Dagur - 08.04.1999, Page 2
18 - FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1999
rD^tr
LÍFIÐ í LANDINU
SMÁTT OG STÖRT
UMSJÓN:
SIGURDÓR
SIGURDÓRSSON
Eggert Haukdal.
Skítamórall
Það er ekki ofsögum sagt að andrúmsloftið
hafi verið þrungið spennu og mórallinn slæm-
ur í V-Landeyjum síðustu misserin. Andstæð-
ingar Eggerts Haukdal, fyrrum oddvita, hafa
hreinlega farið hamförum við að koma honum
frá sem oddvita og voru meðölin ekki öll vönd-
uð í þeim leik. I þessum átökum hafa hrepps-
búar klofnað í tvær fylkingar sem varla talast
við. Það má því segja að í hreppnum hafi ríkt
sannkallaður skítamórall í nokkuð langan
tíma. Þess vegna töldu menn það alveg við
hæfi að á dansleiknum í Njálsbúð í V-Landeyj-
um, á annan dag páska, skyldi hljómsveitin
Skítamórall vera fengin til að leika fyrir dansi.
Árrti Johnsen.
„Samt urðum
við að fá fólk til
að fara á Vagninn
og fá sér bjórglas
á meðan beðið
var eftir næstu
messu.“
Lýður Arnason,
Iæknir á Flateyri,
um mikla aðsókn
á poppmessu þar
vestra.
1300rauðarrósir
Við sögðum á dögunum frá nokkrum gullkorn-
um úr því fræga blaði „Eyjamanninum.“ Þar
var birt skrá yfir flest það sem gert hefur verið
í Vestmannaeyjum sl. 8 ár og það er allt sagt
Arna Johnsen að þakka. Árni kann vel að meta
svona taumlausa aðdáun, því fyrir prófkjör
Sjálfstæðisflokksins í Suðurlandskjördæmi í
vetur er sagt að Arni hafi sent 1300 rauðar
rósir með Herjólfi til Eyja og var rósunum
dreift á meðal kosningabærra manna í Eyjum
á prófkjörsdag. Svona eiga sýslumenn að vera!
Vit fyrir tvo
„Kæra frænka," sagði oflátungurinn. „Eg væri
alveg fús til að giftast frænku þinni ef hún
væri ekki svona heimsk.“ „Eg skil það vel, kæri
frændi," svaraði frænkan. „Þú þarft að eiga
konu sem hefur vit fyrir tvo.“
Nú má Davíð draga í land
Á þessu kosningaári hafa þrenn stjórnmálaöfl
sent prédikara við messu í Stórólfshvolskirkju.
Á pálmasunnudag var það fulltrúi Samfylking-
arinnar sem predikaði. Hagyrðingarnir snjöllu
á Hvolsvelli hafa ort um þessar predikanir og
við birt vísur þeirra í Degi. Hér koma svo vís-
urnar um predikunina á pálmasunnudag.
Bjarni Helgason vélsmiður orti:
Nii má Davíð draga í land
og Dóri létta förum,
því Samfylkingin segir grand
með sigurbros á vörum.
Víst ég um það vonir el
að vel þeir duga megi,
seni predika svo prýðisvel
á pálmasunnudegi.
Og Magnús Halldórsson orti um sama atburð:
Á Hlíðarenda fylking fín
fer að sáluhliði.
Eflaust hefði Gunnar grín
gert að svona liði.
Jóhannes Helgi,
rithöfundur, segir
að Jón Engilberts
hafi ekki einungis
verið mikill málari
hann hafi einnig
sagt sögur betur
en aðrir menn.
-mynd: þúk
Sögur úr húsi málarans
Þessa dagana er verið að lesa
sem útvarpssögu bók Jóhannesar
Helga Hús málarans, endur-
minningar Jóns Engilberts. Er
það endurflutningur á lestri Ósk-
ars prófessors Halldórssonar frá
1974, sem var þjóðkunnur sem
afburða lesari.
„Jón segir í bókinni m.a. frá
samtíðarmönnum sínum í hópi
listamanna og námsmanna í
Kaupmannahöfn, Ósló og
Reykjavík, Sverri Kristjánssyni,
Þorvaldi Skúlasyni, Svavari
Guðnasyni, Snorra Hjartarsyni,
að ógleymdum Sigurjóni Ólafs-
syni, og Kristmanni Guðmunds-
syni, sem var mikil hjálparhella
Islendingum f Ósló. Miklu fleiri
listamenn koma við sögu. Eg
hygg að þetta séu nokkuð magn-
aðar persónulýsingar, að maður
ekki segi harkalegar á köflum.
„Jón var einhver stór-
brotnasti persónu-
leiki semég hef
kynnst. Égman
hvemig mérféllust
stundum hendurþeg-
ar ég leit upp úr texta
mínum, á myndimar
sem hann varað
draga upp með magn-
aðri litasamsetn-
ingu. “
SPJALL
Reiðufé í brú n um lunslögum
Sagan er rituð árið 1960. Forsaga viðkynningar
minnar við Jón er sú, að faðir minn var hálfan
annan áratug Ioftskeytamaður á Gullfossi eldri.
I þá daga voru fjármunir yfirfærðir með öðrum
hætti en nú tíðkast, og faðir minn beðinn fyrir
sendingarnar; reiðufé í sterkum brúnum um-
slögum sem eru mér í barnsminni. Listamenn
og námsmenn í Kaupmannahöfn fengu ljár-
muni frá styrktarmönnum og skyldmennum á
Islandi með þessum hætti, og Jón Engilberts var
f hópi þeirra manna sem fyrstir urðu upp land-
ganginn við komu Gullfoss til Hafnar og upp í
íbúð föður míns í brúnni að
sækja umslögin sín, og var þá
jafnan slegið upp veislu f brúnni.
