella. Erlendu dótturfélögin skjóta
sterkum stoðum undir rekstur-
inn og það er einmitt erlendis
sem ég tel að helstu vaxtarmögu-
leikar okkar liggi. Þá höfum við
ákveðið að láta smíða fyrir félag-
ið nýtt fjölveiðiskip sem kemur
inn í reksturinn á fyrri hluta árs
2000,“ segir Þorsteinn. - GG
UTANRIKISRAÐUNEYTIÐ
50 ára afmæli Atlantshafsbandalagsins
Hátíðarfundur
Föstudaginn 19. mars 1999 verður haldinn hátíðarfundur á veg-
um utanríkisráðuneytisins í tilefni af 50 ára afmæli Atlantshafs-
bandalagsins. Fundurinn verður haldinn í Listasafni íslands og
hefst kl. 17.15.
DAGSKRA
Kl.17.15 Opnunarræða utanríkisráðherra, Halldórs Ás-
grímssonar
Kl.17.25 Breyttir tímar
Hjálmar W. Hannesson, sendiherra og skrifstofu-
stjóri alþjóðaskrifstofu utanríkisráðuneytisins.
Samstarf Landhelgisgæslunnar og varnar-
liðsins
Hafsteinn Hafsteinsson, forstjóri Landhelgisgæsl-
unnar.
Almannavarnir og NATO
Sólveig Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Almanna-
varna ríkisins.
Fríðargæsla í Bosníu-Hersegóvínu
Emilía Petra Jóhannsdóttir, hjúkrunarfræðingur og
Sólveig Dóra Magnúsdóttir, læknir.
Samstarf á vegum NATO milli hernaðarlegs
og borgaralegs flugs
Hallgrímur Sigurðsson, forstöðumaður rekstrar-
deildar flugumferðarsviðs Flugmálastjórnar.
Hin hliðin á NATO - umhverfis- og
þjóðfélagsmál
Sigurður M. Magnússon, forstöðumaður Geisla-
varna ríkisins.
Vísindi í þágu friðar
Dr. Ágúst Valfells, kjarnorkueðlisfræðingur.
Upplýsingastarfsemi NATO
Dagný Erna Lárusdóttir, upplýsingafulltrúi NATO á
íslandi.
Fundarstjóri verður Gréta Gunnarsdóttir,
sendiráðunautur.
Kl. 18.45 Fundi slitið