Faðir minn og Jón urðu miklir
mátar og bjó faðir minn jafnan
hjá þeim hjónum meðan skipið
stóð við í Höfn. Faðir minn flutt-
ist svo með fjölskylduna til Kaup-
mannahafnar 1936 og þar vorum
við búsett ein 2 ár og samgangur
því mikill við Jón, konu hans Tove
og dæturnar tvær.
F.kki aðeins niikill inálari
Faðir minn var svo enn starfandi
á Gullfossi þegar Þjóðverjar
hertóku Danmörku 1940 og
lögðu um leið hald á Gullfoss
sem þá Iá við bryggju í Höfn.
Áhöfn Gullfoss, Jón Engilberts og
fjölskylda, og sægur Islendinga,
sem búsettir voru á Norðurlönd-
um, komu heim með Esjunni um
Petsamó nokkrum mánuðum eftir
hernámið. Jón og Ijölskylda höfðu
til umráða herbergi í íbúð foreldra minna í
Vesturbænum fyrst eftir heimkomuna.
Jón var ekki aðeins mikill málari. Hann átti það
sammerkt með mörgum í þeirri stétt að segja sög-
ur betur en aðrir menn. Og hann velti sér svo
sannarlega uppúr sjó minninganna þá átta mán-
uði sem verkið tók og skipti sér ekkert af efnis-
tökum mínum. Hann málaði sfn verk eftir sínu
höfði og hafði fullan skilning á rétti mínum til
hins sama í mínu fagi,“ segir Jóhannes. Hann
situr nú við að semja leikrit, sviðsyerk, og kveðst
ljúka því síðsumars, ef guð Iofar. -PJESTA
■ FRÁ DEGI TIL DAGS
Forvitnin sjálf er flestum efnum for-
vitnilegri. - Broddi Jóhannesson
Þetta gerðist 8. apríl
• 1571 var Guðbrandur Þorláksson vígð-
ur Hólabiskup.
• 1989 var fyrsta Bónusverslunin opnuð
í Reykjavík.
• 1904 undirrituðu Bretar og Frakkar
sögulegan samning um Iausnir á öllum
helstu deilumálum sínum.
• 1946 var haldínn síðasti fundur Þjóða-
bandalagsins sáluga í Genf.
• 1966 var Leonid Bresjnef kosinn aðal-
ritari Kommúnistaflokks Sovétríkjanna.
• 1993 hlaut Makedónía, sem formlega
heitir „Fyrrverandi júgóslavneska lýð-
veldið Makedónía", aðild að Samein-
uðu þjóðunum.
• 1986 var Clint Eastwood kosinn borg-
arstjóri í Carme) í Kaleforníu, og
gegndi því embætti í tvö ár.
• 1973 lést í Frakklandi málarinn Pablo
Picasso, 91 árs að aldri.
Þau fæddust 8. apríl
• 1605 fæddist Filipus IV. Spánarkonungur.
• 1818 fæddist Kristján IX. Danakóngur.
• 1859 fæddist þýski heimspekingurinn
Edmund Husserl.
• 1912 fæddist norska skautadrottningin
Sonja Henie.
• 1919 fæddist Ian Smith, sem lengi vel
var forseti hvíta minníhlutans í
Ródesíu, sem nú heitir Simbabve.
• 1938 fæddist Kofi Annan, aðalritari
Sameinuðu þjóðanna.
• 1947 fæddist enski rokksöngvarinn
Steve Howe.
• 1963 fæddist Julian Lennon, sonur
Johns og Cynthiu.
Vísa dagsins
Herdís Andrésardóttir kvað svo á efri árum:
Þið, sem eruð ung og frá
og engu viljið sinna,
getið ekki giskað á,
hvað gaman er að vinna.
Afmælisbam dagsins
Geir Hilmar Haarde, Ijármálaráða-
herra, fæddist í Reykjavík 8. apríl
1951. Hann lauk stúdentsprófi frá
MR 1971. Lærði stjórnmálafræði og
þjóðhagfi-æði í Bandaríkjunum. Á
námsárunum vann Geir sem blaða-
maður við Morgunblaðið á sumrin.
Að loknu námi starfaði hann sem
hagfiræðingur í alþjóðadeild Seðla-
hanka Islands og aðstoðarmaður
Ijármálaráðherra. Hann hefur setið
á þingi frá árinu 1987. Geir hefur
góða söngrödd eins og má glögglega
heyra á síðustu plötu Árna Johnsen.
Brandariim
Jón og Gunna voru að taka til í gömlu drasli
þegar Gunna rak allt í einu augun í miða
frá skóverkstæðinu í næstu götu. Sam-
kvæmt dagsetningunni á miðanum var
hann sjö ára gamall. Bæði voru þau búin að
steingleyma hvaða skór þetta voru, en
brostu í kampinn og ákváðu að Iáta reyna á
það hvort þeir væru enn hjá skósmiðnum.
Skósmiðurinn lyfti aðeins brúnum þegar
hann sá miðann, en sagði svo hinn róleg-
asti: „Við skulum athuga málið,“ og brá sér
á bak við. Eftir aðeins þrjár mínútur kom
hann aftur fram í afgreiðslu, að vísu tóm-
hentur en sagðist hafa fundið skóna.
„I alvöru," hrópaði Jón, „eftir allan
þennan tíma?“
,Já,“ svaraði skósmiðurinn, en varð svo
dálítið vandræðalegur á svipinn: „Þeir
verða tilbúnir á fimmtudaginn."